Þjóðviljinn - 14.12.1983, Blaðsíða 18
18 SÍÐA — Bókablað Þjóðviijans
Ármúli 36, sími 83195
Höfundar bókanna
Jóhannes Helgi og
dr. Benjamín.
Upptaka á kassettunum Spámaðurinn og Suðurnesjaljóð og lög frá liðnum árum. Söngvarar Árni Tryggvason og Jón Sigur-
björnsson. Ljóöalestur: Jón Atli Jónasson, Jónína H. Jónsdóttir, Kristinn Reyr. Hljóðfæraleikarar: Eyþór Þorláksson, Reynir
Jónasson. Kvæðamaður Kjartan Hjálmarsson. Inngangur: Páll Steingrímsson.
Heyrt og séð, eftir Jóhannes
Helga. Milli bókarspjaldanna er
samankomið úr ýmsum áttum það
bitastæðasta úr skrifum Jóhannes-
ar Helga um menn og málefni
1975-83. Fimmtíu og sjö skrif af
gefnu tilefni. Er það hin skraut-
legasta f lóra og mannamyndasafn.
í bókinni eru litríkarpersónulýsing-
ar í bland við ótrúlegustu málefni,
áhugasvið höfundar enda í við-
feðmara lagi. En að stofni til er
safnritið innlegg Jóhannesar í
þjóðmálaumræðu fyrrnefnt átta
ára tímabil. Höfundur tileinkar bók-
ina íslensku bændafólki og eru
tildrög þess greind í formála. Bók-
inni fylgir nafnaskrá, en stærð
bókarinnar er 230 blaðsíður
ÉG ER, eftirdr. Benjamín Eiríksson er
mikil bók, á fimmta hundrað blaðsíður,
auk sextíu myndasíðna úr einkalífi og
starfsferli höfundar.
Bókin er með ívafi endurminninga frá
ýmsum skeiöum ævinnar, en dr.
Benjamín dvaldi við háskóla í Berlín
og Moskvu á umbrotatímum nasisma
og kommúnisma.
Á þeirri dvöl reisir hann kynngimagn-
aða úttekt sína á nasismanum og
kommúnismanum. Og hann tekur
Halldór Laxness rækilega í karphúsið,
ekki sjö sinnum, heldur sjötíu og sjö
sinnum. Þungur áfellisdómur dr.
Benjamíns yfir sósíalismanum, sí-
rennsli lyginnar í Þjóöviljanum, óstjórn
efnahagsmála þjóðarinnar, og því
stórfljóti lyginnar, sem hann kveður
Einar Olgeirsson og félaga hafa veitt
yfir þjóðina í hálfa öld, er sá rammi-
slagur sem seint mun iiða lesandanum
úr eyrum.
Bók án hliðstæðu í íslenskri bókaút-
gáfu.
Kassettan „Spámaðurinn“ eftir Kahlil
Gibran, hefur að geyma áhrifamestu
mannræktarljóð samtímans, sem selst
hafa í tíu milljónum eintaka. Jónina H.
Jónsdóttir les Ijóðabálkinn á þessari
níutíu mínútna kassettu, en Kristinn
Reyr flytur inngang.
Ljóðabálkurinn er ávöxtur hugljóm-
unar á Líbanonsfjalli og varði Gibran
mörgum árum í að fága Ijóðin, og eru
þau talin hátindur verka hans. Þau
hafa nú um langan aldur verið ungum
og öldnum um víða veröld uppspretta
hugsvölunar og mannskilnings. Skáld-
skapur og kærleiksboðun eru svo
listilega samofin, að hvergi verður
missmíði á fundin. Ljóðalesturinn er
fleygaður hljómlist við hæfi. Gunnar
Dal íslenskaði Ijóðin. Þjóðhöfðinginn,
frú Vigdís Finnbogadóttir, vitnaöi eftir-
minnilega í Ijóð úr Spámanninum á
stærstu stund lífs síns.
Ljóðabálkurinn var eilítið styttur til að
hann rúmaðist á 90 mínútna kassettu.
r
*
Valur Gíslason hefur framar öllum
öðrum núlifandi mönnum orpið Ijóma
á íslenskt leikhús. Hann rekur hér
æviferil sinn hógværum orðum, átt-
ræður að aldri.
Bókin geymir að auki einstakt mynd-
efni sem sýnir persónusköpun Vals,
öll gervi hans og mótleikara hans á
sviði og í sjónvarpi, á meira en hálfrar
aldar leikferli hans, á þriðja hundrað
talsins. Stórfalleg bók.
Kassettan „Suðurnesjaljóð og lög frá
liðnum árum“ eftir Kristin Reyr, er
mikið prógramm sem níu listamenn
flytja. Söngvarar eru Árni Ttyggvason
og Jón Sigurbjörnsson. Ljóðalestur:
Jón Atli Jónasson, Jónína H. Jónsdótt-
ir og Kristinn Reyr. Hljóðfæraleikarar:
Eyþór Þorláksson og Reynir Jónas-
son. Kvæðamaöur er Kjartan Hjálm-
arsson og inngang flytur Páll Stein-
grímsson. Jóhannes Helgi hafði um-
sjón með höndum.
Fæst í hljómplötuverslunum og hjá
öllum meiriháttar bóksölum.