Þjóðviljinn - 29.12.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.12.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINnI Fimmtudagur 29. desember 1983 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík Árshátíð og þorrablót Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík veröur laugardaginn 28. janúar 1984. Þegar eru bókanir farnar að berast og eru menn hvattir til að skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. í fyrra komust færri að en vildu. Dagskrá og skemmtiatriði auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Skrifstofan opin Alla þriðjudaga og fimmtudaga verður skrifstofa Æskulýðsfylkingar- innar opin frá kl. 17-18.30, í flokksmiðstöðinni, Hverlisgötu 105. Áhugafólk er hvatt til að líta við eða hringja, síminn er 17500. Stjórnin. Lausar stöður heilsugæslulækna Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stööur heilsugæslulækna: 1. Hólmavík H1, staöa læknis frá 1. maí 1984. 2. Siglufjörður H2, staða annars læknis frá 1. ágúst 1984. 3. Raufarhöfn H1, staöa læknis frá 1. apríl 1984. 4. Fáskrúðsfjöröur H1, staöa læknis frá 1. ágúst 1984. 5. Djúpivogur H1, staða læknis frá 1. apríl 1984. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um læknismenntun og læknisstörf skulu hafa borist ráöuneytinu fyrir 23. janúar 1984 á þar til gerðum eyöublöðum, sem fást í ráðuneyt- inu og hjá landlækni. Allar nánari upplýsingar veita ráöuneytiö og landlæknir. Heilbrigðis- og tryggingamáiaráðuneytið 23. desember 1983. Happdrætti Styrktarfélags vangefinna' 1983 VINNINGSNÚMER: 1. vinningur- Mazda bifreið árg. 1984 nr. 12447 2. vinningur - bifreið að eigin vali að upphæð kr. 220.000,- nr. 93482. 3. vinningur - bifreið að eigin vali að upphæð kr. 160.000,- nr. 31007. 4. -10. vinningur - húsbúnaður að eigin vali hver að upphæð kr. 60.000,- nr. 12377, 23322, 32409,38339, 50846,63195,65215. Dregið var í Happdrætti Gigtarfélags íslands 8. desember. Vinningar féllu á eftirtalin númer. Myndbandstæki frá Heimilstækjum hvert á kr. 50.000.- Nr. 14904-33829. Ferðir meö Úrvali, hver á kr. 50.000.- Nr. 22925-32124. Ferðir meö Flugleiöum, hver á kr. 25.000.- Nr. 6159-11153-11775-21648-26003- 28198-37894-40263. Ferðir meö Flugleiðum, hver á kr. 15.000.- Nr. 1451 - 4482 - 7373 - 9770 - 13520 - 15240-32196-38888. Ferðir meö Arnarflugi, hver á kr. 15.000.- Nr. 1449 - 6890 - 7650 - 22285 -32118- 32520 - 35772 - 39483. Gigtarfélag íslands þakkar öllum sem þátt tóku í happdrættinu. Minning____________________ Sigríður Angantýsdóttir Fœdd: 1. apríl 1932 Dáin: 18. des. 1983 Æskuvinkona okkar og skóla- systir, Sigríður Angantýsdóttir, andaðist á sjúkrahúsi í Lundúnum þann 18. des. s.l.,þarsemhún beið eftir aðgerð vegna hjartasjúk- dóms. Andlát hennar kom okkur öllum mjög á óvart, því fæst vissum við, að hún ætti við svo alvarlegan sjúkdóm að stríða. Sísí bar ekki áhyggjur sínar á torg, hún hugsaði minna um sjálfa sig en aðra. Hugur hennar var hjá maka, börnum og barnabörnum. Daginn áður en hún fór til Eng- lands heimsótti ég hana, og það var ekki að sjá, að þar færi svo veik kona sem hún var þá. Síðasta sem ég sá til Sísíar var er hún gekk umkringd börnum og barnabörn- um eftir gangi sjúkrahússins, hún var sem ungamamma með hópinn sinn. En eftir á sér maður að hún gerði sér fulla grein fyrir við hverju mætti búast. Hún átti sterka trú og lagði allt í hendur Hans, sem öllu ræður, enda sagði hún: „Ég er búin að gera allt upp við Guð og er tilbú- in að mæta honum“. Sigríður Angantýsdóttir var fædd í Vestmannaeyjum þann 1. apríl 1932. Foreldrar hennar voru Kornelía Jóhannsdóttir og Ang- antýrEinarsson. Áttu þau sex börn og var Sísí elst þeirra. Kornelía dvelst nú á Dvalarheimili aldraðra f Vestmannaeyjum, en Angantýr lést árið 1974. Þau hjón fluttu til Siglufjarðar þegar Sísí var nokk- urra mánaða gömul og ólst hún þar upp sem sannur Siglfirðingur, því fáa veit ég sem unnað hafa heima- byggð sinni sem hún. Bernsku- og æskuárin liðu þar við leiki og störf. Samstaða var mikil meðal skólasystkinanna og félagslíf á Siglufirði stóð í miklum blóma. Við sækjum þrótt til bernsku- og uppvaxtarára okkar og það var gott að vera barn og ung- Íingur á Siglufirði. Eftir að Sísí lauk skólagöngu vann hún við ýmis störf og 17 ára að aldri fór hún á vertíð til Vestmannaeyja. Þar kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum Jóni Kjartanssyni, formanni Verka- lýðsfélags Vestmannaeyja. Þau giftu sig þann 18. júlí 1951 og hafa þau eignast sex börn: Einar Gylfa, Kjartan, Helgu, Ástþór, Heimi og Jóhönnu Ýr, sem aðeins er níu ára gömul.Mikill og sárer missir þeirra allra, en þó mestur hjá Jóhönnu litlu, sem átti svo miklu ástríki að fagna hjá móður sinni. En Sísí var búin að ganga frá þeim málum og mun Helga reynast systur sinni sem sönn móðir. Öll elstu börnin eru gift eða trúlofuð og eru barnabörn- in orðin 14 alls. Sísí þótti mjög vænt um börn og þau hændust að henni, því hún hugsaði ekki síður um sálarlíf og andlega velferð barnsins en líkam- lega. Sísa var samkvæm sjálfri sér og það einkenndi hana, hversu heiðarleg hún var, því jafnvel þótt það kæmi henni í óþægilega að- stöðu á stundum, þá gat hún ekki talað þvert um hug sinn. Sísí hafði mikinn áhuga á þjóð- félagsmálum og tók mikinn þátt í starfi eiginmanns síns og þótti Jóni oft gott að leita til hennar, ef hann þurfti að taka örlagaríkar ákvarð- anir. Álit hennar var ætíð vel ígrundað og byggt á því innsæi sem hún hafði, þannig að hún virtist finna á sér hvað best væri hverju sinni. Hún hugsaði rökrétt og átti gott með að koma fyrir sig orði. Sísí átti stóra drauma og hug- sjónir og vildi veg kvenna sem mestan. Það kom okkur vinum hennar því ekki á óvart, þegar hún skipaði sér í sveit þeirra kvenna er stóðu að framboði kvennalista til Alþingiskosninga í Reykjavík árið 1983. Vann hún þar mikið og óeigingjarnt starf. Nú við lát æskuvinkonu okkar er margt sem leitar á hugann. Okkur virðist ekki svo langt síðan við lék- um okkur ung og áhyggjulaus í firðinum okkar heima. En tímans elfur streymir skjótt og maðurinn berst með hringiðu lífsins, fyrst við nám, svo við atvinnu, heimili og börn. En þegar árin líða, líf og starf er komið í fastar skorður og börnin vaxin úr grasi, leita æskuminning- arnar fram í hugann. Og enginn staður á jarðríki er fegurri og betri en heima. Því staðreynd er, að við köllum þann stað heima, þar sem við erum fædd og uppalin, þó svo að við myndum okkar eigin heimili víðs fjarri. En það er einmitt Sísí að þakka, að bernsku- og vináttubönd okkar skólasystkinanna „Árgangs ’32“ knýttust á ný. Einn fagran vordag árið 1981 hafði Sísí samband við nokkra gamla skólafélaga og skýrði þeim frá þeirri hugmynd sinni, að við skóla- og fermingarsystkini „Ár- gangur ’32“ frá Siglufirði hittumst og endurnýjuðum vináttuböndin. Þessi góða hugmynd bar þann ávöxt, að við, sem áður vorum tvístruð vítt og breitt, náðum sam- bandi á ný. Vaknaði strax mikill áhugi fyrir þessari framkvæmd og hittumst við 56 skólasystkini af 69, sem þá voru á lífi, heima á Siglu- firði og héldum sameiginlega hátíð með kirkjunni okkar þann 28. ág- úst 1982. Fæst okkar höfðu sést í 35 ár, en þeirra ára varð ekki vart, svo mikil var gleðin og ánægjan að hitt- ast á ný. Margt hafði breyst, en fjöllin og fjörðurinn var samur við sig. Hóls- hyrnan og Hvanneyrarskálin voru á sínum stað. Bernskuleikirnir ómuðu í huga okkar er við gengum um bæinn og Sísí mundi svo margt frá liðnum dögum. Við rifjuðum upp glens og gaman og urðum ung í anda á ný. Oll sú vinsemd og hlýja sem okkur var sýnd þessa daga heima er ógleymanleg. Og sam- staða og samhugur „Argangs ’32“ er enn meiri en áður. Sísí, þú gafst okkur öllum stóra gjöf, sem aldrei mun fyrnast í hug- um okkar skólasystkina þinn. Minningin um þig lifir í hjörtum okka allra. „Árgangur ’32“ frá Siglufirði, Kristjana H. Guðmundsdóttir. Auglýsing til skattgréiðenda Samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt eru gjalddagar tekjuskatts og eignarskatts tíu á ári hverju þ.e. fyrsti dagur hvers mánaðar nema janúar og júlí. Dráttarvexti skal greiða af gjaldfallinni skuld sé skattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga. Gilda sömu reglur um greiðslu annarra þinggjalda. Af tæknilegum ástæðum hefur til þessa ekki verið unnt að miða dráttarvaxtaútreikning við stöðu gjald- enda um hver mánaðamót. Hefur því í framkvæmd verið miðað við stöðuna 10. dag hvers mánaðar sbr. auglýsingu ráðuneytisins dags. 27. apríl 1982. Drátt- arvextir hafa því í reynd verið reiknaðir 10 dögum seinna en lög kveða á um. Er nú stefnt að því að stytta þennan frest eins og kostur er. Geta gjaldendur því framvegis búist við að dráttarvextir verði reiknaðir þegar eftir að mánuður er liðinn frá gjalddaga. Þá er sérstök athygli vakin á því að launagreiðendum ber að skila því fé sem haldið er eftir af kaupi launþega innan sex daga frá útborgunardegi launa. Fjármálaráðuneytið, 27. desember 1983. Útboð Fyrir hönd Kaupfélags Stykkishólms óskar VST hf. eftir tilboöum í jarðvinnu fyrir nýtt verslunarhús í Stykkishólmi. Fylling er áætluö 8000 m3 og uppúrtekt 4700 m3. Útboösgögn verða afhent hjá Kaupfélagi Stykkishólms og VST hf. í Reykjavík og Borg- arnesi. Tilboöin veröa opnuð í Stykkishólmi og Reykjavík hinn 10. janúar 1984 kl. 14.00. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf blaðið sem vitnað er í Siminn er Er ekki tilvalid að gerast áskrifandi? 81333

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.