Þjóðviljinn - 19.01.1984, Blaðsíða 16
PlOBVIUINN
Fimmtudagur 19. janúar 1984
Aöalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umþrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Minnkun verðbólgu úr 60 í 30%:
Kaupandi þarf að greiða
13% meira fyrir íbúð nú
Enn syrtir í álinn hjá íbúðarkaupendum. Það kom
fram á blaðamannafundi hjá Fasteignamati ríkisins í
gær að minnkun verðbólgunnar muni hafa mjög slæm
áhrif á fasteignaviðskipti miðað við óbreytt greiðslu-
kjör. Þannig mun kaupandi þurfa að greiða 13%
hærra verð fyrir íbúð þegar verðbólgan er 30% á ári
en meðan hún var 60%.
Greiðslukjör hafa á undanförnum árum verið þann-
ig að þrír fjórðu hlutar eru greiddir sem útborgun en
fjórði hluti hefur verið lánaður til fjögurra ára með
20% ársvöxtum. Á þessu tímabili hefur verðbólga
oftast verið 50-60%. Nú þegar verðbólgan virðist
komin niður í 20-30% nær verðbólgan ekki lengur að
skerða raunvirði afborgana eins mikið og verið hefur.
Þess skal getið að eftir næstu vaxtalækkun munu 20%
vextir verða hæstu lögleyfðir vextir á landinu og nálg-
ast það að verða raunvextir. Ekki sér þess nein merki
að minnkandi verðbólga hafi áhrif á fasteignamark-
aðnum. Útborgun er enn jafn há og eftirstöðvar lánað-
ar með sama hætti og tíðkast hefur sl. 4 ár.
-GFr
Staðreyndir tala sínu máli:
Launín lækka,
lækka og lækka
Hœkkandi verðlag og versnandi lánskjör
Hinn hrikalegi vandi
launafólks kernur glöggt
fram á þessu línuriti. Það
sýnir þróun verðlags,
launa og lánskjara frá því í
ágúst 1982 og fram til ára-
móta 1983/84.
Verðlagið æðir upp og
lánskjaravísitalan sömu-
leiðis. Launaflokkurinn
sem þarna er miðað við er
15. flokkur hjá BSRB, en
hann stendur algjörlega í
stað.
Línuritið birtist í Fé-
lagsblaði Kennaraféiags
íslands janúar 1984.
Sýningamet á Akureyri
Nú hafa rúmlega 8 þúsund leikhúsgestir séð My Fair Lady hjá Leikfélagi
Akureyrar. Næstu sýningar á þessum vinsæla söngleik verða föstudaginn
20. janúar og laugardaginn 21. janúar kl. 20.30. Þá hefur lcikurinn verið
sýndur 40 sinnum.
í söngleiknum My Fair Lady túlka um 50 manns sögu Elísu með leik,
söng, dansi og hljóðfæraleik. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrði og samdi
dansana, Roar Kvam stjórnar tónlistinni, Jón Þórisson gerði hina marg-
slungnu leikmynd. Sem dæmi um umfang búninganna, sem Una Collins
hannaði, má nefna að í sýningunni eru notaðir 130 búningar og 92 pör af
skóm. -J.P.
Hverjir eiga Sameinaða verktaka?
Reginn hf. er einn
af eigendum þess!
Á auk þess fjórðung í Islenskum aðalverktökum
Reginn hf. á 25% í íslenskum að-
alverktökum á móti 25% ríkisins og
50% Sameinaðra verktaka. Auk
þess gerðist Reginn stofnaðili á sín-
um tíma að Sameinuðum verktök-
um að einuin níunda hluta.
í fréttabréfi SÍS 27. ágúst 1976
segir orðrétt: „Reginn hf. gerðist
stofnaðili að íslenskum aðalverk-
tökum og varð hlutdeild hans í
fyrirtækinu einn fjórði. Jafnframt
gerðist Reginn hf. stofnaðili að ein-
um níunda hluta að fyrirtækinu
Sameinaðir verktakar, sem aftur
gerðist helmingsaðili að íslenskum
aðalverktökum. Ríkið varð hins
vegar stofnaðili að þeim fjóðungi
sem þá var eftir. Samband ísl. sam-
vinnufélaga hefur hins vegar aldrei
átt neinn hlut í þessum fyrirtækj-
um“. -óg
Eftir yfirlýsingar borgarstjóra í sjónvarpi:
Hækkun hjá SVR
frestað um hríð
„Það var vissulega rétt sem borg-
arstjóri sagði í sjónvarpi á þriðju-
dagskvöld, - það hafði ekki form-
lega verið gengið frá 27% hækkun-
inni á farmiðum SVR“, sagði Guð-
rún Ágústsdóttir, stjórnarmaður í
SVR, í gær. „Fargjaldahækkunin
var fyrst á dagskrá stjórnarfundar
morguninn eftir, og var fundarboð
sent út fyrir helginga“.
Á fundinum í gær gerðist það
hins vegar að meirihlutinn Iagði til
að fargjaldaákvörðun yrði frestað,
„þar sem fjárhagur fyrirtækisins
virtist betri en búist var við“. í
bókun frá Sjálfstæðisflokknum
kemur fram að ákvörðunin bíður
þar til reikningar ársins 1983 eru
frágegnir. Guðrún sagðist fanga
þessari frestun og vonast til að hún
stæði sem lengst, - 112,5% hækkun
á 14 mánuðum væri alveg nóg.
-ÁI
Þessum tókst að ná í strætómiða
áður en þeir hækka um 27%.
Ljósm. eik.