Þjóðviljinn - 02.09.1984, Qupperneq 4
Hjónin Þorbjörg Arnórsdóttir og Fjölnir Torfason á Hala, ásamt einum þriggja sona sinna, Vésteini.
Stjórnaraðgerðir í landbúnaði
Landbúnaðarframleiðslan
er undirstaða sjólfstœðisins
Þaö er búiö aö dæla pen- skuldbreytingalána til bænda skuldir. Þessi lán eru veitt án hjálpa stærstu og skuldug-
ingum í landbúnaöinn í formi svo þeir geti greitt upp lausa- skilyröa. Nær heföi veriö aö ustu búunum til að greiða nið-
ur fjármagnskostnaö sinn og
setja þeim jafnframt þaö skil-
yrði aö búin væru minnkuð og
dregiö úr framleiöslunni,
sagði Fjölnir Torfason bóndi á
Hala í Suðursveit, þegar Þjóö-
viljinn ræddi viö hann um
ástand og horfur í landbúnaði.
- Offramleiðslan veldur því að
bændur fá ekki rétt verð eða fullt
kaup fyrir framleiðslu sína. Fjöl-
skylda ætti að geta lifað vel af 25
kúm eða 90.000 1 af mjólk, sam-
kvæmt núverandi verðlagsgrund-
velli.
Landbúnaðarframleiðslan er
undirstaða sjálfstæðisins, það að
við framleiðum sjálf þessar dag-
legu neysluvörur okkar, mjólkur-
og kjötvörur. Við getum hugsað
okkur vald þeirrar þjóðar eða
þjóða yfir okkur sem við værum
háð um dagleg kaup á þessum
vörum, sagði Fjölnir.
Hvað segirðu utn álögur á
bœndur nú?
- Bændur taka nú á sig byrðar
eins og launafólk almennt í land-
inu, en auk þess eru sauðfjár- og
nautgripabændur látnir greiða
niður verðbólguna beint úr eigin
vasa með fóðurbætisskattinum á
innflutt kjarnfóður. Þessi skattur
var settur upphaflega á fyrir
nokkrum árum til þess að draga
úr mjólkurframleiðslu, þá var
hann 200%. Menn hættu að gefa
fóðurbæti og mjólkin snarminnk-
aði, en vinnan var sú sama. Petta
þýddi lægra kaup til bóndans.
Svo þegar skatturinn var búin að
vera á í fjóra mánuði var hann
skyndilega lækkaður niður í
30%, því útlit var fyrir mjólkur-
skorti á höfuðborgarsvæðinu. Á
síðasta ári og í ár er skatturinn
svo notaður til að greiða niður
verð á áburði frá áburðarverks-
miðjunni.
Nú er skatturinn 70% og bænd-
ur verða að vega og meta hvort
þeir eru nógu vel stæðir til þess að
Bændakonur
Löngunin til starfa kannski
meiri en möguleikarnir
Fram til ca 1978 voru
bændakonur á lægra kaupi
en bændurnir þegar reiknað-
ur var verðlagsgrundvöllur
landþúnaöarafuröa og þeim
reiknaöar mun færri vinnu-
stundir við búið. Þetta hefur
nú breyst, og nú er bænda-
konum og bændum reiknað
sama kaup og ein heildartala
notuð yfir vinnuvikufjölda á
búi. Engu að síður fá bænda-
konur aðeins 2/3 hluta fæöin-
garorlofs sem byggist trúlega
á því aö konum var ekki
reiknað fullt starf á meðan
vinnustundafjöldi þænda og
bændakvenna var aö-
greindur, sagöi Þorbjörg Arn-
órsdóttir húsfreyja á Hala í
Suöursveit, þegar Þjóðviljinn
innti hana eftir stöðu bænda-
kvenna nú meö tilliti til
reiknaðra launa.
— Staða bændakvenna er ann-
ars nánast sú sama og húsmæðra
t.d. í tryggingarmálum, bætir
Þorbjörg við. I vetur var sam- (
þykkt á Alþingi ályktun, sem var
samhljóða ályktun stéttarsam-
bandsþings um að bændakonur
fengju sömu lífeyrisréttindi og
bændur úr lífeyrissjóði bænda.
Þetta var mjög stórt skref. Konur
upp til sveita vinna óhemjumikið
við búskapinn og það fer vaxandi
að þær taki þátt í útiverkum til ■
viðbótar við störfin innanbús.
Þorbjörg í fjósinu: Það er bindandi að sinna 26 kúm.
Versnandi afkomu-
möguleikar
Nú hafa afkomumöguleikarnir
versnað verulega vegna launa-
skerðinga ríkisstjórnarinnar.
Launaliður í verðlagsgrundvell-
inum hrapaði niður. Rekstrar-
vörur hafa hækkað, en verðlagið
ekki hækkað að sama skapi.
Skuldaaukningin sést hjá kaupfé-
laginu.
- Hvernig er þátttaka bœnda-
kvenna í félagsmálum?
- Þátttaka bændakvenna í fé-
lagsmálum bænda og almennum
sveitarstjórnarmálum er mjög
lítil og aðeins örfá ár síðan konur
fengu að sitja stéttarsambands-
þing bænda sem kjörnir fulltrúar.
- Hvað veldur þessu?
- Konurnar hafa mikið að
gera, þær eru þrælbundnar af
börnum og búi, hjónin komast
oft á tíðum ekki bæði að heiman
og þá er það hefðin að karlinn fer
frekar.
Konur vinna sveit
sinni vel í kven-
félögunum
Aftur á móti starfa konurnar
mikið í kvenfélögunum og vinna
sveit sinni vel hvað varðar vel-
ferðarmál ýmiss konar, sagði
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. september 1984