Þjóðviljinn - 19.01.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.01.1984, Blaðsíða 8
8 SIÐA ÞJOÐVIL.IINN Fimmtudagur 19. janúar 1984 Gísl var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu fyrir réttum 20 árum og eru áreiðanlega margir sem vilja rifja upp gömul kynni við þetta frábæra leikrit og ný kynslóð vaxin úr grasi til þess að kynnasl því í fyrsta sinn. Á myndinni cru Margrét Hclga Jóhannsdóttir sem leikur Meg, Karl Guðmundsson sem leikur sjálfboðaliða í írska lýðveldishernum og Margrét Ölafsdóttir sem leikur gleðikonu. frumsýnt hjá LR í kvöld Guðrún Gísladóttir sem leikur gleðikonu, Hanna María Karlsdóttir sem leikur miss Gilchrist og Gísli Halldórsson sem leikur Pat í sýningu LR á Gísl. Fimmtudagur 19. janúar 1984 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 9 í kvöid frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur leikritið GÍSL eftir írska ieikritaskáldið Brendan Behan. Leikritiðer þekktasta verk höfundar. Það var f rumsýnt árið 1958 og fór þegar í stað sigurför um heiminn. Leikritið gerist í gömlum hús- hjalli í Dublin á frlandi, þangað sem írski lýðveldisherinn kemur með bréskan hermann sem gísl. Leikritið gerist á sólarhring þarna innan um þjófa, gleðikonur og gamla ættjarðarvini. Það vakti á sínum tíma ekki síst athygli fyrir óvenjulegt form, sem á köflum minnti allt eins á kabarett og venju- legt leikrit - kórrétt leikverk. Jónas Árnason þýddi leikritið, lýsingu annast Daníel Williams- son, leikmynd og búninga gerir Grétar Reynisson, sem starfar nú í fyrsta sinn fyrir Leikfélag Reykja- víkur en hefur áður getið sér gott orð hjá Nemendaleikhúsinu og Al- þýðuleikhúsinu. Mikið er um tón- list í verkinu af ýmsu tagi; írsk þjóðlög, kabarettsöngvar og ball- öður og hefur Sigurður Rúnar Jónsson útsett og stjórnað allri tón- list. Hann tekur jafnframt þátt í sýningunni og spilar á ein sjö, átta hljóðfæri en reyndar sætir það einnig tíðindum, að hljómsveitin sem annast undirleik í sýningunni er eingöngu skipuð leikurunum auk hans. Leikstjóri sýningarinnar er Stef- Jóhann Sigurðsson leikur hermanninn breska og Guðbjörg Thoroddsen írsku stúlkuna Teresu. án Baldursson en með helstu hlut- verk fara: Gísli Halldórsson (Pat), Margrét Helga Jóhannsdóttir (Meg), Jóhann Sigurðsson (her- maðurinn breski), GuðbjörgThor- oddsen (Teresa), Guðmundur Pálsson (Monsjúr), Hanna María Karlsdóttir (miss Gilchrist), Aðal- steinn Bergdal (Ríó Rita), Steindór Hjörleifsson (Mr. Mul- leady) og ennfremur Kjartan Ragnarsson, Þorsteinn Gunnars- son (IRA liðsforingi), Guðrún Gísladóttir og Margrét Ólafsdóttir leika gleðíkonur, Harald G. Har- aldsson rússneskan sjómann og Karl Guðmundsson sjálfboðaliða í írska lýðveldishernum en áður var getið Sigurðar Rúnars Jónssonar. Höfundurinn Brendan Behan átti litríkan æviferil. Hann fæddist í Dyflini 1923 og gerðist ungur að árum stuðningsmaður írska lýð- veldishersins. 16 ára gamall var hann dæmdur í betrunarhúsvist á Englandi eftir að hafa reynt að smygla þangað sprengiefni. Síðar á lífsleiðinni lenti hann aftur í fang- elsi í nokkur ár fyrir að skjóta á lögregluþjón. Hann var þá aðeins 19 ára gamall. Hann eyddi nokkr- um árum í fangelsi, tók að skrifa þar af krafti og lærði þar reyndar fyrst írsku til hlítar. Eftir að hann kom úr fangelsi sneri hann sér fljót- lega alfarið að ritstörfum. Skrifaði í blöð og annaðist útvarpsþætti en sló fyrst í gegn með leikriti sínu The Quare Fellow. (hefur verið flutt í útvarp hérlendis undir heitinu Öf- ugugginn í þýðingu Þorgeirs Þor- geirssonar). Þar nýtir hann sér reynslu sína úr fangelsinu. Það sama gerir hann í bókinni Borstal Boy, sem kom út 1958 og varð þeg- ar í stað metsölubók, bæði í Evr- ópu og Ameríku. Árið 1958 semur hann Gísl, fyrst á írsku og það er leikið í Dublin, en sama ár setur leikstjórinn Joan Littlewood upp endurbætta gerð þess í London og þar með var frægðarferill verksins hafinn. Stór- borgirnar New York, París og Berlín fylgdu í kjölfarið og Gísl hóf sigurför sína um heiminn. Það var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1963 undir stjórn Thomas MacAnna frá írlandi. En það var eins og Behan þyldi ekki alla velgengnina, hann lagðist í drykkju sem ágerðist með árun- um og drakk sig loks í hel aðeins rúmlega fertugur að aldri. Hann lést í Dublin 1964. Frægustu verk hans eru þau, sem hér hafa verið nefnd, þ.e. sagan Borstal Boy (1958), leikritin Gísl (1958) og The Quare Fellow (1954) en hann samdi einnig fleiri bækur; greinar og frásögur: Hold Your Hour and Have Another, Confessi- ons Of An Rcbcl, Brendan Behan’s Irish Island, Brendan Behan’s New York, The Scarperer, útvarps- leikritin Moving Out og A Garden Party auk þess sem hann samdi megnið af leikritinu Rickhard’s Cork Leg, sem sýnt hefur verið að honum látnum. Sýning Leikfélagsins á Gísl er þriðja frumsýning leikársins og ein viðamesta sýning, sem þar hefur verið sett á svið. Uppselt er á fyrstu tvær sýningarnar á fimmtudags- og föstudagskvöld, þriðja sýning er á sunnudagskvöld. fjmnjdf *> j ■mm § í | fe ' Fyrir miðju á þessari sviðsmynd er Sigurður Rúnar Jónsson hljómlistarmaður sem í sýningunni leikur á ein átta hljóðfæri og stjórnar hljómsveit sem eingöngu er skipuð leikurum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.