Þjóðviljinn - 16.05.1984, Síða 5
Miðvikudagur 16. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Þreytumerkin á ríkisstj órninni
Tveir strákar
Ríkisstjórnin virðist ekki njóta
mikilla vinsælda um þessar
mundir, enda eru hveiti-
brauðsdagarnir liðnir og ýmiss
konar þreytumerki gera vart við
sig. Framsóknarflokkurinn hef-
ur gefið sig á vald örlaganna
um helstu pólitísk málefni,
þannig að flest eru ágreinings-
málin innan Sjálfstæðisflokks-
ins. Þingflokkur Framsóknar-
flokksins lætur sér það hlut-
skipti nægja að fela formanni
flokksins að ganga frá hinum
ýmsu viðkvæmu málum sem
stjórnin þarf að taka á.
Bœld reiði
brýst út
Eftir að Morgunblaðið hafði gert
vissan ágreining innan þingflokks
Sjálfstæðisflokksins og á milli ráð-
herrablokkarinnar og þingflokks-
ins að sérstöku fréttaefni hafa
fleiri látið í sér heyra um sérskoð-
anir og minnihluta.
Þannig taldi Egill Jónsson sér
óhætt að láta orðsins brand ríða á
Eyjólfi Konráð í sameinuðu þingi
sl. fimmtudag og Eykon telur sér
óhætt að setja fram sérskoðanir
sínar í málum einsog landbúnað-
armálum.
Innan Framsóknarflokksins er
einnig mikil gremja með stjómar-
samstarfið, en þingmenn flokksins
eru afskaplega talhlýðnir og bæla
með sér óánægjuna fremur heldur
en þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Þó er vitað, að þingmenn eins og
Ólafur Jóhannesson, Tómas Árna-
son, Ingvar Gíslason, Davíð Aðal-
steinsson og Stefán Valgeirsson
eru ekkert yfir sig hressir með
stjórnarsamstarfið en þeir láta
sjaldan eða aldrei til sín heyra um
ágreininginn. Þeim mun stærri
verður sprengjan þegar hún loksins
springur.
Inni á alþingi fer ekki milli mála,
að stjórnin hefur misst þá miklu
tiltrú sem hún hafði meðal þing-
manna beggja stjómarflokkanna í
öndverðu. I einkasamtölum láta
þingmenn þessara flokka móðan
mása um ríkisstjómina rétt einsog
almenningur. í því ljósi gæti verið
varasamt að líta á þingstyrk ríkis-
stjórnarflokkanna til að sjá hversu
traustum fótum hún stendur.
Með íhaldið
í bandi
Við höfum íhaldið í bandi, sagði
einn þingmaður Framsóknar-
flokksins þegar hann var spurður
hvers vegna Framsókn sæti svo stíft
á kosningalagabreytingum. Benti
hann á að Sjálfstæðisflokkurinn
væri ótryggur í stjórnarsamstarfinu
og gæti hvenær sem er hlaupist á
brottu til að sækja sér aukinn styrk
og rjúfa hið óvinsæla stjórnarsam-
starf. Meðan kosningalögin væru
ekki afgreidd væri þetta nær ó-
gjörningur fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn. Þess vegna lægi Framsókn
ekkert á að koma þessu máli í gegn.
Tilviljanakenndar
yfirlýsingar
og athafnir
Innan þings og utan, meðal
stuðningsmanna og andstæðinga
ríkisstjórnarinnar virðast flestir
sammála um að vinnubrögðin í
ríkisstjórninni séu hin sérkennileg-
ustu. Hafa menn á orði í baksölum
alþingis að tilviljanakenndar yfir-
lýsingar og stjórnarathafnir ein-
stakra ráðherra og ríkisstjórnar-
innar allrar hafi grafið undan
trausti manna til hennar. „Það er
ekkert að marka þá“ er algengasta
viðkvæðið.
Einmitt þetta þykir sérstakri
furðu sæta, þarsem ríkisstjórnin
hefur ekki átt að mæta öflugri
stjórnarandstöðu á alþingi eða af
hálfu verklýðshreyfingarinnar
fram að þessu. Þegar liðið hefur að
þinglausnum hefur ágreiningurinn
innan stjórnarflokkanna orðið æ
meira áberandi og ljóst er að ríkis-
stjórnin veldur ekki þeim málum
sem undir hana heyra. Þrátt fyrir
hinn gífurlega þingmeirihluta ætlar
hún ekki að koma málum sínum
fram á þinginu - og í góðsemi vega
þeir hver annan.
Þú ert bara
blaðafulltrúi
Margir telja að eina ástæðu
þessa furðulega ástands mátt-
lausrar ríkisstjórnar og endalauss
ágreinings megi rekja til þess að
formaður og varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins eru ekki ráðherrar í
ríkisstjórn.
Þorsteinn Pálsson og Friðrik
Sophusson hafa verið dregnir inní
ríkisstjórnina með óbeinum hætti,
þ.e. að haft er náið samráð við þá
um óvinsælar ráðstafanir stjórnar-
innar. Þannig hefur ríkisstjórninni
tekist tvennt í einu: formaður og
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
eru gerðir ábyrgir með ráðherrun-
um - og í öðru lagi eru þeir stuð-
púði milli stjórnarinnar og þings-
ins. Þetta þykir stjórnmálamönn-
unum tveimur þröngt pólitískt at-
hafnasvæði og vilja komast úr því -
með því að fara inní ríkisstjórn ell-
egar þá að rjúfa stjórnarsamstarf-
ið.
í helgileikum Sjálfstæðisflokks-
ins eru menn ákaflega fastheldnir á
ýmsa siðu og ritúöl. Hlutirnir þurfa
að ganga formlega fyrir sig til að
vera viðurkenndir. í pólitískum
leikfléttum er þess vendilega gætt
að kirkjan haldi yfirbragði sínu;
hinn ábyrgi borgaraflokkur fái ekki
á sig svipmót ungæðisins. Áður en
til breytinga kemur verður svörð-
urinn að vera pældur vendilega og
þá er ekki ónýtt að hafa Morgun-
blaðið að amboði.
Margir minnast þess að Styrmir
Gunnarsson ritstjóri skrifaði grein
fyrir síðasta landsfund Sjálfstæðis-
flokksins, þarsem hann boðaði
nýja starfsháttu í kringum formann
Sjálfstæðisflokksins. Sagði hann
Geir Hallgrímsson vera síðastan
meðal hinna stóru formanna.
Næsti formaður yrði bara blaða-
fulltrúi.
Þorsteinn Pálsson hefur ekki
látið sér segjast með þessari grein -
og hefur fram að þessu látið á sér
skiljast að hann myndi ganga inní
ríkisstjórn nær honum þóknaðist.
Björn Bjarnason ritar grein á
fimmtudaginn, þarsem hann segir
nánast við Þorstein: Þú ert bara
blaðafulltrúi. Segir hann að for-
maðurinn þurfi að fá samþykki á
hinum ýmsu stöðum innan flokks-
ins eigi hann að ganga í ríkisstjórn.
Það sé hins vegar órætt mál.
Hefndirnar og
leikfléttan
Daginn áður en það er tilkynnt
formlega að Björn Bjarnason sé
orðinn aðstoðarritstjóri og yfir-
maður pólitísks fréttaflutnings í
Morgunblaðinu kemur dálítið sér-
stæð frétt í Mogganum. Hún er af
félagsfundi í Sjálfstæðisflokknum
vestur á Seltjarnarnesi. Fréttin
kom á baksíðu og var um ræðu
Friðriks Sophussonar varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins. Slíkt
er einsdæmi. Sagði þar frá gagnrýni
varaformannsins á stjórnarstefn-
una og kröfu um breytingar á
stefnu og um að formaður Sjálf-
stæðisflokksins yrði ráðherra.
Ýmsir Sjálfstæðismenn telja að
Björn og Styrmir hafi þá séð fyrir
sér leikfléttu sem þjóna átti ýmsum
markmiðum í senn. Þannig hafi
Björn ævinlega haft horn í síðu
Friðriks eftir að hafa tapað fyrir
honum formannskosningum í SUS
fyrir rúmum áratug. Menn eru
heiftræknir þar á bæjum.
Þegar ákveðið var að senda frétta-
haukinn Fríðu Proppé inná þenn-
an félagsfund vestur á Nesi, var
ljóst að mikið stóð til. Morgun-
blaðsritstjórarnir eru sagðir hafa
reiknað með að Friðrik væri úr sög-
unni eftir að hafa verið jafn stráks-
legur og harðorður í garð ríkis-
stjórnarinnar. En annað kom á
daginn. Fréttin hafði nefnilega
öfug áhrif meðal Sjálfstæðis-
manna, þeim þótti tími til kominn
að einhver segði eitthvað satt og
ljótt um ríkisstjórnina í Moggan-
um.
Til að reyna að breyta þessum
boðum til Iesenda skrifar svo Björn
fimmtudagsgrein sína um ótíma-
bærar yfirlýsingar Friðriks, ó-
stjórnina hjá Albert og tvíbent um-
mæli Þorsteins Pálssonar. Með
þessu hefur Morgunbiaðið styrkt
ráðherrablokkina innan Sjálfstæð-
isflokksins, því auðvitað hefur að-
förinsemþeirskynjaaðsér þjapp-
að ráðherrunum betur saman en
ella.
Dottnir
útúr myndinni?
Erfitt er að sjá fyrir afleiðingar
umbrotanna í Sjálfstæðisflokknum
og áhrifa þeirra á stjómarsamstarf-
ið. Hins vegar verður að telja lík-
legt, að eftir að upp komst um
strákinn Tuma, þ.e. að Þorsteinn
og Friðrik eru orðnir yfir sig
þreyttir á valdleysinu og stuðpúða-
hlutverkinu, þá muni ráðherra-
blokkin og ríkisstjórnin sitja betur
þéttar saman yfir kjötkötlunum og
magna þann seyð að dugi þeim til
loka stjómartímabilsins. En hins
vegar er ekki svo víst að líftími
stjórnarinnar sé á þeirra hendi.
Þreifingar við
Alþýðubandalagið?
í síðustu viku fóm kjaftasögur á
kreik í stjómmálaheiminum um
Lelkflétta hugmyndafræöinganna?
Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, Björn
Bjarnason aöstoöarritstjóri Morg-
unblaösins og Styrmir Gunnarsson
ritstjóri sama blaðs og höfundur
kenningarinnar um „blaðafulltrú-
ann.“ A innfelldu myndinni má sjá
þann síðasta í röðum hinna stóru
formanna taka í höndina á blaðafull-
trúa flokkslns á landsfundinum sl.
haust.
„áþreifingar“ forystu Sjálfstæðis-
flokksins við Alþýðubandalagið og
Alþýðuflokkinn. Þóttust menn
lesa þessar „þreifingar" á milli lína
í Þjóðviljanum og í yfirlýsingum
hinnar „ungu forystu“ í Sjálfstæðis-
flokknum. Síðdegisblaðið rauk
með þessi tíðindi á forsíðu, en -
Ólafur G. Einarsson vísaði alger-
lega á bug í útvarpsviðtali.
Nú gæti svo virst að ríkisstjóm
félagshyggjuflokkanna með íhald-
inu þætti einhverjum fýsilegur
kostur og befríaði þjóðina við
Framsóknarspillinguna um ein-
hverja hríð. En varla kemur svo
bemsk óskhyggja kjaftasögum af
þessum toga af stað? Hitt er trú-
legra að sagan væri hótun í innan-
flokksátökum í Sjálfstæðisflokkn-
um og á milli stjórnarflokkanna.
Framsókn hefur íhaldið í böndum
með kosningalagafrumvarpinu, en
Sjálfstæðisflokkurinn þarf á gagn-
kvæmum málum að halda til að
flækja Framsóknarflokkinn. Hin
unga forysta sem hér kemur títt við
sögu, ætti að sjá sér margfaldan
hag í kjaftasögu þessari, því að
með henni fær hún vissa hótun
gagnvart ráðherrablokkinni í
flokknum.
Þegar Þjóðviljinn spurði Svavar
Gestsson um þreifingarnar sagði
formaðurinn: „Þetta er tilhæfu-
laust með öllu og er áreiðanlega
liður í innanflokksátökunum í
Sjálfstæðisflokknum, ég kannast
að minnsta kosti ekki við neinar
viðræður eða þreifingar.“
Hætt er við að Þorsteinn Pálsson
og Friðrik Sophusson séu með við-
burðum sl. viku dottnir útúr mynd
nýrra ráðherra í ríkisstjórn. Ber
margt til utan yfirlýsinga og túlkun-
ar Morgunblaðsins á ræðu Friðriks
Sophussonar.
Það getur varla talist góður kost-
ur fyrir strákana að komast inní
þessa þreyttu ríkisstjórn, því eins-
og Bjöm Bjarnason hefur bent á,
er engin trygging fyrir því að ríkis-
stjórnin verði vinsælli þótt tveir
strákar komi inní stjórnina í stað
tveggja jáika. Þvert á móti er lík-
legt að þeir taki á sig óvinsældir og
þreytumerki ríkisstjórnarinnar
meira en þeir gera nú þegar.
Erfiðleikarnir
framundan
í viðtölum við forystu Sjálfstæð-
isflokksins kemur glöggt fram að
Sjálfstæðismenn eru ekki á eitt
sáttir um framhald stjórnarsam-
starfsins. Telja margir, að nú hafi
verið náð samkomulagi um
ákveðnar efnahagsaðgerðir (af-
nám vísitölubóta, samningsréttar
og fleira gegn launafólki) og nú
þurfi að grípa til annarra aðgerða.
Þau verkefni sem lágu fyrir þeg-
ar ríkisstjórnin tók völdin séu nú úr
sögunni og stjórnin hafi ekkert
„konkret“ að vinna að.
Þess vegna sé nauðsynlegt að
setja saman nýjan málefnasamn-
ing. Þeir Steingrímur Hermanns-
son, Þorsteinn Pálsson og Friðrik
Sophusson hafa boðað slíka endur-
skoðun á málefnasamningi ríkis-
stjórnarinnar, sem eigi að verða
lokið í sumar. Hin unga forysta
segir því að nú verði að stokka upp.
Um leið benda Sjálfstæðismenn-
irnir á, að engar líkur séu á því að
takist að ná samkomulagi um mál
sem talin eru „grundvallarmál"
innan Sjálfstæðisflokksins. Má þar
nefna landbúnaðarmál, fram-
kvæmdastofnun og kosningalögin.
Óskar
Guðmundsson
skrifar
fréttashýring