Þjóðviljinn - 19.01.1984, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 19.01.1984, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 19. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 íþróttir Umsjón: Viðir Sigurðsson KSÍ heiðraði á dögunum markakónga 1. og 2. deildar karla og marka- drottningu 1. deildar kvenna í knattspyrnu 1983. Við afhendinguna var þó aðeins einn markaskoraranna viðstaddur, GuðmundurTorfason úr Fram sem skoraði flest mörk í 2. deild. Á myndinni að ofan eru Gunnar Sigurðs- son, með viðurkenningu samborgara síns, Laufeyjar Sigurðardóttur, Ell- ert B. Schram, formaður KSÍ, eiginkona og sonur Inga Björns Alberts- sonar, markakóngs 1. deildar, og Guðmundur Torfason. Mynd: -eik Nýr samningur á borði Clough: Ræður sjálf- ur lengduuii! Á borðinu hjá Brian Clough, framkvæmdastjóra enska knatt- spyrnuliðsins Nottingham Forest, liggur nýr samningur. Átján mán- uðir eru eftir af gamla samningnum en til hversu langs tíma sá nýi tekur er enn ekki vitað; Clough fær nefni- lega að ráða því sjálfur! Clough hefur stjórnað Forest í níu ár. Hann tók við liðinu í neðri hluta 2. deildar, kom því upp í 1. deild, gerði það strax að Eng- landsmeisturum og síðan að Evrópumeisturum tvö ár í röð. Hann er talinn hafa komið öllu í þennan samning sem hann fór fram á, þar á meðal hækkun á fastakaupi sem verður um 2,5 miljónir ísl. króna í stað 2,2 áður. Við þá upp- hæð bætast síðan ávallt ýmiss kon- ar bónusar. Tveir leikmanna Forest, Ian Wallace og Viv Anderson, sem eru hæst launuðu starfskraftar félags- ins að Clough undanskildum, bíða með óþreyju eftir að sjá þennan nýja samning. Clough hefur nefni- lega tilkynnt þeim báðum, að ef þeir vilji leika áfram með Forest að þessu keppnistímabili loknu, verði þeir að sætta sig við að verað lækk- aðir í kaupi vegna fjárhagsþreng- inga félagsins. Það bendir því allt til þess að þeir félagar verði seldir næsta sumar. -VS Brian Clough verður væntanlega framkvæmdastjóri Forest enn um hríð. McEnroe og Navra- tilova best í heimi ’83 John McEnroe, Bandaríkjamaðurinn skapheiti, liefur verið út- nefndur hesti tennisleikari Iwiins ú árinu 1983 af fámennum, útvöld- um hópi sérfrœðinga. Par hafði líkast til mest að segja sigur hans í Wimbledon-keppninni á Englandi. Mats Wilander frá Sviþjóð var ekki langt undan í kjörinu og sumir sérfrœðinganna töldu hann eiga að baki heilsteyptara keppnisár en McEnroe. Martina Navratilova, tékkneska stúíkan sem nú er bandarískur ríkisborgari, var að sjálf- sögðu útnefnd besta tenniskona heims en hún tapaði aðeins einum einasta leik á öllu árinu 1983. Áhorfendum fjölgar á leikjum íSkotlandi Víða um Evrópu barma menn sér yfir fœkkun áhorfenda á knatt- spyrnuleikjUm. Ekki íSkotlandi. Nú hafa um 250jntsund fleiri mœtt á leiki þarlendu úrvalsdeildarinnar en á sama tíma í fyrra og er aukningin alls um 22 prósent, en meðalaukning á leik er 15 prósent. Ekki er að efa aðstórgóð frammistaða Aberdeett og Dundee United í Evrópumótunum á jnir sinn hlut að máli. -VS A-sveitArmanns vann A-sveit Ármanns bar sigur úr býtum sveitakeppni Júdóbands íslands sem haldin var í íþróttahúsi Kennaraháskólans á laugardag- inn. Ungmennafélag Kejlavíkur varð íöðru sœti, b-sveit Ármanns í þriðja og Gerpla rak lestina. ísigursveit Ármanns voru þeir Porsteinn Jóhannsson, Örn Arn- arson, Hilmar Jónsson, Gísli Wíum, Garðar Skaftason, Bjarni Friðriksson og Kolbeinn Gíslason. FH enn með fullt hús stiga í 1. deild: Agæt byrjun Vík- inga dugði ekki til Slakur sautján mínútna kafli í seinni hálfleik kom í veg fyrir að Vikingar næðu að fylgja eftir ágætri byrjun og verða fyrstir til að taka stig af FH í 1. deild karla í handknattlcik. Liðin mættust í Laugardalshöllinni í gærkvöldi og FH vann með timm marka mun, 24-19. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og aldrei munaði meiru en tveimur mörkum. FH varyfiríbyrjun, Vík- ingur um miðbikið og FH aftur undir lokin, skoraði þá fjögur mörk í röð en Víkingur átti loka- orðið, 10-9 fyrir FH í hálfleik. Jafnt var, 11-11, í byrjun seinni hálfleiks en þá hrundi allt hjá Vík- ingurn. leikleysa í sókn, FH gekk á lagið og komst í 17-12 á 17. mínútu. Eftir það reyndu Víkingar að taka Atla Hilntarson og Kristján Ara- son úr umferð, ntunurinn minnkaði í 20-17, en FH fann fljótt greiða leið í gegnum fámenna vörn Víkings, Þorgils Óttar Mathiesen Það var gífurlegur hamagangur á lokamínútunni í leik KR og Þrótt- ar í 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi. KR komst tveimur mörkum yfir þegar rúm mínúta var eftir, 17-15, en Þróttur náði samt að jafna, 17-17, og það urðu loka- tölurnar. Mikil keppni er greini- lega framundan um hvaða félög fylgja FH og Val í úrslitakeppnina. I upphafi stefndi allt í stórsigur Þróttara. Þeir gerðu fyrstu fimm mörkin og voru í geysilegum ham og KR komst ekki á blað fyrr en á 10. rnínútu. Forysta Þróttar minnkaði smám saman, tvisvar niður í tvö mörk, en staðan í hálf- leik var 11-8, Þrótti í hag. Síðari hálfleikurinn var í algerri mótsögn við þann fyrri. Frábær vörn KR-inga kom Þrótturum ger- samlega í opna skjöldu, svo mjög og fleiri kunnu vel að meta aukið frjálsræði og sigur FH komst ekki í teljandi hættu undir lokin. Hafn- arfjarðarliðið skoraði tvö síðustu mörkin, 24-19, og Sverrir Kristins- son kórónaði sigurinn með því gð verja vítakast Steinars Birgissonar þegar leiktíma var lokið. Haraldur Ragnarsson ntark- vörður og Atli Hilmarsson voru bestu inenn FH. Atli var ógnandi allan tímann og skoraði glæsimörk og Haraldur varði eins og berserk- ur, einkunt í fyrri hálfleik. Þá sýndi Jón Erling Ragnarsson skemmti- lega takta, sér í lagi undir lok fyrri hálfleiks þegar hann gerði þrjú fal- leg rnörk í röð úr hægra horninu. Þorgils Óttar var drjúgur í lokin en sóaði hrikalega mörgum dauðafær: um áður, hann hlýtur að hafa haft martröð með Ellert Víkingsmark- vörð í aðalhlutverki í alla nótt. Ellert var frábær í Víkingsmark- inu og besti maður liðsins. Sigurð- ur Gunnarsson reif sig oft upp af að þeir rauð/hvítu skoruðu aðeins eitt mark fyrstu 19 mínúturnar, og það úr vítakasti. Staðan var þá orð- in 15-12, KR í hag, og sigur Vest- urbæinga í uppsiglingu. Hasarinn í lokin byrjaði þegar Guðmundur Albertsson skoraði fyrir KR 1,10 mín. fyrir leikslok. Rétt á eftir fékk Friðrik fyrirliði KR rauða spjaldið, rekinn útaf í þriðja sinn, og þegar 36 sek. voru eftir skoraði Gísli Óskarsson, 17- 16. KR missti boltann strax og Páll þjálfari Björgvinsson jafnaði, 17- 17, og enn voru 18 sek. eftir. Hamagangurinn í lokin var engu líkur, Haukur Geirmundsson KR-ingur var rekinn útaf og Vujin- ovic þjálfari KR fékk rauða spjald- ið fyrir háreysti á bekknum. KR fékk aukakast á síðustu sekúndu en Guðmundur skaut yfir úr vonlítilli stöðu. krafti í fyrri hálfleik og skoraði lagleg mörk og Viggó Sigurðsson kom inná þegar staðan var orðin slæm og gerði þá ntikinn usla. Varnarleikurinn var besti hluti Víkingsliðsins ásamt markvörsl- unni lengi vel. Mörk FH: Kristján 6(3), Atli 4, Þorgils Ótt- ar 4, Jón Erling 4, Guðmundur Magnús- son 2, Hans Guðmundsson 2, Pálmi Jóns- son 1 og Sveinn Bragason 1. Mörk Vikings: Sigurður 5, Steinar Birg- isson 4(3), Hörður Harðarson 3(2), Viggó 3, Guðmundur Guðmundsson 2, Hilmar Sigurgíslason 1 og Karl Práinsson 1. - vs. Staðan Vikingur-FH....................19-24 KR-Þróttur.....................17-17 FH.............11 11 0 0 331-217 22 Valur..........11 8 1 2 244-215 17 Vikingur...... 11 6 0 5 254-242 12 Þróttur........11 4 3 4 236-249 11 KR.............11 4 2 5 1 90-188 10 Stjarnan.......11 4 1 6 213-255 9 Haukar.........10 1 1 8 195-249 3 KA.............10 0 2 8 176-224 2 Markahæstir: Kristján Arason, FH...............95 Páll Ólafsson, Þrótti.............77 Sigurður Gunnarsson, Víkingi......67 EyjólfurBragason, Stjörnunni......56 Atli Hilmarsson, FH...............54 Hannes Leifsson, Stjörnunni.......54 Hans Guðmundsson, FH..............54 Þorgils Óttar Mathiesen, FH.......52 Brynjar Harðarson, Val............50 Jakob Jónsson, KR.................49 ÞórirGislason, Haukum.............49 Páll Ólafsson var bestur Þróttara og lék sérstaklega vel í fyrri hálf- leik. Þeir Ásgeir Einarsson mark- vörður, Páll Björgvinsson, Lárus Lárusson og Birgir Siguðsson áttu allir ágætis leik. Nokkuð köflóttur leikur þó hjá liðinu í heild eins og leikurinn ber með sér. Jens Einarsson markvörður var bestur KR-inga, ekkert mark- mannahallæri á þeim bær. Jakob Jónsson lék vel og annars voru KR- ingarnir nokkuð jafnir. Mörk KR: Jakob 6, Guðmundur 3, Jó- hannes Stefánsson 3, Ólafur Lárusson 2, Gunnar Gislason 2 og Haukur 1. Mörk Þróttar: Páll Ó. 5 (1), Páll B. 3, Gísli 3, Lárus 3, Birgir 2 (1) og Konráð Jónsson 1. -Frosti Jafntefli í hamagangnum slapp naumlega Everton Everton slapp naumlega fyrir horn gegn 3. deildarliðinu Oxford United í 8-liða úrslitum enska Mjólkurbikarsins í knattspyrnu í gærkvöldi. Níu mínútum fyrir leikslok tókst Adrian Heath að komast inní misheppnaða sendingu varnarmanns Oxford sem ætluð var markverði og skoraði auðveld- lega, 1-1. Félögin mætast að nýju á Goodison Park, heimavclli Everton i Liverpooi, næsta þriðjudag. Oxford hefur þegar slegið New- castle, Leeds og Manchester Unit- ed útúr keppninni og náði forystu um miðjan síðari hálfleik þegar Bobby McDonald, bakvörðurinn kunni sem áður lék með Manch. City og Coventry, skoraði. Fyrstudeildarliðið slapp síðan vel eins og áður er lýst og náði að næla sér í heimaleik. Walsall, sem er efst í 3. deild, er komið í undanúrslitin, vann annað 3. deildarlið, Rotherham, 4-2 á útivelli. Ally Brown, sem um árabil var einn helsti markaskorari WBA, gerði eitt markanna, en hin skoruðu Mark Rees 2 og Richard O’Kelly. Swansea náði stigi í 2. deild, saga til næsta bæjar, gerði jafntefli heima, 2-2, við Huddersfield. í 4. deild tapaði Hereford 1-2 fyrir Bury. Nýr gjaldmiðill! inn upp hjá félögum í fjárþröng. I gær keypti Torquay, sem leikur í 4. deild, Andy Wharton frá Burnley. Kaupverðið? Jú, John Bond, frarn- kvæmdastjóra Burnley, og öllum leikmönnum liðsins var boðið í fría helgarferð til Torquay sem er sól- ríkur staður á Cornwall-skaga, á suðvesturhorni Englands! Nýr gjaldmiðill hefur verið fund- Kœra Valsmenn brottreksturinn ? Líkur eru á að Valsmenn kæri brottrekstur Jóns Péturs Jóns- sonar úr leik Vals og Stjörnunnar í 1. deildinni í handknattleik sem fram fór s.l. laugardag. Ekki náðist í forráðamenn Vals í gærkvöldi til að fá þetta staðfest, Jón Pétur kvaðst ekki vita um það en taldi þaö líklegt. „Óli Ólsen dómari fór útfyrir sitt verksvið, ég var að tala við Hilmar Björnsson þjálfara þegar hann kom og sýndi mér rauða spjaldið", sagði Jón Pétur í gær. - VS.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.