Þjóðviljinn - 03.11.1984, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 03.11.1984, Qupperneq 16
LISTIR V \ I I ÞoNA FALLA Ssai? inn ElNNlff DeAVA, SAVA... klSU HRYLLTÍ Vit) LEIWM JÓHANNS BRVTA . BAIZAC VAR FRANskU/e RITHÖFUNDUR# HANN PÓ ÚR krAFRElTRUN. Það er leikur að lœra Þaö er ævagömul árátta að skipa listum á bása eftir virð- ingastöðu. Hér á landi og víðar er bókmenntum skipað ofarannarri andlegri iðju og þærtaldarlistgrein ísérflokki. Þetta gerir vart við sig í máli manna.s.s. þegartalaðerum „listirog bókmenntir" (Artand Litterature; Kunst og litteratur; Art et litterature o.s.frv.), líkt og bókmenntir séu eitthvað annað og meira en aðrar listir. Það getur verið að bókmenntir séu merkilegri en aðrar listir. Þær eru orðsins list og fást við tung- umálið, tæki mannlegrar hugsun- ar og samskipta. „f upphafi var orðið“ segir einhvers staðar og sýnir það vel hvem hug menn bera til orðsins lista, einkum til sinna eigin bókmennta. Því er reynt að hlúa sem best að afurð- um tungumálsins og þeim gert hátt undir höfði í menntakerfinu. Spartanska og rómantík En hvernig er hlúð að þessu dýrmeti í íslensku skólakerfi og hver er árangurinn? Nóg virðist vera rýnt og blínt í hina miklu bókmenntaarfleifð okkar og skólafólk innbyrðir kynstrin öll af skáldskap liðinna alda. En hverj- ar eru aðferðirnar og hvert er markmiðið? Ég gat þess á öðrum stað að aðferðir sem tíðkuðust í bókmenntakennslu í mínu ung- dæmi hefðu gengið út á hugsana- lausan utanbókarlærdóm. Eg hef sönnur fyrir því að þessar aðferð- ir hafi lítið breyst, nema þá e.t.v. á allra síðustu árum. Eitt er víst að hrakandi mál- kennd meðal íslendinga má rekja beint til þessarar úreltu og íhalds- sömu utanbókarfræðslu sem hvorki tók mið af breyttum þjóð- félagsháttum né vaxandi kröfum um vitræna kennsluhætti. Og nú virðist það keppikefli stjómvalda að treysta sem best fúnar stoðir þessa íhaldssama fyrirkomulags í þeirri von að enn vélrænni í- troðsla valdi stökkbreytingum í heilabúi skólafólks. Annað einkenni þessa spart- anska fyrirkomulags var fólgið í rómantískri firringu og hræðslu við nútímann. Móðurmáls- kennslan (þar með talin kennsla í bókmenntum) átti jafnan erfitt með að ná í skottið á tuttugustu öldinni. Sem dæmi má nefna að á 7. tug þeirrar aldar var Davíð frá Fagraskógi enn álitinn of „revol- úsjóner“ til að vert þætti að bera hann óritskoðaðan á borð fýrir almenna þolendur skólakerfis- ins. Halldór Laxness var ekki nefndur á nafn fyrr en á mennta- skólastigi og Steinn Steinarr var alls staðar látinn liggja milli hluta. Ásamt Jóhanni Jónssyni og öðrum „skemmdaveríca- mönnum“, var hann þagaður í hel innan veggja skólanna. Ef- laust á það sinn þátt í almennum vinsældum hans utan þeirra sömu veggja, að ekki tókst að spilla áhuga nemenda á honum. Útverðir menntunar Það er deginum ljósara að öll skáld sem reyndu að laga tung- umálið að breyttum tímum, voru bannfærð eða ritskoðuð af in- quisitorum menntakerfisins. HALLDÓR B. RUNÓLFSSOf Hefði það ekki verið fyrir atbeina kennaranna sjálfra, sem stundum sáu sér fært að bregða út af kennsluskránni, hefðu enn fleiri nemendur staðið uppi andlega vankaðir að námi loknu. Kennar- ar sem sýnt hafa fagi sínu alúð hafa sannað æ ofan í æ ágæti sitt sem hinir eiginlegu útverðir menntunar, meðan kerfið sjálft hefur annað hvort trénast eða opnað faðminn fyrir afsiðun af lágkúrulegasta tagi. Þegar þetta er skrifað er verið að svelta uppi þessa ágætu menn um leið og óþarfa kontóristum er bætt við yfirbygginguna, til að „spara“ út- gjöld eins og það heitir á máli þeirra sem stunda hugtakarugl- ing. Þótt það virðist í fljótu bragði langsótt, þá er mjög upp- lýsandi að glugga í sögu Spænska rannsóknarréttarins til að sjá hvert stefnir í íslenskum menntamálum. Að kunna mannganginn En hvað kemur þetta listum við? Jú, það sýnir sig að hinar vélrænu ítroðsluaðferðir sem til skamms tíma voru notaðar við ís- lenska móðurmálskennslu, eyði- lögðu ekki einvörðungu tilfinn- ingu heilla kynslóða fyrir tung- unni og furðum hennar, heldur og fyrir listum almennt. Þegar fólk rekur í rogastans frammi fyrir nýstárlegri bók- mennt eða listaverki af öðru tagi, þýðir það ekki að viðkomandi verk sé of flókið og tormelt eða aðnjótandinn of heimskur og skilningssljór. Ástæðan fyrir skilningsleysinu er einfaldlega menntunarskortur; skortur á þeim hugmyndafræðilegu lyklum sem ganga að listaverkinu eða bókmenntinni. Það er ekkert sem bendir til þess að listir eða bókmenntir séu ofar skilningi hins venjulega manns, fremur en skáklistin, svo dæmi séu tekin af hugaríþrótt sem nýtur almennra vinsælda hér 1 á landi. En rétt eins og í skák þurfa menn að kunna „mann- ganginn“ í listum, m.ö.o. vita út á hvað leikreglumar ganga. En það nægir ekki að kunna leikreglurnar án þess að leggja rækt við leikinn. Ef aftur er tekið dæmi úr skáklistinni, þá vita flest- ir að leikir stórmeistara liggja ekki alltaf í augum uppi. Til að skilja þá þarf skýringar, jafnvel þótt manngangurinn sé ávallt sá sami. Heimsins bestu skákmenn þurfa hjálparkokka til að leysa úr sumum flækjum skáklistarinnar. Svipuðu máli gegnir um Ustir og bókmenntir. Munurinn er sá að þar þurfa menn ekki að leggja stund á leikinn öðmvísi en sem aðnjótendur, þótt ekkert mæli því á mót að menn iðki listir eða skáldskap af einhverju tagi. Slflct skerpir í flestum tilfellum skiin- ing manna á fyrirbærinu. En eng- inn getur krafist þess að skilja listir eða bókmenntir í einu vet- vangi, síst af öllu sá sem litla eða enga rækt hefur lagt við að kynna sér leikreglur þeirra. Menntakerfinu ber skylda til þess að kenna undirstöður þess- ara leikreglna með sömu alúð og lögð er við kennslu leikreglna á öðrum sviðum mannlegrar þekk- ingar. Allt þvaður um lítið hag- nýtt gildi slíkrar menntunr verður síðar vísað til föðurhúsanna, til glöggvunar þeim sem ekki heyra þegar tómahljóðið í slíkum rök- um. Opið í dag til kl. 4 í öllum deildum /A A A A A A *• Jón Loftsson hf. ______________ Hringbraut 121 Sími 10600 L C3 L Q l'C3 E3lJ uaaQQjS -UUUiJTrpj; uiiííiiiiuuuui tiin)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.