Þjóðviljinn - 14.12.1983, Blaðsíða 14
14 SÍÐA - Bókablað Þjóðviljans
Ljóðabœkur
VÍKURÚTGÁFAN
Spámaðurinn
eftir Kahlil Gibran. Gunnar Dal
þýddi. Þessi heimsfrægu ljóð eru
nýlega komin út í fimmtu útgáfu á
íslensku. 105 bls.
Verð kr. 247.-
Víkurútgáfan.
Úrval Ijóða
Einars Braga
Einar Bragi er sá af nútíma-
skáldum okkar sem ort hefur af
hvað mestum ljóðrænum þokka.
Ljóðasafn hans frá meira en þrjátíu
ára tímabili ber vott um þrotlausa
rækt við hina viðkvæmu list Ijóðs-
ins, fágæta smekkvísi og harða
ögun máls og myndgerðar. í bók-
inni eru einnig ljóðaþýðingar.
Fimmta bókin í ljóðasafni helstu
samtímaskálda. Fagurlega mynd-
skreytt af Ragnheiði Jónsdóttur
myndlistarmanni. Dýrmætur feng-
ur öllum ljóðavinum.
Verð kr. 778.00.
Iðunn.
New York
Ljóð eftir Kristján Karisson.
Þriðja ljóðabók höfundar, mikill |
skáldskapur og gleðilegt vitni um
frumleg efnistök og grósku í ís-
lenskri ljóðagerð. 72 bls.
Verð kr. 494. -
LJÓÐ
JVIIMUNDAK
VUMUHDUR CTl UAfOX
j imtm. m?
fr, ' ÍU'"-
' uwPpÆ-f, tHh- ■>, j f *
;W íuli ÍVTJJr0^f-....."Wf,-
7: -MWSMrVMii
i %
Ljóð VHmundar
Ljóð eftir Vilmund Gyifason.
í þessari bók eru prentaðar þær
tvær ljóðabækur sem Vilmundur
Gylfason sendi frá sér í lifanda lífi
og auk þeirra viðauki með miklu
Ijóði sem skáldið hafði fullgengið
frá til prentunar. 120 bls.
Verð kr. 648.50.
Almenna bókafélagið.
JAKOI3INA .
SICiURÐAKDÓTTIR
Kvæði
Ljóðabók Jakobínu Sigurðardótt-
ur hefur lengi verið ófáanleg en er
nú komin aftur, aukin nýjum
kvæðum. 154 bls.
Verð kr. 494.
Mái og menning.
36 Ijóð
Hannes Pétursson
Þessi nýja ljóðabók Hannesar er
viðburður ársins á sviði skáld-
skapar. Skáldið beinir augum að
stundum sem það hefur lifað og
magnar með nærfærinni orðlist upp
í minnilega listræna skynjun.
Um bókina hefur Heimir Pálsson
sagt í ritdómi: „Hér þykir mér er-
indi skáldsins bæði mikið og mikil-
vægt því það er beinlínis lífsháski í
þessari bók. Hún fjallar á lágmælt-
an hátt um það sem hvern mann
varðar mestu.“
Verð kr. 494.00.
Almenna bókafélagið.
iðunn.
MANNHEIMAR
HEIÐREKUR GUÐMUNDSSON
Mannheimar
Úrval úr Ijóðum Heiðreks Guð-
mundssonar.
Gísli Jónsson valdi ljóðin.
Heiðrekur er eitt af okkar bestu
skáldum af eldri kynslóð. Valið er
úr öllum 6 ljóðabóícum hans og auk
þess eru 3 ný ljóð í bókinni. 175 bls.
Verð kr. 648.50.
Almenna bókafélagið.
YSíflNN AORV-AIOSSON ANNAOIST 07CÁ/UN
Nýgræðingar
í Ijóðagerð
Eysteinn Þorvaldsson safnaði
Dýrmætur fengur öllum áhuga-
mönnum um ljóðlist. Bókin geymir
úrval úr ljóðum skálda sem fram
komu á árabilinu 1970-1981. í bók-
inni eru ljóð eftir 36 skáld, skipt í
efnisflokka. Einnig ritar Eysteinn
ýtarlegan inngang að safninu þar
sem hann gerir grein fyrir einkenn-
um ljóðanna.
Verð kr. 389.00.
Iðunn.
Orðspor daganna l
eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur.
Fyrri ljóðabók Ingibjargar Har-
aldsdóttur hét ÞangaS vil ég fljúga
og kom út 1974. Þessi nýja bók
kom út í vor og hefur hlotið góðar
umsagnir í dagblöðum. Skáldið
heldur hér áfram að rekja spor
daga sinna í orðum. í lok fyrri bók-
ar var hún stödd á fjarlægum slóð-
um þar sem hún var ekki hagvön
þótt hún ætti þar búsetu; í þessari
nýju bók býr hún þar enn í byrjun
en norðlæg héruð laða hana til sín,
þótt þar sé kalt, oft bæði hið ytra og
innra. Ljóð Ingibjargar eru per-
sónuleg og skrumlaus, „... þar er
ekki farið með neitt það sem ekki
er innistæða fyrir.“ (ÁB, Þjv.).
Verð kr. 247.-
Mál og menning.
S
Ymsar
Nærmyndir
Úrval úr hinum opinskáu og um-
töluðu Nærmyndum Helgarpósts-
ins. Fimmtán þjóðkunnum samtíð-
armönnum okkar eru gerð óvenju-
leg skil, reynt að komast að eðlis-
þáttum þeirra og kynnast hæfi-
leikum þeirra og vericum. Margir
gefa þeim einkunnir og segja álit
sitt á þeim.
Verðkr. 788.-
Vaka.
Kvðldgestir
Jónasar
Jónassonar
Kvöldgestir eru eitthvert vinsæl-
asta útvarpsefni sem flutt hefur
verið hin síðari ár. Úrval samtala
Jónasar Jónassonar úr þessum
hugljúfu síðkvöldsþáttum birtist í
þessari bók. Kvöldgestirnir ræða
opinskátt um líf sitt, reynslu og
áhugamál. Mikill fjöldi mynda gef-
ur efninu aukið gildi.
Verð kr. 848.-
Vaka.
*»**» ttm «y*t»r»uw ÞíUr o*t BfAoeu lo<IJ*íWiÞ»r«l«
tri Kohuubiu, •«« AmkIo heifftih hji trihwknm Ö
Útigangsbörn
eftir Dagmar Galin.
Þetta er sönn frásögn af systrunum
Pilar og Blöncu, líka af Antnio, og
bœkur
hinum indíánabörnunum frá Kol-
umbíu, sem voru svo heppin. Þau
fundu heimili hjá frönskum fjöl-
skyldum. Þó Kolumbía sé auðugt
land er samt fjöldi heimilislausra
blásnauðra barna, sem ráfa um,
stela úr öskutunnum sér til matar,
og sofa úti undir berum himni.
Meðal þeirra voru Pilar og Blanca,
fimm og tæplega þriggja ára. En
þær lifðu af, og búa nú í Frakk-
landi. Þetta er frábær bók, sem
segir frá reynslu systranna í blíðu
og stríðu.
Verð kr. 296.-
Skjaldborg.
Hvað segja
stjörnurnar
um þig?
Aðgengilegar nútímaspár gerðar á
grundvelli aldagamalla fræða
stjörnuspekinnar Grétar Oddsson
tók bókina saman, en Gunnar
Baldursson sá uin myndskreyting-
ar. Spár fyrir einstök stjörnumerki
og nánari spár eftir fæðingar-
dögum.
Verðkr. 348.-
Vaka.
EDDA BJÖRGVINSOÓTTIR og
HEU3A THORBERG
Elli
Elli er í hæsta máta óvenjuleg bók
um persónu, sem flestir telja sig
þekkja en enginn veit í raun hver
er. Höfundar bókarinnar eru þær
Edda Björgvinsdóttir og Helga
Thorberg og er bókin byggð á hin-
um feiknavinsælu útvarpsþáttum
þeirra, Á tali. Myndskreytingar:
Ragnheiður Kristjánsdóttir.
Verð kr. 448.-
Vaka.