Þjóðviljinn - 08.06.1984, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 08.06.1984, Qupperneq 11
Föstudagur 8. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 Umsjón: Víðir Sigurðsson Helgar- sportið Knattspyrna Frá leikjum í 1. deild karla er greint annars staöar á síðunni. KS og Einherji mætast í 2. deild á Siglufirði kl. 14 á morgun en síðan er ekkert leikið fyrr en á þriðjudagskvöld. Þá mætast Skallagrímur-Víðir, Völsungur- Einherji, FH-KS og Tindastóll- ÍBÍ. í 3. deild leika sama kvöld Grindavík-Fylkir, Austri-Valur Rf, Þróttur N.-Magni og Huginn-HSÞ.b. Sömuleiðis mætast Víðir og Breiðablik í bikarkeppni kvenna á þriðju- dagskvöldið. í 4. deild er talsvert leikið í kvöld og á morgun. Þar bend- um við sérstaklega á viðureign efstu liða C-riðils, ÍR og Reynis Hnífsdal, á ÍR-vellinum kl. 14 á morgun, laugardag, og leik Borgarfjarðar og Sindra á sama tíma í F-riðlinum. Golf Hvítasunnumót Golfklúbbs Suðurnesja verður haldið á Hólmsvelli í Leiru á mánudag- inn, annan í hvítasunnu, og hefst það kl. 13. Stórsigur Hnífsdælinga Reynir Hnífsdal vann stórsigur ó Grundfirðingum, 5-1, i C-riðli 4. deildarinnar í knattspyrnu í gærkvöldi. Helgi Guðmundsson skoraði þrjú markanna, Valur fréttamaður Jónat- ansson og Oddur Jónsson eitt hvor. Reynismenn gerðu reyndar sjötta markið, en í eigið marknet. Hnífsdæl- irnir eru þvf á hælum ÍR-inga, ÍR er með 9 stig en Reynir 7 eftir þrjá leiki. -VS Knattspyrnu- skóli Fylkis Fylkir gengst í sumar fyrir knatt- spyrnuskóla f Árbæjarhverfi og hefst fyrsta námskeiðið, fyrir drengi fædda 1975-78, þann 12. júní. Námskeið fyrir drengi fædda 1972-74 hefst sfðan 25. júní og það þriðja og síðasta, sem hefst 10. júlí, er fyrir báða hópana. Farið verður í undirstöðuatriði knattspym- unnar, svo og knattþrautir KSÍ. Kennari verður Olafur Magnússon, þjálfari og íþróttakennari. Innritun verður dagana 7. og 8. júní, milli kl. 17 og 19, í síma 84998 í Fylkishúsi við Ár- bæjarvöll. Þátttökugjald kr. 500 greiðist í fyrsta tíma. 1. deild karla í knattspyrnu: Framarar skildu norðan- menn eftir í fallsætinu Fram og Þór áttust við á aðalleik- vanginum í Laugardal. Fram sigr- aði 1-0 í mjög slökum leik, og var það Guðmundur Steinsson sem skoraði eina mark leiksins á 27. mínútu. Þeir 504 áhorfendur sem lögðu leið á völlinn fengu ekki að fylgjast með skemmtilegri knattspymu, leikurinn var fyrsta hálftímann lítið annað en kraftabolti af verstu gerð. Framarar voru þó heldur skárri í vitleysunni og uppskáru að launum mark. Ómar Jóhannsson tók þá aukaspymu, sendi á Guðmund Steinsson sem staddur er rétt fyrir utan hægri markteigshom og skor- aði fram hjá Þorsteini Ólafssyni í markinu, 1-0. Þórsaramir hresstust heldur við markið og náðu að skapa sér tvö allgóð marktækifæri, Guðjón Guðmundsson komst í op- ið færi eftir góðan undirbúning Jónasar Róbertssonar en skot hans fór rétt framhjá markinu. Á 36. mínútu fékk Guðjón annað gullið tækifæri en í það sinnið missti hann boltann of langt frá sér. Síðari hálfleikur var vart hafinn er Framarar fengu dauðafæri, Kristinn Jónsson stóð þá fyrir opnu marki en hitti ekki boltann. Markvörður Fram þurfti síðan að taka á honum stóra sínum stuttu seinna til að slá skalla Guðjóns yfir markið. Á 24. mínútu fengu Þórs- arar mjög gott færi, Bjami Svein- bjömsson stóð þá einn og óvaldað- ur inn í vítateig Fram en skot hans fór beint í Guðmund Baldursson markvörð. Framarar áttu síðan fleiri færi það sem eftir var leiksins jafnvel þó Þórsarar væru meira með boltann. Kristinn Jónsson átti t.a.m. skot rétt framhjá og félagi hans Guðmundur Torfason skaut ofan á samskeytin, en mörkin urðu ekki fleiri. Guðmundur Steinsson var best- ur Framara, þá barðist Steinn Guð- jónsson ágætlega og Guðmundur Baldursson var öruggur í markinu. Leikurinn í gærkvöldi var fjórði tapleikur Þórs og líklega sá slak- asti. Jónas Róbertsson og Halldór Áskelsson vom skástir. Þorvarður Björnsson dæmdi leikinn og gerði það ágætlega, hann hefði þó mátt spjalda ein- hverja af leikmönnum Þórs en þeir vom sem grófastir í fyrri hálfleikn- um. - Frosti. Stefán hætt- ir í haust Stefán Kristjánsson, íþróttafull- trúi Reykjavíkurborgar, hefur sagt upp starfi sinu frá og með 1. sept- ember. íslandsmet Eðvarðs Njarðvfldngurinn Eðvarð Þ. Eð- varðsson bætti um síðustu helgi ís- landsmet sitt í 100 m baksundi á sundmóti Ármanns. Hann synti á 1:03,09 mín. en gamla metið hans var 1:04,50 mín. Lágmark íslensku Ólympíunefndarinnar er 59,00 sek. Staðan f deildarkeppninni f knatt- spyrnu eftir leik Fram og Þórs í gærkvöldi: .....5 .....5 .....4 .....5 4 .....5 1 .....4 1 .....4 1 .....5 1 5 0 ÍA......... Þróttur.... (BK........ Fram....... KR......... Vfklngur... KA......... Breiöablik... ÞórA....... Valur Markahæstir: Páll Ólafsson, Þróttl.........4 Höröur Jóhannesson, (A........3 Guömundur Stelnsson, Fram.....3 Guðmundur Stelnsson fagnar eftlr að hafa skorað gegn Þórsurum í gær- kvöldl og það reyndist vera elna mark lelkslns. Framarar nóðu þar með að létta af sér fallstressinu en Þórsarar sitja illa í súpunnl, hafa ekkl skorað mark í síðustu fjórum lelkjum sínum i 1. delldinni. Mynd Loftur. 1. deild kvenna í knattspyrnu: Góður leikur f A Tveir leikir í 1. deild í kvöld: Taka Keflvíkingar for- ystuna á nýjan og Breiðabliks Þeir tveir leikir sem eftir eru í 5. umferð 1. deildarinnar f knatt- spyrnu fara fram f kvöld og hefjast báðir kl. 20. KA og KR leika á Ak- ureyri og á Kópavogsvelli leikur Breiðablik við Keflvíkinga. Það lið sem sigrar fyrir norðan er þar með komið í hóp efstu liða. KR hefur 6 stig en KA 5 úr fjórum fyrstu leikjunum. Áhorfendur á Akureyri mega vel reikna með mörkum, í síðasta heimaleik KA voru gerð sex mörk og í síðasta leik KR voru skoruð fimm mörk. Bæði lið eru skipuð baráttuglöðum leik- mönnum þannig að fjörugur leikur er í aðsigi. í Kópavogi geta Keflvíkingar tekið forystuna í 1. deild á ný með sigri. Þeir hafa komið á óvart og eru eina ósigraða lið 1. deildar ásamt KR-ingum. Þama mætast þau tvö lið sem fæst mörk hafa fengið á sig í deildinni, enda hafa bæði á mjög sterkum vörnum að skipa, en því miður hefur báðum gengið treglega við mark andstæð- inganna. IBK hefur gert fjögur mörk í fjórum leikjum en Blikamir aðeins tvö. leik? Næstu leikir 1. deildar verða síð- an á mánudags- og þriðjudags- kvöld. Á mánudagskvöldið mætast Valur-Þróttur á Valsvelli og ÍBK- Fram í Keflavík og hefjast báðir leikir kl. 20. Á þriðjudagskvöld fá síðan KR-ingar Þórsara í heimsókn á Laugardalsvöll og 6. umferð lýk- ur á miðvikudagskvöldið með leikjum KA-ÍA og Víkings-Breiðabliks. Að þeim loknum verður þriðjungur 1. deildarkeppninnar að baki og línur ættu að vera famar að skýrast eitthvað. _vs Stórleikur var i gærkvöld í 1. deild kvenna á aðalleikvanginum í Kópavogi, þar sem Breiðabliks- stúlkur léku við Akranesstúlkur í blíðskaparveðri. Leikurinn var mjög góður, gott spil og mikið um tækifæri á báða bóga en samt tókst stelpunum ekki að skora mark. Ásta María átti þrumuskot úr aukaspyrnu en boltinn sleikti þver- slá Akranessliðsins að ofanverðu og stuttu síðar fékk Svava Tryggva- dóttir dauðafæri eftir fyrirgjöf Láru, en skallaði útaf. ÍA fékk þó besta tækifæri hálfleiksins þegar Vanda Sigurðardóttir fékk boltann inni í markteig UBK en tókst að skjóta yfir opið markið. Akranes- stelpur áttu öllu meira í fyrri hálf- leiknum en sá síðari var jafn og stelpumar héldu áfram að misnota dauðafærin. Ragnheiður Jónsdótt- ir fékk þá tvö tækifæri til að skora fyrir í A en hitti ekki markið og á síðustu mínútunni stóð Svava ein fyrir opnu marki í A en skaut útaf. Liðin vom mjög jöfn í leiknum og en helst að Guðríður Guðjónsd. stæði uppúr liði UBK í seinni hálf- leik og bjargaði oft vel. Leikur KR og Víkings var ekki að sama skapi góður, en KR vann 2:0. Leikurinn einkenndist af þófi og kýlingum og það litla spil sem sást kom frá KR-ingum. Mörk þeirra komu þó ekki fyrr en á síð- ustu 15 mínútunum og skoraði Ama Steinsen það fyrra eftir að Kolbrún Jóhannesdóttir hafði skallað fyrir fætur hennar. Seinna markið var svo sjálfsmark Víkings. Sigur KR var sanngjam og þó svo að Víkingsstelpumar hafi sýnt meiri baráttugleði og alltaf verið fljótari á boltann þá áttu KR- stelpumar bæði fleiri og betri færi. -BV

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.