Þjóðviljinn - 09.11.1984, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 09.11.1984, Qupperneq 10
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýöubandalagið í Reykjavík Muniö gíróseðlana fyrir fyrsta hluta flokks- og félagsgjalda ársins 1984 Stjóm Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur þá sem enn hafa ekki gert skil á fyrsta hluta flokks- og félagsgjalda ársins að gera það nú um þessi mánaðamót. Verum öll minnug þess að starf ABR byggist á því að fólagsmenn (allir) standi í skilum með fólagsgjöldin. Allir samtaka nú. - Stjórn ABR. AB-Keflavík Aðalfundur Aðalfundur félagsins í Keflavík verður haldinn þriðjudaginn 13. nóvember kl. 20.30 í húsi Stangveiðifélagsins Suðurgötu 2. Dag- skrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Önnur mál. Inntaka nýrra félaga. Stjórnin Alþýðubandalagið Hafnarfirði Aðalfundur bæjarmálaráðs Aðalfundur Bæjarmálaráðs ABH verður haldinn í Skálanum Strandgötu 41, mánudaginn 12. nóv. kl. 20.30. Áríðandi er að allir fulltrúar í ráðinu og nefndarmenn flokksins mæti. Félagsmenn eru minntir á að fundir bæjarmálaráðs eru öllum opnir. Stjórnin AB Héraðsmanna: Almennur félagsfundur verður haldinn í húsi Slysavarnarfélagsins föstudaginn 9. nóvem- ber kl. 20.30. (Ekki fimmtudagskvöld eins og áður hefur verið auglýst). Dagskrá: 1) Kosning á flokksráðsfund. 2) Forvalsreglur kynntar. 3) Sveinn Jónsson kemur á fundinn og segir fréttir frá Alþingi. 4) Önnur mál. - Stjórnin. Félagsmálanámskeið - Kópavogi N.k. mánudagskvöld kl. 20.00 verður haldinn rabbfundur um fundarsköp og fleira. - Hópurinn. Skólamálahópur AB Næsti fundur skólamálahópsins verður haldinn fimmtudaginn 15. nóvember n.k. kl. 20.30 að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Umræðuefni: Stefnumótun AB í málefnum framhaldsskólans. Framhaldsumræða. Hópurinn er opinn öllu áhugafólki um skóla- og menntamál. - Stýrihópurinn. Tilboð óskast Tilboö óskast í eftirtalin tæki og bifreiðar: I.H.C. Traktorsgrafa3500 árgerð 1977 Malarflutningsvagnar (2 stk.) LS110 38 Saab 900 T urbo T25 A.M.C. Eagle 4 W/D Suzuki Fox SJ 410 (tjónabíll) Ford P/U XLT F150 4x4 Chevrolet Sport Van 30 (8 farþ.) Ford Fairmont Dodge Weapon Carrier M-37 Tækin og bifreiðarnarverðatil sýnis að Grensásvegi 9 milli kl. 12-15 þriðjudaginn 13. nóvember. Sala Varnariiðseigna 1971 1982 1980 1983 1978 1979 1978 1962 MEINATÆKNAR Sjúkrahúsið á Húsavík óskar að ráða meinatækni nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar um starfið veitir meinatæknir í síma 96- 41333 eða framkvæmdastjóri í síma 96-41433. Sjúkrahúsið á Húsavík s.f. Hafrannsóknastofnunin Laus er til umsóknar staða rannsóknarmanns hjá Hafrannsóknastofnun. Umsóknir sem tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist stofnuninni fyrir 15. nóv. Hafrannsóknastofnunin Skúlagötu 4, 101 Reykjavík Aðalfundur Prentsmiðju Þjóðviljans h.f. verður haldinn miðviku- daginn 21. nóv. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Vinnuslys Uttekt á íssniglum Vinnueftirlitið hvetur til árvekni | frétt frá Vinnueftirlitlinu vegna slyssins í ísklefa Hraðfrysti- stöðvarinnar í Reykjavík fyrir mánuði kemur fram að Vinnueft- irlitið hefur nú leitað eftir sam- vinnu við frystihúsaeigendur um úttekt á slysum við íssnigla og leiðir til að koma í veg fyrir þau. Eins og Þjóðviljinn hefur skýrt frá missti Brynjar Valdimarsson, 16 ára Reykvíkingur, vinstri fót fyrir um mánuði þegar hann var að troða ís í snigil í ísklefanum. í tilefni frétta um þetta mál óskar Vinnueftirlitið að koma þessu á framfæri: Hvers konar sniglar, sem not- aðir eru til að flytja ís, mjöl eða annað, eru varhugaverðir og krefjast öryggisbúnaðar sem tryggir að þeir sem við þá vinna geti ekki stigið niður í þá eða lent í þeim með handlegg eða fingur. Þeim þarf að loka með plötu eða grind sem er nægilega þétt og sterk til að ekki sé hægt að koma fæti milli rimlanna. Vinnueftirliti ríkisins er kunnugt um 7 slys við íssnigla á árunum 1972-1979 en umrætt slys er það eina sem kunnugt er um síðustu fimm árin. Við íssnigla í ísklefum frysti- húsa myndast hætta einkum af tveimur ástæðum: 1. Rimlar í hlífðargrind hafa skekkst eða losnað. Þetta ger- ist einkum þegar verið er að losa íshellu eða ísköggla sem myndast þegar ís stendur óhreyfður um skeið. 2. Hlífðarrist hefur verið fjar- lægð. Þetta gerist einkum þeg- ar verið er að auðvelda það að koma ís niður í snigil. í ísklefum af því tagi, sem áður- nefnt slys varð í, er örðugt að koma við öruggu eftirliti með ör- yggisbúnaði vegna þess að ís- sniglar geta verið á kafi í ís þegar eftirlit fer fram. Af þeim sökum er ástæða til að hvetja starfs- menn, verkstjóra, öryggistrúnað- armenn og öryggisverði til sér- stakrar árvekni í sambandi við aðstæður á slíkum vinnustöðum - koma á innra eftirliti með því að hlífar séu í lagi og séu ekki fjar- lægðar. í nýjustu gerð ísklefa þurfa starfsmenn ekki að vinna nálægt sniglum og þar er slysahætta hverfandi. Æskilegt er að öllum ísklefum verði komið í það horf. í tilefni af slysinu í Hraðfrysti- stöð Reykjavíkur og öðrum slys- um, sem hafa orðið við íssnigla, hyggst Vinnueftirlit ríkisins leita leiða til að koma í veg fyrir að þau endurtaki sig. í því skyni hefur verið leitað eftir samvinnu við samtök frystihúsaeigenda. Að út- tekt lokinni verða gerðar tillögur um öruggt fyrirkomulag við þessi störf og áhersla lögð á að nauðsynlegar framkvæmdir drag- ist ekki. Kvenréttindafélagið Landsfundi frestað Stjórn Kvenréttindafélags ís- lands hefur ákveðið að fresta 16. landsfundi félagsins, sem halda átti 16.-17. nóvember n.k. I Reykjavík. KRFÍ er þverpólitískt félag sem vinnur að jafnrétti kvenna og karla og stofnað var árið 1907. Stjóm félagsins vill taka tillit til þess að þrír stjómmálaflokkar halda fundi í Reykjavík umrædda nóvemberdaga, og ákvað því að fresta landsfundi félagsins fram til 15.-16. mars á næsta ári. Við- fangsefni landsfundar verður eftir sem áður áhrif örtölvutækn- innar á stöðu kvenna og karla. Þá hefur verið ákveðið að halda aðalfund í tengslum við landsfundinn og gefa féiags- mönnum utan af landi, sem sækja landsfund, kost á að sækja aðal- fund líka. HEIMUR í SPÉSPEGLI ELLI u'Fey»aie © 1984 McNaught Synd.. Inc. Mér þykir það leitt, ungfrú Jóna, en ríkisstjómin samþykkir ekki „hvíta lygi". BRIDGE Bridgespilið Hér er dæmi: er margslungið. xxx K7 ÁKIOxxxx x G10x 65432 Dx xxx xxx Dg98 Gx G10xx ÁKDx Á10 ÁKDxx Fyrir misskilning voru N/S að spila 6 HJÖRTU? Og það furðulega er að engin leið er að hnekkja þeim samning, nema með trompi út. Þú átt 8 hlið- arslagi, kóngur og sjöa í hjarta sjá um níunda og tíunda slaginn þeg- ar þú spilar fjórða laufinu þínu og ás og tía í hjarta sjá um ellefta og tólfta slaginn. Ath. SKAK Það er ekki oft sem hin rómant- ísku brögð sjást nú á dögum. Þau heyra fortíðinni til. Oft er þó gam- an að líta á skákir tefldar undir slíkum bragarhættl. Þessi staða kom upp eftir leikjaröðina: 1. e4 e5 2. d4 exd4 3. c3 dxc3 4. Bc4 cxb2 5. Bxb2 Dg5 6. Rf3! Dxg2 7. Bxf7! Kd8 8. Hg1 Bb4+ 9. Rc3 Dh3 10. Hg3 Dh6 11. Db3 Bxc3 12. Dxc3 Rf6. Nú lók hvítur 13. Hg6I! og svartur gafst upp! Eftir 13. - Df4 kemur 14. Hxf6 og 13. - hxg6 dugar skammt vegna 14. Dxf6+ og mátar. & % % 1 cV MI.NMNi; AltSJÓDUK ISLENZKIf AH \ I. I ■ S 1 > 11 SIGFUS SIGURHJARTARSON Minningarkortin eru tilsölu á eftirtöldurn stöðum: Bókabúð Máls og menningar Skrifstofu Alþýðubandalagsins Skrifstofu Þjóðviljans Munið söfnunarátak í Sigfúsarsjóð vegna flokksmiðstöðvar Alþýðubandalagsins trffft Tt' . . ..... VINIMUN/ELAR eru óæskilegar á akbrautum, sérstaklega á álagstímum i umferöinni. I sveitum er umferö dráttar- véla hluti daglegra starfa og ber vegfarendum að taka tillit til þess. Engu aö síöur eiga bændur aö takmarka slíkan akstur þegar umferð er mest, og sjá til þess að vélarnarséu í lögmætu ástandi, s.s. með glitmerki og ökuljós þegar ryk er á vegum, dimmviöri eöa myrkur. -«ixf IFEROAR- 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 9. nóvember 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.