Þjóðviljinn - 08.06.1984, Page 8

Þjóðviljinn - 08.06.1984, Page 8
8 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Föstudagur 8. júní 1984 SKINNS ORUNDS Steinunn Jóhannesdóttir ræðir við Ólaf Hauk Símonarson um nýtt leikrit hans „Sumir glupna, áórir harka af ser og glotta viö tönn eins og Skarphéöinn. Siguröur i leikritinu hleypir i sig hörku“ - Gunnar Eyjolfsson í hlutverki. í kvöld verður forsýnt í Þjóðleikhúsinu nýtt íslenskt leikrit. Það er eftir Ólaf Hauk Símonarson og heitir MILLI SKINNS OG HÖRUNDS. Ólafur Haukur hefur víða komið við á höfundarferli sínum, þó ekki sé hann aldurhniginn, og eftir hann liggja fimm Ijóðabækur, tvö smásagnasöfn, þrjár hljóm- plötur og skáldsögurnar Vatn á myllu Kölska, Gaieiðan, og Vík á milli vina, sem út kom sl. haust. Fyrir nokkrum árum gerðu þeir Þorsteinn Jónsson í sameiningu sex myndir fyrir sjónvarp, í þeim flokki voru: Lífsmark, Gagn og gaman, og Fiskur undir steini. Þá er ótalið barnaleikritið Blái fíllinn og Ijóðsagan Almanak Þjóðvinafélagsins, sem út kom 1981, sömuleiðis leikritið Blómarósir, sem Alþýðuleikhúsið sýndi við miklar vinsældir fram á sumar 1980. Viðbrögð við ótta Fyrir tveim árum var ég viöstödd fyrsta samlestur á þessu nýja leikriti eftir Ólaf Hauk í Þjóðl- eikhúsinu. Mörgum sýndist nafnið gott og benda til þess að verkið væri ekki ýkja þægilegt. Þegar lest- rinum lauk, var ljóst að það myndi rísa undir nafni. - Af hverju heitir leikritið Milli skinns og hörunds? Ertu að lýsa því, sem fer milli skinns og hörunds á þér, eða viltu komast milli skinns og hörunds á persónunum, sem þú lýsir, eða kannski áhorfendum? Við segjum, að okkur renni kalt vatn milli skinns og hörunds, og væntanlega vita flestir við hvað er átt. Skinn og hörund eru tvö borð á því, sem skýlir holdi okkar. Eitthvað getur smogið þar á milli, vakið hroll í holdinu. Óttinn fer milli skinns og hörunds. Já, ég er að lýsa óttanum, sem fer milli skinns og hörunds. Viðbrögð okkar við ótta eru merkileg. Sumir glúpna, aðrir harka af sér og glotta við tönn, eins og Skarphéðinn. Sigurður í leikritinu hleypir í sig hörku. Eitthvað er að breytast, grundvellinum er kippt undan hon- um, sjálfsvirðingu hans stefnt í voða. Hann óttast um afkomu sína; hann er ekki alinn upp við magnil og kvótakerfi. Hann óttast einnig um stöðu sína innan fjölskyldunn- ar. Hvað gerir sjómaður á sextugs- aldri, sem horfir upp á hrun fiski- stofna, veiðimaður í húð og hár? Flettu sjómannadagsblöðunum, sjáðu hve margir vaskir sjóhundar nefna þetta atriði með hryllingi, að þurfa á miðjum aldri að fara að leita sér að annarri vinnu - í landi! Veiðimannasamfélagið riðar til falls. Með því mun farast ýmislegt í þjóðmenningu okkar, ákveðin hugsjón mun farast. Hvort ég vilji milli skinns og hörunds á áhorfendum? Vissulega. Ég er ekki að skrifa til að þóknast einum eða neinum. Ég er að segja sögu, sem kemur mér við. Ekki sögu, sem svæfir eða þóknast, heldur sögu, sem smýgur milli skinns og hörunds. Sögu, sem er í eðli sínu óþægileg. Þríleikur - Þegar ég kom á síðustu œfing- arnar fyrir forsýningu, sá ég, að leikritin voru orðin tvö. Af hverju bœttirðu öðru leikriti aftan við það fyrra? Fannst þér það ekki nógu langt? „Þessi leiksaga af Sigurði, Astu og börnum þeirra hefur alltaf verið hugsuð í þrem hlutum. Þríleikur. í fyrsta verkinu „Milli skinns og hörunds“ er megináherslan á þeim hjónum. í öðru verkinu „Skakki tuminn í Písa“ færist brennipunkt- urinn nær Hadda, yngri syninum. í þriðja og síðasta verkinu „Sam- skeyti“ er eldri sonurinn Böðvar þungamiðjan. Ég fékk á sínum tíma starfslaun til að skrifa þríleik um þetta fólk, og þeirri áætlun hef ég fylgt“. - Ertu að sýna með síðara leikrit- inu, „Skakka turninum í Písa“, að sagan endurtaki sig, synir endurtaki feður sína? „Vitanlega hleypur enginn frá sínum uppruna. Enda engin ástæða til þess að hlaupa frá honum. Ég skal ekkert fullyrða um syndir feðr- anna en uppruni holdsins, uppmni manna í stétt, - hann segir til sín. Uppeldið segir auðvitað til sín, það kemur allt fram til góðs eða ills“. þér, drengur, fólkið hvorki jafn ó- kunnugt né fráhrindandi og maður vill vera láta í fyrstu. Sýningin er líka þannig úr garði gerð, að ætla mætti að þið félagar, þúog Þórhall- ur Sigurðsson leikstjóri og Grétar Reynisson leikmyndateikriari, teljið ykkur ekki vera að segja neina ein- staka sögu, heldur býsna almenna. Leikmyndin gefur mjög til kynna, að leikritið geti gerst hvar sem er. Eruð þið að segja almenn sannindi? „Fjölskyldan á undir högg að sækja á okkar tímum. Viðkunnan- tilfinningunum, það er að sumu leyti hinn dramatíski kjarni. Um það fólk, sem skiptir mig máli, sem höfund, ber ég ekki rangan vitnisburð. Mér dettur ekki í hug að gera því upp smáborgara- legan pempíuskap til orðs eða æðis. Því þetta er fólkið, sem á eftir að breyta heiminum. Þess vegna leyfi ég mér að vera miskunnar- laus, að ég veit, að þessar persónur hafa bein og tilfinningar til þess bæði að elska og hata“. - Þú kemur áhorfandanum oft til Fjölskylda í kröggum - Fjölskyldan, sem þú lýsir, er ekki sú viðkunnanlegasta, sem ég hefkynnst. Hryssingurinn í viðmóti fólksins er meiri en svo, að maður gangist við því strax, að svona um- gangist fólk hvert annað almennt. Þó skal játa að talsmátinn venst og ekki þarfað sitja margar œfingar til að sjá, hvað mikið er til íþessu hjá leg eða ekki viðkunnanleg? Þetta er fjölskylda, sem er f kröggum, eins og svo margar. Mér þykir þetta viðkunnanlegt fólk, sem ein- staklingar, hvað sem segja má, þegar það er komið saman í fjöl- skyldu. En er þetta sundurgreinan- legt? Um það er spurt. Þetta er alþýðufjölskylda á krossgötum. Kannski er fólkið ei- lítið hryssingslegt í orði, en tilfinn- ingar þess eru ekki kulnaðar- langt í frá. Tilfinningamar krauma undir niðri. Orðræðan fellur bara ekki að aðhlœja. Finnstþérþettafólkfynd- ið? „Að megna að vera fyndinn eða kaldhæðinn við erfiðar aðstæður er alltaf merki þess, að menn eru ekki dauðir úr öllum æðum. Það er líka býsna mikill munur á því að vera fyndinn eða hlægilegur". Ekki barátta karla og kvenna - Karlmennirnir fá heldur illa út- reið í þessu leikriti. Eru karlmenn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.