Þjóðviljinn - 16.09.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.09.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. septémber 1983 Frá Þjóðfundinum. Þá var þungt í mönnum. Gætum tungunnar Sagt var: Hann er að selja eitthvað ónýtt rusl. Rétt væri:... selja eitthvert ónýtt rusl. Vér mótmœlum allir Þjóðfundurinn var settur í Reykjavík 5. júlí 1851. Páll Melsted var sér það sjálf. En er Trampe pessi orð hefðu íslendingar forseti fundarins. Fundinum lauk með óvæntari hætti en vænst hafði heyrði hljóðið í fundarmönnum allir sem einn stundum mátt verið. Stjórnlagafrumvarpið, sem danska stjórnin lagði fyrir fundinn, sleit hann fundinum án frekari Segja síðan En það hefur nú far gerði ráð fyrir fullkominni innlimun Isiands í Danmörku. umræðna. Þá voru þau orð sögð, ist fyrir. Að sjálfsögðu voru íslensku ast á þá lausn og finnst manni nú sem síðan hafa lifað með þjóð- - mhg. fulltrúarnir ófáanlegir til að fall- að stjórnin hefði átt að geta sagt inni: „Vér mótmælum allir“. Nýtt sólkerfi að myndast? Stjörnufræðingar hafa lengi velt því fyrir sér hvort sólkerfið, sem við búum í, sé cinstætt fyrirbæri, eða hvort búast megi við því að al- gengt séað reikistjörnur hringsólist í kringum sólir. Ekki hefur verið hægt að skera úr um þetta, því að engir sjónaukar eða mælitæki gætu greint reikistjörnur við aðrar sólir, jafnvel ekki þær sem nálægastar eru okkar sólkerfi. Nýlega hafa vísindamenn þó uppgötvað fyrirbæri, sem gæti stuðlað að lausn þessa vandamáls. Mælitæki í gerfihnetti, sem breskir, hollenskir og bandarískir stjörnu- fræðingar settu á braut umhverfis jörðina í janúar til stjörnurann- sókna, hafa greint ský af smá- ögnum umhverfis stjörnuna Vega. Er talið hugsanlegt að þetta ský sé sólkerfi á fyrsta myndunarskeiði. Vega, sem er tvisvar sinnum stærri en sólin og tiltölulega nálægt okkur, því aö hún er aðeins í tutt- ugu og sex ljósára fjarlægð (næsta fastastjarnan er í 4,3 Ijósára fjar- lægð), er ung stjarna. Er aldur hennar talinn vera niinna en einn miljarður ára, en það er ekki nema fjórðungur af aldri sólarinnar. Hvernig var okkar sólkerfi, þegar sólin var á sama aldri? Flestir stjörnufræðingar telja, að í upphafi hafi sólkerfið verið risastórt ský úr lofttegundum og föstum smá- ögnum, sem snúist hafi um sjálft sig. Síðan hafi það þést og þannig hafi fyrst myndast úr því sólin og síðan reikistjörnurnar og tungl þeirra. Sú tilgáta hefur því komið fram að samskonar þróun eigi sér nú stað umhverfis stjörnuna Vega. En stjörnufræðingar eru varkárir og leggja áherslu á að of lítið sé vitað um myndun sólkerfis til að hægt sé að fullyrða nokkuð um þetta ný- fundna ský. Verður sennilega að bíða eftir því að gerfitungl verði sett á braut með enn fulikomnari stjörnurannsóknartækjum til þess að úr þessu fáist skorist. Slík tæki gætu ef til vill einnig gefið svör við því hvort truflanir þær á göngu stjörnu Barnards, sem uppgötvuð- ust 1916, stafi af því að henni fylgi sólkerfi. („Le Monde“). Þeir sem bættust í sveinahópinn. Einn vantar á myndina. Mynd: mm. Guðjón Brynjólfsson afhendir Sigurði Valgeiri Jósefssyni próf- skírteinið. Til hliðar eru Sigurður Kristjánsson og Sveinn Sæmundsson. Mynd: mm. Blikksmiðasveinum afhent prófskírteini Til hamingju drengir og stefnið hærra!“ - Segja má að blikksmiðir séu ekki fjölmenn stétt, enda tiltölu- lega ung þar sem stéttarfélög þeirra eru enn innan við 50 ára. AIIs munu um 240 menn hafa lok- ið sveinsprófi. Um miðjan 4. ára- tuginn voru starfandi 5 blikk- smiðjur og starfsmenn innan við 30. Nú eru smiðjurnar 34 og starfsmenn um eða yfir 300. Þetta segir þó ekki alla sögu þvi með tækniþróuninni hafa afköst aukist stórlega en hreint hand- verk minnkað að sama skapi. Þannig mæltist Sveini Sæ- mundssyni, forstjóra Blikksmiðj- unnar Vogs í Kópavogi á dálítilli hátíð, sem haldin var í húsakynn- um smiðjunnar er blikksmiða- sveinum, sem útskrifuðust í vor, voru afhent prófskírteini nú fyrir nokkru, en þeir voru 13 að tölu. Að hófinu stóðu sameiginlega fé- lög blikksmiða og sveina. - f blikksmiðjunum hafa að jafnaði unnið allmargir aðstoðar- menn, sagði Sveinn, - en nú er stefnt að því markvisst að minnka það hlutfall, ýmist með því að láta þá, sem lengi hafa unnið í faginu, gangast undir sveinspróf, samkvæmt lagaheimild, eða þeir fara á námssamning. Líklega fara 25-30 menn í sveinspróf í ár. Samstarf sveina og meistara hefur verið mikið á undanförnum árum. Þar má benda á samvinnu um útgáfu Blikksmiðatalsins og baráttuna fyrir réttindum fagsins í byggingareglugerð, þar sem mikið hefur áunnist þótt enn sé stórt átak eftir, m.a. að fá fjöl- mörg byggðarlög utan höfuð- borgarsvæðisins til að fara að lögum hvað viðvíkur blikksmíði. Það má segja að samstaða sé um öll réttindamál fagsins þótt deilt sé um launamál, eins og í öllum öðrum greinum. Ég vona að sá háttur, sem nú er upp tekinn við afhendingu prófskírteina, megi haldast eftirleiðis, sagði Sveinn að lokum. Guðjón Brynjólfsson, formað- Allt ígarni Föstudaginn 9. september s.l. hóf verslunin Allt í garni starf- semi sína í glæsilegum húsakynn- um í J.L.-húsinu (Eiðsgranda- megin). { versluninni sem er sú fyrsta sinnar tegundar í Vestur- bænum, verða á boðstólum inn- lent jafnt sem erlent prjónagarn, auk áhalda viðkomandi prjóna- skapnum. Þá má einnig geta þess að í versluninni er ákjósanleg að- staða til að kynna sér hinar ýmsu prjónauppskriftir. Allt í Garni mun hafa opið á eftirtöldum tímum: Mánud.-Miðvikud. 9—18 Fimmtudaga 9-20 Föstudaga 9-22 ur prófnefndar, afhenti síðan prófskírteini. Sérstaka viður- kenningu fyrir góðan árangur fengu Skúli Guðmundsson, Gunnar Valdimarsson og Björg- vin Ingvar Ólafsson. Kristján Ottósson, formaður fræðslunefndar, afhenti inn- gönguskírteini í Sveinafélagið og sagði m.a.: „Þetta próf er þýð- ingarmeira en stúdentspróf. Það er handverkið, sem þarf að efla. Ef það væri ekki fyrir hendi þá vantaði einnig allt annað og því er það að þakka að þetta land byggðist og er byggt. Sigurður Kristjánsson, for- maður Iðnfræðsluráðs, óskaði sveinum til hamingju og minnti um leið á að prófið væri aðeins áfangi. Hvað er menntun? Því hefur verið svarað svo að menntun sé það, sem stendur eftir þegar allt það er gleymt, sem hefur verið Iært. Þá stendur kjarninn einn eftir. Til hamingju, drengir, og stefnið hærra> Að lokum þakkaði Skúli Guð- mundsson fyrir hönd sveina. - mhg. Laugardaga 9—J.2 Stefanía Hrólfsdóttir og Kristín Eigendur verslunarinnar eru Kristleifsdóttir. Eigendur prjónavöruverslunarinnar Allt í garni, þær Stefanía Hrólfs dóttir og Kristín Kristleifsdóttir. Ljósm.: Gissur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.