Þjóðviljinn - 29.12.1983, Page 15
1 Miðvikutiágur 28! desember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA ÍS:
RUV 2
-U-1
Rás 2 «f útvarpaö á FM-bylgju, 99,91
mhz, mánudaga-föstudaga ki. 10-12ög
14-18 fyrstum sinn. Meðan dagskráirtsr
- á tilinunastigi veröur hún ekla^gpfio.út
fytirfram.
Jórunn Sigurðardóttir er með þátt
sinn „Halló, krakkar" kl. 20.00.
20.00 Halló krakkar! Stjómandi: Jórunn Sig-
urðardóttir.
20.30 Hvenær byrjar næsta ár? Jón Björg-
vinsson veltir fyrir sér tímatali.
21.20 Frá tónleikum Nýju strengjasveitar-
innar i Bústaðakirkju 30. ágúst s.l. Stjórn-
andi: Josef Vlach. a. „King Arthurs suite"
eftir Henry Purcell. b. Divertimento nr. 2 f
B-dúr K. 137 eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art. c. Tilbrigði eftir Benjamin Britten um stef
eftir Frank Brigde.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Fimmtudagsumræðan. Stjómandi:
Hermann Gunnarsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
B ændamenningin
Björn S. Stefánsson skrifar:
Fjöldi landsmanna veit ekki
hver var fyrsti forseti íslands né
hvenær kristni var lögtekin, sam-
kvæmt athugun á vegum
Kaupþings hf. Karlar reyndust
fávísari en konur og fólk í
dreifbýli fávísari en aðrir lands-
menn. Þjóðviljinn hefur lagt út af
þessu á þann veg, að múrar
bændamenningarinnar séu að
rofna. Með þessu er ályktað að
bændafólk og dreifbýlisfólk sé
eitt og hið sama.
Grœsku-
laust gaman
í tilefni af vísum Skagfirðings
um Miklagarð, sem fyrir skömmu
birtust hér á síðunni, segir K.B.:
Gamanið er grœskulaust,
það græða bara fáir,
lýður fyrirhafnarlaust
losar fé - og stráir.
Ég hef gengið úr skugga um
það, að athugun Kaupþings hf.
tók ekki til bænda sérstaklega né
sveitafólks. Landinu var skipt f
þrennt: höfuðborgarsvæði, ann-
að þéttbýli, sem var kaupstaðir,
(bæir) utan höfuðborgarsvæðis-
ins, og dreifbýli, þ.e. þorp og
sveitir. f því dreifbýli má nefna
Borgarnes, Höfn í Hornafirði,
Stykkishólm, Egilsstaði, Sand-
gerði, Þorlákshöfn, Blönduós,
Garð og Patreksfjörð, allt staðir
með meira én 1000 íbúa, og svo
tugi fámennari sjávarþorpa og
verslunarstaða. I þannig skil-
greindu dreifbýli voru samkvæmt
upplýsingum Kaupþings hf.
21,6% úrtaksins, en samkvæmt
jskýrslum Hagstofunnar voru í
strjálbýli 9,9% íbúa landsins og
inær það til sveita og þorpa með
jfærri en 50 fbúa. Því má ætla, að
af þeim sem Kaupþing taldi til
dreifbýlis sé aðeins um þriðjung-
ur búsettur á bændaheimilum.
Ég sé því ekki grundvöll til að
leggja út af þessari athugun um
bændamenningu sérstaklega en
Björn S. Stefánsson.
víst gefur hún tilefni til að láta
hugann reika um ólíka menningu
karla og kvenna og fólks í bæjum
landsins og utan þeirra.
skák
bridge
I---------------—
Lítið og létt spil, svona i lok ársins:
G2 K753 752 K843
K10843 D96
G96 D1082
G104 D9
D10 Á75 Á4 ÁK863 Á75 G962
Pú ert sagnhafi i 3 gröndum í Suður og
færö út spaða. Hvernig íhugar þú spila-
íferðina?
Lætur gosann í spaða, drottning og þú
gefur væntanlega tvisvar. Inni á spaða-
ás, hvað gerirðu? Leggurðu niður tígul-
ás? Einn niður, því Austur hendir döm-
unni (Guðmundur Páll í vörninni...).
Hinsvegar ef þú ferð inn á borð á kóng-
. ana þína og spilar tvisvar tígli að ás og
kóng, þá getur jafnvel Guðmundur Páll
ekki hnekkt þessu spili. Þú ferð inn í borð,
spilar lágum tígli, lítið frá Austri og við
drepum hátt. Aftur inn i borð og spilum
lágum tígli. Ef það kemur lágt frá Austri,
drepum við á kóng og vonum að Austur
eigi þriðja tígulinn, en í þessu tilviki er
þaö óþarft, því drottningin kemur önnur
og við einfaldlega gefum hana. Unnið
spil.
Tikkanen
Gœtum
tungunnar
:Munum, að „þú“ er eingöngu
persónufornafn 2. persónu, en
i alls ekki óákveðið fomafn, eins
og „you“ á ensku getur verið.
Jónas Árnason les Jólasögu úr
bók sinni „Fólki“, kl. 11.30.
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Róbert Sigurðsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Jóla-
sveinar einn og átta“. Umsjón: Sigrún Sig-
urðardóttir (RÚVAK).
9.20 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
11.00 „Ég man þá tíð“. Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson.
11.30 Jólasaga. Jónas Ámason les úr bók
sinni, „Fólki".
11.45 „Hrafninn" eftir Edgar Allan Poe. Elín
Guðjónsdóttir les þýðingu Einars Bene-
diktssonar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
14.00 „Brynjólfur Sveinsson biskup" eftir
Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm. Gunnar
Stefánsson les (3).
14.30 Á frívaktinni. Sigrún Sigurðardóttir
kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðuriregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Markus Pawlik
leikur Pianósónötu nr. 3 í h-moll op. 58 eftir
Frédéric Chopin/ Frank Peter Zimmerman
og Amulf von Arnim leika Fiðlusónötu nr. 3 í
d-moll op. 108 eftir Johannes Brahms.
(Hljóritað á Tónlistarhátíðinni í Schwetzing-
en í maí s.l.).
17.10 Síðdegisvaka.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðuriregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt
mál. Erlingur Sigurðarson flytur þáttinn.
Umskiptingur
Árnesingur hringdi:
Það verður þó a.m.k. ekki sagt
að hún villi á sér heimildir, ríkis-
stjórnin. Ófyrirleitnari íhalds-
stjórn en þessi ríkisstjórn „fram-
sóknarmannsins“, Steingríms
Hermannssonar, hefur ekki áður
komið til valda á íslandi.
Meðal þeirra sjálfsögðu rétt-
inda, sem launþegahreyfingin
hefur öðlast fyrir langa og linnu-
lausa baráttu, eru sjúkra-, slysa-
og dagpeningar. Þó að þessi rétt-
indi lægju þannig síður en svo á
lausu þá hélt maður að þau væru,
nú á dögum, talin til sjálfsagðra
mannréttinda. En svo reynist
ekki vera. Við höfum nú fengið
yfir okkur ríkisstjórn sem hefur
uppi ráðagerðir um að afnema
þessi réttindi og færa okkur aftur
á fornaldarstigið.
Kannski var ekki við öðru að
■búast af íhaldinu. Hitt kemur trú-
Iega ýmsum á óvart, að „Fram-
sókn“ skuli veita forystu ríkis-
stjórn, sem gælir við svona
áform. Og svo er manni ætlað að
trúa því, að „Framsóknarflokk-
urinn“ hafi í engu breyst frá
fyrstu áratugum hans. Slíkt er
kannski hægt að segja krökkum í
barnaskóla, öðrum ekki.
Iþróttamannvirki í
fímmtudagsumræðu
I fimmtudagsumræðu Her-
, manns Gunnarsson, íþrótta-
i fréttamanns, verður fjallað um
i íþróttamannvirki á íslandi. Rætt
verður í beinni útsendingu við
fjóra menn, sem allir eru eða hafa
verið nátengdir íþróttamálum og
haft mikil afskipti af þeim með
einum eða öðrum hætti.
Þessir menn eru: Reynir Karls-
son, íþróttafulltúi ríkisins, Þor-
steinn Einarsson, fyrrverandi
íþróttafulltrúi, Steinar J. Lúð-
víksson, ritstjóri íþróttablaðsins
- en hann hefur eðlilega skrifað
mikið um þessi mál - og Skúli
Nordahl, arkitekt. Sveinn
Björnsson, forseti íþróttasam-
bands íslands, mun einnig leggja
orð í belg. Auk þess verða svo
gripnir upp hlustendur og álits
þeirra leitað. „Vona ég að við-
brögð þeirra verði góð og um-
ræður málefnalegar“, sagði Her-
mann Gunnarsson, - enda á það
eitt við þegar íþróttir eru annars-
, vegar. Þetta er tímabær umræða.
-mhg
Hermann Gunnarsson stjórnar
fimmtudagsumræðunni í kvöld.
Karpov að tafli - 258
Úrslitin í heimsmeistaraeinvígi Karp-
ovs og Kortsnojs i Merano voru í raun
ráðin eftir fjórar skákir. Þá hafði Karpov
hlotið 3'/2 vinning, teflt af miklu öryggi og
virtist hafa yfirburði fram yfir andstæðing
sinn á flestum sviðum skákarinnar.
Vissulega hafði Kortsnoj jafnað þriggja
vinninga forskot Karpovs í Baguio þrem-
ur árum áður, en þá voru aðstæður með
allt öðrum hætti, langt var liðið á einvígið
og Karpov orðinn örþreyttur eftir þriggja
mánaða dvöl á Filippseyjum.
I fjórðu skákinni átti Kortsnoj alla
möguleika á jafntefli en djarf ur peðieikur
kom honum í koll. Karpov notfærði sér
. möguleika sína og vann laglega. Þessi
! staða kom upp eftir biðleik Kortsnojs. 41.
' i- d3:
Nóg er alltof mikið fyrir alkó-
hólistann.
Útvarp kl. 22.35
Karpov - Kortsnoj
42. Dd7+! Df7
43. Re7! Kh7
44. Kg2 He8
45. Hh1+ Rh4+
46. gxh4 Dxe7
47. Dxf5+ Kg7
48. hxg5 DB7+
49. f3 He2+
50. Kf1 Kg8
51. Dxd3 He6
,52. Dd8+ Kg7
53. Dd4+ - og Kortsnoj gafst upp.