Þjóðviljinn - 31.08.1984, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 31.08.1984, Blaðsíða 10
FRÉTTIR ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Áfengiskaup Alþýðubandalagið Kópavogi Lögaldur hækkaður í Ameríku Bandaríkjaforseti hefur nýlega undirritað lög sem kveða á um að lögaldur til áfengiskaupa skuli vera 21 ár í öllum fylkjum. Um 1970 lækkuðu allmörg fylki lögaldur til áfengiskaupa í 18 ár. Reynslan af því varð hörmuleg. Æ fleiri unglingar lét- ust í umferðarslysum vegna ölv- unar. Slíkum slysum fjölgaði sums staðar um allt að 600% milli ára. Samkvæmt upplýsingum Um- ferðarráðs Bandaríkjanna eru helmingi meiri líkur á að táningar lendi í umferðarslysum, þar sem drykkja er orsökin, en nokkur annar aldurshópur. Helstu rökin fyrir lækkuninni voru þau að staðreynd væri að unglingar drykkju og betra væri að þeir gerðu það löglega en ó- löglega. Reynslan sýndi hins veg- ar að ólögleg drykkja unglinga minnkaði alls ekki heldur færðist til yngri aldurshópa vegna lækk- aðs lögaldurs til áfengiskaupa. Mæður, sem áttu um sárt að binda vegna slysa af ölvun við akstur, bundust samtökum sem hlutu nafnið Mæður gegn ölvun við akstur. - Þessi grasrótarsam- tök urðu fljótt afar öflug. Mörg fylki hófu þegar um miðjan síðasta áratug að hækka lögaldurinn í áföngum, fyrst í 19 ár, síðan 20. Og nú er sem sé svo komið að Iögaldur til kaupa á þessu vímuefni er ári hærri í Bandaríkjunum en á Islandi. (Fréttatilkynning frá áfengisvarnarráði) Félagsfundur. ABK heldur félagsfund í Þinghóli, miðvikud. 5 sept. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Kosning uppstillingarnefndar f. aðalfund. 2. Efnahags- og atvinnumál. Ólafur Ragnar Grímsson hefur framsögu. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í brennandi umræðu. Nýir félagar eru velkomnir. Stjórn ABK Alþýðubandalagsfélögin á Suðurnesjum Alþýðubandalagsfólk á Suðurnesjum: fjölmennum í Þórsmerkurferð sem farin verður þann 14. september. Allar frekari upplýsingar gefa Bjargey Einarsdóttir í síma 3096 og Elsa Kristjánsdóttir í síma 7680. Verkalýðsmálanefnd ÆFAB Fundur verður haldinn í verkalýðsmálanefnd ÆFAB, sunnudaginn 2. sept- ember kl. 14.00 að Hverfisgötu 105. Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins verður haldinn 31. ágúst - 2. september á Akureyri.í Lóni, Hrísalundi. Dagskrá: 1. Leið Alþýðubandalagsins í efnahags- og atvinnumalum. Kjaramal. 2. Stefnuumræða Alþýðubandalagsins. Fundurinn hefst föstudagskvöldið 31.8. kl. 20.30. Þá verða fluttar fram- söguræður. Fundarslit eru áætluð á hádegi sunnudaginn 2.9.. Eimskip Nýtt skip - Laxfoss Gámaskip tekið á leigu Laxfoss er nafn á gámaskipi sem Eimskip hefur tekið á leigu. Skipið er systurskip Bakkafoss byggt árið 1979. Bæði skipin eru leigð af breska fyrirtækinu Ell- erman City. Islensk áhöfn verður á Laxfossi. Laxfoss hefur rúmlega 4000 tonna burðargetu og getur flutt allt að 300 gámaeiningar. Fossinn mun sigla frá íslandi um Evrópu til Bandaríkjanna. Siglingaráætl- un Ameríkuleiðarinnar fer í gegnum Evrópu eftir að ameríska skipafélagið Rainbow Navigati- on tók yfir stærstan hluta af varn- arliðsflutningum íslensku skipa- félaganna. -jP Þegar bilar mætast er ekki nóg að annar víki vel út á vegarbrún og hægi ferð. Sá sem á móti kemur verðurað gera slíkt hið sama en not- færa sér ekki tillitssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraði þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km. Útivinnandi konur Mætum allar á fundinn á Hótel Borg kl. 14.00 á morg- un (1. sept.) og ræðum stöðuna í kjarabaráttunni. Samtök kvenna á vinnumarkaðinum Þýskan vantar pennavini Stefan Kundel er 17 ára gamall Þjóðverji sem býr í Bremen í V- Þýskalandi. Hann óskar eftir pennavini á íslandi, og tekur fram að hann skilji frönsku og ensku auk þýskunnar. Greinilega hefur Stefan aðgang að þýsk- íslenskri orðabók, því hann segir: „Eg er að leita einhvers sem vill mér skrifa. Ég er 17 ára og skil franska, enska og þýska. Utan- áskrift mín er: Stefan Kundel lm Langen Brink 28 2800 Bremen V-Þýskaland“ HEIMUR í SPÉSPEGLI Lögtaksúrskurður Að kröfu sveitarsjóðs Mosfellshrepps úrskurðast hér með að lögtök megi fara fram fyrir ógreiddum út- svörum og aðstöðugjöldum ársins 1984 ásamt drátt- arvöxtum og kostnaði. Lögtök þessi mega fara fram á kostnað gjaldenda en á ábyrgð sveitarsjóðs Mosfellshrepps að liðnum átta dögum frá birtingu þessarar auglýsingar. Hafnarfirði 27. ágúst 1984 Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu W Fjölbrautaskóli V Garðabæjar verður settur mánudaginn 3. sept. n.k. kl. 9.00. Nem- endur fá þá afhentar stundaskrár og bókalista gegn nemendafélagsgjaldi kr. 1.000. Kennsla hefst síðan skv. stundaskrá þriðjudaginn 4. sept. Kennarafundur verður haldinn mánudaginn 3. sept. kl. 13.00. Skólastjórn Frá Grunnskóla Njarðvíkur Kennarafundur verður í skólanum mánudaginn 3. sept. kl. 10. Nemendur mæti í skólann fimmtudaginn 6. sept. sem hér segir: kl. 9, 9. bekkur og 8. bekkur kl. 10, 6. bekkur og 7. bekkur kl. 11, 5. bekkur og 4. bekkur kl. 13, 3. bekkur og 2. bekkur kl. 14, f. bekkur. 6 ára börn verða boðuð símleiðis. Skólastjóri. SKÁK Þessi staða kom upp í skák mílli Miles og norska viðundursins Simen Agdestein á stórmótinu í Ósló á dögunum, þar sem Jón L. var meðal þátttakenda. Miles sem hafði hvítt lék nú 15. Rbll? hvað er nú þetta? Hvaða hug- mynd liggur að baki þessum leik? Agdestein kunni augsýnilega ekki svör við þessum spurningum og lék 15.-e5 sallarólegur, hann varð að leika annaðhvort 15.-Be6 eða 15.-Bg6 til þess að geta leikið f5 og Rf6. Miles afhjúpaði nú hug- mynd sína með því að leika hinum riddaranum upp i borð 16. Rg1!l nú sést að svartur á enga vörn gegn f3 og vinnur riddarann á e4. Framhaldið reyndist Miles ekki ofraun. BRIDGE Það buðust nokkrar slemmur í Landsliðskeppninni, sl. helgi, eins og gengur, en sennilega engin eins góð og þessi, þótt að- eins tvö pör fyndu hana. Gjafari A., AA/ á hættu: Norður S KDG95 H 5 TK65 L A975 Vestur Austur S 4 S 108763 H K873 H D102 T D74 T93 LKDG108 L 642 Suður R A9 H AG964 T AG1082 L 3 Sigurður Sverrisson og Valur Sigurðsson og Ásmundur Páls- son og Karl Sigurhjartarson fundu þessa þrælgóðu tígul slemmu, í suður. I báðum tilvikum kom vestur út með lauf og besta framhaldið vafðist ekkert fyrir Val og Karli, sagnhöfunum. Drepið á ás og trompi svínað til vesturs. Hrólfur, í vörninni skilaði trompi til baka. Valur átti slaginn heima tók hjarta ás og trompaði hjarta. Spaði á ás og hirt síðasta tromp- ið. Lagt upp... en austur véfengdi kröfuna. Spaða-10 var langsóttur banabiti slemmunnar. Karl fór eins í spilið og einnig hann lagði upp í fjögurra spila endastöðu, gegn mótmæla murri í austur. Tapað spil. Sannarlega ill örlög í svo góðri slemmu, sem þolir tromp drottn- ingu fjórðu úti á hvorri höndinni sem er og 4-2 legu í spaðanum. Vel yfir 90% samningur. Jón B. og Guðmundur Sveins og Björn Eysteins og Guðm. Her- manns fundu enga „lykt“ og 3 grönd afleiðingin. Engin vand- kvæði þar og margir „impar" inn- byrtir, fyrir vikið. LEÐURLITUN LITUM LEÐUR TÖSKUR OG JAKKA. JAFNT SVART SEM AÐRA LITI. KREDITKORTAÞJONUSTA SKÖVIÐGERÐIB fellagOrdum VOLVUFELLI 19 S'MI 74566 10 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Föstudagur 31. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.