Þjóðviljinn - 31.10.1984, Side 1
MANNLÍF
MENNING
„Hðfum vift gert rétt?“ gætl Krlstján Thorlaclus verlð að hugaa um lelð og hann horflr efablöndnum augum á forlngja fjandaherslns, Albert Gu6-
mundsson. Á milli þelrra gle&jast Guðlaugur Þorvaldsson ríklssáttasemj arl og Elísabet Ólafsdóttir skrifstofustjóri yflr a& löng lota er gengin yflr. En
fjármálaráðherra gerlr sér engar sérstakar grillur um framtíðina einsog mátti sjá af lokaorðum hans: „Sjáumst í næsta verkfalli!" - Mynd - elk.
BSRB
Samningar!
20% meðalhœkkun launa. Engin ákvœði um vísitölutryggingu.
Eftir nær 35 klst. langan samn-
ingafund tókust samningar
milli BSRB og fjármálaráðuneyt-
isins á ellefta tímanum í gær-
kvöldi. Hinir nýju kjarasamning-
ar fela í sér að meðaltali 20%
hækkun heildar launa á samn-
ingstímanum en hækkunin er allt
upp í 23.4% á lægstu taxta.
Samningurinn eins og hann var
samþykktur kom á borð 60
manna samninganefndar BSRB
um 10 leytið í gærmorgun. Mjög
skiptar skoðanir voru innan
nefndarinnar, en í atkvæða-
greiðslu seint í gærkvöld sam-
þykktu 36 samninginn, 13 voru á
móti og 2 skiluðu auðum seðlum.
í samningunum er ekki um
neina vísitölu- eða kaupmáttar-
tryggingu launa að ræða en hins
vegar eru samningarnir upp-
segjanlegir 1. september. Önnur
helstu ákvæði samningsins eru
þau að frá 1. nóv. hækka laun um
10% samkvæmt nýrri launatöflu.
Fyrir september verða greiddar
2.500 kr. miðað við fullt starf.
Persónuuppbót kr. 4.000 greiðist
um miðjan nóvember. 1. des-
ember hækka öll mánaðarlaun
um 800 kr. og 1. maí á næsta ári
hækka allir starfsmenn um 1
launaflokk. Vaktaálag miðast við
15. lfl. 2. þrep. Þá er tryggð
minnst ein launaflokkahækkun
sem metin er á 3.5% í sérkjara-
samningum og að endurskoðun á
launakerfi rikisins verði lokið
fyrir 1. júní á næsta ári.
Samningaviðræður drógust
mjög á langinn í allan gærdag
meðan beðið var eftir yfirlýsingu
frá ríkisstjórninni um að engum
hefndaraðgerðum yrði beitt gegn
einstaklingum innan BSRB fyrir
þátttöku þeirra í verkfallinu.
Neitaði samninganefnd BSRB að
ræða tilboð samninganefndar rík-
isins frekar, fyrr en slík yfirlýsing
lægi fyrir. Eftir mikil fundahöld
stjórnarflokkanna, var ríkis-
stjórnin kölluð saman til skyndi-
fundar síðdegis og lá yfirlýsing
hennar ekki á borðinu fyrr en kl.
19.00. _lg.
Sjá bls. 2, 3 og 16
Samningafólk
Fyrstu
viðbrögð
Valger&ur Bjarna-
dóttir kennari:
„Ég er mjög óhress með þetta
samkomulag og það eru líka fé-
lagar mínir flestir í kennarastétt. “
Ævar Kjartansson
útvarpsma&ur:
„Þessi árangur er alls ekki í
samræmi við það átak og baráttu
sem launamcnn hafa sýnt í þess-
um geysihörðu þjóðfélagsá-
tökum. Baráttuþrekið var alls
ekki á enda, hið raunverulega
verkfall var rétt að byrja“.
Páll Gu&mundsson
skólastjóri:
„Ég hygg rétt að ekki hafi verið
hægt að komast lengra. Þetta
hafa verið mjög hörð átök en
samstaðan alveg frábær og gífur-
leg þátttaka kvenna markað
tímamót. Það á eftir að koma í
ljós síðar, að áhrifin af þessum
átökum hafa ekki bara orðið okk-
ar félagi til góðs heldur og allri
verkalýðshreyfingunni í heild.
Hún hefur eflst til muna og sýnt
að hún getur farið nýjar leiðir í
baráttunni.“
Ögmundur Jónasson
sjónvarpsfréttama&ur:
„Þetta verkfall sýnir að íslensk
verkalýðshreyfing er í sókn. Við
sýndum að sameinuð höfum við
mikið afl þótt við nýttum það
ekki til fulis í þetta skiptið. Prós-
entan var léleg en sigurinn var
samt sem áður okkar."
Albert Gu&mundsson
fjármálará&herra:
- Það kom mér á óvart hversu
vel skipulagt BSRB var og hve
vel því tókst að stjórna sínu fólki.
Það er umhugsunarvert út af fyrir
sig. Ég er hundóánægður en er
ekki þar með að segja að þið eigið
ekki fyllilega skilið það sem þið
hafið fengið og jafnvel meira, en
okkur eru takmörk sett. Ég fagna
því sérstaklega að þið fáið nú aft-
ur laun greidd en það var ekki
sársaukalaus ákvörðun sem ég
tók að greiða ekki út launin. Það
er líka ánægjulegt að einangrun
gamla fólksins skuli nú brotin á
bak aftur þegar fjölmiðlar taka
að nýju til starfa.
Forystan
Árangur samstöðunnar
Teljum uppsagnarákvœðið áhrifaríkara en vísitölutryggingu
segja Kristján Thorlacius og Haraldur Steinþórsson.
Sótttil
saka?
Eftir langt og strangt þóf í gær
gekkst ríkisstjórnin loks undir að
sækja ekki til saka einstaka með-
limi BSRB sem kynnu að hafa
gerst brotlegir við lög í tengslum
við verkfall BSRB.
Það er hins vegar alveg ótvírætt
af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar,
að BSRB eða einstök félög innan
þess njóta ekki sömu friðhelgi.
Því virðist sem málshöfðanir
vofi enn yfir BSRB, og má nefna
að Háskóli íslands hefur talið
sóma sínum best borgið með að
lögsækja útaf harðskeyttri verk-
fallsvörslu meðan á verkfallinu
stóð. - ÖS
Verkfall er ekki til að tapa því
heldur til að nota stöðuna
þegar hún er sterkust til að knýja
fram viðunandi samninga. Eg tel
að útkoman í atkvæðagreiðslunni
innan samninganefndarinnar gefl
allgóða vísbendingu um hug fé-
lagsmanna til þessara samninga,
sagði Kristján Thorlacius for-
maður BSRB í samtali við Þjóð-
viljann að lokinni undirskrift
samninga í gærkvöldi.
„Ég tel eftir atvikum þennan
samning viðunandi. Ég hefði kos-
ið að fá ýmsa liði betri en þeir eru.
Til dæmis þarf að taka upp sjálf-
virkari viðmiðun við verðlag
vegna þeirrar áráttu stjórnvalda
að kasta öllum hækkunum beint
út í verðlagið“, sagði Haraldur
Steinþórsson varaformaður
BSRB. „Menn skulu hins vegar
átta sig á því að eftir þetta verk-
fall þá felst mun meiri hótun um
nýja baráttu í þeirri útgönguleið
sem samið var um en nokkurt vís-
itölukerfi tryggir“, sagði Harald-
ur.
Kristján Thorlacius sagði að
ríkisstjórnin væri ábyrg fyrir því
hve samningar hefðu dregist á
langinn. „Stjórnvöld voru óvægin
og beittu mikilli hörku og það var
meiri harka í þessu verkfalli en
nokkru sinni hefur tíðkast hér-
lendis. Samstaðan í okkar röðum
hefur verið gífurleg allan tímann
og ég tel samtökin komi sterkari
og samstæðari út úr þessari bar-
áttu en nokkru sinni. Við höfum
lært að vinna saman og sú vinna
hefur borið árangur. Ég vil þakka
öllum okkar félögum og þá ekki
síst konunum innan okkar vé-
banda það gífurlega mikla starf
sem menn hafa lagt á sig jafnt
daga sem nætur undanfarnar vik-
ur“. _lg.