Þjóðviljinn - 17.11.1984, Page 1
SUNNUDAGS-
BLAÐIÐ
MENNING
Þór Vestmannaeyjum í 1. deildarkynningu í handknattleik - Sjá bls. 6
vsí
Albert á alla sökina
Magnús Gunnarsson framkvœmdastjóri VSÍ: Albert kœfði skattalœkkunina.
Harkanvar ríkisstjórninni að kenna. Óstjórn í peningamálum.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands, hélt ræðu
í gær á aðalfundi Samtaka físk-
vinnslustöðva, og ræddi um ný-
gerða kjarasamninga og aðdrag-
anda þeirra. Hann rakti gang
móla frá því að kjarasamningarn-
ir voru gerðir í febrúar sl. og
sagði að það sem hefði farið úr-
skeiðis eftir þá, sem varð til þess
Ríkisstjórnin ber ábyrgð á verðbólgunni
að til hörku kom nú í haust, hafí
verið ríkisstjórninni að kenna þar
sem hún hafði ekki stjórn á pen-
ingamálunum.
Þá sagði Magnús að vel hefði
miðað í viðraeðum VSÍ og ASÍ í
sumar þar til BSRB hefði „ruðst
eins og skrímsli fram á völlinn“
með 40% kröfur og sett allt úr
skorðum.
Magnús sagðist samt sannfærð-
ur um að hægt hefði verið að fara
skattalækkunarleiðina, en það
mál hafi Albert Guðmundsson
eyðilagt og bæri hann því ásamt
ríkisstjórninni auðvitað alla
ábyrgð á þeim verðbólgusamn-
ingum sem nú væri búið að gera.
„Albert var allan tímann á
móti skattalækkunarleiðinni
innan ríkisstjórnarinnar og síðan
fór hann, á mjög viðkvæmu
augnabliki í umræðum um þá
leið, til forystumanna BSRB og
gerði við þá þennan verðbólgu-
samning og okkur hinum var stillt
upp við vegg og við gátum ekki
annað úr því sem komið var en
gert samskonar samninga, sagði
Magnús.
- S.dór
Sjá bls. 3
Gengisfelling
Kemur
mér
ekki við
Albertvísar á
Steingrím og
MatthíasA.
Ráðherrar tvísaga um
lœkkun vaxta.
„Forsætisráðher ra og ráð-
herra bankamála verða að segja
til um gengisbreytingar og vexti.
Það er ekki i verkahring fjár-
málaráðherra að ákveða þá
hluti“, sagði Albert Guðmunds-
son við Þjóðviljann í gær áður en
hann hélt inn á ríkisstjórnarfund
sem hófst kl. 14.00 í stjórnar-
ráðinu. Matthías Á. Mathiesen
viðskipta- og bankamálaráð-
herra sem kom á hæla Alberts á
fundinn sagði um ummæli sam-
ráðherra sína og flokksbróður:
„Það er í verkahring ríkisstjórn-
arinnar allrar að ákveða gengi.
Vaxtalækkun hefur hins vegar
ekki verið til umtals í stjórninni.“
Ekki var Alexander Stefáns-
son sama sinnis og Matthías því
hann sagði við Þjóðviljann að
vextir væru til umræðu hjá stjórn-
inni og Sverrir Hermannsson
sagði: „Ég vil engu spá um lækk-
un vaxta en þeir eru með í dæm-
inu.“
Ekki var að heyra á ráðherrun-
um að samkomulag tækist innan
stjórnarinnar nú um helgina. „Ég
þori ekkert að segja en ég vona
að þetta fari að styttast“, sagði
Ragnhildur Helgadóttir en Geir
Hallgrímsson var bjartsýnni og
sagði að menn væru nú að ná
landi. „Það hefur ekkert tafíð
fyrir okkur“, sagði Matthías Á.
Mathiesen, „heldur hafa menn
viljað skoða hlutina vandlega
áður en ákvarðanir verða tekn-
ar.“
Síðustu fréttir herma að gjald-
eyrisdeildum bankanna verði
lokað á mánudagsmorgun. Þá er
búist við að fyrsti hluti áformaðr-
ar gengisfellingar verði tilkynnt-
ur, en talið er að alls verði gengið
fellt um 25% út næsta ár. -íg.
í gær hófst flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins í höfuðstöðvum flokksins að Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Mikill hugur
var í mönnum og spunnust fjörugar umræður að lokinni ræðu Svavars Gestssonar formanns flokksins.
Flokksráðsfundurinn
Samstarf vinstri manna
í næstu kosningum?
Svavar Gestsson varpar fram hugmynd um samstarf
stjórnarandstöðuaflanna í nœstu sveitarstjórna kosningum
Ef ríkisstjórnin situr út kjör-
tímabilið, verða sveitastjórn-
arkosningar næstu allsherjar-
kosningar í landinu. Eg tel að
kanna eigi alls staðar í öllum
bæjarstjórnum þarsem tök eru á
því hvernig þeir flokkar sem nú
eru í stjórnarandstöðu geta starf-
að saman í sveitarstjórnunum
bæði að undirbúningi kosning-
anna og í kosningunum sjálfum,
sagði Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins í setningar-
ræðu sinni á flokksráðsfundinum
í gærkvöldi.
„Ég fer fram á það við flokks-
ráðsfundinn að hann ræði þessa
hugmynd sérstaklega og taki
ákvörðun um hvernig unnið skuli
að þessum málum“.
Svavar vitnaði til landhelgis-
stríðsins árið 1971 þegar stjórnar-
andstaðan kom sér saman um
heildarstefnu sem varð forsenda
ríkisstjórnarmyndunar á sama
ári.
Svavar gerði grein fyrir hug-
myndum Alþýðubandalagsins
um að tryggja kaupmátt kjara-
samninga án aukinnar verð-
bólgu. Sagði hann frá frumvarpi
sem Alþýðubandalagið flytur á
alþingi með víðtækum efna-
hagsráðstöfunum í þessu skyni.
Góð stemmning ríkti á fundin-
um þarsem töluvert á annað
hundrað manns hvaðanæva af
landinu eru fulltrúar. Eftir ræðu
Svavars var skipað í nefndir, flutt
ræða gjaldkera, Margrétar Frím-
annsdóttir og síðan voru al-
mennar umræður.
-óg