Þjóðviljinn - 17.11.1984, Síða 2
FRETTIR
Akureyri
Skák
Verslunarmenn felldu
Ný samninganefnd kjörin í félaginu. Verkfallsheimildar aflað
Eg átti satt að segja ekki von
á því að samkomulagið yrði
fellt. Af viðtölum mínum við
verslunarfólk á Akureyri á fjöl-
mörgum vinnustaðafundum
þótti mér Ijóst að það væri ekki
tilbúið í aðgerðir til að knýja
fram betri samninga og því
lagði ég til að okkar samningur
yrði staðfestur á félagsfundi,
sagði Jóna Steinbergsdóttir
formaður Félags verslunar-
manna og skrifstofufólks á Ak-
ureyri, en í fyrrakvöld voru ný-
gerðir kjarasamningar þar
felldir.
Á fundinum greiddu 48 at-
kvæði gegn samningum, 32 voru
með en 7 skiluðu auðu. Kosin var
ný samninganefnd sem kom sam-
an til fyrsta fundar í gærkvöldi til
að móta nýja kröfugerð. Þá mun
samninganefndin hitta stjórn fé-
lagsins að máli í dag og síðan
verður gengið til formlegra við-
ræðna.
„Á félagsfundinum í gær var
verkfallsheimildar aflað fyrir
stjórn og fulltrúaráð félagsins og
geta þær stofnanir boðað til verk-
falls með viku fyrirvara ef þeim
þykir ástæða til. Fólk er eðlilega
óánægt með launaliði samning-
anna enda tíðkast engar bónus-
greiðslur og litlar yfirborganir í
okkar félagi", sagði Jóna
Steinbergsdóttir í samtali við
Þjóðviljann.
- v.
TORGIB
Fótbolti
Nú vantar ekkert nema krat-
arnir og kommarnir fái sér i
eina feita friðarpípu eftir allt
sameiningarrövlið!
Bein útsending í dag
Watford - Sheffield W.: fyrsti beini leikurinn afmörg-
um i vetur
Idag hefjast sjónvarpssend-
ingar þegar klukkuna vantar
fimmtán mínútur í tvö. Þá birt-
ist Bjarni Fel á skjánum, og tíu
mínútum síðar hefst leikur
Watford og Sheffíeld Wednes-
day í fyrstu deild ensku knatt-
spyrnunnar, í beinni útsend-
ingu.
Þessi veisla heldur áfram í vet-
ur og er fyrir að þakka samstarfi
norrænu sjónvarpsstöðvanna.
Eftir hálfan mánuð, 1. desember,
sjáum við Sheffield-liðið aftur, á
Goodison Park í Liverpool,
heimavelli besta knattspyrnuliðs
breta, Everton. Og 15. des. á
leikur Newcastle og Norwich að
vera á dagskrá.
Bjarni Felixson sagði okkur að
eftir áramót yrði haldið áfram, 5.
janúar sýndur toppleikur úr 3.
umferð í bikarnum og síðan
nokkurnveginn á hálfsmánaðar
fresti. í vor verða svo sýndir úr-
slitaleikir í tveimur Evrópu-
keppnanna.
Bjarni sagði að Norðurlanda-
menn hefðu yfirleitt úr tveimur til
þremur leikjum að velja í hvert
sinn frá Englandi.
Fyrir leikinn í dag borgar sjón-
varpið um 64 þúsund krónur, þar
af fara tveir þriðju til Pósts og
síma. Auglýsingar í leikhléi hafa
hingað til náð vel uppí kostnað.
Watford, lið rokkarans Eltons
Johns, er nú í þriðja neðsta sæti í
ensku deildinni. Það hefur hins-
vegar skorað fleiri mörk en liðið í
fyrsta sæti. Sheffield-liðið er í
fimmta sæti í deildinni fyrir leiki
dagsins.
Bœkur
10 -15% verðhækkun
Meðalbækur á jólamarkaðn-
um í ár munu kosta á bilinu
6-800 krónur en meðalbarna-
bækur um 400 kr. Þetta mun
þýða um 10-15% hækkun frá
því i fyrra. Þetta kom fram á
blaðamannafundi hjá Félagi
ísl. bókaútgefenda í vikunni.
Samdráttur í bókaútgáfunni er
töluverður og verða að öllum lík-
indum gefnir út 350-400 titlar í ár
miðað við 500 titla í fyrra. Bóka-
útgefendur voru þó sammála um
að ekki yrði samdráttur í svoköll-
uðum betri bókum heldur kæmi
hann fyrst og fremst niður á
reyfurum. Þess skal að lokum
getið að félagið hefur samið við
Kaupþing í Reykjavík um að gera
kannanir í desember á söluhæstu
bókunum. _ GFr
Jafntefli
Skák þeirra Karpovs og
Kasparovs endaði eins og fyrri
daginn með jafntefli, og var
skákin bæði stutt og leiðinleg
að mínu mati. Þeir tefidu af-
brigði af Enska leiknum, en
vildu ekki feta í fótspor þeirra
Denkers og Rabars, en þeir
tefldu afbrigði þessarar byrj-
unar í útvarpskeppni árið
1950, að mig minnir. Skákin sú
var bæði fjörugri og skemmti-
legri, en endaði að vísu með
tapi Rabars, og finnst mér að
mál sé til komið að fá að sjá
eina tapskák í einvígi þeirra
snillinga, er nú eigast við um
titilinn hver sé bestur. En
látum þetta gott heita og snú-
um okkur að skákinni.
Hvítt: Kasparov
Svart: Karpov
1. Rf3 Rf6
2. c4 c5
3. Rc3 Rce6
4. d4 cxd4
5. Rxd4 e6
6. g3 Db6
7. Rb3 d5
8. cxd4 Rxd5
9. Bg2 Rxc3
10. bxc2 Be7
11. 0-0 0-0
12. Be3 Dc7
13. Rd4 Hd8
14. Da4 Bd7
15. Rxc6 Bxc6
16. Bxc6 bxc6
17. c4 jafntefli
SÓ
Leigubílar
Heldur leyfinu
Ráðuneytisúrskurður eftir helgi um hvort
BSR-bílstjórinn má taka túra fyrir Steindór.
Varð að skila talstöðinni.
Bjarni Pálmarsson leigubíl-
stjóri fékk í gær aftur öku-
leyfið sem hann var sviptur í
fyrradag. Bjarni ekur hjá BSR
en hefur í vikutíma tekið túra
sem bílstjórar hjá Steindóri
geta ekki sinnt, og varð það til
þess að úthlutunarnefnd öku-
leyfa boðaði hann á fund sinn.
Bjarni gat ekki mætt þegar
nefndin vildi og í fyrradag
klukkan fimm var hann sviptur
ökuleyfinu um stundarsakir.
Bjarni heldur því fram að hann
sé í fullum rétti og vitnar f
reglugerð. „Þetta er fáránleg
vitleysa" sagði Bjarni um
leyfissviptinguna og taldi
mannasiði úthlutunarnefndar
heldur bágborna.
í gærdag voru þeir Bjarni og
Ármann Magnússon úthlutun-
arnendarformaður á fundi í sam-
gönguráðuneyti. Var þar ákveðið
að Bjami fengi leyfiö aftur og
ráðuneytið úrskurðaði um rétt
hans til að taka við verkefnum frá
Steindórsstöðinni.
Steindórsstöðin hefur nú bfla
en að áliti stöðvarstjóra, Sigurðar
Sigurjónssonar, þarf uppundir
fimmtíu til að geta rekið stöðina
svo vel sé. Steindórsmenn báðu
j>ví Bjarna og annan BSR-mann
til að hafa talstöð í bflum sínum til
að létta undir, og voru þeir Bjarni
valdir meðal annars vegna þess
að þeir gefa farþegum kost á
greiðslu með krítarkortum eins
og Steindórsbflstjórar.
Bjarni og Sigurður segja báðir
að þetta sé ekki hægt að túlka
sem „afgreiðslu“ frá stöðinni, en í
reglugerð um leigubfla stendur
að bflstjóri geti fengið afgreiðslu
hjá hvaða stöð sem er, en flutn-
ingur milli stöðva er óheimill án
leyfis.
Talstöðinni sem Bjarni fékk
hjá Steindóri varð hann að skila
þangað aftur þartil dómur fellur.
- m
Leigubílar
Of margir?
Fœrri íbúar um bíl í Reykjavík en í nágrannalöndum. Formaður stéttarfélagsins:
Fœrri bíla og betra skipulag. Stöðvarstjóri Steindórs: Reglurnar notaðar til að
viðhalda forréttindum
Ahöfuðborgarsvæðinu
(Reykjavík, Kópavogur,
Seltjarnarnes) eru 559 leigubíl-
ar. Það þýðir 188 íbúa á leigu-
bíl; þetta hlutfall er miklu
lægra hér en í grannlöndum. Á
Stokkhólmssvæðinu eru um
1000 íbúar á leigubíl, í Kaup-
mannahöfn tæplega 500, í
Osló rúmlega 400. „Hér eru
alltof margir bílar“, sagði Guð-
mundur Valdimarsson for-
maður Frama, stéttarfélags
leigubifreiðastjóra, í samtali
við blaðið.
Guðmundur sagði að í reglu-
gerð væri miðað við 250 íbúa á
bfl, sem jafngildir um 420 bflum,
139 bflum færri en nú eru. í síð-
asta mánuði var úthlutað 33
leyfum, vegna þrýstings frá ráð-
herra, þar af 10 til Steindórs.
Guðmundur taldi rétt að stefna í
hina áttina, að fækka bflum, og
skipuleggja bflaflotann jafnframt
betur, með vaktaskiptum, þannig
að nægir bflar séu á götunum þeg-
ar álagið er mest um helgar.
Sigurður Sigurjónsson Stein-
dórsstöðvarstjóri var fráleitt á
sama máli. Hann segir tölur Guð-
mundar miðaðar við að leigu-
bflstjórarnir séu allir með fulla
starfsorku og keyri allan daginn.
„Það eru ekkert of margir leigu-
bflar hér. Það hlýtur að vera ein-
hver ástæða fyrir því að 110
manns eru að sækja um að kom-
ast inní stéttina". Sigurður vill af-
nema reglugerðina og þarmeð
persónulegt leyfi til leiguaksturs
og koma á í greininni sama ást-
andi og hjá sendibflstjórum sem
ekki búa við hámarksfjölda.
„Þessar takmarkanir eru ekki
notaðar til að verja atvinnuna“,
segir Sigurður „heldur til að við-
halda forréttindum ákveðins sér-
hagsmunahóps“ og þykir í
Ieiðinni furðulegt að úthlutunar-
nefnd skyldi ákveða að veita
þremur leyfum meira en ráðherra
hafði fyrirskipað við síðustu út-
hlutun, „til að einn úr nefndinni
fengi sitt leyfi".
- m
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. nóvember 1984