Þjóðviljinn - 03.11.1984, Blaðsíða 11
MENNiNG
Alþýðuleikhúsið
Beisk
tár
Pelru
von
Kant
Alþýðuleikhúsið er nú að
hefja vetrarstarfið af fullum
krafti og á sunnudag verður
frumsýnt fyrsta verkef ni
starfsársins. Það er leikritið
Beisk tár Petru von Kant eftir
Rainer Werner Fassbinder í
þýðingu Böðvars Guðmunds-
sonar. Þetta er eitt af magn-
aðri verkum snillingsins, var
samið fyrir leiksvið árið 1971
og svo kvikmyndað af honum
ári seinna. Leikstjóri er Sigrún
Valbergsdóttir.
Undirritaður átti þess kost að
sjá æfingu á verkinu í vikunni á
Kj arvalsstöðum, en þar hefur Al-
þýðuleikhúsið fengið inni með
þessa sýningu og getur vitnað um
að þetta er þrælmögnuð sýning, -
mjög vel leikin og verkið sjálft
gott. Konur eru í öllum hlutverk-
um en þó mun höfundur þarna
vera að fjalla um eigið líf og Petra
von Kant er staðgengill hans.
Leikritið snýst um vanda manns-
ins í nútímaþjóðfélagi, samskipti
ólíkra kynslóða og ólíkra sjónar-
miða og kynhverfu. Leikritið er
átakamikil ástarsaga og fjallar
um sjálfstæðisbaráttu einstakl-
ings sem er kona í þessu tilfelli.
Tónlist við Beisk tár Petru von
Kant er eftir Lárus Grímsson og
leikmynd eftir Guðrúnu Erlu
Geirsdóttur. PetruvonKant
leikur María Sigurðardóttir, Val-
erie von Kant, móður hennar
leikur Kristín Anna Þórarins-
dóttir og Gabrielu, dóttur hennar
VilborgHalldórsdóttir. Sfdonie,
vinkonu hennar leikur Edda V.
Guðmundsdóttir, Marlene,
þjónustustúlku hennar Guðbjörg
Thoroddsen og Karin, ástkonu
hennar Erla B. Skúladóttir. Sú
síðastnefnda er nýkomin frá námi
f París og mun þetta vera hennar
fyrsta stóra hlutverk í leikhúsi
hér.
Þess skal að lokum getið að
styrkur fékkst úr þýðingarsjóði til
þýðingar á þessu verki.
-GFr
Laugardagur 3. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11