Þjóðviljinn - 16.09.1983, Side 3

Þjóðviljinn - 16.09.1983, Side 3
Föstudagur 16. septembcr 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Ragnar Ólafur Ragnar Svavar Einar Karl Hjörleifur Miðstjórnarfundur í kvöld - V erkalýðsmálaráð á morgun Úm helgina kemur miðstjórn Alþýðubandalags- ins saman til fundar og haldinn verður aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins. Á fundi miðstjórnarinnar verður fjallað um efna- hagsmál og atvinnumál. Ragnar Arnalds og Hjör- leifur Guttormsson munu hafa framsögu um þau efni. Svavar Gestsson fjallar um samvinnu vinstri manna. Einar Karl Haraldsson kynnir tillögur laga- og skipulagsnefndar og Ólafur Ragnar Grímsson skýrir frá undirbúningi landsfundar. Á laugardag hefst svo aðalfundur Verkalýðsmála- ráðsins og munu sækja hann forystumenn og trún- aðarmenn í samtökum launafólks víðs vegar af landinu. Á aðalfundinum munu Ásmundur Stefánsson og Ólafur Jóhannesson fjalla um kjarabaráttuna fram- undan. Snorri Konráðsson og Hansína Stefánsdóttir hafa framsögu um innra starf verkalýðsfélaganna. Benedikt Davíðsson flytur setningarræðu fundar- ins. Þessir tveir fundir eru fyrstu meiriháttar stjórnmálafundir Alþýðubandalagsins á þessu hausti. Þeir verða haldnir í flokksmiðstöðinni að Hverfisgötu 105. Benedikt Asmundur Ólafur Hansina Snorri Hœkkanir, hœkkanir: Læknataxtar hækka j Sovétstjórn harðlega fordæmd Lendingarbann á Sovétvélar i- Ríkisstjórnin, Farmanna- og ! fiskimannasambandið og Flugvirkja- félagið vilja refsiaðgerðir ! Kíkisstjórnin hefur ákveðið að i veita sovéskum flugvélum ekki leyfi | Ályktun ÆFAB: Gjald til sérfræðinga í lækna- stéttinni hcfur nýlega hækkað um 7,92 prósent og sömuleiðis númera- gjald og vaktgjald hjá heimilis- læknum. Að sögn Vilhjálms Ólafs- sonar hjá Hagstofunni er hér um að ræða hækkanir á gjaldi vegna hækkunar á rekstrarkostnaði hjá þessari stétt fyrir mánuðina maí- ágúst. Gjaldið hækkar hins vegar ekki hjá þeim læknum sem starfa á heilsugæslustöðum. Þá mun viðtal við heimilislækna á læknastofum hækka hinn 1. októ- ber úr 15 krónum í 25 krónur og vitjunargjald úr 30 krónum í 50 krónur. Stofugjald hjá sérfræðing- um mun hækka úr 64 krónum í 100 krónur. Að sögn Páls Sigurðssonar, ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu, hækka þessi gjöld vegna rekstarkostnaðar- hækkana og er nú verið að jafna kostnaðinn miðað við það sem hann var árið 1980. Þessar hækkan- ir koma inn í vísitöiu sem verður reiknuð út í byrjun október en óvíst er hversu miicilli hækkun þær valda á framfærsluvísitölunni. Launafólk fær þá aðeins 4 prós- enta hækkun á launum til þess að mæta þessum hækkunum sem öðr- um rekstrarkostnaðarhækkunum frá því í mars, en þá var kaup- gjaldsvísitölunni kippt úr sam- bandi í raun. ast. ! Á morgun kl. 14.00 í Fs. E1 Salvadornefndin með fræðslufund El Salvador-nefndin á íslandi heldur fræöslufund á morgun kl. ; 14.00. Kúbufarar frá því í sumar segja frá ferðum sínum og fjallað , verður um starfið framundan. - óg. Enn semur Nordal af sér „Enn einu sinni hefur íslensk rík- isstjórn beygt sig fyrir hagsmunum Alusuissc á kostnað innlendra raf- orkukaupenda", segir í yfirlýsingu Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda- lagsins í tilefni álpappírsins frá Zúrich. Síðan segir: „Æskulýðsnefnd Alþýðubanda- lagsins fordæmir harölega það bráðabirgðasamkomulag sem nú hefur verið staðfest af ríkisstjórn Islands og felur í sér áframhaldandi niðurgreiðslur almennings á raf- orku til svissneska auðhringsins Alusuisse. Æskulýðsfylking Alþýðubanda- lagsins átelur harðlega þau vinnu- brögð sem ríkt hafa við samninga- gerðina og þá leynd sem hvílt hefur yfir henni. Það er ljóst að í þriðja sinn hefur samninganefnd undir forystu Jó- hannesar Nordal látið Alusuisse leika á sig. Honum tókst ekki að leiðrétta raforkuverðið til ÍSAL, hann samdi af sér. Reykjavík 13. september. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins. “ til lendingar á íslenskum flugvélum né til flugs í lofthclgi íslands á tíma- bilinu 15. september til 29. scpt- ember. Þessi ákvörðun er tekin „með hliðsjón af milliríkjasam- ráði“ að því er segir í fréttatilkynn- ingu frá ríkisstjórninni. I fréttatilkynnmgu ríkisstjórnar- innar segir að hún vilji með þessu leggja áherslu á algjöra nauðsyn þess að öryggi í farþegaflugi sé tryggt - og að slíkur atburður end- urtaki sig ekki. Fáheyrð villimennska „Flugvirkjafélag íslands harmar og lýsir hér með vanþóknun sinni á þeirri fáheyrðu villimennsku sov- éskra stjórnvalda að láta skjóta niður farþegaflugvél í áætlunar- flugi og granda henni ásamt farþeg- um og áhöfn, jafnvel þótt hún kunni að hafa villst inn í sovéskt yfirráðasvæði", segir í fréttatilk- ynningu frá Flugvirkjafélaginu. Skorar félagið á stjórnvöld að bregðast hart við. Þá hefur og borist fréttatilkynn- ing frá Farmanna- og fiskimanna- sambandi íslands um hinn voveif- lega atburð. Þar segir að Alþjóöa- samband flutningaverkamanna hafi vegna árásar sovéskra flugvéla á farþegaþotuna fordæmt atburð- inn og lýst vanþóknun sinni í skeyti til Andropovs leiðtoga Sovétríkj- anna. Alþjóðasambandið sem Far- manna- og fiskimannasambandið er aðili að, krefst rannsókna á at- burðinum og refsiaðgerða sem beint yrði að Sovétstjórninni. „Hegðan sovésku stjórnarinar frá því harmleikurinn átti sér staö sýnir ómannúðleg viðbrögð þeirra", segir í fréttatilkynningu frá Farmannasambandinu. -óg. Viðskiptabankar taka 26 kr. fyrir að senda bréfí pósti en pósturinn 6.50 Mörg ný gjöld og Þjónustugjöld bankanna hækkuðu 1. september sl. í sam- ræmi við hækkun póstburðar- gjalda, en síðustu vikur hefur al- menningur verið að átta sig á ýmsum nýjum þjónustugjöldum sem þessar stofnanir eru farnar að taka m.a. fyrir póstsendingar, símaþjónustu, Ijósritun og fyrir að útbúa skuldabréf fyrir lántak- endur. ÖII gjöld sem viðskiptabank- arnir taka fyrir sína þjónustu og eru bundin vöxtum eða metin sem ígildi vaxta er ákVeðin hverju sinni af Seðlabanka. Önnur þjón- ustugjöld ákveða viðskiptabank- arnir hins vegar sín í milli og fá blessun bankaeftirlitsins og upp- áskrift Seðlabankans. í maí sl. kom svokölluð af- komunefnd banka og sparisjóða sér saman um að samræma þessi þjónustugjöld og var þá ýmsum nýjum gjöldum bætt við sem áður sagði og önnur hækkuð snarlega sbr. ávísana- og hlaupareiknings- hefti. 208 kr. fyrir að vélrita Meðal þeirra nýju gjalda sem komið var á í sumar eftir að Seðlabankinn hafði legið yfir þeim í rúman mánuð og síðar samþykkt er sérstakt gjald fyrir að útbúa skuldabréf eða tryg- gingarbréf. Eftir síðustu hækkun núna um mánaðamótin kostar þessi vinna 208 kr. Sömu upphæð þarf að borga ef viðskiptabanki Stjórn Neytendafélags Reyicjavíkur og nágrennis hefur sent frá sér ályktun þar sem mælt er harðlega þeirri auknu gjald- töku sem samvinnunefnd banka og sparisjóða hefur ákveðið á bankaþjónustu. „Á sama tíma og bann er lagt við launahækkunum í landinu og landslög banna breytingar á álagningarreglum og greiðslu- útbýr veðleyfi, veðbandslausn eða breytingu á skilmálum. Fyrir umbeðna tilkynningu símleiðis þarf nú að greiða 20 kr. í útlagðan kostnað og 26 krónur fyrir umbeðna póstsendingu á kvittun vegna t.d. millifærslu á kjörum í óhag neytenda ganga bankar á lagið og auka stórlega gjaldtöku sína“, segir í ályktun- inni. „Stjórn NRON fordæmir einn- ig þá aðgerð sem notuð er við setningu þessara nýju reglna. Viðskiptamenn bankanna eru ekki taldir þess verðir að fá vitn- eskju um þessar reglur, heldur er þeim lætt inn bakdyramegin. hærra milli banka- og ávísanareiknings. Póstburðargjald fyrir slíka al- menna bréfasendingu er hins vegar kr. 6.50. Ef bankinn sendir í ábyrgð kostar sendingin með öllu álögðum kostnaði 40 kr. Fyrir ljósritun á einu eintaki skal borga 7 kr. Vart eru vinnubrögð sem þessi í samræmi við ákvæði laga um bann við samkeppnishömlum sem ætlað er að koma í veg fyrir samtfyggingu einokunaraðila svo sem hér hefur gerst. Auk þess virðist hér um að ræða augljóst brot á bráðabirgðalögum um verðlagsmál frá því í maí sl.“ segir að lokum í ályktun Neytendafé- lags Reykjavíkur og nágrennis. - lg- Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis: Stóraukinni gjaldtöku banka harðlega mótmælt verð Onnur gjöld Önnur þjónustugjöld viðskipta- bankanna eru m.a. útvegun veð- bókarvottorðs og umsjón með þinglýsingu, 33 kr. hvort um sig. Fyrir innheimtu með árangri 160 kr. og árangurslausa.120 kr. Fyrir útvegun samþykkis á skuldarsk- jali 40 kr. í þóknun og aðrar 40 í kostnað samtals 80 krónur. Við- bótargjald vegna vanskila 26 krónur og ítrekuð tilkynning 52 kr. Fyrir viðtöku geymslufjár (depositum) skal greiða í út- lagðan kostnað 208 kr. Ávísana- og hlaupareiknings- hefti með 25 blöðum kostar nú 65 kr og útlagður kostnaður vegna innistæðulauss tékk er metinn á 103 kr. Ekkert auglýst opinberlega Það sem skiptir þó ekki minnstu máli er að stór hluti þess- ara þjónustugjalda hefur hvergi verið auglýstur opinberlega fyrir almenningi heldur liggja gjald- skrár banka og sparisjóða fyrir innan afgreiðsluborð ef einhverj- um dytti í hug að spyrja nánar út í þessa verðlagningu. - lg.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.