Þjóðviljinn - 08.03.1984, Side 7
Fimmtudagur 8. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Fjölflokkakerfi og
blandað hagkerfi
grundvallaratriði í stefnu okkar,
segir Edga Vélez frá Nicaragua
Edga Vélez: hernaðaríhlutun og viðskiptabann Bandaríkjanna gera okkur
erfitt fyrlr. Ljósm. eik.
Þau vandamál sem
stjórnvöld í Nicaragua eiga
nú við að glíma eru hvort-
tveggja í senn efnahagsleg
og hernaðarlegseðlis, þar
sem efnahagsvandinn or-
sakast að hluta til af þeirri
hernaðaríhlutun og efna-
hagslegu einangrun sem
landið hefur mátt þola af
hendi Bandaríkjanna.
Þannig komst Edga Vélez, 1.
sendiráðsritari í sendiráði Nicarag-
ua í Stokkhólmi að orði í stuttu
spjalli við Þjóðviljann, en Edga
Vélez er hér stödd í boði nokkurra
íslenskra félagasamtaka og kom
meðal annars fram á fundi að Hótel
Borg í gærkvöldi til þess að ræða
ástand mála í heimalandi sínu.
Edga Vélez sagði að gagnbylt-
ingaröflin sem herjuðu í Nicaragua
með stuðningi Bandaríkjanna
hefðu valdið gífurlegu tjóni á
mannvirkjum eyðilagt brýr, skóla,
sjúkrahús og olíubirgðastöðvar,
auk þess sem kostnaðurinn við að
verjast slíkum hryðjuverkum væri
mikill. Hún taldi að nú væru 5-7
þúsund gagnbyltingarmenn í
norðurhluta landsins með bæki-
stöðvar í Honduras, og nytu þeir
aðstoðar 4000 bandarískra her-
manna sem einnig hefðu bæki-
stöðvar sínar handan landa-
mæranna við Honduras. Sagði hún
að daglega kæmi til átaka við land-
amærin, þar sem uppreisnarmenn-
irnir gerðu innrásir frá mörgum
stöðum í einu í smærri hópum.
Væru þeir búnir fullkomnustu
vopnum og fjarskiptabúnaði og
nytu aðstoðar bandarískra flugvéla
er kæmu frá herstöðvum Banda-
ríkjanna í Honduras. Sagði Edga
Vélez að stærstur hluti þessara
gagnbyltingarmanna væru fyrrver-
andi varðliðar úr liði Somoza sem
flúið hefðu land eftir fall harðstjór-
ans 1979. Þá sagði hún að vopnaðir
uppreisnarmenn herjuðu einnig á
Nicaragua frá Costa Rica, en þar
væri um að ræða hópa sem hefðu
snúið baki við byltingunni og stjórn
Sandinista.
Sagði hún að uppreisnarmenn-
irnir frá Costa Rica væru klofnir í
tvennt og væri annar hópurinn
fjármagnaður af bandarísku leyni-
þjónustunni.
Efnahagslegar
þvinganir
Nicaragua er lítið og fátækt land
með mikinn metnað, sagði Edga
Vélez. Við höfum leitað leiða til að
brjótast úr þeirri efnahagslegu ein-
angrun sem Bandaríkin hafa sett á
okkur, en það hefur reynst torvelt.
Sem dæmi má nefna afstöðu Al-
þjóðabankans, sem sett hefur slík
skilyrði fyrir aðstoð við Nicaragua,
að þau eru óaðgengileg fyrir okk-
ur. Þeir setja meðal annars þau
skilyrði að við hættum að greiða
niður lífsnauðsynjar og almenn-
ingssamgöngur, en frávik frá þeirri
stefnu væri í mótsögn við þær lýð-
ræðislegu grundvallarreglur sem
stjórn okkar hefur sett um efna-
hagslegan jöfnuð og framfarir.
Þeir efnahagsörðugleikar sem
okkur hafa verið skapaðir með við-
skiptabanni, hernaðaríhlutun og
þvingunum, gera það að verkum
að ekki hefur enn reynst kleift að
bæta það tjón sem borgarastyrjöld-
in gegn Somoza olli á sínum tíma.
Fjölflokkakerfi
Flokkur Sandínista, FSLN, hef-
ur verið ásakaður fyrir að útiloka
aðra flokka, sem einnig tóku þátt í
baráttunni gegn Somoza, frá öllum
áhrifum í stjórn landsins. Hverju
svarar þú slíkum ásökunum?
Þjóðfrelsisfylking Sandínista
hafði barist gegn Somoza í 20 ár
þegar sigur vannst í lok ársins 1978.
Þegar sýnt var hvert stefndi gengu
aðrir stjórnmálaflokkar í bandalag
við okkur og við mynduðum
stjórnmálalega einingarfylkingu,
sem tók höndum saman um endur-
reisn landsins. Þessi samfylking
náði þó ekki til hins hernaðarlega
sviðs, þar sem hinir flokkarnir
höfðu ekki tekið þátt í hinni vopn-
uðu baráttu. Við settum fram
stefnuskrá sem byggði á blönduðu
hagkerfi og fjölflokkakerfi. Á
þeim 5 árum sem liðin eru síðan
Somoza var steypt hefur stefna
okkar tekið breytingum í ýmsum
efnum, en þessi tvö atriði standa
enn óhögguð. Stjórnkerfi okkar nú
er byggt upp á 54 manna „ríkis-
ráði“, sem fer með löggjafarvald,
en 6 stjórnmálaflokkar eiga aðild
að því. Ríkisstjórnin, sem fer með
framkvæmdavaldið, var upphaf-
lega skipuð 2 fulltrúum FSLN og
einum fulltrúa Partido Conserva-
dor (íhaldsflokksins). Samkvæmt
ákvörðun ríkisstjórnarinnar verða
haldnar kosningar 4. nóvember
næstkomandi þar sem kosnir verða
forseti, varaforseti og 90 fulltrúar á
þjóðþing, sem jafnframt er ætlað
að samþykkja nýja stjórnarskrá
innan tveggja ára. Hér er um beina
og leynilega kosningu að ræða þar
sem allir hafa rétt til kjörgengis
sem ekki hafa beinlínis gerst forv-
ígismenn gagnbyltingarinnar. Við
teljum að þetta sýni og sanni að
aðrir flokkar en FSNL hafi ekki
verið útilokaður frá áhrifum í Nic-
aragua.
Mannréttindi
Sem kunnugt er af fréttum, var
fyrir skömmu stödd hér á landi í
boði Menningarstofnunar Banda-
ríkjanna Geraldine O'Leary Mací-
as, bandarísk eiginkona Edgar de
Macías, fyrrverandi vararáðherra
vinnumála í stjórn Sandínista.
Hafði hún stór orð um
mannréttindabrot í Nicaragua og
illa meðferð sem þau hjónin höfðu
mátt sæta áður en þau flýðu land
1982. Edga Vélez var beðin skýr-
ingar á því hvort og hversvegna
Edgar Macías hefði verið ofsóttur.
- Það vill svo til, sagði Edga Vél-
ez, að ég þekkti Macías persónu-
lega þar sem hann var yfirmaður
minn þegar ég starfaði í launamála-
deild vinnumálaráðuneytisins.
Hann var að mínu mati einlægur
stuðningsmaður Sandínistastjórn-
arinnar, maður sem fór sér hægt í
öllu og virtist yfirvegaður. Það
kom okkur því mjög á óvart að
hann skyldi leita hælis í sendiráði
Bandaríkjanna sama daginn og
hann birti grein þar sem hann
gagnrýndi stjórnina. Mér sýnist á
öllum viðbrögðum hans að hann
hafi verið haldinn hræðslu við of-
sóknir, en ég veit að hann var ekki
ofsóttur af stjórninni.
Ekki gafst tími til að ræða frekar
við Edga Vélez um Nicaragua í
gær. Við spurðum hana þó að lok-
urn hvaða þýðingu opinber heim-
sókn Olofs Palme til Nicaragua ný-
verið hefði haft, en Edga var í
fylgdarliði sænska forsætisráðher-
rans.
Mikilvæg heimsókn
Þessi heimsókn Olofs Palme var
okkur mikilvæg vegna þess að í
henni fólst traustsyfirlýsing á
stefnu okkar. Hann var fyrsti vest-
ræni þjóðhöfðinginn sem kom til
Nicaragua í opinbera heimsókn. 1
heimsókn sinni fékk Palme tæki-
færi til þess að hitta fulltrúa allra
hópa og flokka sem hann vildi, og
ég hef þá trú að hann hafi fengið
miklar og réttar upplýsingar um
stöðu mála í þessari heimsókn. Það
er alltaf mikilvægt fyrir okkur að
koma á framfæri réttum upplýsing-
um til mótvægis við þann áróður
sem bylting okkar hefur mátt þola.
Lesendum skal að lokum bent á
að Edga Vélez mun koma fram á
fundi í Félagsstofnun stúdenta í
kvöld kl. 20.30 í tilefni alþjóðadags
kvenna og ræða ástand mála í Nic-
aragua. óig>
Sportbátaeigendur
fá líka aflakvóta
Svo ótrúlegt sem það er, þá fá
sportbátaeigendur, sem leika sér
að því á góðviðrisdögum á sumrin
að fara á handfæri eða línu, afla-
kvóta í hinu nýúthlutaða kvóta-
kerfi. Að sjálfsögðu eru alvöru sjó-
menn, sem hafa allt sitt lifibrauð af
sjómennsku lítt hrifnir af þessu.
Fjölmargir þeirra, sem skipt hafa
um báta á síðasta ári og fá nú smá-
kvóta þess vegna, eru með álíka
stóran aflakvóta og sportbáta-
eigendur fá 30 til 60 tonn.
- S.dór.
Vörumerki
og einkaleyfi
Hafín er útgáfa á sérstöku blaði,
þar sem birtast munu allar lög-
boðnar auglýsingar um vörumerki
og einkaleyfí. Um leið verður hætt
. . ^
Þegar komið er af vegum með
bundnu slitlagi tekur tíma
að venjast breyttum aðstæðum
í { { FÖRUM VARLEGA!
íifiTj) -
að birta þetta efni í Lögbirtingar-
blaði og B-deild Stjórnartíðinda.
Nýja blaðið nefnist „Vöru-
mericja- og einkaleyfistfðindi"
og mun koma út mánaðar-
lega. Yfirumsjón með vörumerkja-
og einkaleyfismálum af hálfu iðn-
aðarráðuneytisins, sem gefur blað-
ið út, hefur Gunnar Guttormsson,
deildarstjóri. Ritstjóri nýja blaðs-
ins er Eygló Halldórsdóttir, lög-
fræðingur. Afgreiðsla blaðsins er á
sama stað og Lögbirtings, að
Laugavegi 116. Þeir sem óska að
gerast áskrifendur þurfa að til-
kynna það til afgreiðslunnar bréf-
lega eða í síma 25000, innanhúss
264. Askriftargjald fyrir þetta ár er
450 krónur en í lausasölu kostar
blaðið 50 krónur.
Betokem gólílögnin harðnar svo fljótt að þú getur gengið
eða lagt teppið á gólfið eftir 24 tíma. SUM gólfílögn hefur
verið í þróun í Þýskalandi, Svíþjóð og Noregi sl. 15 ár og
hefur sýnt að hún stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og
styrkleikakröfur, sem settar voru i upphafi og síðar hafa
komið fram.
Það hefur enda sýnt sig á söluþróuninni sl. 7 ár að þarna er á
ferðinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nánast þotið
upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú.
FILLC0AT
gúmmíteygjanleg samfelld húð fyrir málm-
þök.
Er vatnshelld.
Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun.
Ódýr lausn fyrir vandamálaþök.
Ábyrgð - greiðslukjör.
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL:
EP0XY - GÓLF
HAFNARFIRBI SÍMI 50538
Við erum með f jölmargar gerðir af gólf-
ílagningarefnum sem þola ótrúlegt
alag. Það er sama hvort um er að ræða
gólfið í sturtuklefanum, matsalnum
eða á bílaverkstæðinu. Vandamáiið
leysum við á fljótan og öruggan hátt.