Þjóðviljinn - 19.01.1984, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 19. janúar 1984! ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Torfi Ólafsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Skóla-
dagar11 eftir Stefán Jónsson Þórunn
Hjartardóttir les (9).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson.
11.15 Suður um höfin Umsjón: Þórarinn
Björnsson
11.45Tónleikar.
12.00 Ðagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðuríregnir. Tiikynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Brynjólfur Sveinsson biskup" eftir
Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm Gunnar
Stefánsson les (18).
14.30 Á frívaktinni Margrét Guðmunds-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.40 Siðdegistónleikar Tékkneska tríóið
leikur Pianótríó í Es-dur op. 100 eftir
Franz Schubert.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynnjngar. Daglegt
mál. Erlingur Sigurðarson flytur.
19,50 Við stokkinn Stjórnendur: Guðlaug
Maria Bjarnadóttir og Margrét Ólafsdótt-
ir.
20.00 Halló krakkar! Stjórnandi: Jórunn
Sigurðardóttir.
20.30 „Krummi er fuglinn minn“, fyrri
hluti Dagskrá úr verkum eftir og um
Davið Stefánsson skáld frá Fagraskógi.
Umsjón: Gestur E. Jónasson. Flytjendur
ásamt honum: Sunna Borg, Theodór
Júlíusson, Signý Pálsdóttir og Þráinn
Karlsson. (Síöari hluti verður á dagskrá
sunnudaginn 22. jan. kl. 14.10).
21.30 Samleikur í útvarpssal Margot Le-
verett og Anna Guðný Guðmundsdóttir
leika á klarinettu og píanó a. Blik fyrir
klarinettu eftir Áskel Másson. b. Sónata
fyrir klarinettu og píanó eftir Francis
Poulenc. c. Fjórir þættir fyrir klarinettu
eftir David Frank. d. Sónata eftir Leonard
Bernstein.
22.15 Veðuríregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 I beinu sambandi milli landshluta
I beinu sambandi milli landshluta kl.
22.35 verður skólahald til sveita á dag-
skrá. Helgi Pétursson verður staddur á
Varmalandi í Stafholtstungum en þar í
kring eru víða akstursskólar. Bílstjórar,
foreldrar og nemendur munu láta álit sitt í
Ijós. Gissur Pétursson veröur í Reykjavík
með skólayfirvöldum. Einnig verður út-
varpað frá Akureyri og m.a. rætt um
hvort flytja mætti útibú frá deildum Há-
skólans norður. Víða í sveitum landsins
þarf fólk að senda börn sín í heimavistar-
skóla þegar þau eru 7 ára gömul. Einnig
eru starfræktir svokallaöir akstursskólar
þar sem börn eru allt upp í þrjár klukku-
stundir á degi hverjum í bíl til og frá skóla.
Þegar að framhaldsnámi er komið
þurfa unglingar að flytja frá heimilum sin-
um þannig að fjölskylduaðstæður breyt-
ast og mikill kostnaður fylgir.
Upp úr kl. 23 má fólk gjarnan hringja í
síma 22260 og segja frá sinni reynslu af
skólamálum til sveita.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
JS
RUV 2
10-12 Morgunvaktin. Alltaf sami Kvartettinn:
Arnþruður Karlsdottir handknattleikskona
og lögga. Hún er auk þessa alls bæði I Öld-
ungadeildinni og pólitíkinni. ÁsgeirTómas-
son á að baki langan feril í blaðamennsku
og hefur auk þess fengist við að snúa plötum
á skemmtistöðum. Jón Ólafsson er tón-
mennlaður og stjórnar kór Verslunar-
skólans. Auk þess er hann í jassdeild i skóla
FlH. Páll Þorsteinsson er útvarpsmaður al
rás 1. Þar var hann m.a. í morgunútvarpi
með Páli Heiðari og syrpustjóri í tónlistar-
þáttum.
14-16 Jón Axel og Pétur Steinn sjá um tónllst
og spjall.
16- 17 Jóreykur að vestan. EinarGunnar Ein-
arsson nemandi I Myndlistarskólanum
kynnirraulandi hetjur sem ríðasyngjandi um
héruð kúrekamyndanna.
17- 18 Bogi Ágústsson og Guðmundur Ingi
Kristjánsson halda áfram að rifja upp 7.
áratuginn. Þeirra kynslóð veit ekki betri
músik og leggur eflaust við hlustir.
frá lesendum
Auglýsing
á tóbaki
og víni
Lesandi Þjóðviljans fékk boðs-
kortið sem mvndin er af, vegna
reksturs sem hann starfrækir úti
á landi. Hann hefur trúlega ekki
farið í veisluna því hann sendi
okkur kortið ásamt meðfylgjandi
línum:
10. janúar 1984 - til Þjóðvilj-
ans.
Tóbaksauglýsingar og vín-
auglýsingar eru bannaðar á fs-
landi samkvæmt gildandi lögum
frá Alþingi. Þá er bara að fara
rfj/otiM /l^. f./í. ðSlátan (j ' /t t///amiOM, t /ha/mfeíé-
enc/a u7 r'ceio,y, /ióét/A. uétn o/jf maÁa yéaA aé tf<‘ ’ia
Se/ Jh<í ánce<jj« ciA &o/ma f<///iö/e/^a<jnaéai a/ G^/o/e/
, ÓTtíÁtaóaf 2. /meJ, /ár/ya'u/a/jfín n //t. Janúar
nJ, &/'. /.9.00.
r<//o/>ui /íf $
Sma S /555 /uui //. óeáSa t/ta/iaoa
Þetta kallast að fara bakdyramegin að hlutunum.
bakdyramegin. Það kunna þeir p.s.: Ég ætla að mæta á Hótel
hjá Globus hf. eins og boðskortið Sögu því ef til vill fær maður iíka
sýnir. að bragða á nautasteik frá Arg-
Tryggvi. entínu.
Nokkurorð
til meðlagsgreiðanda
Láglaunafólk þarf að standa sam-
an.
Svar við lesendabréfi þann
11.1. 1984.
Áður en þú lætur fara frá þér
þau orð, að þú efist unt sannleiks-
gildi orða minna, skaltu fyrst
kynna þér hvernig umræddur
hópur hefur það í dag. þ.e. ein-
stæð móðir með börn.
Ég endurtek, að það eru ein-
göngu staðreyndir sem fengu mig
til að skrifa umrædda grein. Ég
hefði getað sagt miklu meira. Til
dæmis nefndi ég meðlag föður
ekki á nafn. Ég gerði það ekki
vegna þess að ég veit að feður
þurfa líka að hafa mannsæmandi
laun til að geta greitt meðlag með
börnum sínunt. Þó ég efist ckki
unt sannleiksgildi orða þinna, þá
get ég líka fullyrt að sumir feður
gætu borgað meira með börnum
sínum.
Þá erurn við líka komin að
kjarna málsins, þ.e. launamun
fólks í þessu landi. Hvernig væri
að þú, meðlagsgreiðandi góður,
reyndir frekar að standa með
okkur, því þú hlýtur að vera því
sammála að börn okkar eiga
betra skilið.
Og láttu ekki reiði þína yfir
þínum lágu launum bitna á öðr-
um láglaunahópi.
-Einstæð móðir. i
Skreiðartafla
í stað oblátu
Gamall maður hringdi:
Ég horfi björtum augum til
framtíðarinnar þrátt fyrir skort á
fé til matarkaupa.
Reyndar var ég á barrni ör-
væntingar nú um daginn þegar ég
hafði greitt reikninga vegna síma,
rafmagns, hita og fasteigna-
gjalda. Þá var nefnilega ekki
króna eftir til annarra nauðþurf-
ta.
Bjartsýni mín á rætur í upplýs-
ingum sem ég fékk í gær. Sagt er
að búið sé að bjarga því, að við
gantla fólkið deyjurn ekki úr
hungri. Það stendur nefnilega til
að lofa okkur að fara í kirkju þri-
svar í viku og ganga til altaris. í
stað oblátunnar verði okkur látin
hin nýja skreiðartafla í té. Þannig
verði hungruðum íslendingum
bjargað frá því að veslast upp á
sama hátt og hrjáðum fbúum
þriðja heimsins.
Krummi er
fuglinn minn
Rás 1
kl. 20.30
Davíð Stefánsson skáld frá
Fagraskógi verður á dagskrá út-
varpsins í kvöld kl. 20.30. Dag-
skráin verður úr verkum eftir
skáldið og jafnframt úr greinum
sem skrifaðar hafa verið um Da-
víð. Davíð Stefánsson fæddist í
janúar 1895 í Fagraskógi við
Eyjafjörð. Hann bjó lengst af á
Akureyri og lést þar árið 1964.
Fyrsta bók Davíðs var Svartar
fjaðrir og vakti hún mjög mikla
athygli. Engin ljóðabók hefur
selst í fleiri eintökum hér á landi.
Fjöldi ljóðabóka kom út eftir Da-
víð Stefánsson. Einnig skrifaði
hann leikrit og er Gullna liliðið
þekktast þeirra. Skáldsaga hans
Sólon Islandus kom út árið 1940
og hefur Sölvi Helgason, aðalp-
ersóna sögunnar, síðan verið
landsmönnum kunnur.
Margt hefur verið skrifað og
skrafað um Davíð Stefánsson.
Skáldið frá Fagraskógi er safn
endurminninga samferðamanna
hans. Fjöldi greina hafa verið
birtar í ýmsurn ritum. Þar má
nefna afmælisgreinar í tilefni af
fimmtúgsafmæli skáldsins árið
1945 t.d. eftir Halldór Laxness í
bókinni Af skáldum. Kristján
Eldjárn var einn þeirra sem skrif-
aði afmælisgrein um Davíð sex-
tugan, sú grein birtist í Skírni árið
1955.
Umsjónarmaður þáttarins í
kvöld er Gestur E. Jónasson.
Flytjendur ásamt honum eru:
Sunna Borg, Theodór Júlíusson,
Signý Pálsdóttir og Þráinn Karls-
son.
Framhald verður á þættinum
kl. 14.10 á sunnudaginn.
-jp
KRAKKAR
ATHUGIÐ!
í kvöld kl. 19.50 er í útvarpi
þátturinn Við stokkinn, þar sem
örugglega er eitthvað skemmti-
legt fyrir ykkur. Strax á eftir kem-
ur svo þátturinn Halló krakkar í
umsjón Jórunnar Sigurðardótt-
ur. Unt að gera að hlusta á út-
varpið í kvöld.
Pennavinir
óskast
Hæ, hæ.
Ég heiti Hannes og er 13 ára
töffari í Fossvoginum.
Mig langar til að eignast
pennavini, krakka á aldrinum
12-14 ára. Áhugamál mín eru:
Æskan, dýr og Rolling Stones-
sérstaklega Mick Jagger.
Hannes A. Jónsson
Kjalarlandi 18
108 Reykjavík.
bridge
„Gömlu" kallarnir í bandarískum bri-
dge, Kaplan og Kay gera það gott þar
vestra. Vinna hvert mótið á fætur öðru og
hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitum
bandariska meistaramótsins. Hér er spil
með þeim, sem kom fyrir á HM 1978 í
New Orleans í tvímenning:
ÁK96 G7 ÁD5 KD765 G107 D43
G942 10873
G104 Á982
32 86
10852 K6 3 ÁKD954
Besta par S-USA, Chagas og Assum-
paco voru með spil N/S og sögðu þannig
á spilin:
Austur Suður Vestur Noröur
Kaplan Assump. Kay Chagas
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Pass 3 spaðar Pass 3 grönd
Allir pass.
Útspil Kaplans var hjartaátta og Chag-
as lét kóng. Eins og sjá má eru 9 slagir
„beinharöir", en í mótum sem þessum
(OL, HM, EM) hefur það nú frekar tak-
markað gildi (í tvímenningskeppnum,
þar sem hver slagur er gulli meira). Og til
að bæta spiliö bað Chagas um tígulþrist í
2. slag. Lét kóng, en Kaplan drap á ás og
á augabragði lá spaðaþristur á borðinu.
Kay drap á kóng og hugsaði sig um og
spilaði svo spaðasexu til baka, drottning
og meiri spaði. Einn niður. Fallegt.
Tikkanen
Gallinn við hina upplýstu
toppa er sá að þeir halda að af-
gangur þjóðarinnar búi við
stöðugt niyrkur.
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Þeir hafa birt aðvar-
anir.
Rétt væri: Þeir hafa birt viðvar-
anir.
(Á íslensku er sagt að vara við,
ekki að vara að.)