Þjóðviljinn - 08.06.1984, Side 2

Þjóðviljinn - 08.06.1984, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNl Föstudagur 8. júní 1984 Þungt hljóð í saltfiskframleiðendum Mikill samdráttur er í saltfiskverkuninni Ekki helmingur framleiðslunnar í fyrra náði í 1. og 2. flokk Fimm fyrstu mánuði ársins var búið að verka um 24.000 lestir af saltfisk þar af um 21.000 lestir af blautfisk en þetta er rúmiega 10.000 lestum minna en búið var að reikna á sama tíma í fyrra. Það er því enn óvíst að takist að framleiða upp í gerða saltfisksölusamninga en 8.000 lestir eru óafgreiddar til Portúgais frá fyrra ári og þangað hefur verið lofað minnst 15.000 lestum af saltfiski í ár. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi Sölusambands ísienskra saltfiskframleiðenda sem haldinn var í gær. Þungt hljóð var í verk- endum vegna afkomunnar í greininni sem er rekin með nokkru tapi, auk þess sem aflabrögð hafa verið léleg og mikill smáfiskur sem fer til verkunar. Af framleiðslu sl. árs náði aðeins um helmingurinn 1. og 2. flokki og er þá ekki talið með það sem fór í 5. flokk og úrkast sem líklegast hefur verið um 10% fram- leiðslunnar. í máli Friðriks Pálssonar fram- kvæmdastjóra SÍF kom fram að í fyrrasumar þegar Portúg- alar neituðu lengur að taka við sel- ormi í fisknum, hefði orðið hugar- farsbreyting hjá framleiðendum og gæðum farið mjög fram en þau væru forsenda þess að við héldum mörkuðum okkar. Framleiðsla á léttsöltuðum fiski sem sendur var til Spánar í fyrsta sinn í fyrra hefði mælst vel fyrir og þar væru góðir möguleikar. Hins vegar hefði verðhækkun á dollar orsakað mikla verðlækkun á saltfiski á Spáni og á Ítalíu hefði neyslan dregist nokkuð saman á síðustu árum. Óvíst væri hvort stjórnvöld í Portúgal héldu til streitu ákvörðun sinni um 12% toll á saltfisk frá íslandi, en það hefði komið fram í máli Soaresar forsæt- isráðherra Portúgals á dögunum, að enn frekari jöfnuður í við- skiptum þjóðanna gæti leyst þetta mál. Saltfiskframleiðslan á sl. ári var alls um 48.000 lestir sem er rúmum 10.000 lestum minna en árið á undan. Alls voru 306 saltfiskfram- leiðendur í landinu sl. ár. -Ig- Hart deilt á aðalfundi SÍF „Vinnu- brögðin hjákát- Ieg“ „Það er fyrír löngu orðið úrelt að útgerð og fiskvinnsla séu að berjast í verðlagsráði við ákvörðun fisk- verðs. Þar er einungis verið að færa tapið á milli vasa sem er ekkert annað en vatn á myllu þeirra sem vilja hag okkar sem stöndum f sjáv- arútvegi sem minnstan“, sagði Ólafur Gunnarsson útgerðarstjóri í Neskaupstað er hann deildi hart á vinnubrögð Verðlagsráðs og fyrir- komulag fiskverðsákvarðana á að- alfundi SÍF í gær. Friðrik Pálsson framkvæmda- stjóri SÍF sem á sæti í Verðlagsráði fyrir hönd fiskkaupenda sagði að það væri hjákátlegt hvernig staðið væri að ákvörðun fiskverðs í Verð- lagsráði. Fimm manns ættu sæti í ráðinu en í rauninni væri það alls ekki til því oddamaður ráðsins, for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, réði öllu því sem hann vildi ráða eða þyrfti að ráða. „Mér er alls ekki fast í hendi að Verðlagsráð starfi í þeirri; mynd sem það gerir í dag“, sagði Friðrik. -Ig- USí:-utímí mmnK ° i-k;i ni kW Vllll rakarl a& störfum í Armúlanum í flær. (Mynd: Loftur). Minnkun í útflutningstekjum sjávarafurða sl. tvö ár Vantar 400 milj.dollara Vanskil útgerðar og fiskvinnslu aðeins 1/8 af tekjutapinu Á síðustu tveimur árum hefur sjávarútvegurinn tapað sem nemur 200 miljónum dollara hvort árið í útflutningsverðmætum. Það vant- ar því 400 mifjónir dollara til að ná endum saman í sjávarútveginum, að því er fram kom í máli Sigurðar Markússonar forstjóra sjávaraf- urðadeildar Sambandsins á aðal- fundi SÍF í gær. Sigurður sagði að útflutningstekj- ur landsmanna af sjávarafurðum hefðu verið 600 miljónir $ árið 1979, 700 miljónir 1980 og aftur 1981 en árið 1982 hrapaði verð- mæti útflutnings niður í 500 miljón- ir $ og sama upphæð fékkst fyrir sjávarafurðir á sl. ári. Heildarvanskil útgerðarinnar og fiskvinnslunnar væru nú um 1.500 miljónir ísl. kr. eða sem svarar 54 miljónum dollara. „Þetta er aðeins 1/8 af tekjutapinu sl. 2 ár og það er hollt fyrir menn þegar þeir eru að fordæma sjávarútveginn að virða fyrir sér þessar staðreyndir“, sagði Sigurður Markússon. -Ig- Styrkur frá Verslunarráðinu Gísíi Gunnarsson fær þýð- ingarstyrk Dr. Glsli Gunnarsson hefur fengið nokkurn styrk frá Verslunarráði íslands til þýð- ingar á doktorsritgerð sinni úr ensku á íslensku. Ritgerð dr. Gísla fjallar um einokunarverslunina á Is- landi. í fréttabréfi Verslunar- ráðsins segir að ein af megin niðurstöðum dr. Gísla í rit- gerðinni sé, að bændur, hin ríkjandi stétt á íslandi síns tíma, hafi með aðstoð dönsku einokunarverslunarinnar beitt sér gegn nýjungum, sér- staklega í sjávarútvegi. Það sé ekki fyrr en með verslunar- frelsi um miðja 19. öld, að grundvöllur hafi skapast fyrir þjóðfélagsbreytingar og fram- farir. — óg. Suðurlands- kjördæmi __ skattstjóri Fjármálaráðherra hefur skipað Hrein Sveinsson skatt- stjóra Suðurlandskjördæmis frá og með 1. ágúst. Hreinn var áður skattstjóri Vestfjarðakjördæmis. Auk Hreins sóttu um stöðuna lög- fræðingamir Kjartan Jónsson og Skúli Eggert Þórðarson, en þrír er óskuðu nafnleyndar. Gamli Vestur- bærinn norðan Hringbrautar Allsherjar- hreingerning Á laugardaginn, 9. júní, verður allsherjarhreinsun lóða og gatna í gamla Vestur- bænum, norðan Hring- brautar í Reykjavík. íbúa- samtök Vesturbæjar og borg- in standa fyrir þessu framtaki. Fólk getur fengið stóra plastpoka í „sjoppunum“ á Vesturgötu, homi Túngötu og á Bræðraborgarstíg. Hreins- unardeild borgarinnar mun síðan koma og fjarlægja pok- ana af götunum seinna um daginn. Þá mun hreinsunardeildin einnig sjá um að hreinsa göt- urnar vandlega og eru Vestur- bæingar í þessum hluta borg- arinnar beðnir um að flytja ökutæki sín á meðan á hreins- un gatnanna stendur. Ásaprestakall Nýr prestur Atkvæði vom talin á Bisk- upsstofu í gær vegna kosn- ingar nýs prests í Asapresta- kalli í Skaftafellsprófasts- dæmi. Einn var í kjöri, sr. Si- gurður Árni Þórðarson. 163 vom á kjörskrá og hlaut sr. Sigurður Ámi 90 atkvæði af 99 sem fram komu í kosning- unni. Kosningin er því lögmæt. - v.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.