Þjóðviljinn - 14.12.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 14.12.1983, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — Bókablað Þjóðviljans Ævisögur og endurminningar Minningar frá morgni aidar Minningar Geirs Sigurðssonar frá Skerðingsstöðum í Dalasýslu. Höfundur hefur glöggt minni á iöngu liðnum tíma. Bókin er lið- lega skrifuð og segir höfundur frá ýmsum minnisstæðum atburðum og fólki. Bókin er myndskreytt. 173 bls. Verð kr. 494.- Víkurútgáfan Úðurinn til Söru eftir Paula D’Arcy. Torfi Ólafsson íslenskaði. Hér er á ferðinni áhrifamikil og einstæð bók, dagbókarþættir ungrar móð- ur, sem hún skrifar dóttur sinni. i Þetta er bók sem verður öllum ó- gieymanleg. 132 bls. Verð kr. 395.- Víkurútgáfan Arngrímur máiari Kristján Eldjárn Hann hét Arngrímur og var Gísla- son. Norðlenskur listamaður á öld- inni sem leið. Hann var óvenju fjölhæfur maður en fyrst og fremst var hann þekktur sem ARNG- RÍMUR MÁLARI. Saga hans er heiilandi dæmi um háa menningar- viðleitni og óslökkvandi fegurðar- þrá við erfiðar ytri aðstæður, saga sem engan lætur ósnortinn. Bók Kristjáns Eldjárns fjallar ýtarlega um ævi þessa fjölhæfa manns og er um leið vandað fræðirit um lítt þekktan kafla í íslenskri menning- ar- og myndlistarsögu. Arngrímur málari er óvenju fögur bók, prýdd fjölda mynda, m.a. litmyndum af öllum myndverkum Arngríms sem náðst hefur til. Iferð kr. 1447.40. SAFN ENDURMINNINGA GILS GUÐMUNDSSON VALDI EFNIÐ Mánasilfur Gils Guðmundsson tók saman Mánasilfur - fimmta og síðasta bindi í einstæðu safni íslenskra endurminningaþátta. I bókinni eru 34 frásagnir, jafnt af broslegum sem harmsögulegum atvikum, skráðar af fólki úr ýmsum stéttum. Minnisstæð bernskureynsla, spaugilegur framboðsfundur, afar sérkennileg ástarsaga. Er þá fátt talið af fjölbreyttu efni bókarinnar. Mánasilfur geymir perlur íslenskr- ar frásagnarlistar, valdar af Gils Guðmundssyni. Skuggsjá mannlífs fyrri tíðar sem ungir og aldnir lesa sér til ánægju og fróðleiks. Verð kr. 848.45. Iðunn. Með viljann að vopni í þessari bók Kjartans Stefáns- sonar er sögð lífssaga Guðmundar Guðmundssonar í Víði. Saga stór- huga og dugandi athafnamanns. Guðmundur missti sjónina á barns- aldri en lét hvorki það né annað mótlæti buga sig og rekur nú stær- stu húsgagnaverksmiðju landsins. Fjölmargar myndir. Verð kr. 848.- Vaka. Komiði sæl Opinská og hressileg samtalsbók Vilhelms G. Kristinssonar við Sig- urð Sigurðsson. Sigurður talar tæp- itungulaust um menn og málefni, ekki síst það sem gerðist á bak við tjöldin í útvarpi og sjónvarpi þá áratugi sem hann starfaði hjá þeim stofnunum. Ríkulega mynd- skreytt. Verð kr. 848.- Vaka. í víti eiturlyfja Birthe E. Christensen Saga þessi er óhugnanleg frásögn ungrar danskrar stúlku sem ánetj- ast eiturlyfjum fimmtán ára gömul. Birthe Christensen lýsir lífi sínu í „sjö ára helvíti sem djönkari og hóra“, og hvernig hún sneri við blaðinu. Einlæg og opinská saga, skrifuð handa þeim sem ekki þekkja vonleysi óviðráðanlegrar fíkniefnaneyslu. En Birthe slapp úr víti eiturlyfja og hafði þrek til að skrifa þessa bók: „Rístu upp kona og sýndu hvað í þér býr“. Verð kr. 444.60. Iðunn. Jakobsglíman Þriðja bindi uppvaxtarsögu Sigurð- ar A. Magnússonar, framhaldið af J Undir kalstjörnu og Möskvum morgundagsins. Sagan nær yfir þrjú átakaár í lífi söguhetju þegar hann reynir að komast til mennta og ná fótfestu í KFUM. Næm lýs- ing á viðkvæmu skeiði. 260 bls. Verð kr. 648. Mál og menning. Gerska ævintýrið Minnisblöð Halldórs Laxness úr Rússlandsferð árið 1937. Halldór segir hér frá réttarhöldunum miklu í Moskvu þá um haustið, sem hann var viðstaddur, einnig frá ferða- lögum sínum um austurhluta Ráðstj ómarríkjanna. Bókin kom fyrst út árið 1938. Vakti hún þá mikla athygli og seldist fljótt upp og hefur verið ófáanleg þar til nú. Höfundur ritar formála annarrar útgáfu. Bókin er 218 bls., prentuð í Vík- ingsprenti og bundin hjá Bókfelli hf. Ragnheiður Kristjánsdóttir auglýsingateiknari gerði kápu. Verð kr. 790.- Helgafell. Dagbók Önnu Frank Sönn frásögn óharðnaðs unglings í vittfirringu stríðsins. Anna var ung stúlka af gyðingaættum sem í tvö ár leyndist í felum í Amsterdam með fjölskyldu sinni. I dagbókinni segir hún frá þessari dvöl af þeim næm- leik sem fáa lætur ósnortna. Hún lét lífið í fangabúðum nasista en dagbókin fór mikla sigurför um heiminn. Nú er þýðing sr. Sveins Víkings endurútgefin. Dagbók Önnu Frank er átakanleg heimild um eitt svartasta skeið sög- unnar. Verð kr. 548.35. Iðunn. Bjarni Benediktsson Ólafur Egilsson annaðist útgáfuna. Sextán þættir um þjóðskörunginn Bjama Benediktsson. Höfundar þessara þátta þekktu allir Bjarna náið og störfuðu flestir með hon- um. Hver þáttur fjallar um ákveðið tímabil eða viðfangsefni svo að í heild mynda þeir nokkuð sam- fellda sögu. Almenna bókafólagið. Nú er fleytan í nausti Andrés Finnbogason segir frá. Viðtöl við þekktan skipstjóra, sem flestir þekkja ef ekki af afskiptum hans af sjómennsku, þá sem staffs- mann loðnunefndar. Þetta er ram- míslensk sjómannasaga, um margbrotið líf þeirra er stunda sjó- mennsku. Bókin er fróðleiksnáma um útgerð og sjósókn frá Reykja- vík í fjórá áratugi. Verð kr. 679.- Jón Gísli Högnason MINNINGAIVETTIR SAMFERDAMANNA Gengnar leiðir Jón Gísli Högnason skrásetti. Þetta em minningaþættir átta sam- ferðamanna. Einkum er sagt frá fólki á Suðurlandi og þróun byggða þar. Mikill fjöldi Ijósmynda og ítar- leg nafnaskrá. Stórfróðleg bók. Verð kr. 697.80. Bókaforlag Odds Björnssonar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.