Þjóðviljinn - 31.08.1984, Qupperneq 5
UMSJÓN: EINAR MÁR JÓNSSON
Föstudagur 31. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Vill verða
Imam
Atburðirnir í Súdan eru að
sumu leyti gott dæm!i| um slíkt
afturhvarf til ströngustu boða
íslams-trúar, en það gerir þó mál-
ið flóknara að þar í landi eru það
einungis íbúar norðurhlutans
sem eru Múhameðstrúar, en íbú-
ar suðurhlutans eru ýmist kristnir
eða heiðnir og geisaði árum sam-
an heiftarleg borgarastyrjöld í
landinu.
Nemeiry forseti Súdans skeytti
samt lítið um þessa skiptingu
landsins, og var svo að sjá sem
honum væri mest í mun að verða
„ímam“ Súdana, - en það er sami
Þjóðir Suður-Súdans eru ekki Múhameðstrúar og hafa allt aðra tungu og menningu en íbúar norðurhluta landsins.
Andstaða í Súdan
gegn íslamslögum
Heittrúarstefna forsetans kemur mjög illa við kristna menn
og heiðingja í suðurhluta landsins
Sérstakur dómstóll í Súdan
dæmdi nýlega súdanskan kaup-
mann til hýðingar og tveggja ára
fangelsisvistar að auki fyrir það
að gagnrýna þá stefnu Nemeirys
forseta landsins að taka í gildi lög
Múhameðstrúar.
Að undanfömu hefur mönnum
orðið mjög tíðrætt um klerka-
valdið í Iran, þar sem horfíð hef-
ur verið aftur til ströngustu laga
Múhameðstrúar og svo langt er
jafnvel gengið að skvetta eitur-
sýru framan í andlitið á konum,
sem ganga blæjulausar, en þessi
heittrúarstefna er þó engan veg-
inn bundin við íran. Víða í
löndum Múhameðstrúarmanna
vaða uppi ofsatrúarhreyfingar,
sem krefjast þess að lög Kórans-
ins verði aftur tekin í gildi - þó
þeim hafi reyndar ekki verið
framfylgt öldum saman - og farið
verði að nýju að grýta hórkarla
og -konur, höggva hendur af
þjófum eða banna sölu áfengra
drykkja. Áhrif slíkra hreyfinga
eru mjög mismunandi, sums
staðar reyna yfirvöldin að berja
þær niður, annars staðar verða
þau að taka verulegt tillit til
þeirra þótt þær fái ekki að komast
í valdaaðstöðu, og loks ber það
við að valdhafar ganga alveg á
band þeirra og láta þær ráða ferð-
inni í einu og öllu. Svo virðist sem
slíkt sé vænlegt til að styrkja þá í
sessi, því að heittrúarhreyfingar
hafa oft mikinn hljómgrunn með-
al alþýðu manna.
Nemeiry forseti Súdans: hægri höndina af fyrir smáhnupl og vinstri fótinn líka
fyrir stærri afbrot.
titill og Khomeini erkiklerkur
hefur og þýðir bæði þjóðhöfðingi
og trúarleiðtogi. Fyrir tæpu ári
lýsti hann því yfir að lög Múham-
eðstrúar gengju í gildi í landinu,
og jafnframt fór hann þess á leit
við þing Súdans að það sam-
þykkti sem allra fyrst fjölmargar
stjórnarskrárbreytingar, sem
miðuðu að því að samræma
stjórnarskrána frá 1973 lögum
Kóransins. Dómstólar hikuðu þó
hvergi og tóku þegar að dæma
menn eftir þessum lögum. Sam-
kvæmt tölum, sem Amnesty Int-
emational hefur birt, hafa
fimmtíu og átta menn verið
dæmdir til að hand- eða fót-
höggvast síðan í september í
fyrra. Þrjátíu og fjómm dómum
hefur verið framfylgt, og var í tólf
tilvikum um „tvöfalt limalát“ að
ræða, þ.e.a.s. af hinum dæmda
vom höggvin hægri hönd og
vinstri fótur. Lögin kveða svo á
að þeir sem stela verðmæti sem er
meira en jafngildi 80 dollara skuli
handhöggnir, og þeir sem falla
aftur í afbrot eða fremja vopnað
rán skuli dæmdir til „tvöfalds
limaláts". Fyrir neyslu áfengra
drykkja og kynmök utan hjóna-
bands er refsað með hýðingu.
Andspyrna
í suðri
En þessar áætlanir Nemeirys
forseta um að taka íslamslög í
gildi í einu og öllu, laga stjórn-
arskrána að þeim og gerast sjálf-
ur ímam fyrir lífstíð hafa þó
mælst misjafnlega vel fyrir. Hér-
aðsþing í suðurhluta Súdan
höfhuðu stjórnarskrárbreyting-
unum með öllu og þingmenn frá
Suður-Súdan á þjóðþinginu fóm
fram á það við félaga sína frá
norðurhlutanum að þeir hugsuðu
mál sitt vel. í kjölfar þess gerðist
það svo, sem mun vera einsdæmi
í sögu landsins síðustu árin, að 98
af 153 þingmönnum þjóðþings-
ins, sem hefur jafnan verið
auðsveipið valdhöfunum, báðu
forsetann um „umhugsunarfrest“
til þess að eiga auðveldara með
að ráða fram úr þessu vandamáli.
Öllum til undrunar féllst Nem-
eiry forseti á þessa beiðni, og þótt
talið væri að hann hefði ætlað að
gerast ímam nú í september,
samþykkti hann að fresta þing-
fundum fram í nóvember.
Á meðan ferðast Nemeiry um
allt landið og útskýrir fyrir
mönnum kosti þess að lifa undir
lögum íslams, sem mæla svo um
að menn skuli miskunnsamlegast
vera grýttir, hengdir, limlestir
eða flengdir fyrir brot gegn Kór-
aninum, og hefur hann fengið
helstu guðfræðinga og Kóran-
fræðinga landsins sér til aðstoðar.
En mjög mikið er í húfi. Ef
Nemeiry fær vilja sínum endan-
lega framgengt, hefur það í för
með sér aukinn klofning lands-
ins. íbúar suðurhlutans geta eng-
an veginn sætt sig við að Múham-
eðstrú verði gerð að eina grund-
velli laganna í Súdan og enginn
geti orðið forseti nema hann sé
„trúaður maður“ og „vel að sér í
Kóran-fræðum og guðfræði ís-
lams“. Með því móti yrðu þær
hefðir sem eru að baki gildandi
lögum í suðurhluta landsins
numdar úr gildi og íbúarnir yrðu
að annars flokks borgurum, því
fyrir það væri endanlega girt að
„sunnlendingur" gæti orðið for-
seti. Þess vegna er mikil hætta á
því að afturhvarf það til íslams-
laga, sem Nemeiry boðar, leiði til
þess að borgarastyrjöldin, sem
lauk 1972, blossi upp að nýju, og
gæti það haft alvarlegar afleiðing-
ar í þessum heimshluta.
(e.m.j. eftir „Le Monde“)