Þjóðviljinn - 19.01.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 19.01.1984, Blaðsíða 5
Kimmtudagur 19. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Svavar Gestsson átti lokaorðið á fundinum. Hápunktur Akureyrarhelgarinnar einsog margs konar félagsstarfsemi á vegum Alþýðubandalagsins var kölluð, var á fundinum í fyrrakvöld. Rögnvaldur Rögnvaldur er ævinlega ómyrkur í máli og brást ekki vonum fundarmanna að þessu sinni fremur en áður. Það var stemming á fundi Al- þýðubandalagsins á Akureyri í fyrrakvöld. Fundurinn var haldinn í Alþýðuhúsinu og var hér um að ræða lokaáfangann í nokkurra daga baráttulotu á vegum Alþýðu- bandalagsins nyrðra. Fundurinn í Alþýðuhúsinu var vel sóttur; þar voru saman komnir Akureyringar úr mörgum starfs- greinum meðal annars af þeim vinnustöðum sem forystumenn Al- þýðubandalagsins heimsóttu á mánudag og þriðjudag. Þar mátti sjá starfsfólk Slippstöðvarinnar, Utgerðarfélags Akureyrar, Sam- bándsverksmiðjanna og skólanna á Akureyri og þar var fólk á öllum aldri, en áberandi var hlutur yngri kynslóðar á fundinum. I lok hans skráðu nokkrir félagar sig sem áhugamenn um stofnun Æskulýðs- fylkingar nyrðra. Þá gengu nokkrir fundarmenn í Alþýðubandalagið á staðnum og enn aðrir bættust við í Sagt frá fundinum íAlþýðuhúsinu á Akureyri ífyrrakvöld hópi nýrra áskrifenda Þjóðviljans á Akureyri. Askrifendur Þjóðviljans eru nú fleiri í höfuðstað Norður- lands en okkru sinni fyrr, að sögn Haralds Bogasonar afgreiðslu- manns Þjóðviljans á Akureyri. Á fundinum höfðu þau fram- söguræður Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi og alþingismennirnir Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson. í ræðum sínum lögðu þau megináherslu á atvinnumálin. Svar Alþýðubandalagsins við stjórnarstefnu kreppu og vonleysi eru tillögur í atvinnumálum sem geta tryggt verkefni handa hund- ruðum starfsmanna strax, sagði Svavar Gestsson. Sigríður Stefáns- dóttir gerði grein fyrir tillögum Al- þýðubandalagsins á Akureyri í at- vinnumálum og var gerður góður rómur að þeim tillögum. Þær hafa nú verið kynntar í atvinnumála- nefnd og í bæjarráði og verða til meðferðar næstu daga. í Tillög- unum er sýnt fram á leiðir til þess að tryggja hundruð starfa á Akureyri hér og nú. Er þessi tillaga Alþýðu- bandalagsins sérstaklega athyglis- verð með tilliti til þess að Fram- sóknarflokkurinn og Sjálfstæðis- flokkurinn vísa atvinnulausum Eyfirðingum um þessar mundir á Sigríður Stefánsdóttir bæjarfull- trúi Alþýðubandalagsins í ræðu- stóli. álver sem þó getur engu breytt um atvinnulíf á svæðinu fyrr en eftir mörg ár eins og nú horfir. Á fundinum í Alþýðuhúsinu tóku margir til máls. Meðal þeirra voru Höskuldur Stefánsson. Rögnvaldur Rögnvaldsson, Jón Árnason og Torfi Sigtryggsson. Fundarstjóri var Heimir Inginiars- son. - Fyrr á árum tókst verkafólki að rjúfa víthring kreppu og atvinnu- leysis með markvissu starfi í verka- lýðsfélögunum og með því að eiga sterkan, samhentan stjórnmála- flokk. Það sama þarf enn að gerast. Nú þurfa allir að leggja sig fram af alefli í verkalýðsfélögunum og taka þátt í starfi þeirra, fundarhöldum og umræðum til þess að skapa sem fyrst samstöðu um að hrinda af sér oki kreppustefnunnar, sagði Svav- ar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins í lok fundarins. Starfíð af alefíi í verkalýð sfélögu num

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.