Þjóðviljinn - 25.08.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR
Kartöflur
Fá
bændur
Græn-
metið?
Mikil fundahöld voru í gær
vegna kartöflustríðsins hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins, en
„frjálsu“ kartöflurnar renna út
eins og heitar lummur hjá Hag-
kaupum og fleiri smásöluverslun-
um.
Á fundi sínum í gær ákvað
framleiðsluráðið að heimila ekki
fleiri aðilum að svo stöddu
heildsöludreifingu á kartöflum
eða öðru grænmeti. Er vísað til
fundarsamþykktar í fulltrúaráði
kartöflubænda þessari ákvörðun
til stuðnings, en kartöflubændur
lýstu eindreginni andstöðu sinni
við hugmyndina 14. ágúst s.l.
Vegna óska kartöflubænda um
að taka við stjórn Grænmetis-
verslunar landbúnaðarins lýsir
framleiðsluráðið því yfir að það
sé „reiðubúið til að ræða breytta
stjórn fyrirtækisins, enda náist
samkomulag um eignarhald,
rekstrarfyrirkomulag þess og
starfsreglur“. í greinargerð er
bent á að þetta krefjist laga-
breytingar og ekki sé ljóst hvort
pólitískur vilji sé fyrir slíkri
breytingu.
Á næstu dögum mun fram-
leiðsluráðið ræða við stjórnvöld
og hagsmunaaðila um lausn á
deilunni um „frjálsu" kartöflurn-
ar, segir í frétt frá Framleiðslu-
ráði landbúnaðarins.
Fyrir-
lestur
um eðlis-
fræði
Porsteinn J. Halldórsson eðlis-
fræðingur hjá Messerschmitt-
Bölkow - Blohm GmbH í Mvinc-
hen flytur fyrirlestur á vegum eðl-
isfræðingafélags íslands á mánu-
daginn klukkan 16.30 í stofu 158 í
húsi Verkfræði og Raunvísinda-
deildar Háskólans við Hjarðar-
haga. Fyrirlesturinn ber heitið
Þýska stjörnu-athugunarstöðin
GIRL. Hann er öllum opinn.
í upphafi var ísafold og ísafold var
hjá Árvakri og ísafold er Árvakur.
Þjóðviljinn er með látlausan „bás" á vörusýningunni í Laugardal nú einsog ott áður. Olga Clausen er yfirumsjónarmaður
þessarar deildar og var myndin tekin við opnun sýningarinnar í gær. Þarna gefst fólki kostur á að gerast kynningaráskrif-
endur að Þjóðviljanum fyrir spottprís, auk þess sem fólki er afhent ábyrgðarlaust skensblað til að vekja athygli á
gamansemi aðstandenda Þjóðviljans.
Þær Daðey og Bára tóku forskot á
sæluna í gærdag og kíktu inn í Legó-
húsið. Þar verður byggingasam-
keppni allan sýningartímann og auð-
vitað eru Legókubbar í verðlaun.
Ljósm. Atli.
Laugardalshöll
Heimilið og fjölskyldan
’84 opnuð í gær
Heimilið og fjölskyldan ’84,
vörusýning og tívoll var opn-
uð I gær I Laugardalshöll með
pompi og prakt. Þetta er 6.
heimilissýningin og hafa gestir
verið á bilinu 50-80 þúsund á
hverri. Er búist við svipuðum
fjölda nú en sýningin stendur
fram til 9. september.
Eins og við er að búast eru þeir
fjölmargir sem nota vilja tækifær-
ið og koma vöru sinni á framfæri
við allan þennan skara. Um 30
fyrirtæki voru á biðlista án árang-
urs en sýnendur eru 105 talsins. Á
sýningunni er fjölbreytt yfirlit
yfír flest það sem þarf til heimilis-
ins. Allmargir sýnendur bjóða
gestum uppá að smakka á mat-
vælum, þarna geta menn gert
verðsamanburð, fengið sýni-
kennslu og keypt ýmsa hluti á
kynningarverði.
í aðalsal hallarinnar hefur á
einni viku risið fullbúið einbýlis-
hús sem 20 sýnendur hafa sam-
einast um að búa heimilistækjum
og húsbúnaði. Þama eru uppbúin
rúm, rúllandi vídeó, myndir á
veggjum og stígvélaþurrkari svo
eitthvað sé nefnt, en húsið er reist
úr Mát-einingum, klætt með
steinklæðningu frá Bykó. Því
miður verður víst að eyðileggja
húsið að sýningu lokinni, því
öðmvísi er ekki hægt að koma því
út! Þá hafa Húsvíkingar fjöl-
mennt á sýninguna með ýmiss
konar framleiðslu bæjarins og
sýna þeir á stóru svæði matvæli,
báta, sólarlampa og fleira. Þar er
einnig stórskemmtilegur spegla-
salur og málverkasýning Sigurðar
Hallmarssonar.
Á útisvæði er að venju tívolí
með bílabraut, kolkrabba, þeyti-
vindu, barnahringekju og hopp-
sal en þar er einnig hægt að fara í
kastleiki og spila í tombólu þar
sem þúsundir bangsa eru í verð-
laun. Á tívolísvæðinu verður 19
ára gamalli breskri fallbyssu-
drottningu skotið á loft tvisvar á
dag og kemur hún úr byssunni
með 90 km hraða og þeytist 30
metra í loftinu áður en hún fellur
niður í þar til gert öryggisnet.
Þetta hefur aldrei sést hér á landi
áður.
Á tívolísvæðinu er einnig heilt
Legóhús, þar sem þúsundir Leg-
ókubba eru til frjálsra nota fyrir
börn og verður stanslaus bygg-
ingarsamkeppni þar allan sýning-
artímann. Þrjú bestu módel hvers
dags verða verðlaunuð með Leg-
ókubbum og besta módelið á sýn-
ingunni færir höfundi sínum 2ja
daga ferð í Lególand í Dan-
mörku. Það er kannski eins gott
að taka það fram fyrir þá sem
vilja æfa sig að ekki má nota fleiri
en 25 kubba í listaverkið!
Sýningin er opin virka daga kl.
17-23, um helgar kl. 14-23 fram til
9. september. Aðgangseyrir er
150 krónur fyrir fullorðna, 100
kr. fyrir ellilífeyrisþega og 50
krónur fyrir börn.
Jan Mayen deilan
Norrænni samvinnu til hnjóðs
Utanríkisráðuneytið óskar eftir því að ríkisstjórnir
Noregs og Danmerkur fjalli um málið
Utanríkisráðuneytið sendi
utanríkisráðuneytum Noregs
og Danmerkur I gær erindi vegna
loðnuveiðanna við Jan Mayen og
var haft samráð við utanríkis-
málanefnd þingsins um þessar
orðsendingar. I báðum erindun-
Engar
Iviðtali við útvarpið í gærkvöldi
neitaði dr. Jóhannes Nordal,
formaður samninganefndar
ríkisstjórnarinnar við Alusuisse
að nefna nokkrar tölur um hækk-
un raforkuverðsins þrátt fyrir að
hann teldi miklar líkur á að sam-
komulag um það væri í augsýn.
Viðræðufundi Alusuisse og
viðræðunefndarinnar lauk í Zúr-
um er því lýst yfir að deilumálin
um veiðarnar og lögsögumörkin
gagnvart Grænlandi séu nor-
rænni samvinnu til hnjóðs og beri
ríkisstjórnum landanna að sam-
cinast um skjóta og sanngjarna
lausn.
ich í Sviss í gær og hefur verið
boðaður aukafundur í Amster-
dam í byrjun september. Dr. Jó-
hannes Nordal og Dietrich Ernst
frá Alusuisse voru sammála um
að mikill árangur hefði náðst á
fundinum í Zúrich og sagði dr.
Jóhannes að verulegur skriður
hefði komist á umræður um
breytingar á orkusölusamningn-
um og orkuverðinu. Vænti hann
í erindinu til Dana er lýst
megnri óánægju með áframhald
loðnuveiða austan miðlínunnar
og er óbilgirni Dana varðandi
kröfur tij svæðisins hörmuð.
Minnt er á að íslendingar hafi við
útfærslu lögsögu sinnar í 200 míl-
þess að eftir næsta fund yrði hægt
að fara að undirbúa skriflegan
texta samkomulags um öll atriði
deilunnar við Alusuisse en undir-
skrift gæti dregist eitthvað. Dietr-
ich Ernst taldi trúlegt að samn-
ingar yrðu í höfn fyrir árslok.
Ekki náðist í Sverri Hermanns-
son iðnaðarráðherra í gærkvöldi.
-ÁI
ur ekki framfylgt henni nema að
miðlínu gagnvart Jan Mayen um
nokkurra ára skeið. Ekki sé unnt
að sjá að kröfur Dana eigi sér
haldbæra stoð í þjóðarétti.
í erindinu til Norðmanna eru
áréttuð fyrri mótmæli vegna
skorts á raunhæfri löggæslu á Jan-
Mayen svæðinu og bent á að ís-
lendingar geti ekki til lengdar að-
gerðarlaust horft uppá að mjög
mikilvægum hagsmunum þeirra á
sameiginlegu nýtingarsvæði sé
þannig stofnað í hættu. Afla
danskra og færeyskra fiskiskipa
beri að draga frá loðnukvóta
Noregs þegar á yfirstandandi
vertíð enda óranglátt og óviðun-
andi að veiðarnar bitni á kvóta
íslendinga.
Utanríkisráðuneytið óskaði
jafnframt eftir því að ríkisstjórnir
Noregs og Danmerkur fjalli um
framtíðarskiptingu loðnukvótans
og einnig bent á að brýnt sé að
leysa deiluna um lögsögumörkin.
Álviðrœðurnar
tölur nefndar
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. ágúst 1984