Þjóðviljinn - 31.08.1984, Qupperneq 8
ÞJÓÐMÁL
x
Finnbogi Hermannsson, Helgi Árnason og Snorri Sturluson vígreifir á kjördæmisráðstefnunni. Kjartan Ólafsson væntanlegur þingmaður vestfirðinga í hópi félaga.
Vestfirðir
Verðmætin til þeirra
sem skapa pau
KjördœmisráðstefnaAB: 25-30% kjaraskerðing. Rekstrargrundvöllurfrumatvinnuveganna
írústum. Stórfelld byggðaröskun. Ránsfengur í verslun ogþjónustu. -Snúa verðurfrá
nýlendustefnunni. Nýráð: brjótauppgrundvallarskipulagþjóðfélagsins. Skiptalandinuí
öflugar valdaeiningar. Seðlabankinn verði lagðurniðurínúverandimynd.
Stefna núverandi ríkisstjórnar
byggist í megin dráttum á tvennu,
gífurlegri kjaraskerðingu alls
launafólks og hágengisstefnu,
sem skyldar gjaldeyrisskapandi
útflutningsfyrirtæki til að selja
gjaldeyrinn undir kostnaðar-
verði.
1. Kjaraskerðingin
Óumdeilt er, að á minna en
tveimur árum, hata kjör alls
launafólks verið skert um 25-
30%. Á sama tíma hefur öllu
verðlagi, vöru og þjónustu, verið
sleppt lausu og gífurlegur niður-
skurður hefur átt sér stað á fé-
lagslegri samhjálp. Þetta bitnar
harðast á lágtekjufólki, öryrkj-
um, öðrum sjúklingum og ellilíf-
eyrisþegum, þar sem laun og líf-
eyrisgreiðslur nægja langt í frá
orðið til brýnustu lífsnauðsynja.
2. Kjör frumatvinnu-
vega
Þrátt fyrir gífurlegar fórnir sem
launafólk hefur verið látið færa,
hefur það ekki leitt til bættrar
stöðu frumatvinnuveganna, sjá-
varútvegs og landbúnaðar. Frá
miðju s.l. ári, hafa tekjur fisk-
vinnslufyrirtækja hækkað um
6%, en útgjöld þeirra önnur en
laun hafa hækkað um yfir 30%.
Er nú svo komið, að fjöldi slíkra
fyrirtækja er komin í þrot. Helstu
orsakir versnandi rekstrarstöðu
eru: Gífurleg hækkun fjármagns-
kostnaðar, eitt dýrasta orkuverð í
heimi, sem er í algjöru ósamræmi
við það verð, er alerlendu fyrir-
tæki er gert að greiða, okur í
margvíslegri þjónustu við sjávar-
útveginn og furðuleg tregða til að
viðurkenna raunverulegt gengi
íslenskrar krónu, sem hlýtur að
taka mið af höfuðútflutningsvegi
okkar, sem skapar þjóðinni yfir
7o% heildargjaldeyristekna og
reyndar um 85% ef útflutnings-
tekjur hinnar erlendu álverks-
miðju eru ekki taldar með.
Kjördæmisráðstefnan gerir þá
kröfu, að rekstrargrundvöllur
frumatvinnuveganna verði
tryggður og jafnframt tryggt, að
þeir aðilar sem nú hagnast stór-
lega á rangri stjórnarstefnu, verði
látnir skila þeim ránsfeng til baka
og fjármunir notaðir til að tryggja
launafólki bætt kjör.
3. Áhrifin á
byggðarlögin
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur
þegar leitt til byggðaröskunar og
mun á skömmum tíma leggja
stóran hluta landsbyggðarinnar í
eyði, verði ekki gripið til mjög
harkalegra gagnráðstafana. I
sumum byggðarlögum er ástand-
ið þegar orðið svo alvarlegt, að
fólk flýr unnvörpum frá hús-
eignum sínum og býður þær til
sölu langt undir kostnaðarveri.
4. Hvað varð um
fjármagnið?
Tilflutningur fjármagns úr
undirstöðuatvinnuvegunum hef-
ur löngum átt sér stað í íslensku
þjóðfélagi, en nú keyrir um þver-
bak. Hvað sjávarútveginn áhrær-
ir verða gengisskráningin, vaxta-
stefnan, frjáls álagning þjónustu-
þátta og okur á flutningskostnaði
til að mergsjúga sjávarútveginn
og beina öllu fjármagni sem þar
myndast yfir í eyðslugreinar
þjóðfélagsins. Ávextirnir af striti
hinnar tiltölulega fámennu stétt-
ar sjómanna og fiskvinnslufólks
falla til þeirra er síst skyldi. Dæmi
þess sjást í miklum ofvexti í
verslunar- og viðskiptalífi á höf-
uðborgarsvæðinu. Þar er ráns-
fengurinn niðurkominn, og skal
nú njóta hæstu ávöxtunar sem
þekkist í veröldinni.
5. Hvað ber
að gera?
Snúa verður frá þeirri háska-
legu nýlendustefnu, sem lands-
byggðin hefur orðið að þola.
Rækta verður með þjóðinni
raunverulegt verðmætaskyn, sem
hafnar þeim skilningi, að pening-
ar séu hin einu og sönnu verð-
mæti, en ekki sú vinna og fram-
leiðsla, sem skapar gjaldeyris-
tekjur þessarar þjóðar. Náist
ekki samkomulag um að skapa
frumatvinnuvegunum réttlátan
rekstrargrundvöll, er ljóst, að
landsbyggðin verður að grípa til
örþrifaráða til að tryggja tilver-
ugrundvöll sinn. Þar kemur t.d.
þetta til álita:
A. Að brjóta upp grundvallar-
skipulag þjóðfélagsins og
skipta landinu upp í öflugar
einingar, er hafi vald og
fjármuni til að taka að sér
mörg þeirra verkefna, sem
ríkið sér nú um.
B. Seðlabanki íslands verði
lagður niður í núverandi
mynd og honum einungis fal-
ið hlutverk seðlaprentunar.
Jafnframt verði tryggt, að
vald það sem Seðlabankinn
nú hefur í gjaldeyrismálum
verði í verulegu mæli fært út
um byggðir landsins til þeirra
sem standa undir
gj aldeyrisframleiðslunni.
Með slíkum ráðstöfunum
mætti tryggja, að þau verðmæti
sem sköpuð eru í þjóðfélaginu,
verði notuð í þágu þeirra, sem
auðinn hafa skapað.
(Stjórmálaályktun AB Vestfjörð-
um)
HVERJIR FÓRNA -
íÞÁGU HVERRA?
Almennir fundir Alþýðubandalagsins
á Norðurlandi Eystra.
HÚSAVÍK,
Félagsheimilinu
Sunnudaginn 2. 9.
kl. 20.30
F ramsögumenn:
Svavar Gestsson,
Steingrímur J.
Sigfússon.
Svanfríður Jónasdóttir.
AKUREYRI,
Hótel KEA
Sunnudaginn 2. 9.
kl. 15.30
F ramsögumenn:
Helgi Guðmundsson,
Svavar Gestsson,
Steingrímur J.
Sigfússon.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. ágúst 1984