Þjóðviljinn - 03.11.1984, Síða 1

Þjóðviljinn - 03.11.1984, Síða 1
SUNNUDAGS- BLAÐIÐ MENNING Álverið Hættuleg mengun Hreinsibúnaður hefur ekki dregið úr mengun starfsumhverfis í álverinu. Ragnar Halldórsson forstjóri segir í svarbréfi við fyrirspurnum Þjóðviljans að mœlingar séu ekki marktœkar Ekki hefur dregið úr ryk- og flúórmengun í álverinu í Straumsvík frá því hreinsibúnað- ur var tekinn í notkun 1982. Stór- ir hópar starfsmanna vinna dag- lega í umhverfi þar sem rykmeng- un er langt yfir hættumörkum og samkvæmt niðurstöðum mælinga hefur orðið marktæk aukning á flúóríðmagni í þvagi starfsmanna frá því mælingar voru gerðar fyrir uppsetningu hreinsibúnað- arins. Þetta kemur fram í skýrslu Vinnueftirlits ríkisins, sem gefin var út fyrir tæpu ári og að sögn Víðis Kristjánssonar deildar- stjóra Vinnueftirlitsins er ekkert sem bendir til þess að dregið hafi úr rykmengun svo nokkru nemi frá því að mælingar Vinnueftir- litsins voru gerðar í október og nóvember í fyrra. í svari Ragnars Halldórssonar og Peters Ellenberger við fyrir- spum Þjóðviljans kemur fram að stjórn álversins lét gera mælingar á síðastliðnu vori sem sýndu að meðaltali sömu niðurstöður og mælingar Vinnueftirlitsins. Engu að síður fullyrða þeir í svarbréfi að niðurstöður Vinnueftirlitsins séu ekki marktækar, og að dregið hafi úr rykmengun. Þjóðviljinn hefur hins vegar frétt að ekki hafi verið talin ástæða til þess að gera reglubundna haustmælingu á rykmengun í álverinu í ár, þar sem engar þær breytingar hefðu átt sér stað sem gæfu til kynna að breytingar hefðu orðið til batnað- ar. í skýrslu Vinnueftirlitsins segir að nauðsynlegt sé að veru- legar úrbætur verði gerðar sem fyrst til að draga úr mengun og tryggja að lokun kerja skili þeim árangri sem að var stefnt og unnt er að ná samkvæmt reynslu frá öðmm verksmiðjum. Segir í skýrslunni að Vinnueftirlitinu hafi árlega borist 1-3 tilkynningar frá læknum um meinta atvinnu- Lögreglan lokaði aðkeyrslunni að Bessastöðum meðan leitað var að hugsanlegri sprengju við forsetasetriö. Mynd-Atli. Bessastaðir Nafnlaus sprengju hótun Fullorðin maður tilkynntium sprengju áforsetasetrinu í gœr Ekkert grunsamlegt fannst eftir mikla leit r Igær barst lögreglunni í Hafn- arfirði tilkynning í gegnum sima um að búið væri að koma fyrir sprengju á forsetasetrmu á Bessastöðum og myndi hún springa innan tíðar. Fjölmennt lið lögreglu fór á staðinn en þrátt fyrir víðtæka leit fannst ekkert grunsamlegt. Er talið að um gabbhótun hafi verið að ræða. Það var um eittleytið í gær að fullorðinn maður hringdi til lög- reglunnar og sagði að kl. 2 myndi springa sprengja á Bessastöðum. Fór fjölmennt lið lögreglu, sjúkralið og slökkvilið auk sprengjusérfræðinga þegar að forsetasetrinu en þar hafði verið síns getið í Þjóðviljann og til- gær að hér væri um alvarlegt mál fjölmenn móttaka í hádeginu. kynnti að lögreglan væri að leita að ræða og lögreglan reyndi að Skömmu áður en sprengjan að sprengju á Bessastöðum. hafa upp á hvaðan hringt hafi ver- átti að springa hringdi fullorðinn Steingrímur Atlason yfirlög- ið. maður sem ekki vildi láta nafns regluþjónn í Hafnarfirði sagði í -Ig. Bæjarstarfsmenn Samið á Selfjamamesi Samningar tókust um fimm- Lengi vel stóð á því að samninga- unum óbreyttum. leytið í gær í deilu bæjar- nefnd bæjarins vildi ekki hækkun Þarmeð er búið að senya við starfsmanna á Seltjarnarnesi. um launaflokk eftir þriggja ára alla bæjarstarfsmenn á landinu. Samningarnir eru samhljóíía starfsaldur, til allra, en gekk að _m Reykjavíkursamningunum. lokum að höfuðborgarsamning- sjúkdóma hjá ísal. Ennfremur segir að mengun sé meiri hjá ísal en í sambærilegum norskum ál- verum, og búa t.d. starfsmenn á þrískiptum vöktum og þeir sem sjá um viðhald og viðgerðir við rykmengun sem er að meðaltali 75% yfir hættumörkum. ólg. Verkfallskœrur Rektor við sinn keip Málshöfðunin sjálfaldrei lögð fyrir Háskólaráð Yflrstjórn Háskólans hefur ekki dregið til baka kæru sína gegn BSRB vegna verkfallsvörslu við skólann fyrstu daga verkfalls opinberra starfsmanaa. í kær- unni er krafist 300 þúsund króna skaðabóta frá BSRB. Háskólaráð samþykkti á sínum tíma að fá úr- skurð dómstóla um réttmæti verikfallsvörslu, en máishöfðunin sjálf hefur ekki verið lögð fyrir ráðið og óvíst að ráðsliðum hafi verið Ijóst að krefjast átti umtals- verðra fjármuna úr sjóðum BSRB. Guðmundur Magnússon Háskólarektor sagði Þjóðviljan- um í gær að engar hugmyndir væru uppi um að draga kæru Há- skólans til baka. Fyrst og fremst væri verið að fá úr því skorið hvort forstöðumenn megi leyfa umgengni um stofnanir sínar þótt húsverðir séu í verkfalli. Fjár- hæðin sem krafist er, 300.000 krónur, er „aukaatriði“ að sögn rektors. Háskólaráð samþykkti á sínum tíma samhljóða að leita til dóm- stóla vegna þessa. Ólína Þorvarð- ardóttir, einn fulltrúa stúdenta í ráðinu, sagði í gær að málshöfðun- in eins og hún liggur fyrir hefði hinsvegar aldrei verið lögð fyrir ráðið. Sér hefði sjálfri aldrei dott- ið í hug aö höfðað yrði skaðabót- amál með þeim fjárkröfum sem nú eru uppi. Borgardómur gaf BSRB frest til næsta þriðjudags til að skila greinargerð í máhnu. -m

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.