Þjóðviljinn - 08.05.1984, Side 2
• 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þríðjudagur 8. maí 1984
Nýmæli við lóðaúthlutun
Verktakinn byggir
dagvistarheimilið
en gatnagerðargjöldin falla niður
Ákveðið hefur verið að byggja
íbúðarhús með 31 íbúð á opnu
svæði á milli Stangarholts, Skip-
holts og Nóatúns. Fær Böðvar
Böðvarsson verktaki hcimild til að
byggja á þessu svæði gegn því að
skila borginni þar dagvistarheimili,
tilbúnu undir tréverk. Fær verk-
takinn gatnagerðargjöldin niður-
felld í staðinn.
Sigurður Harðarson fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í skipulagsnefnd
var á móti því að heimila byggingu
á þessum stað. Segir í bókun hans
að hann telji að svæðið eigi að vera
frátekið áfram til framtíðarnota.
Taldi Sigurður nærað nýta svæðið í
þágu aldraðra enda væri meðalald-
ur íbúa í hverfinu stöðugt að
hækka. Sigurður sagði í samtali við
Þjóðviljann að á meðan nóg væri af
lóðum á nýbyggingarsvæðum borg-
arinnar væri fráleitt að troða niður
stórum byggingum á opnum, græn-
um svæðum eins og hér um ræðir.
„Hitt er allt í lagi að ef borgin vill
eyrnamerkja gatnagerðargjöld til
þess að byggja fyrir þau dagvistar-
heimili þá má hún það hvort sem
það er til bygginga á þessum stað
eða öðrum", sagði Sigurður í sam-
tali í gær. Skipulagsnefnd sam-
þykkti bygginguna með 4 at-
kvæðum gegn atkvæði Sigurðar.
Guðrún Agústsdóttir fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í félagsmálaráði
kvaðst hafa greitt atkvæði með
byggingu á þessum stað. „Mín af-
staða var einfaldlega sú að úr því
Reykjavíkurborg vildi verja gatna-
gerðargjölum af umræddri lóð til
þess að byggja dagvistarheimili þá
væri fráleitt að vera því andvíg.
Áætlun um uppbyggingu dagvist-
arheimilanna í borginni núna er
ekki svo burðug hvort eð er og
þetta heimili verður hrein viðbót.
Vissulega eru verst settu hverfinn
varðandi dagvistun í Árbæ og á
Eiðsgranda en þetta dagheimili
verður í nágrenni við Hlemm þann-
ig að það ætti einnig að geta nýst
foreldrum sem sækja vinnu úr öðr-
um hverfum niður í bæ“, sagði
Guðrún Ágústsdóttir í samtali við
Þjóðviljann. -V*
Á þessu svæði milli Stangarholts, Skipholts og Nóatúns á að risa fjölbýlis-
hús með 31 íbúð. Verktakinn fær niðurfelld gatnagerðargjöld en skilar borg-
inni dagvistarheimili tilbúnu undir tréverk í staðinn. Ljósm. Atli.
Fátítt við HÍ:
Fyrirlestur
endurtekinn
Þqð er ekki á hverjum degi
sem fyrirlestrar í Hátíðarsal
Háskóla íslands eru endur-
teknir. Þórhallur Vilmundar-
son prófesor flutti nýlega
fyrirlestur sem hann nefnir
Hver var hetjan í hólminum?
og komust færri að en vildu.
Hafa Þórhalli borist tilmæli úr
ýmsum áttum um að endur-
taka fyrirlesturinn og verður
það gert á morgun, miðviku-
daginn 9. maí. Hefst fyrirlest-
ur Þórhalls kl. 20.40 í Hátíðar-
sal Háskólans. Er öllum hei-
mill aðgangur. -v.
Sjúkraliðar
gegn kjarn-
orkuvopnum
Aðalfundur Sjúkraliðafé-
lags íslands tekur heilshugar
aindir þá yfirlýsingu Friðar-
viku 1984 sem send var ís-
lenskum stjórnvöldum - gegn
kjarnorkuvígbúnaði og
vopnakaupþhlaupi. í ályktun
frá aðalfundinum er umræð-
unni úm friðarmál sérstaklega
fagnað. -óg
Stjórnin ræðst á
sj úkr adagpeninga
Nú þurfa menn að vera óvinnufærir í 21 dag í stað 14 daga til að öðiast
rétt til greiðslu sjúkradagpeninga og jafnramt verða menn án sjúkradag-
peninga í hálfan mánuð í stað 11 daga áður, samkvæmt tillögum ríkis-
stjórnarinnar um ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Með þessu er verið að lengja
biðtímann eftir sjúkradagpening-
um og um leið þurfa menn að vera
lengur veikir en áður, til að geta
fengið sjúkradagpeninga.
í greinargerð með tillögu stjórn-
arinnar segir að þessi ráðstöfun
muni spara ríkissjóði 25 miljónir og
þessi lenging á biðtíma eftir sjúkra-
dagpeningum muni fyrst og fremst
minnka þann rétt sem „atvinnurek-
endur“ eiga til dagpeninga.
Svavar Gestsson sagði í umræð-
um á þingi sl. föstudag að þessi nið-
urskurður bitnaði ekki á atvinnu-
rekendum eins og ríkisstjórnin
vildi halda fram, heldur fyrst og
fremst á verkafólki sem hefur unn-
ið í tiltölulega skamman tíma,
húsmæðrum, einum stærsta vinnu-
hópnum í þjóðfélaginu sem misstu
verulegan rétt og námsmönnum.
„Ætli allir þingmenn stjórnarf-
lokkanna hafi gert sér grein fyrir
því að það er fyrir skitnar 25 milj-
ónir sem verið er að sarga þessu
fólki, láglaunafólki, námsmönnum
og húsmæðrum. Þetta fólk er verið
að plokka. Það er lítið sem hunds-
tungan finnur ekki, segir einhvers
staðar. Það á við í þessu efni“,
sagði Svavar Gestsson. -4g.
Styðja lengra fæðingarorlof
472 Egilsstaðabúar hafa skorað á
alþingi að samþykkja lengingu
fæðingarorlofs úr 3 mánuðum í 6.
Það er Kvennahreyfingin á Hér-
aði sem gekkst fyrir þessari undir-
skriftasöfnun um páskana. Fyrir al-
þingi liggur nú tillaga þessa efnis
frá Sigríði Dúnu
Kristmundsdóttur. Kvenna-
hreyfingarkonur skora jafnframt á
kynsystur sínar að standa fyrir
slíkri undirskriftasöfnun meðal
landsmanna frumvarpinu til stuðn-
ings. -AI
Sveitastjórnaráhuginn leynir sér ekkl í augum Vestlendinganna Engilberts
Guðmundssonar og Jóhönnu Leópoldsdóttur á ráðstefnunni um helgina.
Sveitarstjórnarmenn innan
Alþýðubandalagsins
Stofna samtök
Akveðið hefur verið að stofna
Samtök sveitastjórnarmanna innan
Alþýðubandalagsins en tillaga þess
efnis var samþykkt á ráðstefnu
sveitastjórnarmanna Alþýðu-
bandalagsins um nýliðna helgi. Er
ætlunin að stofna þessi samtök
innan flokksins á flokksráðsfundi í
haust.
Ráðstefna AB um sveitastjórn-
armái hófst á föstudagskvöld og
lauk síðdegis á sunnudag. Rætt var
um ýmis þau mál sem lúta að störf-
um manna í sveitastjórnum og voru
mörg framsöguerindi flutt.
„Menn voru sammála um það á
þessari ráðstefnu að stórauka þyrf-
ti samvinnu sveitastjórnarmanna
Kosningar í Bretlandi
Stórsigur Yerka mannaflokksins
A föstudag vann breski Verka-
mannaflokkurinn mikinn sigur í
bæja- og sveitastjórnarkosningum
sem fram fóru í Bretlandi. Miðað
við fylgi flokksins við síðustu þing-
kosningar í júní síðastliðnum jók
Verkamannaflokkurinn níu pró-
sentum við fylgi sitt, en viðlíka fylg-
isaukning er talin myndu duga til
að gefa flokknum meirihluta á
þingi á nýjan leik.
íhaldsflokkurinn glataði meiri-
hluta sínum í fjórtán borgum og
bæjum, meðal annars vann Verka-
mannaflokkurinn meirihluta í
Edinborg en þar hefur flokkurinn
ekki setið í meirihluta fyrr á þessari
öld. Verkamannaflokkurinn hefur
nú meirihluta í fjórum stærstu
borgum Skotlands. Úrslitanna í Li-
verpool var beði með eftirvænt-
ingu, því þar hafði naumur meiri-
hluti Verkamannaflokksins lagt
fram þá stefnu að áforma gjaldþrot
Liverpool-borgar fremur en hlíta
niðurskurði þeim á útgjöldum
borgarinnar sem Patrick Jenkins,
ráðherra sá sem fer með húsnæðis-
og borgamál, hafði fyrirskipað. í
kosningunum jók Verkamannafl-
okkurinn fylgi sitt stórlega, og hef-
ur nú 17 sæta meirihluta í Liver-
pool. En deild flokksins í Liverpo-
ol er mjög róttæk, og er talin á valdi
Militant armsins, sem er hópur
hálfgerðra trotskista.
Jafnframt voru þrennar auka-
kosningar til breska þingsins og í
tveimur hélt frambjóðandi íhalds-
flokksins sætinu en missti þó mikið
fylgi til Bandalags krata og jafnað-
armanna, en í þeirri þriðju hélt
Verkamannaflokkurinn góðum
meirihluta sínum.
Úrslitin eru túlkuð sem mikill
sigur fyrir hinn nýja leiðtoga
Verkamannaflokksins, Neil Kin-
nock, og talin váboði stjórn Mar-
grétar Thatcher.
-ÖS
Alþýðubandalagsins og í því skyni
voru fyrrgreind samtök stofnuð",
sagði Halldór Brynjúlfsson úr
Borgarnesi en hann á sæti í undir-
búningsnefnd. „Við ætlum okkur
að halda nokkra fundi í sumar en
síðan er meiningin að stofna þessi
samtök með formlegum hætti á
flokksráðsfundinum í haust“, sagði
Halldór ennfremur.
Hilmar Ingólfsson úr Garðabæ
var annar tveggja fundarstjóra á
ráðstefnunni. Hann taldi ráð-
stefnuhald af því tagi afar nauðsyn-
legt og að fjöldi athyglisverðra
mála hafa fram komið. M.a. hefði
verið rætt um endurskoðun
sveitastjórnarlagannasem nú stæði
yfir, tekjustofnar sveitarfélaga
hefði mjög borið á góma, samein-
ing sveitarfélaga hefði og verið
rædd og sitt sýnst hverjum.
„Ég er ánægður með þessa ráð-
stefnu og tel það hafa komið glöggt
fram að flokkurinn þarf að sinna
sveitastjórnarmálum mun betur en
hann hefur gert. Við bindum mikl-
ar vonir við Samtökin og í tengslum
við þá tillögu var einnig samþykkt
að beina því til framkvæmdastjórn-
ar flokksins að ráða starfsmann á
flokksskrifstofurnar sem sinni ein-
ungis sveitastjórnarmálum. Ég vil
geta þess, til að fyrirbyggja mis-
skilning að þessi Samtök eru ekki
einungis hugsuð fyrir fulltrúa AB í
sveitarstjórnum heldur ekki síður
alla þá sem áhuga hafa á sveitar-
stjórnarmálum", sagði Hilmar Ing-
ólfsson að síðustu. _v.
Geir Gunnarsson. Fyrsta orlof frá
þingstörfum í aldarfjóröung.
Elsa Kristjánsdóttir. Fyrsta sinn á
þingl.
Geir Gunnarsson í þingleyfi
I fyrsta skipti
í aldarfjórðung
I fyrsta skipti í þau 25 ár sem
Geir Gunnarsson situr á alþingi
kallar hann á varamann fyrir sig.
Elsa Kristjánsdóttir bankastarfs-
maður í Sandgerði tók sæti hans í
gær.
Elsa Kristjánsdóttir skipaði ann-
að sæti framboðslista Alþýðu-
bandalagsins á Reykjanesi við síð-
ustu kosningar og hefur ekki áður
setið á þingi.
Geir Gunnarsson hefur setið á
þingi frá 1959 og hefur aldrei tekið
þingfrí um lengri tíma í þennan
aldarfjórðung. Mun það nær eins-
dæmi. Geir er nú í opinberum er-
indagjörðum í Frakklandi.
-«g-