Þjóðviljinn - 29.12.1983, Page 11

Þjóðviljinn - 29.12.1983, Page 11
Fimmtudagur 29. desember 1983 Þ-JÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Umsjón: Vrðir Sigurðsson FH í kröppum dansi á Akureyri! Náði sigri á lokaimnútum leiksins Það ómögulega virtist lengi vel ætla að eiga sér stað þegar botnliðið, KA, og meistaraefnin, FH, mættust í 1. deild karla í hand- knattleik á Akureyri í gærkvöldi. Leikurinn hafði verið jafn og tví- sýnn og staðan var 18-18 þegar að- eins þrjár mínútur voru til leiks- loka. En þá gerðu FH-ingar út um ieikinn, Atli Hilmarsson, Sveinn Bragason og Hans Guðmundsson skoruðu þrjú mörk og Hafnfirðingar sigruðu 21-18. FH, sem var án Kristjáns Ara- sonar sem er meiddur, komst yfir í byrjun, 1-3, en leikur liðsins var lítt sannfærandi og KA jafnaði, 3- 3. Síðan var jafnt 6-6 en þá komst KA í 8-6. FH svaraði með þremur mörkum og staðan var svo 9-9 í hálfleik. KA skoraði tvö fyrstu mörk síðari hálfleiks, 11-9, og síðan var jafnt 12-12 og 14-14. Þá komu þrjú FH-mörk, 17-14, og tíu mínútur eftir. Heimamenn gáfust ekki upp, mikil spenna færðist í leikinn og góð stemmning ríkti í íþrótta- höllinni meðan KA jafnaði enn, 18-18. Það dugði ekki eins og áður sagði. FH var langt frá sínu besta og leikur liðsins hreinasta rugl á köflum. Atli Hilmarsson var alger yfirburðamaður og þá átti Harald- ur Ragnarsson mjög góðan leik í markinu. Jón Kristjánsson lék einnig vel og Magnús Gauti varði vel í fyrri hálfleik, m.a. tvö vítaköst og nokk- ur skot úr dauðafærum. Mörk FH: Atli 11, Hans 3, Þorgils Óttar Mathiesen 2, Sveinn, Pálmi Jónsson, Guöjón Árnason, Guömundur Magnús- son og Guðmundur Óskarsson eitt hver. Mörk KA: Jón 4, Jóhannes 3, Sigurður Sigurðsson 3, Erlingur Kristjánsson, Jó- hann Einarsson og Þorleifur Ananíasson 2 hver, Logi Einarsson og Magnús Birgis- son 1 hvor. Ólafur Haraldsson og Stefán Arnaldsson dæmdu. Þeim tókst sæmilega upp lengi vel en voru ekki sannfærandi undir lokin. -K&H/Akureyri. Enska knattspyrnan: Forest komið í fímmta sætið Nottingham Forest komst uppí fimmta sæti 1. deildar ensku knatt- spyrnunnar í gærkvöldi með því að sigra Coventry 3-0 á heimavelli sín- um í Nottingham, City Ground. Þetta var fyrsti ósigur Coventry í tíu leikjum í deildinni. Peter Davenport kom Forest á bragðið með marki um miðjan fyrri hálfleik og Garry Birtles skoraði síðan tvívegis í þeim síðari. Birtles hefur skorað drjúgt undanfarið og er nú kominn með níu mörk í 1. deildinni í vetur. Úrslit í gærkvöldi: 1. deild: Nottm. Forest-Coventry..........3-0 2. deild: Blackburn-Barnsley..............1-1 Cambridge-Grimsby...............2-2 4. deild: Crewe-Bristol City..............2-2 Staða efstu liða fyrstu deildar er þessi: Liverpool...20 12 5 3 35-16 41 Manch.Utd...20 11 5 4 38-23 38 Southampton.20 11 4 5 22-14 37 WestHam.....20 11 3 6 31-18 36 Páíí í Þór Páll Guðlaugsson frá Vest- mannaeyjum, sem undanfarið hef- ur leikið með GÍ í Færeyjum og var kjörinn besti knattspyrnumaður Færeyja sl. sumar, er genginn í raðir 1. deildarliðs Þórs á Akur- eyri. Páll er traustur markvörður sem væntanlega tekur stöðu Þor- steins Ólafssonar sem þjálfar Þórs- ara næsta sumar en hyggst ekki leika með liðinu. -VS Nottm.For.........20 11 3 6 38-26 36 Luton.............20 11 2 7 36-28 35 Coventry..........20 9 6 5 29-24 33 Heil umferð verður leikin í deildakeppninni á gamlársdag. - VS Garry Birtles - tvö mörk í gær- kvöldi: Maradona að byrja Diego Maradona, argentínski knattspyrnusnillingurinn, byrjar að æfa á nýjan leik með félögum sínum, Barcelona á Spáni, á þriðju- daginn kemur. Maradona hefur verið spítala- og sjúkraþjálfara- matur síðan í haust þegar hann fót- brotnaði í leik gegn Atletico Bilbao. Reiknað er með að hann geti byrj- að að ieika með Barcelona fljótlega á nýja árinu. -VS Leiðrétting Prentvillupúkinn var á ferðinni í blaðinu í gær og hækkaði Islands- met Kolbrúnar Rut Stephens í há- stökki án atrennu um 10 senti- metra. Hið rétta er að hún stökk 1,43 m á jólamóti ÍR en tíu senti- metrarnir gætu komið hjá henni fyrr en varir. Kristinn Kristinsson, Haukum, (7) í slag við ÍR-ingana Ragnar Torfason (6) og Gylfa Þorkelsson (15) í leik liðanna í gærkvöldi. Mynd: -eik Úrvalsdeildin í körfuknattleik Nýja stórveldið fór létt með það gamla Haukar eru á sífelldri uppleið, ÍR-ingar á niðurleið. Verðandi stórveldi gegn fallandi stórveldi. Þetta kom berlega í Ijós í gærkvöldi er félögin mættust í Seljaskólanum I úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Haukarnir höfðu yfirburði á flest- um sviðum íþróttarinnar og sigur þeirra, 89-80, var í allra minnsta lagi þar sem ÍR skoraði síðustu ell- efu stig leiksins vegna kæruleysis Hafnfirðinganna. Fátt benti til þess í upphafi aö leikurinn yrði ójafn. Liðin voru yfir til skiptis, jafnt 18-18 um miðjan fyrri hálfleik, en þá fóru Haukarnir smám saman að síga framúr. Þeir náðu tólf stiga forystu, 44-32, en ÍR lagaði stöðuna í 46-38 fyrir hlé, fengu reyndar tvö stig í hálfleik þar sem ein karfa þeirra fannst á mynd- bandi! 'í byrjun síðari hálfleiks varð strax ljóst hvernig færi. Haukar komust í 59-52, IR missti Hrein Þorkelsson útaf með 5 villur, Gylfi bróðir hans var orðinn haltur og fékk sína fimmtu villu síðar í hálf- leiknum og þegar þeir eru ekki í fullu formi á ÍR ekki möguleika. Staðan var orðin 83-60 þegar fjórar mínútur voru eftir og 89-69, en á síðustu tveimur mínútunum, sem voru hreinn farsi og vitleysa, skoruðu ÍR-ingar 11 stig. Haukar mynda orðið sterka heild, það er ekki bara Pálmar Sig- urðsson sem heldur þeim uppi. Hann var að vísu bestur ásarnt Hálfdáni Markússyni og Kristni Kristinssyni en nánast allir aðrir skiluðu sínu hlutverki með sóma. Leiðinlegur blettur þó framkoma Einars Bollasonar þjálfara, innan vallar sem utan, og aðeins vegna linkindar dómara slapp hann við nokkur stykki af tæknivítum að þessu sinni. Ragnar Torfason var yfirburða- .maður hjá ÍR án þess að eiga stór- leik. Hjörtur Oddsson lék þokka- lega en aðrir voru hrein hörmung. Fyrsta deildin bíður ÍR-inga með þessu áframhaldi, þeir geta aðeins vonast eftir sigrum í leikjunum tveimur við Keflvíkinga sem hafa verið á svipuðu plani. Stig Hauka: Pálmar 24, Hálfdán 19, Kristlnn 14, Reynir Kristjánsson 11, Sveinn Sigurbergsson 10, Einar Bollason 4, Guðlaugur Ásbjörnsson 4 og Eyþór Árnason 3. Stig ÍR: Ragnar 22, Hjörtur 18, Hreinn 12, Gylfi 9, Kolbeinn Kristinsson 7, Benedikt Ingþórsson 4, Stefán Kristjánsson 4, Bragi Reynisson 2 og Karl Guðlaugsson 2. Dómararnir, Björn Ólafsson og Gunnar Valgeirsson, áttu. slakan dag að þessu sinni. Þeir geta báðir mikið betur. _ y§ Staðan Úrvalsdeildin í körfuknattleik: ÍR-Haukar......................80-89 Njarðvík...........10 7 3 78W41 14 KR.................10 7 3 723-689 14 Haukar.............11 6 5 796-807 12 Valur..............10 5 5 816-753 10 Keftavík...........10 4 6 667-760 8 ÍR.................11 2 9 820-861 4 1. deild karla í handknattleik: KA-FH..........................18-21 FH..............10 10 0 0 307-198 20 Valur........... 9 6 1 2 188-179 13 Vikingur........ 9 6 0 3 210-190 12 KR.............. 9 4 1 4 155-149 9 Þróttur......... 9 3 2 4 191-207 8 Stjarnan........ 9 3 1 5 172-209 7 Haukar.......... 9 1 1 7 178-221 3 KA..............10 0 2 8 176-224 2

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.