Þjóðviljinn - 14.12.1983, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — Bókablað Þjóðviljans
Bókablað Þjóðviljans — SÍÐA 11
Gledjum aðra
með góðum
bókum
ÁRBÓK ÍSLANDS 1982. Hvað
gerðist á íslandi 1982, eftir Steinar
J. Lúðvíksson. Árbækur íslands
geyma ítarlega og skipulega fram-
setta samtímasögu íslenskra við-
burða í máli og myndum. Vandað-
ar og fallegar bækur sem vaxa að
heimildargildi með árunum.
SÓL ÉG SÁ. Síðara bindi hinna
opinskáu endurminninga Stein-
dórs Steindórssonar frá Hlöðum.
Þessi bók verður örugglega jafn-
umtöluð og hin fyrri því Steindór
fjallar af sama hispursleysi um
menn og málefni og dregur ekkert
undan þegar hann segir skoðun
sína.
ÞRAUTGÓÐIR Á RAUNA-
STUND. 15. bindi björgunar- og
sjóslysasögu íslands, eftir Steinar
J. Lúðvíksson. Þetta bindi fjallar
um árin 1962 og ’63. M.a. er sagt
frá því er togarinn Elliði fórst, frá
strandi Skjaldbreiðar, mannskaða-
veðrinu í apríl ’63 og hrakningum
þýska togarans Trave við Vest-
mannaeyjar.
LANDIÐ ÞITT ÍSLAND, S-T,
fjórða bindi, eftir Þorstein Jóseps-
son og Steindór Steindórsson.
Þetta bindi hefst á orðinu Safamýri
og lýkur á Tyrðilmýri. Margir
merkustu sögustaðir landsins eru
einmitt í þessu bindi sem er prýtt
hátt á þriðja hundrað litmyndum.
FERÐABÓK SVEINS PÁLSSON-
AR 1791—’97. Dagbækur og rit-
gerðir ásamt litprentuðum upp-
drætti Sveins af Skaftáreldahraun-
inu og Eldsveitunum. Það voru
þeir Jón Eyþórsson, Pálmi Hannes-
son og Steindór Steindórsson sem
þýddu Ferðabókina, en Tryggvi
Magnússon myndskreytti.
LEIÐ TIL BÆTTRAR HEILSU.
Matreiðslubók með mörghundruð
lúffengum og trefjaríkum réttum.
Jónína Benediktsdóttir, leikfimi-
kennari Útvarpsins segir: „Þetta er
frábær bók fyrir alla þá sem vilja
styrkjast og grennast um leið á
heilsusamlegan hátt.“
HEIMSSTYRJALDARÁRIN Á ÍSLANDI 1939-1945, eftir Tómas Þór
Tómasson. Heimsstyrjaldarárin síðari mörkuðu á margan hátt tímamót í
íslenskri þjóðarsögu. Á skömmum tíma sogaðist ísland inn í hringiðu, ekki
aðeins styrjaldarátaka, heldur einnig inn í nýtt tímabil sem hafði djúpstæð
áhrif á menningu, atvinnu, efnahagslíf og stjómarfar í landinu. í bókinni er
rakinn gangur mála allt frá byrjun til enda styrjaldarinnar og m.a. fjallað
um atvinnubyltingu í kjölfar hemámsins og sagt frá sambýlinu við her-
námsliðið og vandamálum sem því fylgdu. í bókinni er fjöldi ljósmynda og
hefur stór hluti þeirra hvergi birst áður. Skýra þær vel efni bókarinnar og
veita innsýn í þá þjóðlífsbyltingu sem varð á þessum ámm.
Viltu kynnast íslandi stríðsáranna, fá að vita hvað í raun gerðist á bak við
tjöldin fýrir og eftir hemám? Þá er þetta bókin.
ÁFRAM SKRÖLTIR HANN ÞÓ.
Lífsævintýri Páls Arasonar fjalla-
bílstjóra í byggðum og óbyggðum.
Páll er löngu landsþekktur ævin-
týramaður og frumherji í fjallaferð-
um. Hann var í hópi þeirra sem
fyrstir lögðu á öræfin á bifreiðum.
Bókin er sneisafull af sögulegum
myndum.
TOGARASAGA MAGNÚSAR
RUNÓLFSSONAR, skráð af Guð-
jóni Friðrikssyni. Þetta er saga ís-
lensks afreks- og aflamanns og
jafriframt saga gömlu síðutogar-
anna. „Það er saltlykt og tjöruang-
an af þessari togarasögu," segir
Erlendur Jónsson í ritdómi í Mbl.
Bílar á íslandi
í myndum og máli 1904-1922
KKISTJXN SNI-I ANO
BÍLAR Á ÍSLANDI1904-1922 í MYNDUM OG MÁLI, eftir Kristinn Snæ-
land, en hann er kunnur áhugamaður um gamla bíla og sögu þeirra. Krist-
inn tók bókina saman að frumkvæði Fombílaklúbbs íslands. í bókinni er
greint frá innreið bílanna í landið og hvemig þeir festu sig hér í sessi og
hvemig bylting varð í samgöngumálum þjóðarinnar með tilkomu þeirra. í
bókinni er mikill fjöldi gamalla ljósmynda sem margar hverjar hafa hvergi
birst áður, en sérstætt samspil mynda og meginmáls varpa ským og
skemmtilegu ljósi á þessi bemskuár bílanna á íslandi. Ef nútímamál úr
heimi bílanna væri notað um þessa bók, þá mætti segja að það sé SPYRNA
SPJALDANNA Á MILLI í þessari bók.
GUÐLAUGS SAGA GÍSLASON-
AR - ENDURMINNINGAR FRÁ
EYJUM OG ALÞINGI. Guðlaugur
segir frá uppvexti og afskiptum af
bæjarmálum í Eyjum, kynnum sín-
um af Ólafi Thors, Bjama Bene-
diktssyni og fleiri stjómmála-
mönnum og fjallar opinskátt um
andrúmsloftið í þingflokki sjálf-
stæðismanna 1959—1978.
HORNSTRENDINGABÓK - hið
sígilda þriggja binda ritverk Þór-
leifs Bjamasonar. Nú með fjölda
nýrra litmynda, auk hinna sögu-
legu mynda frá síðustu ámm
byggðar á Homströndum. Hér seg-
ir frá mannlífi og harðri lífsbaráttu,
sérstæðri menningu og einkenni-
legum háttum.
FJALLAMENNSKA, eftir Ara
Trausta Guðmundsson og Magnús
Guðmundsson. Þetta er ekki bara
bók fyrir þá sem vilja klífa hæstu
tinda og jökla, heldur einnig fyrir
hina sem hyggja á venjulegar
gönguferðir. Bent er á hvemig eigi
að vaða ár, forðast snjóflóð o.fI.
Fjöldi skýringarmynda.
LÆRIÐ AÐ KAFA er alhliða
kennslubók í köfún sem Gunnar
Karl Guðjónsson hefur þýtt úr
sænsku, en bókin er gefin út að
frumkvæði Slysavamafélags ís-
lands. Efrii bókarinnar er mjög
skipulega uppsett og fjöldi frá-
bærra mynda eykur skilning les-
andans.
-------- _
i-m
£-410
£-ioo
HJÓMMNÖA
MARGRETAR
ÞORBJARGAR
OG
THORSJENSEN
*Xabóka
kvnning
Arnarog ör/yg
ELLEFU LÍF — endurminningabók Brynhildar Georgíu Bjömsson skráð
af Steingrími Sigurðssyni. Hér er um að ræða bók sem teljast verður ein-
stök meðal æviminningabóka, fyrst og fremst vegna þess að sú er segir frá,
Brynhildur Georgía Bjömsson, bamabam fyrsta forseta íslands, hefur lifað
stórbrotnara og ævintýraríkara lífi en flestir aðrir. Hún hefur lifað af tvær
morðárásir, tvisvar orðið skipreika og á að baki fjögur hjónabönd. Sem
unglingur kynntist hún miskunnarleysi og grimmd seinni heimsstyrjaldar-
innar eins og hún var verst. Að lokinni hverri orrustu hennar hefúr ný
tekið við og spumingunni um sigur eða tap getur hún best svarað sjálf og
gerir raunar í bókinni.
VARSTU AÐ FÁ HANN? Sautján
kunnir laxveiðimenn segja Guð-
mundi Guðjónssyni blaðamanni
frá ævintýrum sínum og hafa af
mörgu að taka. Glímurnar við
stórlaxana eru oft strangar og
veiðisögur lygilegar þótt þær séu
sannar.
TÖLVUR — lýsing á tölvum og
tölvutækjum í litum fyrir byrjend-
ur á öllum aldri, eftir Brian Reffin
Smith í þýðingu Páls Theódórs-
sonar eðlisfræðings. Útskýrt er á
einfaldan hátt hvernig tölvur
vinna. Innri gerð tölvanna er út-
skýrð og notkun þeirra, allt frá
tækni og vísindum til leikja og
listhönnunar.
BLYANTA-, BLAÐA- OG ORÐA-
LEIKIR, eftir Svend Novmp í
bókaflokknum SPILABÆKUR ARNAR
OG ÖRLYGS. Kenndir em leikir sem
veitt geta bæði yngri og eldri mikla
ánægju og dægradvöl. Allt sem
þarf er blað, blýantur, hugmynda-
flug og keppnisskap.
NIÐJATAL HJÓNANNA
MARGRÉTAR ÞORBJARGAR OG
THORS JENSEN. Tómas Hall-
grímsson skráði. í ritinu er getið
250 afkomenda hjónanna og maka
þeirra og er þar að finna ítarlegar
upplýsingar um hvern og einn.
Thor var mikill athafna- og fram-
kvæmdamaður og böm þeirra
hjóna flest þjóðkunn.
ÖRN&ÖRLYGUR
Síðumúla 11, simi 84866
ÍSLANDSMETABÓK ARNAR OG ÖRLYGS, eftir
Steinar J. Lúðvíksson fjallar um margskonar atriði
sem telja má sérstæð íslandsmet og snerta landið,
mannlífið og náttúruna. Hér kennir margra grasa
og fást svör við ýmsum spurningum um ÍSLAND
og ÍSLENDINGA. Hvað var fyrst — síðast, stærst
— minnst, hæst — lægst, breiðast — mjóst, yngst
— elst, best — verst, grynnst — dýpst, lengst —
styst o-s.frv.
BLYáNTk
BLAÐKOG
ORÐMSlKm
Spll8b»K»« Arnar og örfyg*
SteÍnarlLúóvfksson
íslands
vww?°í
ogOrtygs
Arnav