Þjóðviljinn - 25.08.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 25.08.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI rannsóknarrétt Engan Yfirlýsingar forseta Hæstaréttar á norrænu lögfræöingaþingi og í útvarpi hafa vakiö verö- skuldaða athygli. Þór Vilhjálmsson sagöi í Osló aö íslenskir dómstólar heföu gefið æsi- fréttum lausan tauminn vegna þess hve sektir væru litlar í meiðyröamálum, og í útvarpi taldi oddviti dómsvaldsins nauðsynlegt að „hafa á vegum réttarkerfisins viðbrögö" gagnvart efni fjölmiðla. Það ber aö fagna öllum tilraunum til skoöanaskipta um framgöngu fjölmiöla, tengsl þeirra við almenning og þaö hlutverk þeirra aö veita aöhald yfirgangsgjörnum ráöamönnum, stofnunum og stéttum. Ekki síst á þeim tímum að fjölmiölamenn reyna að brjótast úr þeim viðjum sem hagsmunatengsl og flokksbönd hafa á þá lagt, - og lenda stundum í öörum engu skárri; það er viðjum markaðarins, með þeim afleiðingum aö oft er höggvið nærri þeirri helgi sem ríkir á um einkalíf og leikið á ystu brún heiðarlegrar blaðamennsku. Vert væri að forseti Hæstaréttar skýrði nán- ar ummæli sín um lausa tauma og viðbrögð réttarkerfisins. En svo undarlega bregður við að forsetinn neitar að gera grein fyrir máli sínu á þeim forsendum að hann sé „prívatpersóna" og vilji ekki sem slík ræða við einn fjölmiðl- anna, Þjóðviljann. Þegar svo er ástatt verður forseti Hæstaréttar að sæta því að umfjallend- ur bregði sér í líki ritskýrandans og taki til við túlkun. Ummæli forsetans er varla að skilja á annan veg en að refsingar verði hertar í þeim dómsmálum sem koma við blaðamennsku og að sett verði á stofn einhverskonar eftirlitsapp- arat um íslenska fjölmiðlun á vegum réttarkerf- isins. Þjóðviljinn varar eindregið við slíkum hug- myndum. Ritfrelsi, - með ákveðnum, sjálf- sögðum takmörkunum -, er einn helsti horn- steinn sæmilegs lýðræðis. Sérdómstóll um fjölmiðlaefni er ekki til þess fallinn að auka veg ritfrelsis í landinu, - og það er heldur ekki sennilegt að slík afskipti dómskerfisins muni efla heiðarlega djörfung meðal fjölmiðlanna. Það skýtur raunar svolítið skökku við að heyra hæstaréttarforsetann gagnrýna dóms- kerfi sitt fyrir linku í samskiptum við blaða- menn. íslensk löggjöf og lagatúlkun dómara um meiðyrði og önnur brot tíðkuð í fjölmiðlum er nefnilega með þeim hætti að stangast á við réttarvitund almennings. Það er rétt að nefna dæmi, og einkar viðeigandi vegna þess að forseti Hæstaréttar hefur skotið sér undan því að rökstyðja þannig mál sitt. Skýrt dæmi eru VL-málin fyrir rúmum áratug, þarsem pólitísk umræða í miklu hitamáli varð til þess að stofna þurfti sérstakan málfrelsissjóð til verndar þeim sem dirfðust að gagnrýna beiðni um sífellda hersetu á íslandi. Annað skýrt dæmi er glæ- nýtt: Spegilsmálið, þarsem Hæstiréttur lagði blessun sína yfir alls órökstudda eignaupp- töku saksóknara ríkisins með alvarlegum af- leiðingum fyrir þá sem hlut áttu að máli, - og ef til vill enn alvarlegri afleiðingum fyrir framtíð ritfrelsis í samfélaginu. Ekki verður annað séð en dómskerfið styðji nægilega vel við bak þeirra sem órétti eru beittir í fjölmiðlum, - innan þess ramma sem dómskerfinu er settur. Heiðarleg og vönduð blaðamennska er hinsvegar fyrst og fremst háð aðhaldi almennings og faglegum metnaði í stétt fjölmiðlanna. Nú stendur yfir endur- skoðun á starfi siðareglunefndar Blaða- mannafélagsins, og væri vel ef sú umræða sem sprottið hefur af orðum Þórs Vilhjálms- sonar yrði til að herða á þeirri endurskoðun. Aftur hlýtur almenningur að taka undir með fjölmiðlamönnum við að afþakka rannsóknar- rétt um ritfrelsi á íslandi. Ó-ÁLIT DlðÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fróttastjórar: óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur- dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp- hóðinsson. Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson. Útlit og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Björnsson,Svava Sveinsdóttir, Þröstur Haraldsson. Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson. Auglysingar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna Guðjónsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Áskriftarverð ó mánuði: 275 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.