Þjóðviljinn - 31.10.1984, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. ^völdsími: 81348. Helgarsími: 81663.
UÚÐVIUINN
Miðvikudagur 31. október 1984 212. tðlublað 49. órgangur
Fjölmarglr opinberir starfsmenn „hertóku" húsnæði ríkissáttasemjara í gær til aö leggja áherslu á kröfurnar um að ekki yrði skrlfað
undir samningsdrögin sem lágu fyrir eftir rúmlega sólarhrings viðræður. Síðar um daginn var opið hús hjá BSRB þar sem sam
þykkt var áskorun um að fella samningsdrögin. Ljósm. eik
BSRB
MIKILL HITI
Hundruð manna samþykktu áskorun til 60 manna
nefndarinnar um að vísa samningsdrögunum á bug.
Gífurlegur tilfinningahiti var á
fjöldafundum sem opinberir
starfsmenn efndu til víða í gær-
dag í Reykjavík til að ræða drög
að kjarasamningi við ríkisvaldið.
Stemningin var nánast ólýsanleg
á 400 manna fundi sem haldinn
var í húsakynnum BSRB þar sem.
áskorun til sextíu manna samn-
inganefndar samtakanna um að
vísa samningsdrögunum á bug,
var samþykkt einróma. Bullandi
meirihluti var líka fyrir áskorun-
inni víðar á fundum, á fjöl-
mennum fundi útvarps- og sjón-
varpsmanna var hún einnig sam-
þykkt einróma og 300 manna
fundur í kennaraathvarfinu við
Skúlatún samþykkti hana með
einungis fjórum mótatkvæðum.
Fyrr um daginn fjölmenntu
kennarar í Karphúsið, aðsetur
sáttasemjara, og afhentu Guðm-
undi Árnasyni, einum fulltrúa
sinna í sextíu manna nefndinni,
áskorun um að samþykkja ekki
drögin.
Andófið gegn drögunum var
spunnið af þrennum toga: menn
virtust allir á því máli að kjaratr-
yggingarákvæðið væri fráleitt
nógu sterkt og því næsta auðvelt
fyrir ríkisstjórnina að taka kjara-
bæturnar aftur skjótlega eftir
samþykkt. Jafnframt töldu menn
prósentuhækkanirnar ekki nóg-
ar, en mestur tilfinningahiti
spannst þó útaf mögulegum máls-
höfðunum útaf aðgerðum í ver-
kfallinu og var þar mest talað um
talsímakonurnar á ísafirði.
Ályktunin sem fundimir sam-
þykktu skoruðu sem fyrr segir á
sextíu manna nefndina að vísa
samningsdrögunum á bug. Nið-
urlag ályktunarinnar var svo-
hljóðandi:
,Jsamstaðan hefur aldrei verið
víðtækari. Áhrif verkfallsins
aldrei sterkari. Við viljum kjara-
bætur sem endast og höfum næg-
an styrk til að knýja þær fram.
Stöndum áfram saman“.
Eftir undirskrift samningsins í
gær klukkan 22.15 var skoðun
manna eigi að síður sú að samn-
ingarnir yrðu samþykktir.
-ÖS
Kauprán
Gengisfelling í
byssuhlaupinu
Ríkisstjórnin staðráðin í að hrifsa aftur kauphœkkanir
úr samningunum með gengislœkkunum
Ríkisstjórnin er þegar farin á stúfana til að hrifsa til áform um að fella gengið þegar að afloknum samn-
sín þann ávinning sem heildarsamtök launafólks hafa ■ ingum um a.m.k. 5% og jafnframt ákveðið að fella
samið um. Þannig fréttist úr herbúðum ríkisstjórnar- gengið fljótlega aftur eftir áramót. Af sömu ástæðum
innar í gær, að þegar hefði verið reiknað út „hvað hefur ríkisstjórnin staðið þvert í vegi fyrir samkomu-
þyrfti mikla gengislækkun“ til að ná af launafólki lagi um kauptryggingu af einhverjum toga eins og
væntanlegum kauphækkunum. verklýðssamtökin gera kröfu um.
Samkvæmt heimildum Þjóðviljans voru uppi -óg
ASÍ/VSÍ
Hættur
r
i
stöðunni
Bjartsýni manna
frá ífyrrinótt
hefur dofnað
í gærmorgun slitnaði uppúr
viðræðum fulltrúa ASÍ og VSÍ í
,JVýja Karphúsinu“ við Garða-
stræti, en þá höfðu menn setið á
fundi í nær 16 klukkustundir.
Snemma í fyrrinótt ríkti all-mikil
bjartsýni hjá samningamönnum
um að samningar kynnu að takast
þá um nóttina en nú hefur sú
bjartsýni dofnað nokkuð.
„Ég þori engu að spá um fund-
inn á morgun, en tel að eins og nú
stendur, séu hættur í stöðunni",
sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður Verkamannasam-
bandsins í samtali við Þjóðviljann
í gær, en nýr samningafundur
hefur verið boðaður í dag kl. 14, í
gær var enginn fundur haldinn.
Guðmundur sagði að það færi
ekki á milli mála að hringl Stein-
gríms Hermannssonar fram og
aftur með skattamálin, og ótíma-
bærar yfirlýsingar hans sem yfir-
leitt stönguðust á, hefðu stórlega
spillt fyrir allri samningagerð í
þeim kjaradeilum, sem nú standa
yfir.
Ástæðurnar fyrir því að fundi
var slitið hjá ASÍ/VSÍ í gærmorg-
un væru fleiri en ein. Sú veiga-
mesta er sú, hvernig halda eigi
uppi kaupmætti, sem miðaður
væri við síðasta ársfjórðung 1983.
Þá hefði einnig verið ágreiningur
um uppsagnarákvæði samnings-
ins.
„Málið er á afar viðkvæmu
stigi, en þó alls ekki komið í
hnút,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson.
-S.dór.
Blaðamenn
Greiðsla
„undir
borðið“
Blaðamenn héldu félagsfund á
laugardag á Hóte! Loftleiðum og
samþykktu þar samning sinn við
útgefendur frá föstudegi, með
öllum greiddum atkvæðum gegn
tveimur. Auk þeirra kjarabóta
sem þegar hefur verið getið um í
Þjóðviijanum munu blaðamenn
fá sérstaka greiðslu nú um mán-
aðamótin, 2500 krónur. Ekkert
var fest á blað um þessa greiðslu
og munu útgefendur hafa sett það
skilyrði að ekki yrði frá henni
skýrt á opinberum vettvangi.
Jón Daníelsson, einn samning-
anefndarmanna blaðamanna,
staðfesti þetta í samtali við Þjóð-
viljann í gær. Jón skrifaði ekki
undir samninginn einn nefndar-
manna. „Ég skrifaði ekki undir
vegna þess að ég hef þá skoðun
að það sem samið er um eigi að
standa í samningum" sagði Jón
Daníelsson. „Svona greiðslur
undir borðið eru ekki siðferði-
lega samboðnar neinu stéttarfé-
lagi, og kannski allra síst Blaða-
mannafélaginu.“ -m