Þjóðviljinn - 03.11.1984, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 03.11.1984, Blaðsíða 9
MENNING Þjóðleikhúsið: Listmunahúsið Ymis röskun af völdum verkfalls Verkfall opinbera starfsmanna hefur haft ýmsa röskun í för með sér fyrir Þjóðleikhúsið en Gísli Alfreðsson þjóðleikhússtjóri sagði í samtali að leikhúsið héldi samt sínu striki með spennandi verkefnaskrá og hefði ekki glatað bjartsýninni. Helstu breytingar eru þær að þremur verkefnum sem áttu að vera á dagskrá núna í haust verð- ur frestað fram yfir áramót. Þau eru Gæjar og píur sem tekið verð- ur upp í janúar, Kardimommu- bærinn sem sýndur verður í febrúar og ballett. Söngleikurinn Chicago verður fluttur yfir á næsta leikár en að öðru leyti helst dagskráin. Fyrsta sýning á Milli skinns og hörunds eftir Ölaf Hauk Símonarson eftir verkfall verður nk. föstudag og frumsýn- ing á Skugga-Sveini verður vænt- anlega 17. nóv. Þá verður jóla- sýning á Ríkharði III eftir Shak- espeare og kom leikstjórinn, John Burgess frá breska Þjóð- leikhúsinu til landsins í gær, mán- uði á eftir áætlun. Þá verður tekið upp breskt gamanleikrit sem nefnist Run for your Wife sem sýnt verður á miðnætursýningum. Rashomon verður frumsýnt í endaðan janú- ar, íslandsklukkan á 35 ára af- mæli Þjóðleikhússins 20. apríl og ballettinn Dafnes og Cloé í maí. -GFr Nýtt íslenskt leikrit Nýtt íslenskt leikrit lítur dagsins liams (1883-1963) og Esra Pound Ijós n.k. föstudag. Það heitir (1885-1972), og sérstætt vináttu- Skjaldbakan kemst þangað líka samband þeirra. Þettavorugagn- eftir Áma Ibsen. Egg-leikhúsið ólíkir menn í skáldsap sínum og sýnir verkið í Nýlistasafninu og pólitískum viðhorfum og er eru leikendur tveir, þeir Viðar stuðst við bréfaskriftir þeirra og Eggertsson og Amór Benónýs- verk þó að leikritið í heild sé son. Höfundur er leikstjóri. ímyndun höfundar. Nánar verð- Leikritiði fjallar um banda- ur sagt frá leikritinu í næstu viku. rísku skáldin William Carlos Wil- -GFr Ein fimm mynda í möppunni er eftir Kjartan Guðjónsson. íslensk Grafík Grafíkmappan komin út Grafíkmappa félagsins íslensk grafík er komin út. Hún verður til sýnis og sölu laugardaginn 3. nóv- ember og sunnudaginn 4. nóvem- ber í Gallerí Borg við Austurvöll. Forkaupsréttshafar geta sótt möppuna í Gallerí Borg þessa daga frá klukkan 16-18. Upplagið er 50 eintök og verð möppunnar 7.500 krónur. I hverri möppu eru fimm myndir. Listamennimir sem að þessu sinni eiga verk í grafíkmöppunni eru Ásdís Sigurþórsdóttir, Jónína Lára Einarsdóttir, Kjartan Guð- jónsson, Margrét Zóphanías- dóttir og Vignir Jóhannsson. Myndimar eru unnar í sáldþrykk, tréristu og dúkristu. Þetta er í fjórða sinn sem ís- lensk grafík gefur út grafík- möppu og hafa fyrri möppur ætíð selst upp. Eftir næstu helgi verð- ur hægt að nálgast möppuna í Galleri Borg, þar til hún er upp- seld. Vísnavinir Fyrsta vísnakvöldið Fyrsta vísnakvöld Vísnavina verður haldið að Hótel Borg þriðjudaginn 6. nóv. kl. 20.30. Ólína Gunnlaugsdóttir frá Ökrum Snæfellsnesi syngur og leikur á gítar. Þóra Jónsdóttir flytur frumort ljóð og söngflokk- urinn Hálft í hvoru kemur fram, en þetta er þriðja árið, sem þeir koma fram á nóvemberkvöldi Vfsnavina. Fleiri atriði verða á dagskránni og fólki er velkomið að koma og flytja efni, sem það hefur fram að færa. Vísnavinir vinna nú að fullum krafti að undirbúningi norræns vísnamóts, sem haldið verður hér á landi næsta sumar. Þá er von á fjölda norræna vísnasöngvara. Mótið hefur hlotið nafnið „Vís- Iand 85“. Nánar verður tilkynnt um það síðar. Laugardagur 3. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Collage- myndir Ómars Skúlasonar í dag kl. 14.00 opnar Ómar Skúlason málverkasýningu í Listmunahúsinu, Lækjargötu 2. Á sýningunni eru collage- myndir frá 1976 en aðaiuppistaða sýningarinnar eru tvær mynda- raðir unnar á árinu 1984. Við myndgerðina er notuð blönduð tækni, svo sem málun, þrykk og klipp. Einnig verður á sýningunni ein mynd eftir Egil Eðvarðsson, kvikmyndagerðarmann og ein önnur mynd sem þeir hafa unnið saman ásamt Erni Þorsteinssyni, myndlistarmanni. Ómar er fæddur 1949. Hann stundaði nám við Myndlista- og Handíðaskóla íslands og útskrif- 1 aðist árið 1971. Þetta er önnur einkasýning hans en 1978 hélt hann sýningu á Kjarvalsstöðum. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga frá kl. 10.00- 18.00, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00-18.00. Lokað mánu- daga. Woð ItíktiDíxlq Útboösskilmálar, sem eru hliöstæöir þeim sem gilt hafa í fyrri útboðum, liggja frammi ásamt tilboöseyöublaöi í afgreiðslu Seölabankans, en þeir eru helstir: 1. Gert sé tilboð í lágmark 5 víxla hvern aö fjárhæð kr. 50.000.- þ.e. nafnverö kr. 250.000.-, eða heilt margfeldi af því. 2. Tilboðstrygging er kr. 10.000.- 3. Útgáfudagur víxlanna er 9. þ.m. og gjalddagi 8. febrúar 1985. 4. Ríkisvíxlarnir eru stimpilfrjálsir og án þóknunar. 5. Um skattlega meðferð þeirra gilda sömu reglur og hverju sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum. Ríkisvíxlar eru ein hagkvæmasta skammtímaávöxtun sem völ er á. Meðaltals ársávöxtun í undangengnum útboðum hefur verið sem hér segir: Júlíútboð 25,6% ágústútboð 25,8% septemberútboð 27,8% októberútboð 27.7% Skilafrestur tilboða er til kl. 14:00 miðvikudaginn 7. nóvember 1984. Tilboöum sé skilað til lánadeildar Seölabanka íslands Hafnarstræti 10, Reykjavík fyrir þann tíma. Reykjavík 3. nóvember 1984. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS Ómar við eitt verka sinna. Ljósm.:Atl

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.