Þjóðviljinn - 08.03.1984, Qupperneq 15
v ■ ' ,♦ ‘.’s ' *''W,v.í, r / •’ r '/,? r *' '>_a. /jfu tj
Fimmtudagur 8. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leiklimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorö - Guörún Guönadóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Leikur i
laufi“ eftir Kenneth Grahame. Björg Árna-
dóttir les þýöingu sina (27).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.) Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson.
11.30 Vísindamaður af Jökuldal. Vilhjálmur
Einarsson ræöir við Stefán Aðalsteinsson;
fyrri hluti. Seinni hiuti er á dagskrá á morgun
kl. 11.15.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
14.00 „Klettarnir hjá Brighton" eftir Graham
Greene. Haukur Sigurðsson les þýðingu
sina (17).
14.30 Á frívaktinni. Sigrún Sigurðardóttir
kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tiikynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Eugeniaog Pinchas
Zukerman leika á flautu og fiðlu Dúó í G-dúr
eftir Carl Philipp Emanuel Bach og Tríósón-
ötu í a-moll eftir Georg Philipp Telemann
með Charles Wadsworth sem leikur á
sembal / Ervin Laszlo leikur á píanó Róm-
önsu i Des-dúr op. 34 og Sónatínu i A-dúr
op. 67 nr. 1 eftir Jean Sibelius / Gervase de
Peyer og Eric Parkin leika á klarinettu og
píanó Fantasi-sónötu eftir John Ireland.
17.10 Síðdegisvakan.
18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt mál.
Sigurður Jónasson talar.
19.50 Við stokkinn. Stjórnandi: Heiðdís Norð-
fjörð (RÚVAK).
20.00 Leikrit: „Listamaður niður stiga" eftir
Tom Stoppard. Pýðandi: Steinunn Sigurð-
ardóttir. Leikstjóri: Lárus Ýmir Óskarsson.
Leikendur: Steindór Hjörleifsson, Jón Sigur-
björnsson, Valur Gíslason, Guðrún Gisla-
dóttir, Guðmundur Ólafsson, Pálmi A.
Gestsson og Jóhann Sigurðsson.
21.30 Frá tónleikum islensku hljómsveitar-
innar i Bústaðakirkju 23. f.m. - síðari
hluti. Stjórnandi: Guðmundur Emilsson.
Einsöngvari: Sigríður Ella Magnúsdóttir. a)
Einsöngslög eftir Carl Nielsen og Jean Sibe-
lius. Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur
með á píanó. b) „Torrek" lyrir hljómsveit eftir
Hauk Tómasson. - Kynnir: Ásgeir Sigur-
gestsson.
22.05 „Land og fólk“ Þorsteinn frá Hamri les
eigin Ijóð.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Lestur Passfusálma (16).
22.40 Leo Tolstoy í Ijósi friðarins. Séra Áre-
líus Níelsson flytur erindi.
23.05 Síðkvöld með Gylfa Baldurssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV 2
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Páll
Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ól-
afsson.
14.00-16.00 Effir tvö Stjórnendur: Jón Axel
Ólafsson og Pétur Steinn Guðmundsson.
16.00-17.00 Rokkrásin Stjórnendur: Snorri
Skúlason og Skúli Helgason.
17.00- 18.00 Einu sinni áður var Stjórnandi:
Bertram Möller.
Útvarp kl. 14.30
Á frí-
vakt-
inni
Kl. 14.30 er á dagskrá út-
varpsins þátturinn, A frívakt-
inni, að þessu sinni sendur út
frá Akureyri.
Margrét Guðmundsdóttir
umsjónarmaður þáttarins í
Reykjavík sagði að talsvert
bærist af bréfum fyrir hvern
þátt, og þá aðallega ástar- og
saknaðarkveðjur til sjó-
manna, frá vinum og vanda-
mönnum.
Umsjónarmaður þáttarins í
dag er Sigrún Sigurðardóttir.
Lausavísur frá
lesendum.
Þjóðin yrkir og enn er von.
Hagyrðingar leggja út af atburð-
um líðandi stundar og fers-
keytlurnar fljúga inná ritstjórn
,hver af annarri. Hér eru nokkrar
sem komið hafa síðustu daga.
Hinn snjalli hagyrðingur
Böðvar Guðlaugsson, gaukaði að
Sú var tíð að Þjóðviljinn þótti
bera af íslenskum dagblöðum um
málfar, og má vera að svo sé enn,
því að málfari hefur almennt
hrakað mikið síðan.
í blaðinu 23. febrúar er baksíð-
ufregn um töfrakerru Tómasar
Árnasonar, sem hann virðist geta
látið hverfa að vild sinni, öllum
nema ófreskum blaðamönnum
Þjóðviljans.
okkur þessari ágætu stöku, sem
eiginlega þarfnast ekki frekari
skýringa:
Mörg eru á lofti mæðuský,
mikið er handapatið.
Nú þarf að troða tappa í
tveggja miljarða gatið.
Meginmál fréttarinnar hefst á
þessum orðum: „Þjóðviljinn hef-
ur einatt haft hendur í hári bíls-
ins“.
Það er nú þess vegna orðið
mikið tilhlökkunarefni að sjá
góða mynd af þessum undra-
vagni. Og þá kannski þvegnum,
bónuðum og nýklipptum!
Lödulúði
Og síðan koma hér þrjár vísur,
eftir Krumma, Bjarna M. Jóns-
son og E.B.
Hann harmar þetta og harmar
hitt.
Hann harmar Dagsbrúnarkaupið
mitt.
Hann harmar Bleiser og grjóna-
velling.
Hans liarmagrátur er þjóðinni
hrelling.
5/3 1984
Krummi
Vinstri sinnar sjá hvað setur,
segja á stjórnina frat.
Albert kom og bætti um betur,
boraði á fjárlögin gat.
Bjarni M. Jónsson
Allt er í pati enn á ný,
enginn bati á sinni.
Stóra gatið stœkkar í
stjórnarflatsænginni.
E.B.
Um hárvöxt
Nokkrlr framúrstefnulistamenn fyrr á öldlnni.
Útvarp kl. 20.00 - Fimmtudagsleikritið:
Listamaður
niður stíga
eftir Tom Stoppard
Leikritið fjallar á gamansaman hátt um ævi þrig-
gja framúrstefnulistamanna. Þeir hafa haldið hóp-
inn alla tíð og eru orðnir háaldraðir þegar leikritið
hefst.
Höfundurinn, Tom Stoppard er í hópi áhugaverð-
ustu leikritaskálda Bretlands um þessar mundir.
Hann hefur samið mörg fræg leikrit, bæði fyrir út-
varp og leikhús, og er Listamaður niður stiga eitt
þeirra. í því eru nýttir allir kostir útvarpsins sem
leikmiðils af mikilli hugkvæmni, en undirtónn
leiksins er þó alvarleg hugleiðing urn tengsl listar og
veruleika.
Steinunn Sigurðardóttir þýddi verkið, leikstjóri
er Lárus Ýmir Óskarsson og aðstoðarleikstjóri Karl
Ágúst Úlfsson. Leikendur eru: Steindór Hjörleifs-
son, Jón Sigurbjömsson, Valur Gíslason, Guðrún
Gísladóttir, Guðmundur Ólafsson, Pálmi Gestsson
og Jóhann Sigurðarson.
- Þú getur ekki fengiö anda-
steik, Nói, við erum búin að hafa
hana tvisvar.
í dag, Friðgeir.
- Já, ég hef líka æft mig vel í
nótt.
bridge
Bridgehátíð 1984 tókst mjög ve Guð-
laugur og Örn urðu sigurvegarc i tví-
menningskeppninni, eftir harða , iráttu
við Guðmund og Þórarin. Að pessu sinni
tókst tölvugjöfin í spilunum mjög vel og
voru flestir ánægðir með leguna í spilun-
um, sem var nokkuð „eðlileg".
En eitt og eitt spil slæddist inni, þar-
sem menn sögðu „á tölvuna", með mis-
jöfnum árangri þó. Flér er dæmi um vel
heppnaðan árangur:
Spil úr umferð no. 25:
KDxxx ÁGxx Áx Kxx Dxxx XXX
Gxx 10xx
Áxx D10x
Áx Gxxx
10 KDxxx G9xx Kxx
Við eitt borðið gengu sagnir þannig:
Vestur opnaði á 1 spaða, Norður pass,
Austur pass, Suður dobl, Vestur pass,
Norður 1 grand, Austur pass og Suður 4
hjörtu (?).
Útspil Vesturs var spaðakóngur, tek-
inn á ás, hjarta þrisvar og smár tígull
síðan á kóng, Vestur setti litið. Meir tígull
og tían frá Austri, gosi og tekið á ás og
meiritígull innádrottningu. Núkomspaöi
til baka, trompað, litið lauf, lítiö frá Vestri
og upp með drottningu, og Suður taldi í
huganum: Vestur með 5 spaða, 3 hjörtu,
3 tigla og 2 lauf. Og bað um meira lauf úr
borði, lítið og lítið og ás. Slétt staðið og
toppur í höfn. Þannig getur tölvan verið
góð i sér, annað slagið.
Tikkanen
Til er tvenns konar óréttlæti.
Það sem ekki verður neitt við
ráðið og það sem ekki er hægt
að græða neitt á.
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Þeir voru vissir um
hjálp hvors annars.
Rétt væri: Þeir voru vissir hvor
um annars hjálp.
Eða: Þeir voru visSir um
hjálp hvors við annan.
Sagt var: Þetta gerðist þrisvar
sinnum.
Rétt væri: Þetta gerðist þrisvar.
Eða: Þetta gerðist þrem sinn-
um.