Þjóðviljinn - 08.05.1984, Blaðsíða 1
DJÚÐVIUINN
lan Rush
skoraði fjögur
-Liverpool
vann og
Manch. United
tapaði í gær!
Sjá 9-12
maí
þriðjudagur
102. tölublað
49. árgangur
Hæstu forstjóralaun yfir 130.000 á mánuði!
Tífaldur launamunur
samkvœmt leynilegri könnun sem Þjóðviljinn hefur undir höndum
Samkvæmt leynilegum upplýsingum sem Þjóðvilj-
inn hefur komist yfir, þá eru hæstu forstjóralaun í
Reykjavík í dag meira en ein og hálf miljón króna, eða
meir en tíu sinnum hærri en lægstu launin!
Hæstu forstjóralaunin eru um 130 þúsund krónur á
mánuði, eða næstum því jafnhá og það sem lægst
Iaunaða verkafólk vinnur sér inn á heilu ári!
Þessar upplýsingar Þjóðviljans eru úr leynilegum
könnunum sem gerðar voru í Reykjavík og enn standa
yfir. Kannanirnar sýna, að þegar búið er að taka með
hlunnindi forstjóranna þá fá hinir hæst launuðu
greiddar sem svarar 130 þúsund krónum á mánuði,
meðan lægstu laun verkafólks sem komu fram í sömu
könnunum eru ekki nema 12.700 krónur á mánuði.
Kannanirnar sýna jafnframt að meðallaun forstjór-
anna eru nú tæp miljón á ári, þ.e. um 80 þúsund á
mánuði, miðað við launagreiðslur síðustu mánaða en
meðallaun þeirra sem lægst laun fá, til dæmis fólks sem
vinnur við almenn afgreiðslustörf, er ekki nema rúm
16 þúsund á mánuði að meðtöldum hlunnindum.
Næstum fimmfaldur munur er því á hæstu meðal-
launum og lægstu meðallaunum!
í rauninni er launamunurinn talsvert meiri en kem-
ur fram í þessum upplýsingum, því forstjórar og yfir-
menn fá miklu hærri hluta af rauntekjum sínum greidd
sem hlunnindi sem ekki eru talin fram til skattlagning-
ar, heldur en láglaunafólk. Þannig er hægt að reikna út
úr upplýsingunum sem Þjóðviljinn hefur komist yfir,
að næstum því fimmtungur af launum forstjóra og
yfirmanna er greiddur sem hlunnindi, en til dæmis lágt
settir ritarar og afgreiðslufólk fá ekki nema 1 til 3
prósent af launum sínum í formi óskattskyldra hlunn-
inda.
Þessar upplýsingar sýna að gífurlegur munur er á
milli hæstu og lægstu launa á íslandi, og einsog Þjóð-
viljinn mun sýna á morgun, þá er sá munur að aukast.
-ÖS
Tívolí rekið
í Öskjuhlíð
í sumar
,Jú, það er rétt, við höfum alls-
staðar fengið góðar móttökur og
vilyrði fyrir því að reka skemmti-
Hækkanir
Mjólkurliterinn hækkar á morg-
un úr 18.70 i kr. 20.60 eða um
10.2%. Rjóminn hækkar um
10.9% og aðrar landbúnaðaraf-
urðir hækka um nokkur prósent-
ustig. Þessar hækkanir koma í
kjölfar svokallaðra efna-
hagsráðstafana ríkisstjórnarinnar
með afnámi niðurgreiðslna á ýms-
um tegundum landbúnaðarvöru.
Seinna í mánuðinum er von á meiri
glaðningi frá ríkisstjórninni.
Sjá baksíðu
garð með tívoiítækjum í sunnan-
verðri Öskjuhlíðinni í sumar og við
vonumst til, ef allt fer eins og áætl-
að er, að opna um eða uppúr næstu
mánaðarmótum“, sagði Sigurður
Kárason eigandi Hótei Borgar, en
hann ásamt nokkrum öðrum ein-
staklingum og félögum ætla að reka
tívólí-garð í sumar sunnanvert í Ös-
kjuhlíð, gegnt Flugskóla Helga
Jónssonar.
Sigurður sagði að ætlunin væri
að auk tívolí-tækjanna, skotbakka
og annars sem tilheyrir tívolí-
görðum, að vera með
skemmtiatriði um helgar, svo og
veitingasölu á svæðinu.
Tívolí-tækin verða tekin á leigu
til að byrja með og síðan myndu
menn skoða það, þegar garðinum
yrði lokað í september hvort þeim
verður skilað eða hvort þau verða
keypt.
-S.dór
Mannleg mýkt i stríöl við hreyfingar róbótsins. Dansflokkurinn „lcebreakers" sýndi kúnstir sínar á Lœkjartorgl
á föstudaginn. Er maðurinn fagurlimuð skepna ellegar bara ein vélin enn? (Mynd -Atli).
Gunnlaugur Björnsson. Dreg út-
reikninga Hagkaupa í efa. (Mynd:
-eik).
Gísli Blöndal. Góðar kartöflur í
stað þeirra morknu og mygluðu.
(Mynd: -eik).
Kartöflustríð
• Hagkaup geta fengið nýjar kartöflur
á svipuðu verði og þœr finnsku
• „Ég efa þann útreikning“, segir
forstjóri Grænmetisverslunarinnar
„Við getum fengið nýjar og gamlar kart-
öflur bæði dýrar og ódýrar. Við getum selt
þær á viðráðanlegu verði í dag án þess að
niðurgreiðslur komi til. Gamlar kartöflur
yrðu jafnvel ódýrari en þær sem nú eru
seldar frá Grænmetisversluninni og nýjar
lítið dýrari“, sagði Gísli Blöndal hjá Hag-
kaupum í gær. Sagðist hann hafa staðfet
verð bæði frá Hollandi og Bretlandi.
„Ég veit ekkert um hans innkaupsverð",
sagði Gunnlaugur Björnsson forstjóri
Grænmetisverslunar landbúnaðarins við
Þjóðviljann í gær. „Ég efa þann útreikning
en get auðvitað ekki rengt hann fyrr en ég sé
töiumar. Miðað við markaðsverð finnst
mér þetta ólíklegt.
Samkvæmt minni heimild tel ég ólíklegt
að nýjar kartöflur frá Bretlandi og Hollandi
séu fáanlegar á þessum tíma. Þær hljóta að
vera innfluttar sunnan að. Ég hef upplýs-
ingar um það að nú er nýbúið að setja
snemmsprottnar kartöfiur niður í Bretlandi
,qg uppskera er væntanleg eftir 3 mánuði",
■' Ægði Gunnlaugur í Grænmetisversluninni.
Við spurðum hann um kartöflur frá Por-
túgal og sagðist hann ekki þekkja til hvernig
markaðurinn þar væri. Þá spurðum við um
innflutning frá Spáni og sagði Gunnlaugur
að þar væri hægt að fá nýjar kartöflur á
þessum árstíma og einnig frá Grikklandi.
„Öðra hverju er þó lokað á útflutning frá
þessum löndum og því erfitt að semja um
kaup.
Það er hægt að fá nýjar kartöflur frá ýms-
um löndum. Víða eru þó vandamál með
heilbrigðisvottorð sem verða að vera í lagi.
Auk þess er svigrúm til innkaupa ekki
mikið meðan verðið er fast. Þetta breytist
nú á miðvikudaginn þegar niðurgreiðslur
verða felldar niður.
Við gætum keypt nýjar kartöflur frá
Norður-Afríku, Alsír, Marokkó, Egypta-
landi og ísrael en þá færi verðið ýfir það sem
nú er. Mér er kunnugt um að nú eru seldar
nýjar ítalskar kartöflur í Danmörku á 11
krónur danskar kílóið", sagði Gunnlaugur.
-jp