Þjóðviljinn - 14.06.1984, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 14.06.1984, Qupperneq 11
Fimmtudagur 14. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 íþróttir Víðir Sigurðsson 3. deild í knattspyrnu: Stjarnan gerði 7 í Hólmin- um! Stjarnan úr Garðabæ vann Snæfell með fáheyrðum yfir- burðum í SV-riðli 3. deildar í gærkvöldi, 7-0, og það á heima- velli Snæfells í Stykkishólmin- um! Bragi Bragason og Jónas Skúlason skoruðu fyrir Stjörn- una í fyrri hálfleik og urðu mörkin fimm. Þórhallur Örn Guðjónsson gerði þá tvö, Þór Hinriksson, Birkir Sveinsson og Benedikt Sveinbjörnsson eitt hver. Stjörnumenn nýttu sín færi vel og sigurinn var f allra stærsta lagi. ÍK og HV gerðu jafntefli, 2- 2, í baráttuleik í Kópavogi. Reynir Sigurbjörnsson kom HV yfir en Þórir Gíslason jafn- aði fýrir ÍK undir lok fyrri hálf- leiks. Reynir skoraði aftur fyrir HV en þremur mínútum fyrir leikslok sendi varnarmaður HV knöttinn í eigið mark eftir mikið kapphlaup við ÍK-manninn Gunnar Guðmundsson. Leikur Selfyssinga og Vík- inga frá Ólafsvík hófst ekki fyrr en um tíuleytið í gærkvöldi og var því ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Staðan fyrir hann var þessi í SV-riðli: Fylkir............4 3 1 0 12-3 10 Stjarnan..........4 3 0 1 15-2 9 VíkingurÓ..........3 2 1 0 8-2 7 ReynirS............3 2 1 0 3-1 7 Selfoss...........2 10 1 3-4 3 Grindavík..........3 0 2 1 3-4 2 HV.................3 0 1 2 3-8 1 ÍK.................4 0 1 3 3-11 1 Snæfell............4 0 1 3 2-17 1 Þróttur vann Magna Greni- vík 3-1 á Neskaupstað. Mart- einn Guðgeirsson kom Þrótti yfir en Hörður Benónýsson jafnaði fyrir hlé. Tvö mörk frá Páli Freysteinssyni og Guðm- undi Ingvasyni (víti) í seinni hálfleik tryggu Þróttir sigur. -VS Souness fer til Sampdoria Graeme Souness, fyrirliði ensku meistaranna og Evrópumeistar- anna í knattspyrnu, Liverpool, hef- ur verið seldur til ítalska félagsins Sampdoria fyrir 700 þúsund pund. Þar tekur hann stöðu írans Liams Brady sem Sampdoria seldi tU Inter Mflanó í vor og leikur við hlið enska landsliðsmiðherjans, Trevors Francis. í A ekki í teljandi erfíðleik- um með daufa KA-menn Akurnesingar eru á hælum Keflvfldnga á toppi 1. deUdarinnar í knattspyrnu eftir 2:0 sigur á KA á aðalleikvanginum á Akureyri í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í sunnan golu, 10 stiga hita og smá sól að viðstöddum hvorki meira né minna en 1583 áhorfendum en þeir urðu vitni að heldur slakri viður- eign og lítt spennandi. Jafnræði var með liðunum fram- an af en á 21. mínútu náði ÍA for- ystu. Karl Þórðarson lék að víta - teigsboga og lyfti knettinum þar yfir Þorvald KA-markvörð og í netið, 0:1. Fjórum mínútum síðar tók Sveinbjörn Hákonarson auka- spymu af 30 metra færi Hann skaut fast með jörðu, gegnum hópinn á vítateigslínunni í markhornið niðri, óverjandi fyrir Þorvald. í A náði góðum tökum á leiknum eftir mörkin og var í heild meira með boltann í þokkalegum fyrri hálfleik. KA fékk eitt færi á 37. mínútu, Ormarr Örlygsson tók aukaspyrnu og Hinrik Þórhallsson skallaði rétt framhjá. í seinni hálfleik gerðist nánast ekki neitt. Miðjuþóf alls ráðandi og það litla spil sem sást, kom frá Skagamönnum. Þeir héldu í horf- inu án teljandi erfiðleika og var lítt ógnað af daufum KA-mönnum. Mark Duffield var sá eini sem hélt uppi baráttu í liði KA. Steingrímur Birgisson átti einnig sæmilegan leik. Karl var bestur hjá Skagamönnum og vörn liðsins var ákaflega örugg, enda lítið bit í heimaliðinu. Kjartan Tómasson dæmdi leikinn ágætlega. - K&H/Akureyri Helmlr Karlsson á ferðinni vlft Bllkamarkift - Loftur Ólafsson rennir sér fyrir hann og Friftrik Friftriksson er vift öllu búinn í markinu. Mynd: - eik. Glæsimark Heimis í jafn- tefli Víkings og UBK Víkingur og Breiðablik áttust við í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu á aðalleikvanginum í Laugardal í gærkvöldi. Köflóttum og opnum leik liðanna lauk með jafntefli, 2:2 eftir að Víkingar höfðu haft yfir í hálflcik, 2:1. Strax á 4. mínútu tókst Víking- um að skora. Heimir Karlsson tók þá hornspymu, einum varnar- manna Blikanna mistókst að skalla frá og boltinn barst til Aðalsteins Aðalsteinssonar sem skoraði af stuttu færi. Víkingar voru heldur betra liðið í fyrri hálfleiknum og fengu á næstu mínútum tvisvar mjög góð marktækifæri, í fyrra skiptið skallaði Heimir rétt fram- hjá, og það síðara var skot Ám- unda Sigmundssonar frá vítateig sem Friðrik Blikamarkvörður varði. Á 30. mínútu jöfnuðu Kópa- vogsmenn, boltinn barst þá frá hægri kanti til Jóns Oddssonar sem gaf sér góðan tíma og skaut síðan hnitmiðuðu skoti frá vítateig neðst í markahomið vinstra megin. Tveimur mínútum síðar fengu Vík- ingar gullið færi eftir ævintýralegt úthlaup Friðriks í markinu en Á- munda brást bogalistin, skaut yfir. Á 42. mínútu náðu Víkingar síðan forystunni á ný, þeir fengu þá aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Heimir tók spymuna og „þmmaði" boltanum neðst í stöngina vinstra megin og þaðan þeyttist boltinn í marknetið í hinum enda marksins. Stórkostlegt mark! Er 15 mínútur Vom liðnar af seinni hálfleik jafnaði Breiðablik. Þorsteinn Hilmarsson tók þá hornspyrnu og sendi boltann inn í markteig þar sem tveir samherjar hans vom með öllu óvaldaðir, Óm- ari Rafnssyni mistókst að skalla boltann sem barst til Lofts Ólafs- sonar sem skoraði af stuttu færi. Breiðablik átti síðan öllu meira í leiknum og vom tvisvar á sömu mínútunni nálægt því að skora en mark þeirra Jóns Einarssonar og Jóhanns Grétarssonar fóm rétt framhjá. Friðrik markvörður sýndi síðan stórkostlega markvörslu er hann varði skot Heimis efst í mark- hominu. „Framherjadúettinn“ þeir Á- mundi og Heimir voru bestir Vík- inga, þá gerði Ómar Torfason oft góða hluti á miðjunni. Víkingar hafa nú gert fjögur jafntefli það sem af er mótsins en liðið hefur leikið sex leiki. Friðrik Friðriksson bjargaði oft stórvel og er reyndar hægt að segja að hann hafi haldið liði sínu á floti. Þá vom þeir Jóhann Grétarsson og varamaðurinn Jón Einarsson frískir. Vörn liðsins var hinsvegar áberandi slök. Ragnar Örn Pétursson dæmdi vel. - Frosti Staðan f 1. deild ettlr leiklna I gærkvöldi er þann ig: ÍBK..........6 4 2 0 7:3 14 (A...........6 4 1 1 10:3 13 Þróttur......6 2 3 1 7:4 9 KA...........6 2 2 2 9:9- a Vfklngur......6 14 1 9:9 7 Fram.........6 2 1 3 7:8 7 Breiöabllk...6 13 2 4:5 6 KR...........6 1 3 2 7:11 6 Þór A........6 2 0 4 7:11 6 Valur........6 0 3 3 2:5 3 Fyrsti sig- ur ÍBV Markið sem Sigurjón Kristinsson skoraði á 67. mínútu færði Vestmannaeyjum öll þrjú stigin úr leik þeirra í Njarðvík í 2. deildinni í knatt- spymu í gærkvöldi. Fyrsti sigurlcikur ÍBV í deildinni. Fram að því var leikurinn jafn og án teljandi marktækifæra, með tveimur undantekningum þó, en það var skalli Guðmundar Sighvatssonar þar sem knötturinn smaug rétt framhjá mark- horni Eyjamanna í byrjun leiks. Og þegar Haukur Jóhannsson átti langskot í þverslá hrökk knötturinn þaðan á tær Jóns Halldórssonar sem áttaði sig ekki á þessari óvæntu sendingu og Eyjamað- ur gat komið boltanum frá marki. Markið kom þannig að hörð barátta var um knöttinn við endamörk hjá Njarðvikingum, hann barst út til Sigur- jóns sem skaut viðstöðulaust í netið. Eftir það réðu Eyjamenn öllu á vellin- um en leikur Njarðvíkinga datt alveg i niður. Ólafur Björnsson og Guðmundur ' Sighvatsson voru bestir Njarðvíkinga en Sigurjón var langhættulegastur Eyjamanna. -ÞBM/Suðurnesjum. Sannfær- andi sig- ur Belga Belgar unnu góðan sigur á Júg- óslövum, 2:0, í úrslitum Evrópu- keppni landsliða í Frakklandi í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Lens og var sá fyrsti sem Belgar léku eftir mútumálið mikla þegar fimm landsliðsmenn voru settir í leikbann. Samt voru þeir mun betri aðilinn í leiknum og sigur þeirra var í meira lagi sanngjarn. Erwin Vandenbergh skoraði fyrra markið eftir 28 mínútna leik, fékk langa sendingu frá De Greef og þrumaði í varnarmann Júgó- slava og í netið. Á lokamínútu fyrri hálfleiks skoraði ungur nýliði, Ge- orges Grun, síðara markið með hörkuskalla eftir hornspyrnu. Síðari hálfleik áttu Belgar allan og aðeins frábær markvarsla Simovic hins júgóslavneska kom í veg fyrir að sigurinn yrði stærri. Belgar leika í riðli með Frökkum og Dönum ogberjast greinilega við Frakka um efsta sætið. í hinum riðlinum verða tveir leikir á morg- un - Vestur-Þjóðverjar mæta Port- úgölum og Rúmenía leikur við Spán. - VS ... KA kann að g skora! Stelngrímur. Njáll. KA-menn skoruðu fallegustu mörkin í 4. og 5. umferð 1. deildarkeppn- innar í knattspyrnu, að mati dómaranna sem útnefna ætíð besta markið í hverri umferð. Steingrímur Birgisson skoraði fallegasta mark 4. umferðar er hann skallaði í netið hjá Val á Valsvellinum og félagi hans, Njáll Eiðsson, hirti verðlaunin í 5. umferð. Hann skoraði með miklum þrumu- fleyg, þversláin inn, úti við samskeytin, er KA vann KR 2-0 sl. föstudags- kvöld og það verður leikmönnum 1. deildar erfitt að gera betra mark í sumar. Eins og kunnugt er, verður mark ársins valið úr hópi þeirra 18 marka sem útnefnd verða yfir sumarið. _VS Landsliðshópur fyrir Noregsleikinn valinn: Kristján í landsliðið íslenska landsliðið í knatt- spymu sem leikur gegn Norð- mönnum á Laugardalsvellinum næsta miðvikudag var tilkynnt í gærkvöldi. Það er skipað eftir- töldum leikmönnum: Markverðir: Þorsteinn Bjarnason, ÍBK Bjarni Sigurftsson, ÍA Aðrir leikmenn: Þorgrímur Þráinsson, Val Trausti Haraldsson, Fram Kristján Jónsson, Þrótti Sigurftur Halldórsson, ÍA Olafur Björnsson, Breiftabl. Erlingur Kristjánss. KA Janus Guftlaugsson, F. Köln Karl Þórftarson, ÍA Guftmundur Þorbjörnsson, Val Pétur Ormslev, Fram Ómar Torfason, Víkingi Páll Ólafsson, Þrótti Sigurður Grétarsson, TB Berlín Ragnar Margeirsson, ÍBK Kristján Jónsson, bakvörður- inn efnilegi úr Þrótti, er eini ný- liðinn í hópnum. Þorgrímur og Páll hafa leikið einn leik hvor og Erlingur tvo. Þá em gamalkunnir landsliðsmenn á borð við Trausta og Guðmund komnir í hópinn eftir nokkurt hlé. - Frosti/VS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.