Þjóðviljinn - 16.09.1983, Blaðsíða 16
DJODVIUINN
Föstudagur 16. september 1983
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins i síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Byggisigareitir í fyrsta áfanga Grafarvogshverfis. Svörtu rcitirnir sýna j lóðir og 10 raðhúsalóðir.Auðu reitirnir sýna þær lóðir sem ekki gengu út,
þær lóðir, scm úthlutað hefur verið til einstaklinga, samtals 64 einbýlis- j samtals 183 lóðir á móti 99 sem byggt verður á. í miðju hverfinu má sjá
liúsalóðir og 12 raðhúsalóðir. Skástrikuðu reitirnir sýna lóðir sem út- j byggingarreiti fyrir skóla, verslun og þjónustu.
hlutað hefur vcrið til byggingarsamvinnufélaga, samtals 13 einbýlishúsa- I
Skipulagsmistökin í
Grafarvogi voru til um-
ræðu á borgarstjórnar-
fundi í gærkvöidi en þar
vakti Sigurjón Pétursson
athygli á því að í fyrsta
áfanga Grafarvogshverfis-
ins eru tvær af hverjum
þremur lóðum auðar! Að-
eins hefur verið úthlutað
99 lóðum í þessum fyrsta
byggingaráfanga en 183
gengu ekki út.
Sigurjón gerði að umtalsefni
það óhagræði sem væntanlegir
húsbyggjendur verða fyrir í
þessari dreifðu byggð, þar sem
fyrirsjáanlegt er að hverfið
verður í byggingu um mörg ó-
komin ár, og til lítils fyrir þá
sem fyrstir byggja að ganga frá
lóðum sínum eða húsum utan-
húss þar sem kannski er eitt
raðhús byggt inni í miðri
lengju. Pá er augljóst að fólk
verður að sækja þjónustu og
verslun langar leiðir þar sem
hverfið verður mjög lengi að
byggjast. Kostnaður borgar-
innar af svo dreifðri byggð er
gífurlegur, sem sést best á því
að við 10 götur í þessum fyrsta
áfanga verða 1-3 hús í bygg-
ingu.
A borgarstjórnarfundinum
fluttu fulltrúar Alþýðubanda-
lagsins tillögu um að rætt yrði
við lóðarhafa í Grafarvogi með
það fyrir augum að þjappa
byggingarreitum saman, en til-
lögunni var vísað til borgar-
ráðs.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði á fundinum að haldið yrði
áfram með byggðina í Grafar-
vogi eins og ekkert hefði i skor-
ist.
-ÁI
Húsnæðismálin í ríkisstjórn:
„Ekkert gerlst”
Alexander Stefánsson fél-
agsmálaráðherra sagði í gær að
engin ákvörðun um úrbætur í
húsnæðismálum hefði verið tekin á
ríkisstjórnarfundinum í gær.
„Þetta verður áfram til umræðu og
skoðunar um helgina og verður
tekið fyrir á ríkisstjórnarfundum á
mánudag og þriðjudag.”
Alexander sagði að margt væri
til athugunar og úr vöndu að ráða
ef bæði þyrfti að leysa vandann í
fortíð og framtíð. Eins og menn
muna hefur félagsmálaráðherra og
forsætisráðherra látið í það skína
að húsnæðismálin yrði afgreidd í
þessari viku, en það verður sem-
sagt ekki fyrr en í næstu viku sam-
kvæmt síðustu fréttum. Formæl-
endur Áhugamanna um úrbætur í
húsnæðismálum vildu ekkert láta
hafa eftir sér um gang mála í gær,
en kváðust enn bíða átekta.
-ekh
Skoðanakönnun Vikunnar:
Stefna Sjálfstæðis-
flokks nýtur ekki
fylgis meðal vor
Utanríkisstefnu Sjálfstæðis-
flokksins er algerlega hafnað af
þjóðinni samkvæmt skoðanakönn-
un Vikunnar í gær. Einungis 24%
eru hlynntir Nató-ákvörðuninni
um staðsetningu kjarnorkuflauga í
Vestur-Evrópu og 32% vilja ekki
hlutleysi V-Evrópu.
Morgunblaðið, DV og aðrir
borgaralegir fjölmiðlar hér á landi
hafa dyggilega stutt stefnu Nató og
Bandaríkjanna í öllum þessum
málaflokkum, og virðist þeirri
stefnu gjörsamlega vera hafnað af
meirihluta þjóðarinnar. Þannig
hafa t.d. DV í leiðurum, Haraldur
Blöndal og Kjartan Gunnarsson
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins lýst því yfir að þeir væru
algerlega ósammála stöðvun kjarn-
orkuvígbúnaðar. í könnuninni
kemur í ljós að einungis 2% eru
sammála þessum aðiljum. -óg
í gær var haldinn fundur í húsnæði
ríkisspítalanna um áframhaldandi uppsagnir á
starfsfólki. í þetta sinn átti að fjalla um uppsagnir
ræstingarfólks. Blaðamanni Þjóðviljans var
bönnuð innganga á fundinn og stóð fulltrúi Alberts
Guðmundssonar og Matthíasar Bjarnasonar í
dyrunum til að varna blaðamanninum inngöngu.
Viðtöl við starfsfólk mötuneytanna eru á bls. 5.
Sjáeinnig leiðara.
Bæjarstjórnin
í Neskaupstað:
Mótmællr
harðlega
hernaðar-
bröltinu
Skorar á þingmenn
sína að koma í veg
fyrir hernaðar-
umsvifin
„Bæjarstjórn Neskaupstaðar
mótmælir harðlega öllum hug-
myndum um byggingu hernaðar-
mannvirkja á Austur- og Norð-
Austurlandi”, segir í ályktun sem
samþykkt var samhljóða á fundi
bæjarstjórnar 6. september sl. Síð-
an segir: „Bæjarstjórnin skorar á
þingmenn og ráðherra Austurlands
að koma í veg fyrir allar ráðagerðir
í þessa átt og skorar á aðrar
sveitastjórnir í ijórungnum að
álykta um málið í þeim tilgangi að
hindra aukin hernaðarumsvif á
þessu svæði“.
Ályktunin var samþykkt sam-
hljóða af fulltrúum Alþýðubanda-
lagsins og Framsóknarflokksins og
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu
hjá við hana. Ályktanir og áskor-
anir í svipuðum dúr hafa heyrst frá
öðrum héruðum þarsem heima-
menn óttast hernaðarbrölt á veg-
um ríkisstjórnarinnar á næstunni.
-óg