Þjóðviljinn - 22.07.1984, Page 5

Þjóðviljinn - 22.07.1984, Page 5
FRJALSAR IÞROTTIR Þetta var algjört píningarhlaup Sunnudagur 22. júli 1984 þjÖÐVILJINN - SÍÐA 5 Hún er 16 ára gömul - fædd 18. nóvember 1967. Hún er fædd og uppalin í Kópavogi en flutti til Bolungarvíkur og átti þar heima í hálft fimmta ár uns hún, 13 ára að aldri, sneri aftur á æskuslóðirnar. Hún hóf nám við Verslunarskóla íslands sl. vetur og starfar í sumar hjá Pósti og síma. Á Landsmóti UMFÍ um síðustu helgi sló hún í gegn svo um munaði - sigraði í þremur greinum, 100 og 400 m hlaupum og Iangstökki og var að auki í sigursveit UMSK í 4 x 100 m boðhlaupi. í Kalott- keppninni á þriðjudagskvöldið náði hún sínum besta árangri í 100 m hlaupi, 12,14 sekúndur, og það virðist aðeins tímaspursmál hvenær hún fer niður fyrir 12 sekúndur. Fyrir þá sem enn hafa ekki áttað sig á hver hin unga og efnilega íþróttakona er: þetta er Svanhildur Kristjónsdóttir úr Breiðabliki í Kópavogi. Svanhildur, hvenær byrj- aðir þú að stunda frjálsar íþróttir? „Það var á meðan ég átti heima í Bolungarvík. Reyndar var lítið um æfingar en eftir að ég varð 10 ára var ég oft send suður á mót, keppti mest í 60 metra hlaupi og gekk yfirleitt vel, varð oft- ast í 3.-4 sæti. Á mótum fyrir vestan tók ég þátt í fleiri grein- um, svo sem langstökki, há- stökki og meira að segja í kúl- uvarpi! Þetta gekk yfirleitt ágætlega. Þegar ég flutti í Kópavoginn aftur, benti leikfimikennari mér á æfingar hjá frjálsíþróttadeild Breiðabliks og þar hef ég æft síðan;“ - A Landsmótinu sigraðir þú glæsilega í langstökki. Ætl- arðu að æfa það til jafns við spretthlaupin? „Nei, þetta hefur verið aukagrein hjá mér og ég hef ekkert æft það að ráði. Lang- stökkið mun mæta afgangi hjá mér - það fer illa með fæturn- ar, ég er núna t.d. að byrja að fá bólgur í annan fótinn útaf stökkunum." - Hefurðu æft einhverjar aðrar íþróttir en frjálsar? „Ég var talsvert í sundi fyrir vestan en að öðru leyti hef ég látið frjálsíþróttirnar að mestu duga.“ - Fer ekki mikill tími hjá þér í æfíngar? „Það fer allur tími í æfingar! Ég vinn yfirleitt frá 8-13 og fer þá heim og borða og hvíli mig og fer síðan á æfingar seinni- partinn, kl. 16-17 og fram á kvöld. Stundum vinn ég frá eitt á daginn til níu á kvöldin og þá æfi ég á morgnana. Það er ekki eins gaman, maður er þá yfirleitt einn niðri á velli. Síðan er einn og einn frídagur inná milli. Þessa dagana æfi ég ekki neitt, heldur keppi bara. „Ég fékk lélegt start í úrslitahlaupinu-en þetta hafðist og það var eins gott, ég var búin að segjast ætla að vinna.“ Það er í nógu að snúast, Landsmótið, Kalott-keppnin og svo Meistaramótið 15-18 ára á Akureyri nú um helgina. Dagana á milli reyni ég að hvíla mig sem mest.“ - Æfírðu allt árið eða tek- urðu eitthvað hlé? „Það er hvfld í september en síðan byrja æfingar inni í október. Síðasta vetur æfði ég reyndar lítið fyrir áramót, skólinn var það strembinn, annars er æft innanhúss frá október fram í maí, þrekæf- ingar, og að auki langhlaup og brekkusprettir úti.“ - Hvernig er æfingaaðstað- an í Kópavogi? „Kópavogsvöllurinn stend- ur vel fyrir sínu og nú erum við að berjast fyrir því að fá 60 metra hlaupabraut undir nýja íþróttahúsinu, Digranesi. Það yrði ofsalegur munur og það myndi létta miklu álagi af Baldurshaganum í Laugardal en þar fáum við inni einu sinni til tvisvar í viku á veturna. Þessi braut myndi gjörbreyta öllu og væri risastórt spor í rétta átt. í Baldurshaga er fé- lögunum úthlutað æfingatím- um eftir því hvernig æfinga- sóknin hefur verið veturinn á undan og síðast rétt sluppum við inn vegna þess hve fáir æfðu árið áður. Annars æfum við innanhúss í íþróttahúsi Kársnesskóla og nú líka í Digranesi en þar er hægt að taka spretti og því er skemmti- legra að vera þar en í Kársnesinu." - Er vel að ykkar málum staðið hjá Breiðabliki og UMSK? „Hópurinn sem æfir er á svipuðum aldri og andinn er góður. Stjórn frjálsíþrótta- deildarinnar er góð, þetta er engin snobbstjórn. Maður veit mikið um það sem er að gerast hjá félaginu og við get-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.