Þjóðviljinn - 22.07.1984, Blaðsíða 18
Þar ganga konurnar með
blœju fyrir öllu andlitinu
Sveinbjörn
Björnsson,
prófessor,
segir frö
mannlífinu
í Norður-
Jemen
Þaö eru ekki margir íslending-
ar semvita þaö, aðtilerland
sem heitirNorður-Jemen.
Enn færri hafa komið þangað.
Sveinbjörn Björnsson, pró-
fessor íjarðeðlisfræði dvaldist
í þessu framandi landií
nokkra daga fyrr skömmu.
Okkur langaði að vorvitnast
dálítið um N-Jemen, og báð-
um við hann að segja frá ýms-
um staðreyndum um landið
svo og hvernig það kom hon-
umfyrirsjónir.
„Það gekk nú ekki áfallalaust
að komast inn í landið. Ég hafði
enga vísun til að fá að fara inn, því
ég var staddur í Kenya og þar var
engin ræðismanns skrifstofa til að
fá upp á skrifað. Ég ákvað þó að
reyna en þegar að landamærun-
um kom var ég látinn á bekk eins
og hver annar sakamaður. Ég
fékk þó að fara inn en átti eftir að
lenda í vandræðum seinna á þjóð-
veginum er mikið um hermenn
og þeir stoppa bflana í tíma og
ótíma. Þeir urðu tortryggilegir
þegar þeir sáu vegabréfið því ég
hafði ekki almennilega vísun.
Maður veit aldrei upp á hverju
svona hermenn taka, svo ég ráð-
legg öllum að hafa þessi mál á
hreinu ef þeir ætla til N-Jemen.“
„Landið er helmingi stærra en
ísland, eða 200.000 ferkflómetr-
ar. íbúarnir eru um átta miljónir
og átta hundruð þúsund. Tungu-
málið er arabíska en enska er við-
skiptamálið. 85% búa í sveitum
og um 10% í borgum.“
Jemenbúar eru Múhameðstrú-
ar og mjög strangir í trúnni. Þeir
fasta t.d. stíft í Ramanda föst-
unni. Dagurinn er klofinn með
bænahaldi, ég held að það sé gert
fimm sinnum á dag. Konurnar
eru með blæjur, ekki bara yfir
neðri hluta andlitsins heldur yfir
allt andlit. Á húsunum eru sér-
stakir gluggar fyrir konurnar.
Lítil göt svo þær geti séð út en
enginn séð inn. Ég geri ráð fyrir
að þær gangi þá blæjulausar
heima. Hver maður á að meðal-
tali þrjár konur. Ein skýring gæti
verið á því, þó að ég viti það ekki
nákvæmlega. Hún er sú að þetta
er landbúnaðarland, karlarnir
vinni ekki, það verk er kvenn-
anna og það henti ríkinu að hafa
eitt letidýr á móti þremur dug-
legum. Þetta er bara ágiskun. í
Jemen er mikið ólæsi, aðeins
17.4% 10 ára og eldri, þar af eru
35% karla læsir en aðeins 2.7%
kvenna. Þær eru teknar úr skól-
unum tíu til tólf ára og settar á
þær blæjur.
Fótœkt land
„N-Jemenar voru áður voldugt
ríki, blómatíminn frá þriðju öld
fyrir kr. til sex hundruð. Þeir
lentu þá í nýlendukúgun og
landið lokaðist. Einangrunin var
ekki brotin fyrr en með byltingu
1962. í dag er landið tiltölulega
lokað en þeir hafa reynt að opna
það. Það er herforingjastjórn og
kosinn forseti en hann er jafn-
framt yfirmaður í hernum. Hann
var kosinn 1978 og aftur 1983.“
„N-Jemen er eitt fátækasta
land heims. Þeir eru með mjög
óhagstæðan viðskiptajöfnuð, ég
held að muni faktor tíu. Þeir hafa
þó duldar tekjur sem hvergi
koma fram á opinberum skýrsl-
um. Þeir rækta plöntu sem þeir
kalla „Gat“ sem er eiturplanta,
örvandi og róandi held ég. Þeir
tyggja þetta allan daginn. Ná-
grannalöndin kaupa mikið af
„Gat“ og fyrir það fá þeir drj úgan
skilding. „Gat“ kemur í staðinn
fyrir áfengi, sem er bannað sam-
kvæmt trúnni. Ég sá ekki marga
reykjandi, ætli þeir hafi nokkuð
efni á því.“
„Þrátt fyrir að Jemenar eru fá-
tækir er alveg ótrúlegt hvað þeir
hafa gert. Þeir eru komnir með
sjúkrasamlag, ágæta spítala og
eru að bæta háskólana. Vatns-
veita er komin víða svo og raf-
magn. Landið er nánast allt mal-
bikað og það er meira en við get-
um státað okkur af. Næsta fimm
ára áætlunin er á sviði orkumála
og það má segja að þeir séu á
mörgum sviðum staddir eins og
við vorum rétt eftir stríð. Þeir
fengu útvarp 1956 og sjónvarp
1976 en fyrsta bílinn sáu þeir ekki
fyrr en rétt fyrir 1960.“
Drottningin
af Saba
„Mér fannst landið ákaflega
fallegt. Upp af Rauða hafinu er
strönd og þar er geysilega heitt og
rakt, allt upp í 40 gráður á celsíus.
Þar af taka við hlíðar, tvö til
fimmtán hundruð metra háar.
Þar rignir mikið og er gróðursælt.
Svo tekur hásléttan við, allt upp í
þrjú þúsund metra hæð. Á há-
sléttunni er mikið svalara og á
veturna getur hitinn farið niður í
frostmark, en við ströndina
breytist hann ekkert.“
„N-Jemen er suð-vestur á Ara-
bíu skaganum. Landið liggur til
norðurs til Saudi Arabíu, suð- og
suð-austur er S-Jemen, Rauða
hafið í vestur og Arabíu eyði-
mörkin í austur. í eyðimörkinni
hafa fundist rústir borgar og
sögur segja að það sé borg drottn-
ingarinnar af Saba sem þekkt er
úr sögum 1001 nætur. Rústir í
eyðimörkinni benda til að veðr-
áttan hafi verið önnur hér áður
fyrr, því nú gæti enginn lifað
þar.“
„Það er enginn túrismi í N-
Jemen, t.d. voru engir betlarar.
Búðirnar eru gluggar þ.e. í hús-
unum er röð af gluggum og hver
verslunarmaður hefur einn
glugga. Hann situr mitt í dótinu
sem á að selja í sinni holu, svona
hefur þetta verið s.l. 2000 ár.
Verslunarmátinn er prútt eins og
tíðkast í arabalöndunum og kem-
ur túrismanum ekkert við, þetta
er þeirra venja. Jemenar voru
ekkert á móti því að við tækjum
myndir, sumir eltu okkur langa
leið og vildu að það væri tekin af
þeim mynd. Þeir héldu að við
værum frá sjónvarpinu. f landinu
er mjög lítið um glæpi því að í
Múhameðstrú eru mjög strangar
refsingar og íbúarnir eru að ég
held mjög heiðarlegt fólk.“
Vantar
lœst fólk
„N-Jemanar ganga í serkjum
og með vefjahatta en þeir hafa
bætt við evrópskum jökkum utan
yfir. Ég býst við að þeir vilji halda
búningi sínum að einhverju leyti
þó að evrópsk menning hafi sett
nokkurn svip á hann. Eg held að
það séu álíka margir Jemenar er-
lendis, búsettir og í námi, og búa í
landinu sjálfu. Þar smitast þeir af
erlendri menningu en um leið og
þeir koma í flugvélarnar þá fara
þeir í serkinn og setja upp vefja-
höttinn, og falla inn í gamla
samfélagið aftur.“
„Það sem landið vantar er læst
fólk og fólk sem kann á vélar.
Vandamálið er það að sveitafólk-
ið vill ekki flytja til borganna og
vinna við þjónustustörf. Þeir
leysa það með því að fá egypta og
saudi-araba inn í landið og vinna
þessi verk. Það tekur kynslóðir
að breyta þessu hugarfari.“
„Það var virkilega gaman að
koma til þessa lands, þetta er al-
veg nýr heimur sem maður kynn-
ist. N-Jemen virðist nú ekki vera í
miklu áliti hjá nágrannaþjóðun-
um, því að þegar við sögðum
hvert við værum að fara þá glotti
fólk. Skýringin gæti verið sú að
landið er mjög fátækt svo og
hversu fastir siðir eru þar. Ég
verð þó að segja að nú ber ég
miklu meiri virðingu fyrir ara-
bískri menningu en áður, þó að
meðferðin á konunum sé nú ekki
til fyrirmyndar.
HS
Hefðbundinn klœðnaður karla Sérstakir gluggar fyrlr konur og karla, litlu götin eru fyrir konurnar. Hefðbundlnn dans hjá körlum, og allir tyggja þeir „gat“
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. júlí 1984