Þjóðviljinn - 03.11.1984, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.11.1984, Blaðsíða 3
FRETTIR Gengisfellingar Kaupmenn ætla að mata krókinn Fara sér hægt með að leysa út úr tolli og frysta inni á lager Kaupmenn hyggjast nú mata krókinn vegna ótvíræðna yfirlýs- inga forystumanna stjórnarflokk- anna og annarra ráðamanna stjórnarinnar um yfirvofandi gengisfellingar. Talið er fullvíst að gengið verði fellt núna næstu daga um 5% minnst og síðan aftur jafnvel strax um næstu mánaðamót um 10%. Kaupmenn eiga mikið af vörum í tolli eftir nýafstaðin verkföll og margir þeirra ætla samkvæmt heimildum Pjóðvilj- ans að fara hægt í sakirnar með að leysa þær út þar til gengisfellingin er yfirstaðin og þeir geta þá bætt henni ofaná álagninguna. Einnig hefur blaðið fregnað að lítið sé tekið út af lagerum í fjölmörgum verslunum, því allir eru að bíða eftir útspili stjómarinnar í geng- ismálum. Borgarstjórn: Grænu svæði breytt í Fiskiþing á mánudag Þing Fiskiféiags ísiands hefst nk. mánudag kl. 14.00 í húsi Fisk- ifélags íslands. Að vanda liggja mörg mál fyrir Fiskiþingi, en stærsta máiið verður án vafa fisk- veiðistefna næsta ár. Á mánudag- inn mun sjávarútvegsráðherra ávarpa þingið og Jakob Jakobs- son forstjóri Hafrannsóknastofn- unarinnar mun flytja skýrsiu stofnunarinnar. Þingið stendur í fimm daga, en það sitja sem kunnugt er fulltrúar frá öllu landinu. Sjávarafurðir FJölmörg mál llggja fyrlr Klrkjuþingl. Þar hofur m.a. komlð fram að Innhelmtumenn ríklssjóðs fá hœstu þóknun sem um getur fyrlr að Innhelmta kirkju- og kirkjugarðsgjöld. Ljós. elk. lnnheimta Okrað á kirkjunni? Er œtlunin að reisa versl- anir á horni Sigúns og Kringlumýrarbrautar? Á horni Sigtúns og Kringlu- mýrarbrautar hefur um 14 ára skeið verið frátekin stór lóð fyrir HeUsuræktina í Reykjavík án þess að nokkuð hafi verið byggt á henni en þetta svæði er merkt sem grænt svæði skv. aðalskipulagi enda tengist starfsemi Heilsu- ræktarinnar útivist og hollustu. Nú gerðist það nýlega að augiýst var breytt landnotkun á þessum reit þannig að framvegis verður hann merktur á aðalskipulagi sem miðbæjarsvæði. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vakti máls á þessu á borgar- stjórnarfundi á fimmtudagskvöld og bað skýringar á þessari breytingu. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson formaður skipulags- nefndar kvað engin áform um að þama kæmi stórmarkaður eða verslanir en gat að öðm leyti litlar skýringar gefið á breytingunni. Hingað til hefur það verið yfir- lýst stefna borgarinnar að allt svæðið milli Sigtúns og Suður- landsbrautar og Kringlumýrar- brautar og Reykjavegs væri í meginatriðum ætlað til útivistar eða starfsemi tengdrar henni þanig að þarna er um stefnu- breytingu að ræða sem þó hvorki hefur verið lögð fyrir borgarráð eða umhverfismálaráð borgar- innar. Bæði Sólrún og Adda Bára Sigfúsdóttir létu í ljós ótta um að þama væri eitthvað graggugt á ferðinni sem e.t.v. kynni að gjör- breyta hinni friðsömu ásýnd íbú- agötunnar Sigtúns. Sólrún flutti um það tillögu á fundinum að reitnum yrði aftur breytt í grænt svæði en tillaga hennar fékk að- eins 8 atkvæði og náði því ekki fram að eanga. - GFr Kirkjan gæti ráðið 15 - 20 manns til nauðsynlegra þjón- ustustarfa fyrir það fé, sem hún ofborgar innheimtumönnum rík- issjóðs fyrir innheimtu kirkju- gjalda og kirkjugarðsgjalda, sagði Halldór Finnsson frá Grundarfirði á Kirkjuþingi því, sem nú stendur yflr. Samkvæmt lögum fá inn- heimtumenn ríkisins 6% fyrir að innheimta þessi gjöld. Mun það hæsta innheimtuprósenta, sem nefnd er í nokkmm lögum hér- lendis. Um síðustu áramót fékk dómprófasturinn í Reykjavík því framgengt að fjármálaráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík samþykktu að Gjaldheimtan í Reykjavík tæki 1% innheimtu- Fiskveiðasjóður: Þeir sem klóra í bakkann fá tækifæri Sem kunnugt er verður togar- inn Óskar Magnússon AK boðinn upp í næstu viku og er aðal kröfu- hafinn Fiskveiðasjóður. Þjóðviljinn hafði samband við Má Elísson forstjóra Fiskveiða- sjóðs og spurði hvort ekki muni fleiri skip lenda undir hamrinum, þar sem vitað er að meiri skuldir hvfla á öðmm skipum en Óskari Magnússyni. Már Elísson sagði að erfitt væri að segja til um það. Þær skuld- breytingar sem átt hefðu sér stað hjá útgerðinni hjálpuðu mörg- um. Aðrir ættu eldri og skuldlaus skip sem hjálpuðu til að borga af nýju skipunum og líka fisk- vinnslustöðvar sem að baki stæðu. Þeir sem klóra í bakkann og vilja reyna, fá að halda áfram. Eigendur Öskars Magnússonar vildu það ekki, heldur gáfust upp og því varð að setja skipið á upp- boð, sagði Már Elísson. — S.dór þóknun fyrir innheimtu kirkju- garðsgjalda, og tekur það gildi um næstu áramót. Hefur þar með fengist staðfesting á því, að 1% séu eðlileg innheimtulaun. Þessi 5%, sem þannig má telja að séu ofgreidd, svara til tvö- faldrar þeirrar upphæðar, sem veitt er til kirkjustjómar, og þre- faldrar þeirrar upphæðar, sem fer til starfsjóðs kirkjunnar, sagði Halldór Finnsson. í frumvarpi því um breytingu á lögum um kirkjugarða,sem nú liggur fyrir Kirkjuþingi og flutt er af Kirkjuráði, er innheimtu- mönnum ríkissjóðs og sveitar- sjóða gert skylt að annast inn- heimtu kirkjugarðsgjalda gegn 1% þóknun, og skulu skil vera gerð ársfjórðungslega. -mhg Flutt út fyrir 11 miljarða Heiidarútflutningur sjávaraf- urða fyrstu 8 mánuði þessa árs nam 345.849 tonnum að verð- mæti 10.7 mfljarðar króna. Á sama tíma í fyrra voru fluttar út 220.020 lestir að verðmæti 7.9 mfljarðar króna. Samkvæmt útflutningsskýrsl- um Hagstofunnar nam verðmæti alls útflutnings landsmanna fyrstu átta mánuði yfirstandandi árs 14.7 miljörðum króna. Miðað við heildarverðmætið nam hlut- fall sjávarafurða 73%, en var 70.8% á sama tíma í fyrra. - S.dór sugardagur 3. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Kvikmyndir Kúrekar norðursins Frumsýning Islensku kvikmyndasamsteypunnar í dag: Hallbjörn, Johnny King, kálfasnörun, dans og gleði Idag verður frumsýnd í Regn- boganum í Rcykjavík heimðd- arkvikmynd Islcnsku kvik- myndasamsteypunnar hf. um kántríhátíðina í vUlta vestrinu á Skagaströnd í sumar. Heiðurs- gestur er að sjálfsögðu hinn söngglaði kúreki Hallbjöm Hjartarson sem á heiður allan af hátíðinni. „Þetta er fyrst og fremst dans- og söngvamynd“, sögðu tveir fjögurra kvikmyndajöfra í fyrir- tækinu í spjalli við Þjóðviljann, „gleðimynd sem fylgir atburðum hátíðarinnar. Fjör og dans og kálfasnörun, tónlist, reið- mennska og gleðskapur, fléttað saman af alkunnri snilld klippar- ans, Sigurður Snæbergs Jóns- sonar.“ Friðrik Þór Friðriksson er fremstur meðal jafningja í kvik- myndasamsteypunni og hafði stjórn á hendi við gerð myndar- innar. Framleiðendur eru hann og Sigurður klippari en Einar Bergmundur Ambjömsson og Gunnlaugur Þór Pálsson kvik- mynduðu. Einar og Gunnlaugur hafa orðið: „Hallbjörn er maður myndar- innar, en það má ekki gleyma söngvumnum Johnny KÍng, fyrsta íslenska nautabananum, og Sigga Helga. Þaraðauki hljómsveitimar Týról frá Sauðár- króki og Gautar frá Siglufirði“. Hvað? Af hverju? Hvemig? Hvers vegna? „Þetta er stórmerkilegt fram- tak hjá Hallbirni.Að standa uppá afturlappirnar og leika kúreka við þessar vinsældir norður á hjara veraldar, - stórmerkilegt. Og skemmtileg tilbreyting í litrófi tónlistariimar. Þetta var vel sagt hjá mér. Ekki má heldur gleyma því sem hann hefur gert fyrir Skagaströnd, - að koma bænum á íslandskortið. Það var líka merkilegt að taka myndina. Aldrei unnið svona mikið, aldrei sofið svona mikið, aldrei skemmt sér svona mikið og aldrei étið jafnmarga kántríborg- ara með andalúsíusósu“. íslenska kvikmyndasam- steypan er með í takinu tvær myndir aðrar. Næsta mynd er langt komin, en „innihaldið er soldið trúnaðarmál, þetta verður sérstök mynd, víðföml um landið. íslensk náttúra í aðalhlut- verki. Hvorki leikin mynd né heimildarmynd“. Þriðja myndin er heimildar- mynd um annan söngvara, Bubba nokkurn Morthens, og verður vonandi frumsýnd í febrú- ar. í tengslum við fmmsýningu í Kúrekum norðursins verður hjúkólfur mikill á morgun, sunn- udag, við Tommaborgara á Grensásvegi. Hallbjöm syngur með hljómsveitinni Týról og ým- islegt annað gerist til skemmtunar gestum og gang- andi. Hljómplata með tónlist úr Kúrekunum er væntanleg í næstu viku. Lesið annars viðtal við aðal- stjörnu nýju kvikmyndarinnar í sunnudagsblaðinu. - m

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.