Þjóðviljinn - 27.08.1983, Síða 3

Þjóðviljinn - 27.08.1983, Síða 3
Mikil rósasýning \í Reykjavík Hvað er líf án rósa? r4iJ3£ Helgin 27. - 28. ágúst 1983 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 3 Ó mín rósin rjóð - verst að geta ekki birt myndina í lit, en ekki skortir litadýrðina á rósasýningunni í Blómavali þessa dagana. Alþingi verði kvatt saman „Þingflokkur Alþýðuflokksins skorar á ríkisstjórnina að skipa nú þegar starfs- hóp með aðild stjórnmálaflokka, lán- astofnana og áhugamanna um úrbætur í húsnæðismálum, til þess að samræma tillögur um lausn á neyðarástandi þeirra, sem nú eru að koma sér upp húsnæði." Svo segir í ályktun Þingflokks Al- þýðuflokksins sem gerð var í gær. Þar segir ennfremur að: „f ljósi þess alvar- lega ástands sem skapast hefur í húsnæðis- og kjaramálum ítrekar þing- flokkur Alþýðuflokksins þá skoðun sína, að stjórnvöldum sé ekki lengur stætt á því að hafna kröfu stjórnarand- stöðunnar um að Alþingi komi saman til þess að aflétt verði hið fyrsta ríkjandi neyðarástandi." Rósasýning mikil var opnuð í versluninni Blómaval í gær og verð- ur hún opin fram á sunnudag. Þeir sem daprir eru orðnir yflr veðrinu, efnahagsástandinu eða annarri óáran sem hina íslensku þjóð hrjá um þessar mundir, geta nú gleymt sér um stund við angan fagurra rósa og glatt augað. Þarna eru sýndar afskornar rósir af mörgum gerðum. Ingimar Sig- urðsson, brautryðjandi rósaræktar hér á landi, sýnir 18 tegundir rósa, nýjar tegundir frá Hollandi hafa verið fluttar sérstaklega til landsins og þarna gefur einnig að líta 10-15 fallegustu garðrósir Iandsins. -ast I .......... ......... Edda Þórarinsdóttir í hlutverki í Lokaæfingu Svövu Jakobsdóttur. Þjóöleikhúsiö: Fyrsta frumsýning ií Færeyjum í morgun átti hópur frá Þjóðleikhúsinu að fara til Færeyja þar sem hann ætlar að frumsýna leikrit Svövu Jakobsdóttur Lokaæfíngu. Þetta verður þannig fyrsta frumsýning vetrarins og fer fram í nýja Norðurlandahúsinu í Þórshöfn. Þar verða tvær til þrjár sýningar í boði Norðurlandahúss- ins og er raunar förin farin Þjóðleikhúsinu að kostnaðarlausu þar sem færeyska landstjórnin styrkir fyrirtækið. Seinna á svo að sýna þetta á litla sviðinu. Það eru Edda Þórarins- dóttir, Sigurður Karlsson og Sigrún Edda Björnsdóttir sem leika en leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir. Leikmynd og búninga gerir Birgir Engilberts og Ásmundur Karlsson stjórnar lýsingu. íslenskir bridgespilarar hafa aldrei fengið tækifæri sem þetta: Við efnum til viku skemmtisiglingar með M.S. Eddu og skipuleggjum tvö stórmótum borð, þar sem spilað er um ein hæstu verðlaunsemsögurfaraaf í íslenskri bridgesögu 160.000 kr. ■ Tvímenningskeppni ■ Viðkoma i Bremerhaven og Newcastle ■ Sveitakeppni ■ Lúxus aðbúnaður ■ Bridgenámskeiö ■ Verð aðeins kr. 7.800 pr. farþega í tveggja manna klefa. ■ Valkostur: 2ja nátta hótelgisting í Newcastle án aukakostnaðar. Upplýsingar og pantanir hjá Samvinnuferðum-Landsýn í Reykjavík og hjá umboðsmönnum um land allt. Spilið rétt úr draumahöndinni, - tryggið ykkur þátttöku í tíma. Samvinnuferdir- Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.