Þjóðviljinn - 31.08.1984, Page 1
BSRB
Tilboðið einskis virði
Haraldur Steinþórsson hjá BSRB: „Gagntilboðu ráðherra inniheldur ekki neitt
Það er hreint fráleitt að kalla
þetta gagntilboð af hálfu fjár-
málaráðuneytisins. í þessu felst
ekkert nema töf, og rannsókn á
hlutum sem þegar liggja fyrir.
Þetta einfaldlega inniheldur ekki
neitt sem ekki var búið að segja
áður, þannig að þetta var alger-
lega einskis virði.
Þetta sagði Haraldur
og er ekkert nema töf. YfirklórAlberts.
Steinþórsson, framkvæmdastjóri
BSRB, þegar Þjóðviljinn innti
hann álits á „tilboði" fjármála-
ráðherra, sem var iagt fram hjá
sáttasemjara í gær á fundi samn-
inganefnda ríkisins og BSRB.
„Tilboð" ráðherra fólst í þrem-
ur þáttum:
I fyrsta lagi skyldu samnings-
aðilar kanna sameiginlega þróun
verðlags og kaupmáttar á yfir-
standandi ári.
í öðru lagi var gefið vilyrði fyrir
því, að kæmi í ljós umtalsverð
frávik frá hinum upphaflegu for-
sendum samningsins sem gerður
var á síðasta vetri, þá væri ráð-
herra reiðubúinn til að ræða
hvort þær kauphækkanir sem
gert var ráð fyrir, gætu komið
með öðrum hætti til fram-
kvæmda.
í þriðja lagi skyldu samnings-
aðilar leita sameiginlega að
ráðum til að auka hagkvæmni í
opinberum rekstri með hugsan-
lega endurskoðun launakerfis
opinberra starfsmanna í huga.
Að auki skyldi leitað leiða til að
gera samninga um kjör til Iengri
tíma en áður.
Einsog sést af þessu er hér ekki
um nein handföst tilboð að ræða,
og ýmsir telja að þetta sé einungis
yfirklór Alberts Guðmunds-
sonar, en hann mun vera undir
þrýstingi frá meðráðherrum sín-
um um að standa ekki lengur að-
gerðarlaus. _ös
Sandsíli í beitu
Þau tíndu sandsíli af kappi, krakkar, trillukarlar og fjölskyldur þeirra, á Akranesi í gær. Sandey var að dæla
sandi inn á svæði Sementsverksmiðjunnar. Þegar honum er dælt upp kemur sjór með og fjöldi síla. Þau eru
notuð til beitu. Safnaðist fljótt í fötur og poka. Krakkarriir sáu þarna möguleika á pening og sögðust selja
fötuna á 60 krónur. Þeir sem ná mestu frysta til að nota síðar. Menn voru ánægðir með þennan feng í
veiðibanninu og góða veðrinu í gær. (Mynd: eik). - jp.
Samningarnir
Á bónusránið
að halda
áfram?
GuðmundurJ. Guðmundsson:
Kröfur vestfirðinganna jafngilda
1.25 krónum ofan á tímakaup
fiskverkunarfólks. Vilja menn
þiggja það og láta bónusránið halda
áfram?
Mér er illa við að jafn ágætur
maður og Pétur Sigurðsson
vestfirðingur skuli vera gerður að
allsherjar þjóðhetju í Morgun-
blaðinu útá það að vera með
undanslátt i sambandi við kjör
fiskverkunarfólks. Staðreyndin
er sú, að það sem vestfírðingarnir
eru í rauninni að fara fram á, er
ein króna tuttuguogfímm aurar
ofan á tímakaup fískverkunar-
fólks. Þetta er nokkuð furðulegt,
þegar haft er í huga, að þeir gerðu
ekki nokkra einustu athugasemd
við kröfur Verkamannasam-
bandsins.
Þetta sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar í
gær, þegar Þjóðviljinn innti eftir
viðhorfum hans til kröfugerðar
Alþýðusambands Vestfjarða. En
það hefur sett fram kröfur sem
ganga mun skemmra en kröfur
Verkamannasambandsins.
„Það sem fiskverkunarfólk er
fyrst og fremst ævareitt yfir í dag,
það er tvöfalda kerfið sem við-
gengst í atvinnugreininni, þar
sem álag vegna bónuss og yfir-
vinnu er miðað við taxta sem er
langt undir dagvinnutekjutrygg-
ingunni. Þetta veldur því til dæm-
is að röskar tólf krónur tapast af
bónusnum fyrir hverja unna
klukkustund. Ef menn nenna, þá
geta þeir reiknað út að miðað við
40 stunda vinnuviku jafngildir
það að ríflega 25 þúsund krónur
tapast á ári bara útaf því.
Verkamannasambandið hefur
því lagt höfuðáherslu á að af-
nema þetta tvöfalda kerfi: Við
viljum að taxtarnir undir dag-
vinnutekjutryggingunni séu
hreinlega kiipptir í burtu, 14 þús-
und krónur verði lægsti taxtinn
og við það verði bónus og yfír-
vinnuálag miðað. Ráða þannig
tvöfalda kerfið af dögum.
Það sem vestfirðingarnir vilja
hins vegar fyrir fiskverkunarfólk
er að hækka það um einn flokk.
Sko, þessi extra leiðrétting sem
þeir vilja ná fram fyrir þetta
hörkuduglega fólk jafngildir ekki
nema 1.25 krónum á tímann!
Auk þess vilja þeir svo 7 prósent
kauphækkun yfir línuna, sem
þeir verða þar að auki að slá
eitthvað af. Með þessu hafa
vestfirðingar í rauninni fallið frá
því að afnema þetta hræðilega
tvöfalda kerfi, en vilja í staðinn
þiggja eina krónu tuttuguog-
fimrn. Það er auðvitað þeirra
mál. En það þýðir hins vegar að
bónusránið verður áfram til stað-
ar. Vilja vestfirðingar það?“
-ÖS
Bókagerðarmenn
Verkfall
Á fundi sínum í gær samþykkti
Félag bókagerðarmanna að fara í
verkfall þann 10. september náist
ekki samningar fyrir þann tíma,
að því er varaformaður félagsins,
Svanur Jóhannesson bókbindari,
tjáði Þjóðviljanum í gær.