Þjóðviljinn - 23.05.1984, Side 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 23. maí 1984
Lofthæð aðalsvlðslns er mlkll. Enn nær hún alla leið tll atjarnanna en í framtíðlnnl mun hún verða yflr 20 metrar. Mynd -elk.
„Vonarstræti“ að
verða raunverulegt.
„Ég er alltaf með svlðsskrekk og
vona bara að hann stækkl ekki í
sagði starfsfólk LR eftir skoðunarferö um nýja borgarleikhúsið í gær. ^rHsgS\S!bS^^Ls'9r'
Starfsfólk Leikfélags Reykjavíkur fór í gær í skoðunarferð
um fjalir borgarleikhússins sem er að rísa í nýja miðbænum.
Starfsfólkið kallar bygginguna „Vonarstræti“ því þau trúa því
varla enn að vonir þeirra og draumar um nýtt leikhús eigi eftir
að rætast í náinni framtíð.
Starfsemi Leikfélags Reykjavík-
ur er löngu orðin viðameiri en Iðnó
við Vonarstræti leyfir. Smíðaverk-
stæðið lengst úti í bæ, leikmyndir
annars staðar, varla rými til að
skipta um föt, hvað þá að hægt sé
að fara í sturtu og ef einhverjum
dettur í hug að fá sér kaffibolla er
viðbúið að innihaldið skvettist yfir
Áhorfendabekkir verða héma. Þelr
verða ekki flelrl en í gamla Iðnó en
breiðarl. Nálægð áhorfenda og
lelkara verður þvf svlpuð og fyrr.
Mynd -elk.
næsta mann sökum þrengslanna
sem leikarar L.R. búa við.
Þau voru því hress í bragði þegar
Þjóðviljinn hitti þau í gær í
skoðunarferð um byggingu nýja
leikhússins. Uppsteypa er langt
komin og starfsfólk Leikfélagsins
brá sér í vettvangsathugun til að
taka út væntanlegar aðstæður. Við
fylgdum þeim um bygginguna,
hlýddum á útskýringar Þorsteins
Gunnarssonar leikhússtjóra sem er
einn af arkitektum hússins og
tókum nokkra viðstadda tali.
Ágúst 1986
„Byggingin er komin á það stig
að auðvelt er að átta sig á aðstæð-
um“, sagði Stefán BaJdursson
leikhússtjóri, „en það þarf að halda
mjög vel á spöðunum til að áætlun
standist. Það stóð til að verkinu
yrði lokið á 200 ára afmæli borgar-
innar sem er 18. ágúst 1986. Það er
fræðilegur möguleiki að þetta tak-
ist og við vonum að það takist“.
„Lítill karl í
stórum geymi“
„Við höfum legið yfir teikning-
um án þess að gera okkur almenni-
lega grein fyrir rýminu hérna. Það
er ekki fyrr en nú þegar veggir rísa
að hægt er að finna hvernig þetta
mun verða. Við erum núna að velta
fyrir okkur tengslum milli sviðs og
sala, áhorfanda og leikara. Mark-
miðið er að halda nándinni sem er í
Iðnó“, sagði Jón Hjartarson leikari
sem er formaður L.R.
„Okkur óar við því sem eftir er
en vonum að yfirvöld hafi visku til
að ljúka verkinu sem fyrst“. Jón
benti á að starfsemi L.R. sé orðin
of viðamikil fyrir húsrýmið sem
Iðnó býður, en að þar henti fá-
mennum hópum vel að vinna. Við
spurðum hann hvernig líðanin væri
innan hárra og víðra veggja nýju
byggingarinnar: „Mér finnst ég lít-
ill karl í stórum geymi", sagði Jón.
Fjariægur draumur
í nánd
Sigríður Hagalín leikari sagðist
varla trúa því að nýtt leikhús væri í
nánd. „Þetta er búinn að vera svo
fjarlægur draumur alla tíð“. Hún
var spurð um sviðsskrekk þegar
gengið var um stóra sviðið: „Ég er
alltaf með sviðsskrekk og vona
bara að hann stækki ekki í sama
hlutfalli og sviðið".
Hress yfir mögu-
ieikunum
Þama var Jórunn Sigurðardóttir
leiktjaldahönnuður, hress yfir
þeim möguleikum sem nýja hús-
næðið mun bjóða upp á. „Tækniút-
búnaður og innréttingar munu þó
skipta sköpum“, sagði hún, „þarna
verða miklu meiri útfærslumögu-
leikar. Hliðarsvið og baksvið bjóða
upp á mikla möguleika fyrir leik-
myndir og geymsluaðstaðan einn-
ig. Aðstaðan í dag er gjörsamlega
óviðunandi í alla enda og kanta“.
„Heilmikið er að
gerast“
Guðmundur Pálsson leikari hef-
ur verið í byggingarnefnd frá upp-
hafí. Hann spurðum við hvort ekk-
ert væri gengið á bjartsýnina og of-
urhuginn og vildi hann alls ekki
viðurkenna það. „Þetta gengur
mjög vel í augnablikinu. Það er
búið að semja um alla uppsteypu
og gert ráð fyrir að henni ljúki um
áramót. Jafnframt er verið að
hanna þakið, sem er mjög stórt.
Það er ekki búið að semja um það
en trúlega tekur næsta ár að koma
því upp. Jafnframt þyrfti að fara að
vinna að innréttingum. Gluggar
verða settir í húsið í haust. Svo þú
sérð að heilmikið er að gerast“.
Hópurinn samstillt
heild
Við spurðum þennan samstillta
ánægða hóp hvort þau óttuðust
ekki að missa hópstemninguna nið-
ur í víðáttu nýja hússins. Sögðu þau
að í „Vonarstræti" væri fýrir öllu
hugsað og að búningsherbergin
væru öll umhverfis setustofu leika-
ranna og í gegnum hana verði að
ganga. Þannig ætti hópurinn að
hafa áfram á tilfinningunni að hann
sé samstillt heild þótt víðátta veggj-
anna verði meiri en áður.
-jP
Starfsfólk L.R. kilfradl um nýbygginguna (gær. Mynd -elk.