Þjóðviljinn - 08.05.1984, Page 16
DIOÐVIUINN
Þriðjudagur 8. maí 1984
Búsetamálið:
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaösins i síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Harður slagurum Búseta
Framsóknarflokkurinn styður félagsmálaráðherra einhuga
„Ég held fast við mína meiningu í
þessu máli, en það getur vel farið svo að
það verði að leita samkomulags
stjórnmálaflokkanna um eitthvað ann-
að“, sagði Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra í samtali við Þjóðviljann
í gær um stöðu Búseta innan hús-
næðiskerfisins.
í áliti Sigurðar Líndal lagaprófessors
sem hann gaf félagsmáladeild neðri
deildar í gær samkvæmt ósk Jóhönnu
Sigurðardóttur og Svavars Gestssonar
segir Sigurður að hann telji ákvæði
greinar nr. 33 í húsnæðislögunum „eng-
an vegisn taka af tvímæli um það“
hvort hún taki til húsnæðissamvinnufé-
laga og eða annarra sem stofna til fé-
lagsskapar í því skyni að eiga og reka
leguíbúðir. Leggur Sigurður til að sett
verði skýrari ákvæði um þessi mál í
lögin.
Þriðja umræða átti að fara fram í
neðri deild Alþingis um húsnæðisfrum-
varpið í gærkvöldi, en henni var frestað
til miðvikudags meðan stjórnarliðar
leita samninga um málið. Páll Péturs-
son sagði í samtali við fréttamann út-
varps seint í gærkvöldi, að þingflokkur
Framsóknarflokksins stæði einhuga að
baki túlkun félagsmálaráðherra í Bú -
setamálinu. Þá var sömuleiðisrætt við
Þorsteinn Pálsson og Ólaf G. Einars-
son eftir þingflokksfund Sjálfstæðis-
flokksins í gær og sögðu þeir, að þing-
flokkar Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins myndu halda sameigin-
legan fund um Búseta í dag, þriðju-
dag. lg/ast
Fögur blasir iðjagræn hlíðin við þessum saklausu skepnum. En fátt þykir þeim um stefnubreytingu
Framsóknarflokksins í iandbúnaðarmálum.
Myndina tók Atli á ferð sinni í Fljótshlíð á dögunum, þar sem glaðbeitt sólin lék ómþýða simfóní
fyrir menn og skepnur og grösin gróandi.
Forystumenn ASÍ halda fund
Hvað ber að gera
1. september?
í gærmorgun hittust forystumenn innan ASI
til að ræða stöðuna í kjaramálum og íhuga næstu
skref. Að sögn Guðmundar Þ. Jónssonar for-
manns Landssambands Iðnverkafólks var fund-
urinn upphaf umræðu sem hann kvað vera að
fara af stað í verkalýðshreyfingunni um hvað
beri að gera 1. sept. næstkomandi. Næsta skref
yrði svo að ræða málið í fjórðungssamböndun-
um og útí félögunum, og að því loknu myndu
forystumenn ASÍ hittast á nýjan leik og ræða
viðhorfin hjá félagsfólki. Benedikt Davíðsson
formaður Sambands byggingamanna kvað ekki
hafa verið leitað eftir afstöðu einstakra verka-
lýðsfélaga að svo stöddu, málin yrðu rædd útí
félögunum án þess að þeim fylgdu nokkur lína
frá ASÍ. Hún yrði mótuð síðar, að fengnum
viðbrögðum almennra liðsmanna hreyfingar-
innar. -ÖS
Ríkisstjórnin hækkar neysluverð
Búvörur hækka!
Mjólin hœkkarum rúm 10%
Niðurgreiðslur hafa verið felldar niður af landbúnaðarvörum
nema smjöri og undanrennu. Á morgun snarhækkar verð á þessum vörum:
1 I mjólk úr 18,70 í 20,60 kr. eða 10.2%
V* I rjómi úr 29,95 í 33,20 kr. eða 10.9%
1 kg skyr úr 29,45 í 33,90 kr. eða 15.1%
45% ostur úr 189,90 í 202,90 kr. eða 6.8%
30% ostur úr 158,85 í 169,30 kr. eða 6.6%
nautakjöt dilkakjöt, heilir úr 131,70 í 145,90 kr. eða 10.8%
skrokkar úr 123,05 í 128,90 kr. eða 4.8%
Verð á smjöri og undanrennu verður óbreytt og kartöflur sem
hafa verið greiddar niður um ríflega 2 krónur kílóið verða fram-
vegis seldar miðað við innkaupsverð.
Nú liggur fyrir frumvarp um nýjan fóðurskatt og ef það verður
samþykkt munu búvörur hækka enn meira í lok mánaðarins.
Aðalfundur Rithöfundasambandsins
Sigurður Pálsson
kosinn formaður
Sigurður Pálsson skáld var kos-
inn formaður Rithöfundasam-
bands íslands á aðalfundi félagsins
á laugardaginn var með ölium
greiddum atkvæðum. Birgir Sig-
urðsson var endurkosinn varafor-
maður og í aðalstjórn var kosinn
Einar Kárason en Þorsteinn frá
Hamri í varastjórn.
Fráfarandi formaður, Njörður
P. Njarðvík, minntist fimm látinna
félaga og flutti skýrslu stjómar.
Voru þau tíðindi stærst í máli hans,
að nýfallinn var gerðardómur um
að ríkissjóði er gert skylt að greiða
um ellefu miljónir króna fyrir fjöl-
földun ritverka í skólum til rithöf-
unda og annarra handhafa höf-
undarréttar. Nær greiðsla þessi
fyrir tímabilið frá gildistöku höfu-
ndalaga árið 1972. Fjölföldunarm-
álið hefur nú um árabil verið ofar-
lega á dagskrá í hagsmunabaráttu
rithöfunda.
Sigurður Pálsson, nýkjörinn for-
maður, þakkaði það traust sem
Sigurður Pálsson
honum var sýnt og taldi brýnast að
sameina rithöfunda bæði til kjara-
baráttu og til kynnigarstarfsemi.
Kópavogshælið: Starfsfólki stillt upp við vegg
Starfsfólki fækkað
og kaupið lækkað
í gær héldu forráðamenn
Kópavogshælisins fund með
starfsfólki í eldhúsi hælisins og
greindu því frá að fækkað yrði
starfsólki úr 11 1/2 stöðugildij 7,
sem þýðir að fjórum til fimm
verður sagt upp vinnunni. Þá var
einnig skýrt frá því að tekinn yrði
af þeim sem cftir verða svo kall-
aður álagstími, sem þýðir
kauplækkun uppá um eitt þúsund
krónur á mánuði fyrir hvern og
einn.
„Þetta átti að heita samráðs-
fundur, sem er í sjálfu sér útí
hött, því okkur var einfaldlega
stillt upp við vegg. Okkur vgr sagt
að ef við sættum okkur ekki við
þetta yrði eldhús Kópavogshælis
einfaldlega lagt niður og okkur
öllum sagt upp vinnunni‘% sagði
Guðlaug Pétursdóttir einn af
starfsmönnum eldhússins.
Guðlaug sagði að þeim sem
sagt verður upp hafi verið iofað
einhverju starfí á hinum spítöl-
unum og þá nær örugglega ræst-
ingastarf, sem starfsfólk eldhúss-
ins á hælinu kærir sig í sjálfu sér
ekkert um.
Hún sagði ennfremur að eld-
húsið á Kópavogshælinu væri því
líkur kofi, að hann héldi hvorki
vatni né vindum. í rigningum píp-
ir vatnið inn, enda húsið orðið
mjög gamalt, byggt 1929 eða þar
umbil. Viðbygging sem er síðan á
stnðsárunum er svo lek að allt fer
á flot þá rignir, og kuldinn mikill í
frostum. Það má eiginlega segja
að húsið standi af gömlum vana,
sagði Guðlaug. Hún sagði menn
tala um að laga þetta í sumar, en
hvort það verður gert er önnur
saga því í mörg ár hefur staðið til
að byggja nýtt eldhús en það hef-
ur aldrei komist til framkvæmda.
-S.dór