Þjóðviljinn - 14.06.1984, Síða 1
UOBVIUINN
Akurnesingar eru að-
eins stigi á eftir
Keflvíkingum í 1.
deildinni í knatt-
spyrnu eftir sigur á
KA á Akureyri í gær-
kvöldi.
Sjáll
júní 1984
fimmtudagur
132. tbl.
49. árgangur
Innan við ár frá því húsið var
steypt í Breiðholti
Bullandi
skemmdir
• Leiða til alvarlegra alkalískemmda
• Rannsóknarstofnanir fullyrða að
búið sé að útrýma slíkum skemmdum
„Fullyrðingar sérfræðinga frá
Rannsóknarstofnun bygging-
ariðnaðarins og Sements-
verksmiðju ríkisins um að búið
væri aðgera endurbæturá
sementi sem gerðu það að
verkum að alkalískemmdir
heyrðu sögunni til, standast því
miðurekki. Ekki er liðið árfrá
því ég steypti utanáliggjandi
svalir á hús sem ég er að
byggja og kjallara undir bílskúr,
en samt eru komnar fram bull-
andi alkalískemmdir sem sjálf-
sagt er engan veginn séð fyrir
endanná."
Þetta eru orð reynds bygginga-
meistara úr Reykjavík, Sturlu Ein-
arssonar, sem á undanförnum
misserum hefur verið að byggja til-
raunahús úr steinsteypu að Klyfja-
seli 2 í Reykjavík. „Sem betur fer
verða ekki alkalískemmdir í burð-
arveggjum hússins því þar er
steinullareinangrunin utan á og því
engin hætta á ferðum. Hefði ég
byggt hús mitt með hefðbundnum
hætti stæði ég frammi fyrir þessum
alkalískemmdum í öllu húsinu og
það þrátt fyrir fullyrðingar sérfræð-
inga um að þær væru úr sögunni",
sagði Sturla ennfremur.
Helsta nýmælið við tilraunahús
Sturlu Einarssonar auk utanáliggj-
andi einangrunar er að í stað ofna
er heitt vatn leitt um veggi hússins
inni í steinsteypunni í plaströrum.
Sama er að segja um allt neyslu-
vatn hússins en það flæðir um plast-
rör. Mun síðar verða skýrt frá til-
raunahúsinu að Klyfjaseli 2 í Þjóð-
viljanum.
„Sérfræðingar Sementsverks-
miðjunnar og Rannsóknarstofnun-
ar byggingariðnaðarins hafa full-
yrt, nú nýverið í sjónvarpinu, að
með því að blanda málmblendiryki
í sementið við vinnslu og með því
að þvo sérstaklega efnin sem í það
eru notuð, væri búið að tryggja
húsbyggjendum gallalaust sement.
Mig rak því í rogastans þegar ég fór
að kanna steypuna í utanáliggjandi
svölum og grunni undir bflskúrnum
að þar kom í ljós greinilegt úfall úr
steypunni sem ekki getur bent til
annars en alkalískemmda," sagði
Sturla Einarsson í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
- v.
Sturla Einarsson á svölunum við
hússitt að Klyfjaseli 2 í Breiðholti.
Einsog sjá má er saltútfallið, sem
leiðir til alkalískemmda, orðið mikið
í steypunni, þrátt fyrir fullyrðingar
sérfræðinga um að með endurbót-
um á sementi séu þær úr sögunni.
(Ljósm. eik)
Formannafundur Alþýðusambands Austurlands
Einróma áskorun um uppsögn 1. sept.
Allar forsendur
fyrir síðustu
kjarasamningum
hafa brostið á
samningstímanum
Formannafundur Alþýðusam-
bands Austurlands hefur beint því
til verkalýðsfélaga á Austurlandi
að þau standi saman um að segja
upp kaupliðum kjarasamninga
fyrir 1. september næstkomandi.
Algjör samstaða var um þessa
áskorun á fundinum, en á honum
voru forystumenn verkalýðsfélaga
frá Hornafírði norður um til Vopn-
afjarðar. ASA mun vera fyrsta
svæðasambandið innan Alþýðu-
sambands íslands sem beinir upp-
sagnaráskorun til félaganna.
Formannafundurinn var haldinn
á Egilsstöðum á þriðjudaginn og í
ályktun hans segir m.a.:
„Þar sem allar forsendur fyrir
síðustu kjarasamningum hafa
brostið á samningstímanum og
kjaraskerðingin er sívaxandi, land-
búnaðarafurðir hafa hækkað um
allt að 40% frá síðustu áramótum,
lyf og læknishjálp hafa margfaldast
í verði, ef læknishjálp er þá fáanleg
vegna sparnaðar, svo fátt eitt sé
nefnt, beinir formannafundur
ASA því til verkalýðsfélaga á
Austurlandi að þau standi saman
um að segja upp kaupliðum kjara-
samninga fyrir 1. september
næstkomandi“.
- ekh
Sífellt fleiri börn hérlendis alast upp hjá aðeins öðru foreldri
900 í hverjum árgangi
Um 900 börn í hverjum árgangi
alast ekki upp hjá báðum
kynforeldrum, en það er um 20%
barna í hverjum árgangi. Stafar
þetta einkum af hjónaskilnuðum
sem eru mjög tíðir hérlendis auk
þess sem stór hluti barna sem
fæðast utan hjónabands býr
aðeins með öðru foreldri. Þessar
upplýsingar koma fram í grein í
síðasta tbl. Hcilbrigðismála sem
Ólafur Ólafsson landlæknir tók
saman. Bendir landlæknir á að
þessum barnahópi sé hættara við
andlcgum sjúkleika, börnum
gangi yfírleitt verr í skóla,
vímuefnaneysla sé algengari
meðal þeirra og þau eigi erfiðara
með að mynda varanlegt
sambandi við hitt kynið en
jafnaldrar þeirra sem alast upp
með báðum kynforeldrum.
Hjónaskilnudum hefur fjölgað
mjög á íslandi á síðustu árum og er
talið að allt að 600 börn verði að þola
skilnað foreldra á ári hverju hér-
lcndis. Þá fæðast mun fleiri börn utan
hjónabands cn áður fyrr. Um 83%
þessara barna búa með báðum for-
eldrurn fimm árum eftir fæðingu en
17% barnanna, eða um 300 úr hverj-
um árgangi, búa aðeins skamma
stund með báðum foreldrum cða þá
eingöngu með öðru foreldri. Hér eru
því unt 900 börn sem árlega fá ekki að
alast upp með báðum kynforeidrum.
Vísar iandlæknir til ýmissa
rannsókna sent gerðar hafa verið á
áhrif þessa á börn, þarsem niðurstað-
an er m.a. sú að börnin þjást yfir-
höfuð af öryggisieysi, sjáifsásökun og
kvíða. Menntun þeirra er yfirleitt lé-
lcgri en annara barna. veikindi tíðari
og meðalævi styttri. í ísienskri rann-
sókn hafi komið í ljós að unglingar
sent ckki voru aldir upp með báðunt
kynforeldrum ncyttu mun frekar
áfengis en önnur börn og saina á við
um kannabisneyslu. Þá leiddi athug-
un á unglinguní scm vistaðir voru á
Upptökuheimiii rikisins í ljós að 64%
þeirra höfðu ekki verið alin upp af
báðum kynforeldrum og svipaðar
niðurstöður má lesa úr könnun á hög-
un 72 fanga í Reykjavík.