Þjóðviljinn - 14.06.1984, Síða 7
Fimmtudagur 14. júní 1984 þjÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Útskrift úr
ræðuritun
borgar-
stjórnar:
Mér fínnst ákaflega sérkennilegt
að lesa í Þjóðviljanum í gær, tekið
eftir Magnúsi Skarphéðinssyni,
hvað ég hafí sagt í borgarstjórn.
Allt sem eftir honum er haft, er bull
og vitleysa og hefði Þjóðviljinn
mátt vita það, því ekki voru færri
en tveir blaðamenn frá honum á
þessum fundi og þeir hlustuðu á
hvert orð sem ég sagði, segir Guð-
rún Ágústsdóttir, í viðtali við Þjóð-
viljann.
Ég vil að það komi fram að þegar
þessi mál voru rædd á fundi stjórn-
ar SVR, þ. 22. maí sl. er 14. liður-
MiSrikuriagur 13. jiiní 198-t
Magnús Skarphéðínsson um ummæli borgarfulltrúa
Rakalaus ósannindi
Hugleiði nú lögreglurannsókn í málinu
Borgarfulhrúar höfðu
aldrei samhand!
\ ■
tned uppsógn minni oe ætti það að
svr.a tratn 6 ^mstarfÍK»rdugJeÍÉ8“
Þaö v?.t áíakaniegt ad heyra WgregiUTunnw*.n
þessav sakir bomar á mig án þess Áhutður botgaríu];;vúii Gubr-
aö be.uti á hið sanna t mái- ónar Aeústsdóttur & m»g hebir yy.r-
ínu'i’ Alvarlegra cx fyrir Reykvik- i& í jriása Úvni'yKrinicsfariifar’hBii’
ínga sem kosiö l»s.fa þcssa fuíitrúa, fyrst að ég toaft vcrið rckinn vegsts
var þvi halritð fr?.m tií ad að enginn þcirtu befur nokknt „samstartstátðugWiiía”. Nú um
.6mu sálsir.'titT'fxtvSaffðgétí úmi haft sambtmri við tntg lö.að U hejgina hefur þetta bteyst i „van-
uvft aö icita iw nvcr til t»o fá þctta mál skvr, lrá mfrm sjónar mksiu i startV' samkvicmt gresn
I r' v * ... hrwni. Reyndaf hcftu vngitm ÍKtrg st-m hún s.knfat hjá ykkur f þjód-
arfulitrúi ttemtt frá Kvcmtaftam- viijaoum. { miiiitftbnni hcfur aiirs
bfjðífiií iciiað eftír Biiuui iúiö ruáís- fuuitia fðgburöur og gcígátuv kom-
tns, heídut talar þetta tólk einungis iö fi am vcrr. forsenda fytitr uppsirgn
út ffá sjíiuathorni íorstjöva SV.8 <>g mimú. Það ev másfce ertiit aö fesia
samkvte.mt upp!ýst,ngu!n ftá hsm- hendm ;i sifsti, en cg hugieiði nú
um. aivariega logtogiurannsOkn á þcsv
- Ég vii að jsaS konts t'vfcm, að um rógouvði, sagöi Magntts Skarp-
lo.cfr*ðmguv minn vkriíaöi Sveini héömsson að iokum.
B jorttssynt hsrstjórst SVR brct' fyvir -óg
Ma^fexitíaáúias. ág'heí kvitj-
Magnúa SftBrphéðtnfcson: Borgar-
fuHtrúumfr haf a elnuivgí* ieftað upp-
iýsínga tsjá SvaJni Bjömasynf for~t
atjófa SVR. jJ
*r«ÍS33 W* -3» f»feK«í»S »Ut«>t»ssfc.-K,sw Uiítf. «6 itá • ÍM&xwn- ng tóta st»ii«wr'.:-. tstíisin* : pftscurr. (ímxr. Ritoýim A&alsimi Kvöldsfmi Halsarsiml ]
81382, fifi »1«?. 'tw>W« 81228. tt&wsyfisar . ).»><;«srsj3 «. 9 • i2 «r ai ná t atjfee^síc txaix>>«s ■ swks Bt«63. Piswt t«Wvi 8 C348 <jQ oru tSa6ano.xt» pw 8 vsM t* 81333 81348 81663
Baksíða Þjóðviljans í gær.
ið að segja upp aðaltrúnaðarmanni
strætisvagnabílstjóra, fyrir utan
það að ekki er komin nein reynsla á
störf hans þar. Hann hafði ekki
haft tækifæri til að beita sér sem
varatrúnaðarmaður. Þetta er
staðreynd í málinu.
Gerir orð
Júlíusar að mínum
Það er leiðinlegt að í viðtali sínu
við Þjóðviljann í gær, gerir Magnús
orð Júlíusar að mínum og má vera
augljóst af ræðu minni að hann er
að fara með bull maðurinn. Ég vil
taka það skýrt fram að fundinum
var lokað og við vorum ekki með-
mælt því. Okkur fannst ekkert í
þessu máli vera þess eðlis að ekki
mætti ræða það opinberlega. Ég
hef lagt á það ríka áherslu, einnig í
Þjóðviljanum, að maðurinn fái
ávirðingar sínar skriflegar. Á fund-
inum talaði ég ekkert meira um
þetta mál.
Hvaða leið uppsagnarbréfið fór
Hvergi vegið að
Magnúsi Skarphéðinssyni
Þjóðviljinn birtir ræður Guðrúnar Ágústsdóttur
og Öddu Báru Sigfúsdóttur í borgarstjórn 6. júní sl.
inn í fundargerð bókaður svona:
„Fyrirspurn Helgu Thorberg frá
238. fimdi, forstjóri svarar. Guð-
rún Ágústsdóttir bar fram fyrir-
spurn í þremur liðum: Hversu al-
gengt er að fram komi kvartanir frá
farþegum vegna vagnstjóra?
Hvernig er farið með slíkar kvart-
anir? Eru fyrirhugaðar fleiri upp-
sagnir vagnstjóra vegna kvartana
farþega og/eða samstarfsörðug-
leika innanhúss? Þá óskar formað-
ur stjórnarinnar bókað: Vegna
fyrirspurnar Helgu Thorberg frá
238. fundi stjórnar SVR, 12. lið
fundargerðarinnar og fundarsam-
þykktar 9. deildar starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar frá 14.5.
sl. skal það eitt tekið fram að stjórn
SVR lýsir fyllsta stuðningi við for-
stjóra SVR í málinu.“
Þessi bókun er samþykkt með
þremur atkvæðum, en engum
mótatkvæðum. Það er bókað að
Helga Thorberg sem er fulltrúi
Kvennaframboðsins og Guðrún
Ágústsdóttir hafi setið hjá. Á þess-
um fundi sat líka trúnaðarmaður
vagnstjóra, Bergur H. Ólafsson,
kjörinn áheyrnarfulltrúi af sínum
samstarfsmönnum. Hann hefur
ekki atkvæðisrétt þarna inni og gat
því ekki greitt atkvæði með þessu
eða gegn, en það er engin bókun
frá honum eða öðrum um málið.
Þetta er bara búið og afgreitt
þama.
Ekki minn
einleikur
Annað er það, að mér finnst
Þjóðviljinn slá þessu fram sem
mínum einleik. Ég vil taka það
skýrt fram að þessi mál voru rædd
aftur og aftur á borgarmálaráðs-
fundum. Þar voru allir sammála
um þessa málsmeðferð og í borgar-
stjórn lýsti Adda Bára Sigfúsdóttir
því yfir, og á það hlustaði blaða-
maður Þjóðviljans, að borgarfull-
trúarnir stæðu á bak við mig í þessu
máli. Ég hef haft samstarf við mína
félaga í mínum flokki í þessu máli
Adda: Ekkl ágreiningur í okkar
röðum.
eins og öllum öðrum málum og tel
það skyldu mína í sósíalískum
flokki.
Magnús ekki
aðaltrúnaðarmaður
Ég vil líka taka það fram að ég
sagði ekki manninum upp störfum.
Það gerði forstjóri SVR. Við stóð-
um frammi fyrir gerðum hlut og
auðvitað má deila um það hvað ég
hefði átt að gera og sjálfsagt að
gera það. í grein sinni um daginn,
sem mér fannst góð og málefna-
legt, tekur Gísli Gunnarsson fram
hluti sem við erum örugglega öll
sammála, um vernd trúnaðar-
manna á vinnustað í starfi og er
mjög mikilvægt.
Ég hef sjálf verið trúnaðarmaður
á mínum vinnustað og hef þess-
vegna kynnst þeim málum og er
sammála því sem Gísli segir. Hitt
er svo annað, að mér finnst málið
hafa verið sett þannig upp að
Magnús hafi verið trúnaðarmaður
á sínum vinnustað. Það rétta er að í
síðustu kosningum, sem voru nú í
vor í trúnaðarmannaráð, var hann
kosinn varamaður. Það erekki ver-
er mál forstjóra. Ég vona bara að
það sem ég hef sagt um þetta mál sé
látið nægja og ekki sé verið að
leggja mér f munn það sem aðrir
hafa sagt. Mér finnst ástæða til að
benda á að í grein sem ég skrifaði í
Þjóðviljanii um helgina tek ég
skýrt fram að ég hafi verið mótfall-
in aðferðinni við uppsögnina. Það
er alveg á hreinu og hefur komið
fram í annarri grein hjá mér áður.
Að lokum vil ég koma því A
framfæri að ég tel að starf vagn-
stjóra hjá SVR sé mjög mikilvægt
og viðkvæmt og að það skipti mjög
miklu máli hvemig þeir starfsmenn
ræki hlutverk sitt af hendi. Ég tel
að góðir og liprir bflstjórar geti átt
þátt sinn í að laða fleiri farþega að
þessum almenningsfarartækjum,
sem við vinstri menn leggjum
mikla áherslu á að verði aðalfarar-
tækin hjá okkur. Vagnstjórar eru
andlit fyrirtækisins að mínu mati,
þeir starfsmenn sem viðskiptavinir
hafa langmest samskipti við. Þess-
vegna finnst mér leiðinlegt að laun
vagnstjóra hafa dregist aftur úr.
Þeir eru komnir með byrjendalaun
sem eru undir lágmarkstekjum í
þjóðfélaginu. Það finnst mér mjög
rangt, þegar á það er litið að það
eru svo sannarlega gerðar miklar
kröfur til þessara manna. ss
Orð
annarra
gerð að
mínum
segir Guðrún
Ágústsdóttir
Hér fer á eftir orðrétt útskrift úr
ræðuritun borgarstjórnar
fimmtudaginn 6. júní sl. af
ræðum þeirra tveggja borgar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins,
sem til máls tóku við umræður
um brottrekstur Magnúsar
Skarphéðinssonar vagnstjóra.
Báðir borgarfulltrúarnirfluttu
ræður sínar áður en fundi var
lokað. Borgarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins töldu óþarft að
loka fundinum og greiddu því
ekki atkvæði þegar Magnús L.
Sveinsson, forseti borgar-
stjórnar bar ákvörðun sína þar
um undir atkvæði. 14 studdu þá
ákvörðun.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hóf
umræðuna og las m.a. bókun sem
hún gerði í borgarráði vegna upp-
sagnarinnar. Að loknu máli hennar
tók Guðrún Ágústsdóttir borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins og
fulltrúi AB í stjórn SVR til máls.
Hún sagði:
„Forseti. Ég get byrjað á því að
lýsa því yfir, að ég get mjög vel
tekið undir bókun Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgarfulltrúa í
borgarráði, þar sem hún lýsir því
að henni finnist rangt að uppsögn
Magnúsar staðið. Undir það get ég
tekið heils hugar og hef látið það
koma fram annars staðar. Ég bar
fram spurningar á síðasta fundi í
stjórn strætó, sem ég hef ekki feng-
ið svör við. Þær voru fram komnar
vegna þess að ég vildi fá að vita,
hvort aðfinnslur vegna framkomu
Magnúsar gætu átt við fleiri bfl-
stjóra hjá fyrirtækinu, og að hann
hefði þá á engan hátt verið verri
starfsmaður en ýmsir aðrir. Ef það
kemur í ljós, að hann er ekki einn á
báti heldur í hópi margra annarra
þá hlýtur maður að efast um rétt-
mæti uppsagnar hans. Og þess
vegna gat ég ekki stutt framkomna
stuðningsyfirlýsingu við gerðir for-
stjóra á síðasta fundi.
Það hefur lengi verið á döfinni
að halda námskeið bæði fyrir nýja
bflstjóra og eldri, þar sem kirfilega
er farið yfir til hvers er ætlast af
þeim, og gera þá öruggari í starfi.
Slíkt námskeið er nú að fara af stað
eða eitthvað á þá leið og er það
mikið fagnaðarefni. Starf strætis-
vagnabflstjóra er viðkvæmt og erf-
itt starf og framkoma þeirra við
farþega og ábyrgð í starfi sérstak-
lega mikilvæg. Nú er svo komið að
laun vagnstjóra eru svo lág, byrj-
unarlaun undir lágmarkslaunum
12.660 kr., að vagnstjórar geta
ekki haft það á tilfinningunni að
litið sé á starf þeirra sem mikilvægt
ábyrgðarstarf. Það er nú einu sinni
svo, að laun endurspegla viðhorf
viðsemjenda til starfsins.
Vegna þeirra orða Ingibjargar
Sólrúnar hér áðan, að Magnús
Skarphéðinsson ætti ekki upp á
pallborðið - hvorki hjá núverandi
meirihluta eða minnihluta, þá vil
ég vísa þeim dylgjum algerlega á
bug. Greinar Magnúsar á sínum
tíma, þegar við vorum í meirihluta,
voru hressilegar og ég tel að við
höfum haft ágætt af því að fá þær
aðfinnslur, sem þar komu fram, og
það hafi orðið jafnvel til þess að
hvetja okkur til dáða.
En að lokum verð ég að segja
það, að það þarf enginn að verða
hissa á viðbrögðum fólks vegna
uppsagnar Magnúsar, því núver-
andi meirihluti hefur gengið ötul-
lega fram í því að losa sig á ýmsan
máta við óæskilega starfsmenn, um
það eigum við nú þegar nokkur
dæmi“.
Að lokinni ræðu Guðrúnar tal-
aði Júlíus Hafstein, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í stjóm SVR og að
loknu máli hans tilkynnti forseti að
hann hefði ákveðið að loka fundi
með tilvitnun í ákvæði í fundar-
sköpum borgarstjórnar, en þar
segir að loka beri fundi þegar til
umræðu séu einkamál manna.
Adda Bára Sigfúsdóttir bað þá um
orðið áður en fundi yrði lokað.
Hún sagði:
„Áður en fundi er lokað vil ég
aðeins taka fram, að borgarfulltrú-
ar Alþýðubandaíagsins allir era á
sama máli og Guðrún Ágústsdótt-
ir. Það er ekki ágreiningur í okkar
röðum. Þetta vil ég taka fram af því
að það var farið að blanda greinum
í Þjóðviljanum í þetta mál.“
Áð loknu máli Öddu Báru var
fundi lokað og greiddu 14 borgar-
fulltrúar atkvæði með lokuninni.
Aðeins tveir borgarfulltrúar tóku
til máls á lokaða fundinum, Jóna
Gróa Sigurðardóttir, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í stjórn SVR
og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Að lokinni ræðu hennar var fund-
urinn opnaður á nýjan leik og til-
lögur Kvennaframboðsins tekar til
afgreiðslu. Tillaga um að afturkalla
uppsögnina fékk 2 atkvæði Kvenn-
aframboðs og tillaga um að fresta
gildistöku hennar þar til skriflegar
ástæður hennar væru komnar frá
forstjóra SVR fékk 3 atkvæði,
Kvennaframboðs og Gerðar
Steinþórsdóttur.