Þjóðviljinn - 19.01.1984, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. janúar 1984
Tölvur
og skóla-
starfið
Kennurum gefst nú gott tækifæri
til að öðlast innsýn í tölvuheiminn.
í þessum mánuði eftir Námsgagna-
stofnun í samvinnu við Kennarahá-
skólann, skólarannsóknardeild,
menntamálaráðuneytið, fyrirtæki
og eintaklinga til viðamikillar
kynningar á tölvum í skólastarfi, en
kynningunni lýkur með viðamikilli
sýningu á tölvum í Kennaraháskóla
íslands helgina 28. - 29. janúar.
Kynning þessi er þríþætt. Fyrsti
dagskrárliður er fyrirlestrarhald í
húsnæði Kennslumiðstöðvarinnar
um tölvur og notkun þeirra. Að
sögn Ingvars Sigurgeirssonar,
starfsmanns hjá Kennslumiðstöð-
inni, hefur aðsókn kennara á fyrir-
lestrana verið þokkaleg, en um 100
manns hafa að jafnaði sótt þá.
í Kennslumiðstöðinni að Lauga-
veg 166 stendur nú yfir sýning á
tölvum, forritum og kennslubók-
um og er aðstaða góð til að skoða
þessa hluti.
Síðasti dagskrárliður er svo hin
viðamikla sýning á tölvum og
Ingvar Sigurgeirsson, starfsmaður Kennslumiðstöðvarinnar, sýnir handbrögðin við tölvuna. (Ljósm. -eik-)
tölvubúnaði, sem haldin verður í
Kennaraháskólanum. Þar munu
rúmlega 20 fyrirtæki og stofnanir
kynna þjónustu sína og er sýning-
unni ætlað að gefa gott yfirlit um
þróun og stöðu þessara mála.
Ingvar Sigurgeirsson skýrði okk-
ur frá því, að nú væri í mótun stefna
um tölvur og skólastarf í
menntamálaráðuneytinu. Náms-
gagnastofnun vill með kynningu
sinni hvetja kennara til að kynna
sér þessi mál og glöggva sig á þeim
sjálfir, en tölvur geta á margan hátt
tengst skólastarfi. ast
Stjórn BSRB um sjúklingaskattinn:
Horfíð frá
Stjórn BSRB samþykkti á fundi
sínum 16. janúar s.l. harðorð mót-
mæli gegn sjúklingaskattinum. A-
lyktunin er svohljóðandi:
„Stjórn B.S.R.B. mótmælir ein-
dregið þeim hugmyndum, sem
heilbrigðisráðherra hefur kynnt
um að sjúklingar, sem leggjast
þurfa á sjúkrahús, greiði sjúkra-
húskostnað og lyf að hluta. Slíkur
skattur á sjúkt fólk má ekki koma
til greina.
Bandalagsstjórnin telur að með
hugmyndum um „sjúklingaskatt“
sé verið að stíga alvarlegt skref frá
því velferðarþjóðfélagi, sem ís-
samhj álp
lendingar hafa verið að byggja upp
á síðustu áratugum í samræmi við
þróun annars staðar á Norður-
löndum.
Stjórn B.S.R.B. telur áframhald
þróunar til samhjálpar í íslensku
þjóðfélagi vera gundvallaratriði.
„Sjúklingaskatturinn" er táknrænn
um hugmyndir um fráhvarf frá
þeirri samhjálp, sem velferðarríkið
byggist á. Fyrir þessa þjóðfélags-
legu samhjálp eru Norðurlanda-
þjóðirnar þekktar um.víða veröld.
Með gagnkvæmum samningum
hefur íslenska þjóðin orðið hluti af
þessari fyrirmynd. Frá því megum
við ekki hverfa".
Finnski djass-píanóleikarinn Jukki
Linkola
Finnskur
djass á
Borginni
í kvöld verða haldnir djass-
tónleikar á Hótel Borg, þar sem
finnski djass-píanóleikarinn Jukka
Linkola leikur verk eftir sjálfan sig
ásamt 9 manna íslenskri hljóm-
sveit. Auk þess að vera þekktur
djass-Ieikari í heimalandi sínu er
Linkola tónskáld og semur jöfnum
höndum djass-verk og klassísk tón-
verk.
Jukka Linkolá er hér á landi í
boði Nord-jazz og mun hann halda
fyrirlestra fyrir kennara og nem-
endur í Tónlistarskóla FÍH. Línk-
ola nam við Síbelíus akademíuna í
Finnlandt frá 1971 til 1978 og hann
hefur eftir að hann lauk námi starf-
að sem hljómsveitarstjóri við Hels-
inki City Theater og unnið til
margra verðlauna fyrir verk sín.
Hann hefur haldið tónleika víða,
m.a. Hollandi, Noregi, Tékkósló-
vakíu, Sovétríkjunum og Banda-
ríkjunum. Auk þessa hefur Link-
ola leikið inná nokkrar hljóm-
plötur.
Þá má geta þess að á tónleikun-
um í kvöld mun koma fram nem-
endahljómsveit Tónlistarskóla
FÍH og hljómsveitin Icelandic Sea-
funck Corporation.
Póstur og sími
Tapaði miljónum á
skrefatalningunni
„Eins og menn muna börðumst
við í Neytendasamtökunum mjög á
móti nýju skrefatalningunni hjá
Pósti og síma og töldum að fyrir-
tækið mundi einungis tapa á þessu
nýja fyrirkomulagi. Þótt ég hafi
eícki fengið það reiknað út ná-
kvæmlega hef ég heýrt að fyrirtæk-
ið hafi tapað verulega fyrst eftir að
skrefatalningin var tekin upp og
hefur maður heyrt talað um milj-
ónir króna í því sambandi“, sagði
Reynir Ármannsson fyrrverandi
formaður Neytendamtakanna í
samtali við Þjóðviljann.
„Þessi barátta okkar gegn
skrefatalningunni á sínum tíma er
gott dæmi um árangur af starfi sam-
takanna. Sá árangur hefði án efa
ekki náðst á t.d. hinum Norður-
löndunum þar sem ríkisvaldið rek-
ur neytendasamtök að meira eða
minnaleyti. Okkarandóf varð þess
tvímælalaust valdandi að fólk dró
úr símanotkun og sýndi með því að
okkar ábendingar höfðu hitt í
mark“, sagði Reynir Ármannsson.
-v.
Alger miskilningur
segja talsmenn Pósts og síma
„Það er alveg rétt að tekjur Pósts
og síma rýrnuðu verulega fyrst eftir
að við tókum upp skrefatalninguna
nýju en núna hefur fyrirtækið náð
aftur þeim tekjum sem það hafði og
raunar gott betur“, sagði Jón
Skúlason póst- og símamálastjóri er
hann var inntur álits á þeirri full-
yrðingu Rcynis Ármannssonar
fyrrum formanns Neytendasam-
takanna að Póstur og sími hefði
tapað miljónum króna á skrefat-
alningunni.
Jón sagði að þegar skrefin voru
lengd í langlínukerfinu hefði verið
reiknað með auknum tekjum af
innanbæjarsímtölum. Vegna hins
mikla umtals í fjölmiðlum hefði
hlaupið skrekkur í fólk og það not-
að símann minna. Hann sagði að
þetta væri nú að færast í fyrra horf
og einnig hefðu símtöl til útlanda
aukist gífurlega svo og símnotkun
fyrirtækja. Skrefatalningin hefði
verið í rétta átt og fyrst og fremst
miðað að réttlátari skiptingu gjalda
en áður var.
Guðmundur Björnsson fram-
kvæmdastjóri fjármáladeildar
Pósts og síma tók undir álit póst- og
símamálastjóra um að fullyrðingar
um tekjutap Pósts og síma væru
orðum auknar. Sagðist hann hafa
gert samanburð á fjölda umframs-
krefa á höfuðborgarsvæðinu eftir
að búið væri að draga skref til út-
landa frá. Þá kæmi í ljós að í mars
1981 hefðu verið talin 11.3 miljónir
skrefa á höfuðborgarsvæðinu, 11
miljónir í mars 1982, þ.e. talsverð
fækkun en í mars 1983 hefðu skref-
in verið komin upp í 13 miljónir.
Hann gerði og samanburð á milli
mánaðanna september 1981 og
1982 og hefði komið í ljós 19%
aukning á fjölda skrefa á því tíma-
bili. Megintilgangur skrefatalning-
arinnar hefði verið að lækka lang-
línugjöldin og það hefði vissulega
tekist.
-v.
Fasteignamats-
seðlar bornir út:
Hækkun
nokkru
minni
en verð-
bólga
Með skattaframtalinu, sem bor-
ið verður út næstu daga, verða
bornir tilkynningaseðlar um nýtt
fasteignamat. Framreikningur
fasteigna er til samræmis við al-
mennar verðhækkanir á fasteigna-
markaðnum. Fasteignir hækka um
57% á höfuðborgarsvæðinu en um
47% í öðrum landshlutum.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi hjá Fasteignamati ríkisins í
gær að fasteignaverð hefur þróast
með nokkuð öðrum hætti á nýliðnu
ári en næstu ár þar á undan. Ef
miðað er við tímabilið frá október
1982 til sama tíma 1983 hækkaði
söluverð íbúða á landinu um lið-
lega 48%. Hækkunin er nokkru
minni en verðbólga á þessu tíma-
bili. Miðað við byggingakostnað
lækkaði raunvirði söluverðs urn
11% en 20% miðað við lánskjara-
vísitölu. Hér má bæta því við að
vegna lækkandi kaupmáttar mun
fólk verða lengur en áður að vinna
fyrir fasteignasköttum.
Sem dæmi um nýtt mat fasteigna
í Reykjavík má taka 65 ferm.
tveggja herbergja í búð í blokk í
Breiðholti. Hún er metin á 956 þús.
kr. Þriggja herbergja íbúð í sömu
blokk (81 ferm.) er metin á 1.178
þús. kr. Fimm herbergja 126ferm.
sérhæð í sænku timburhúsi er
metin á 1.417 þús. kr. Einlyft ein-
býlishús í Fossvogi, 226 ferm. er
metið á 3.747 þús. kr.
Tveggja hæða raðhús í Kópa-
vogi, 288 ferm. er metið 'á 3.240
þús. kr. Tveggja hæða einbýlishús
á Akureyri, 251 ferm. er metið á
2.292 þús. kr. Einnar hæðareinbýl-
ishús á Akranesi, 144 ferm. er
metið á 1.533 þús. kr. og hlaðið
einbýlishús á Egilsstöðum, 110
ferm. á 616 þús. kr.
Sem dæmi um fasteignamat á
jörðum má taka jörð í Borgarfirði.
Jörðin hefur liðlega 40 hektara tún,
gott íbúðarhús og útihús fyrir 270
gripi. Einnig jarðhita og silunga-
veiði. Mat hennar er 2,033 þúsund
krónur.
-GFr
Utgerðarfyrir-
tækið sem sam-
einaðist Regin
Stofnað
um
Jökulfellið
- Útgerðarfélag SÍS á Reyðar-
firði var stofnað um frystiskipið
Jökulfell á sínum tíma með þátt-
töku kaupfélagsins á staðnum og
fleiri aðila, sagði Erlendur Einars-
son forstjóri SIS þegar Þjóðviljinn
spurði um tilurð þess að Útgerð-
arfélagið var samcinað Regin hf:
Ákveðið var að leggja fyrirtækið
niður en af skattástæðum var talið
heppilegra að félagið sameinaðist
Regin, en Sambandið átti öll
hlutabréfin, þannig að þetta var
fyrirkomulagsatriði, sagði Er-
lendur.
Þá sagði Erlendur Einarsson
þegar hann var spurður um fjár-
festingar Regins úti á landi, að fyr-
irtækið hefði lagt dálítið til at-
vinnuuppbyggingar úti á lands-
byggðini, hjálpað atvinnulífinu.
-óg