Þjóðviljinn - 25.08.1984, Síða 11
QÆGURMAL
Eartha Kitt
Eartha Mae Kitt fæddist í
Suður-Karólínu árið 1928
þegar sólin lagði leið sína um
Vatnsberamerkið í himin-
hvolfinu. Hafa stjörnurnar
leynt og Ijóst ætlað Earthu til-
brigðaríkt líf því á mörgu hefur
gengið og oft ekki blásið byr-
legafyrir þessari sérstöku
konu. Frægt er þegar Eartha,
stödd í snobbsamkvæmi í
Hvíta húsinu og vitfirring
Víetnam-stríðsins í al-
gleymingi, hneykslaði pólitík-
usa og annað velsæmislið
með snjallri og beinskeyttri
tölu gegn íhlutun Bandaríkja-
manna í stríði þessu. Ætlaði
allt um koll að keyra og átti
þessi uppákoma Earthu í gild-
inu fræga eftir að draga dilk á
eftir sér fyrir frama hennar í
s/<5tóseftirleiðis. Plötufyrir-
tæki þorðu ekki að taka hana
uppá sína arma og önnur
dans- og söngvahlutverk
hættu að berast henni. Hún
hafði gert sig seka um and-
bandarískan „áróður" áopin-
berum vettvangi og skyldi fá
að gjalda þess. Ekki var það
henni til framdráttar að hún
hafði alið barn með hvítum
stjórnmálamanni, og Klu Klux
Klan gengið á eftir henni með
morðhótanir og annað smott-
erí.
Hér á eftir fara nokkur ágrip úr
viðtali sem tekið var árið 1975 og
er að finna í bók, sem inniheldur
viðtöl við annað frægt fólk á borð
við Múhameð Alí, rithöfundinn
James Michener, - Rachel
Welch, svo að einhverjir séu
nefndir. Bókin heitir „How I
learned to like myself" (Hvernig
mér lærðist að geðjast að sjálfri/
um mér) og eru viðmælendur
spurðir persónulegra spurninga
um lífsviðhorf sín og meiningar.
Að vera sinn
eigin besti vinur
- Ég hef alltaf verið það, þótt
ég hafi fundið fyrir misskilningi
frá fólki, það ekki skilið mig, því
að ég hef alltaf vitað að ég yrði að
vera trú sjálfri mér. Það komu
stundir að ég lét glepjast af ann-
arra skoðunum á mér sem komu
mér úr jafnvægi, en áður en allt
fór í handaskolum tókst mér að
skilgreina sjálfa mig og finna út
hið sanna í málinu. Það er mjög
erfitt að vera samvistum við fólk
sem kann ekki að meta sjálft sig.
Það er í sífelldri leit að sjálfu sér,
einhverri ímynd, og getur því
sjaldan verið mjög einlægt. Slflcir
einstaklingar eru vitsmunalega
fljótandi persónuleikar. Sumir
vilja meina að það að vera
skemmtikraftur hafi eitthvað
með það að gera að maður verði
góður vinur sjálfs síns. Hjá mér
gerðist það þó öðruvísi: Að vera
án fjölskyldu og finna mína eigin
leið í lífinu til þess hreinlega að
komast af. Það var þessi grund-
völlur sjálfsbjargarviðleitni sem
kom mér í skilning um mikilvægi
þess að vera sinn eigin besti vin-
ur.
Lífsuppskrift
- Mín „uppskrift“ að lífinu er
að vera ekki hrædd við sjálfa mig,
hvorki við það sem ég hugsa né
við skoðanir mínar. Að vera ætíð
opin fyrir nýjum lærdómi, nýrri
reynslu og öðru fólki. Að vera
opinn gagnvart öðru fólki hjálpar
manni að komast nær sjálfum sér.
Ein ástæðan fyrir því, að ég
held ennþá sönsum, er að ég trúi
á að fyrirgefa og vera ekki að
velta mér uppúr biturleika eða
hatri. Margir eiga bágt með að
skilja að þessi er mín meining,
telja mig þrátt fyrir allt beiska og
bitra, og halda því jafnframt fram
að ég myndi klárt koma fram
hefndum ef einhver óvingaðist
við mig. En ég er mótfallin þann-
ig aðferð, og reyndin hefur orðið
sú að fólk hefur fengið að traðka
eilítið um of á mér. Það hefur þó
alltaf komið uppúr dúrnum að
það skilur að lokum við hvað ég
hef átt og viðurkennt mistök sín.
Velgengni
- Ég hef alltaf gert mér ljóst að
ég væri öðru vísi en annað fólk,
alveg frá því að ég var í „útlegð" á
bómullarökrum í Suðurríkjun-
um. Að vera fædd með þrenns-
lags blóð í æðum og verið afneit-
að af þeim þrem kynstofnum sem
ég er komin af... Jesús Kristur!
Hvernig getur manni liðið einsog
öðru fólki...? Samt sem áður hef
ég aldrei gefist upp og frekar
reynt að nota mér þetta til fram-
dráttar. (Eartha Kitt er af gulum,
svörtum og hvítum kynstofni
komin).
Þegar ég var stelpa kölluðu mig
allir „þessa gulu“ og vildu fáir
vingast við mig. Ég varð því að
finna mína eigin leið til að rétt-
læta tilveru mína, sanna að ég
væri einhvers virði. Ég fékk
snemma að skilja það, að annað-
hvort berstu við vandamál þau er
að þér steðja og gefst aldrei upp,
þar til þú hefur unnið sigur, eða
þá leggur upp laupana og lætur
erfiðleikana íjyngja þér og gera
þig vonlitla. Ég verð kannski að
sanna gildi mitt umfram flesta þá
er strax fengu athygli, en ég held
að hver sem við erum göngum við
öll í gegnum efasemdir um það
hvort við einhverntíma náum
settu marki með lífi okkar.
Ef við höfum eitthvert sér -
kenni verðum við að rækta það
þegar við höfum komið auga á
það. Og hafi þér tekist að uppgö-
tva þína sérstöku náttúru muntu
skilja, að hún þarfnast sjálfs-
stjórnarog ögunar.Flestir ættu að
prófa sjálfir hvað í þeim býr, líkt
og þegar krakkar eru látnir ganga
í gegnum hin ýmsu ólíku próf svo
auðveldara verði að sjá hvar
áhuginn liggur og hæfileikinn,
t.d. hvort um ræðir stærðfræði-
greind, listamannsnáttúra eða
sálfræðiáhugi. Það geta flestir
prófað sjálfa sig á þennan hátt,
svo að í rauninni er ekki hægt að
afsaka sig og segjast ekki vita
hvað maður vill vinna við. Ég
held að þú komist aldrei í gegnum
lífið, ef þú ferð að ráðum foreld-
ranna eða eftir óskum þeirra, t.d.
um að þú verðir læknir. Þegar þú
svo ert orðinn læknir sérðu að þú
vildir heldur hafa lært eitthvað
annað. Þú ert að vísu orðin lækn-
ir, en varla neitt góður! Þegar
maður leitar eftir að gera þá hluti
sem ánægju veita, þá sem þú
virkilega vilt vinna við, þá býstu
ekki endilega við að þeir eigi eftir
að gefa sjö miljón dollara í aðra
hönd. Ef fólk er hamingjusamt
við iðju sína, er sanngjörn lífsaf-
koma allt sem það þarfnast.
Veistu, að gráðugar manneskj-
ur verða alltaf „mellur", sama
hvað þær taka sér fyrir hendur.
Gott líf
- Hið góða líf er þegar þú finnur
þessa fullnægju innra með þér að
þú sért eitthvað. Og þá skiptir
engu máli hvort þú ert sæl með
Eartha aóð
en í „vondum" félagsskap
Plata Earthu Kitt, Ég elska
karlmenn, gæti verið miklu
betri. Hún er hið fullkomna
dæmi um hvernig ekki á að
gera plötu. Inniheldur hún sex
lög, sem öll standa yfir í of
langan tíma, frá tæpum sex
mínútum til rúmlega tíu, og
eru ofhlaðin, endurtekin;
sumsé lopinn teygður langt
fram úr hófi. Synd og skömm,
því Eartha er miklu meiri
listamaður en gefið er í skyn á
þessari plötu, og víst er að
J acques Moriali, sá fýr er
stjórnar upptöku hennar á hér
hvað stærstan hlut að máli.
Hér er þó ekki um vondar mel-
ódíur að ræða, en úrvinnsla
þeirra er smekklaus, og ódýrt
bragð sem angar af sölumennsku.
Að kasta Earthu svona harkalega
illa inní markaðsfrumskóginn er
fyrir neðan hennar virðingu, hún
hefur enn til að bera sérkennilega
rödd og færi betur ef hún ómaði
án alls þessa glundurs sem troöið
er svo leiðinlega inní hvar og
hvernig sem er.
Þegar Eartha söng lagið Where
is my Man hér um árið, og þá án
þessarar svonefndrar „megamix-
túruútfærslu”, þótti von á góðu,
því lagið var gott og Eartha enn
betri. En það er greinilegt að
rangur karlmaður stendur á bak
... býður birginn, en...
við þessa fjölhæfu konu, karl sem
ætti að nota hæfileika sína um-
fram allt annað til að framleiða;
langa/ leiðitama/diskó/ breik/ -
danstónlist. Eartha hefur,
kannski í einslags hallæri, látið
verða af gerð slíkrar skífu og
verður að vanda sig betur næst ef
byr á að fást í seglin.
Það mætti ætla að ofansögðu að
fátt eitt gott fyndist við plötuna
nema söngur Earthu, enda er það
svo... Hinsvegar er gott að eiga
gripinn finnst mér, því ég er svo-
lítið skotin í þessari konu.
Eartha Kltt árift 1975
sjálfa þig, finnur innri ánægju.
Þetta er fyrir mig hið góða líf, og
ásamt velgengni.
Ég set það að markmiði að gera
ávallt það besta sem í mínu valdi
stendur og þannig er ég í sátt við
sjálfa mig. Sú tilfinning að geta
elskað sjálfan sig gerir manni
kleift að elska aðra persónu. Og
ástin verður fyrir vikið miklu ör-
látari, hún geislar út frá þér og
getur gefið í skyn hvernig þér er
innanbrjósts gagnvart bæði sjálfri
þér og öðrum. Ef þú ert í nei-
kvæðri afstöðu til sjálfrar þín,
verða samskipti þín við annað
fólk einnig neikvæð.
Nú, ég held að allir hafi yfir
einhverju valdi að ráða og brúkir
þú það rétt og vel er það jafnvel
nauðsynlegt hverjum og einum til
heilbrigðs lífsmáta. Ef við erum
nógu vitur og næm á umhverfi
okkar getum við komið góðu til
Ieiðar með áhrifum okkar. Ég
verð alltaf ánægð ef ég á þess kost
að nota áhrif mín eða vald í góð-
um tilgangi.
Hamingja
og erfðasynd
- Ég held ekki að hamingjan sé
einhver fjarstæður draumur.
Hinsvegar er stanslaust verið að
brýna fyrir manni að veraldleg
gæði þurfi til svo að hamingjan
verði nú höndluð. En slík firra
afvegaleiðir hverja persónu frá
sínum innsta kjarna. Ennfremur
er okkur kennt að ríkan karl þurfi
til ásamt viðeigandi framagirni og
jafnvel samviskuleysi, ef sælu á
að ná. En að mínu viti er þess-
háttar fflósófía algerlega villandi,
ekkert af ofannefndu færir þér
hamingju.
Aukinheldur tel ég að nokkur
hugtök trúarbragðanna, t.d. um
syndina, hafa skilið okkur eftir
villt vega í leitinni að sjálfsham-
ingjunni. Trúarbrögðin geraokk-
ur það snemma ljóst að þörfin
fyrir kynlíf sé syndsamleg og
viðurkennir þú hana ertu ósjálf-
rátt orðinn syndari. Eitt af því
versta sem maður getur gert öðr-
um manni er að koma inn í vitund
hans sektarkennd útaf eðlilegum
hvötum. Vitaskuld þyrfti upp-
fræðslu og réttan aga í þessum
málum, en trúarbrögðin kenna
það bara einfaldlega ekki; sjáðu,
þau kenna þér ekki að uppfræða
eða aga sjálfa þig eftir eðlilegum
hvötum þínum, heldur eingöngu
að þú sért syndari hinn versti bara
ef þú hefur einhverjar slíkar
kenndir!
Laun heimsins
- Það verður alltaf til fólk sem
finnst líf sitt illa endurgoldið,
maður er alltaf að hitta fólk sem
lifir í sjálfsblekkingu og annað
sem einfaldlega nennir ekki að
vinna, punktur basta! En al-
mennt séð held ég að réttmæt
laun séu yfirleitt svikin af fólki,
einfaldlega vegna of hárra skatta
sem lagðir eru á almenning. Og
skattabyrðin verður þess svo
valdandi að fólk hefur hvorki
þrek né þor til að vinna að hærra
marki.
Jákvœður
þankagangur
- Það er jákvæður hugsunar-
háttur að hafa hugrekki til að
fylgja eftir sannfæringu sinni, og
að vera ekki bölsýn. Að hafa
kímnigáfuna í lagi sama á hverju
dynur. Ef ég hefði ekki haft húm-
or væri ég ekki stödd þar sem ég
er nú. Reyndar finnst mér ennþá
svolítið skondið að ég sem áður
vann við baðmullartínslu í Suður-
ríkjunum skuli síðar meir hafna í
matarboði hjá Nehru Indlands-
forseta og hanastélum með kóng-
urn og drottningum og öðrum í
svokölluðum hærri þrepum þjóð-
félagsins. Mér finnst það ennþá
hlægilegt. Ég er ekki hrædd við
að viðurkenna hver ég er, hvaðan
ég kem og hvar minn staður er.
Ég hef alltaf hugsað mér að verða
mikil manneskja vegna þess að
sem barn var mér innprentað að
ekkert væri í mig spunnið og að
ég ætti eftir að „koma heim einn
daginn ólétt og baka heimili mínu
skömm“ - og álíka orð dundu sí-
fellt á eyrum mér í þá daga. Ég
ákvað þá að sanna að ég væri ekk-
ert slæm. Þessi hugsun hefur ver-
ið ráðandi æ síðan. Það var þá
fyrst sem ég ákvað að hugsa já-
kvætt.
Eftirmœli
- Ég vildi að fólk ætti eftir að
minnast mín sem góðrar mann-
eskju, góðrar móður og góðs vin-
ar.
(I. mar snaraði lauslega).
Laugardagur 25. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11